Dagblaðið - 24.07.1979, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979.
Bílasalan Ske'ifan, Skeifunni 11
Símar 84848 og 35035
Efnalaugin Grímsbæ
Kona óskast, helzt vön pressun, frá kl. 2—6. Upplýsingar í
síma 75626 eftir kl. 7 eða á miðvikudag frá kl. 9—12 á
staðnum.
Fatahreinsunin Grímsbæ
Efstalandi 26 - Sími85480
SÁLFRÆÐINGUR
Ráðuneytið óskar eftir að ráða sálfræðing til
starfa við fangelsin. Starfstími og starfshlutfall
eftir samkomulagi. Umsóknir með upplýsingum
um námsferil og fyrri störf sendist fyrir 1. ágúst.
Dóms- og kirkjumálarófluneytið,
19. júli 1979.
Safnstarf
Dagblaðið óskar að ráða starfsmann í mynda-
safn. Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 30. júlí merkt
„Safnstarf’.
^ Panasonic
bíttækin uppseid
Nœsta sending íflugi.
RADÍÖÞJÖNUSTA BJARNA
Síðumúla. Aðalumboð: Rafborg sf.
Verzlunarfyrirtæki
BYGGINGARVÖRUR
Óskað er eftir tilboðum í verzlunarfyrir-
tæki með innflutning, heildsölu og smá-
sölu.
Mjög góð viðskiptasambönd og ákjósanleg
rekstraraðstaða, þ.á m. tollvörugeymsla og
telex.
Umsetning er yfir 100 m. kr. og til greina
kemur sala á meirihluta í fyrirtækinu við
hagstæðum kjörum, gegn viðunandi trygg-
ingu.
Tilboð sendist Dagblaðinu fyrir 15. ágúst
nk. merkt „Viðskipti 1979”.
3MEBIADID
Washington:
Birgdir ofskynj-
unariyfja gætu
lamað heiminn
—Bandaríkjastjóm á tífaldan slíkan skammt segir í
skýrslu samtaka óbreyttra borgara
Bandarísk hernaðaryfirvöld nafa
komið sér upp fimmtíu tonnum af of-
skynjunarlyfjum sem mundu, ef þau
væru notuð, gera alla íbúa heimsins
bjargarlausa. í tilkynningu um þessi
mál segir að birgðir þessara efna séu
svo miklar að slíkt mætti gera tíu
sinnum. Tilkynningin er gefin út af
bandarískum samtökum sem nefna
sig samtök bandarískra borgara til
baráttu fyrir heiðarleika í stjórnsýslu.
Segja forsvarsmenn samtakanna
að þeir hafi komizt yfir skýrslu hern-
aðaraðila sem upplýsi að efni sem
valdi ofskynjunum og nefnt sé HZ sé
geymt í miklu magni í Pine Bluff i
Arkansas.
Sagt er að efnið HZ geti lamað alla
íbúa jarðarinnar í nokkra daga og í
Arkansas sé efni sem nægi til að
framkvæma slíka lömun tíu sinnum
um allan heim.
Talsmenn bandarískra hernaðar-
yfirvalda hafa viðurkennt að könnun
hafi farið fram á þvi í fyrra hvernig
megi á auðveldastan og öruggastan
hátt losna við HZofskynjunarefnið.
Samtök þeirra sem telja sig berjast
fyrir heiðarleika í stjórnsýslu Banda-
ríkjanna segja að á árunum 1963 til
1975 hafi meir en tvö þúsund banda-
rískir hermann verið látnir prófa of-
skynjunarlyfið óafvitandi. Sagt er að
HZ hafi í för með sér mörgum sinn-
um meiri ofskynjanir en hið um-
talaðaefni LSD.
Viðurkennt eraf hernaðaryfirvöld-
um að efnið hafi verið reynt á þrjátíu
og sex aðilum með þeirra vitund á ár-
unum 1960 til 1960.
10.000 dollara fyr-
ir Skylab leifamar
Skylab, geimskip Bandaríkjamanna,
lenti í Indlandshafi og að nokkru
leyti á landi í vesturhluta Ástralíu.
Dagblaðið San Francisco Examiner
og kannski fleiri lofaði hverjum þeim
er fyrstur kæmi með leifar úr geim-
skipinu á ritstjórn blaðsins (íu
þúsund dollurum. Ástralíumaðurinn
Stan Thornton, sá í miðið, lét ekki á
sér standa og í pokanum sem blaða-
maðurinn til hægri heldur á, eru
svartar agnir sem Thornton heldur
fram að séu úr Skylab. Ekki vitum
við hvað konan til vinstri er að gera
með hjálminn nema að hann eigi að
vera (il hlifðar fyrir geislavirkni af
hlutum geimskipsins. í baksýn er stór
mynd af ávisuninni sem Thornton á
að fá reynist fengur hans úr Skylab.
Bandaríkin:
Ofsagróði Exxon
sex mánuði 1979
Exxon, stærsta alþjóðlega olíu-
fyrirtækið, tilkynnti í gær að hagn-
aður þess á fyrri helmingi þessa árs
mundi nema 1,8 milljörðum dollara.
Er það nærri 30% meiri hagnaður
heldur en á sama tíma í fyrra. Sterkur
orðrómur hefur verið um það að or-
sakir mjög hækkaðs olíuverðs á
undanförnum mánuðum hafi verið
meðal annars vegna mjög aukins
hagnaðar alþjóðlegra olíufélaga.
Talsmenn Exxon segja þó að hagn-
aður á síðari þrem mánuðum fyrra
árshelmingsins hafi ekki náð þvi að
verða jafnmikill og á sama tíma í
fyrra. Hafi upplýsingar Jimmy
Carters Bandaríkjaforseta til dæmis
ekki verið með öllu réttar þegar hann
reyndi að rökstyðja nauðsyn þess að
hækka skatta á oliufyrirtækjum til
að standa undir ýmsum nauðsynleg-
um aðgerðum til orkusparnaðar.
Talsmenn Exxon benda einnig á að
tæplega 800 milljónir dollarar af hin-
um 1,8 milljarða dollara hagnaði í ár
stafi af öðru en beinni olíusölu. Sér
þar aðallega um að ræða ýmsar rann-
sóknir sem framkvæmdar hafi verið
bæði við Malasíu og í Norðursjón-
um.
Annað stórt olíufélag í eigu banda-
rískra og alþjóðlegra aðila, Standard
Oil í Indianaríki, tilkynnti að hagn-
aður þess hefði numið 750 milljónum
dollara á fyrri hluta þessa árs. Væri
það um það bil 32% hærra en á sama
tima i fyrra. Þá varð hagnaðurinn
568 milljónir doUara .
EO