Dagblaðið - 24.07.1979, Síða 7

Dagblaðið - 24.07.1979, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979. 7 Washington: p Loftárásir Israel á Libanon fordæmdar Erlendar fréttir Somoza tæmdi bankana Somoza, fyrrum forseti Nicaragua fór með alla sjóði landsins, þegar hann flúði þaðan, að sögn nýju stjórnarinnar í Managua. Verði því að byrja á því að slá lán erlendis og segja ráðamenn að aðstoð alls staðar frá verði þegin með þökkum. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur fyrir hönd Jimmy Carters Bandarikjaforseta fordæmt harðlega loftárásir ísraelsmanna á strandlengj- una í Líbanon, sem gerðar voru um síðustu helgi. Þar eru fimmtán manns sagðir hafa fallið og tugir óbreyttra borgara hafa særzt. ísraelsstjórn heldur fast við þá full- yrðingu að árásin hafi verið gerð í sjálfsvörn og ráðizt hafi verið á búðir Palestinuskæruliða. I yfirlýsingu bandaríska utanríkis- ráðuneytisins sem er ein hin harðasta i garð ísraelsmanna sem þaðan hefur verið send, segir að Bandaríkin for- dæmi harðlega loftárásirnar sem í einu tilviki hafi náð í aðeins átta kíló- metra fjarlægð frá höfuðborg Líbanons, Beirut. Segir að slíkar loftárásir verði að hætta samstundis. Utanríkisráðu- neytið muni láta kanna hvort banda- rísk lög hafi ekki verið brotin með því að nota vélar smíðaðar þar við þessar loftárásir. í öllu falli segir i tilkynn- ingu ráðuneytisins að þar verði því ekki látið ómótmælt að beita banda- rísksmíðuðum vopnum við árásirnar. Fulltrúi Líbanons hjá Sameinuðu þjóðunum hefur kært loftárásirnar til öryggisráðs samtakanna. Tilkynnt hefur verið í Beirut að Sarkis, for- sætisráðherra landsins, mundi senda Jimmy Carter persónulega orðsend- ingu þar sem sjónarmið Líbanon- stjórnar muni koma fram. í loftárásunum á sunnudaginn varð einnig vart við sýrlenzkar flug- vélar yfir Líbanon en ekki kom til bardaga þeirra við hinar ísraelsku. Sýna tannaförin f ram á 35 morð? Örlög Theodore Bundy, 32 ára Bandaríkjamanns, ráðast að öllum lik- indum á rannsókn, sem gerð verður á tönnum hans. Bundy er grunaður um morð — reyndar 35 morð á ungum konum víðs vegar um Bandaríkin. Einu hugsanlegu sannanirnar gegn honum eru tannaför sem fundizt hafa á nokkr- Vestur-þýzk lögregluyfirvöld láta opna grunsamleg bréf sem send eru til landsins til að reyna að komast að heróínsmygli, klámsendingum og njósnum gegn öryggi ríkisins. Kom þetta fram hjá einum talsmanni stjórnvalda í gær. Var haldinn blaða- mannafundur í Bonn þar sem tals- maðurinn, Klaus Boelling, viður- kenndi að í þessu hefði tímaritið Der Spiegel haft rétt fyrir sér sem oftar. Hann taldi þó að þess væri gætt að stjórnarskrá vestur-þýzka lýðveldisins væri ekki brotin með um fórnarlamba morðingjans eða morðingjanna. Yfirvöld í Florida hafa opinberlega ákært Theodore Bundy fyrir morð á tveim nemendum við Ríkisháskólann þar í fyrra. í málaferlunum gegn honum hyggjast yfirvöld leggja fram skýrslu og vitnisburð tveggja sérfræð- opnun einkabréfanna. Fulltrúi fjármálaráðuneytisins vestur-þýzka, en á þess vegum eru þau tollyfirvöld sem falið hefur verið að opna hin grunsamlegu bréf, full- yrðir einnig að löglega sé að verki staðið. Til dæmis nefndi hann að smygl og dauðsföll vegna sterkra eiturlyfja færu mjög vaxandi og þá einkum smygl í bréfum og öðrum póstsendingum. Yfirlýsing um að bréf væru ekki opnuð til að leita eiturlyfja væri að bjóða hættunni heim, sagði fulltrúinn. inga i tönnum og tannaförum. Vilja þeir halda fram að slik tannaför séu jafngild sönnunargögn og ftngraför. Eru tannsérfræðingarnir helztu vitnin gegn Bundy. Annar sérfræðinganna, tannlæknir- inn Lowell Levina frá New York, segir að hann þekki þess engin dæmi að neinn annar en morðinginn sjálfur hafi bitið fórnarlömb þau sem fundizt hafi myrt. Levina er talinn brautryðjandi í því að finna seka morðingja með hjálp’ tannafara. Segir hann slík verksum- merki aðeins finnast við gróf morð og þegar um nauðganir eða misþyrmingar sé að ræða. Gildi þetta bæði um þá sem ráðizt á og myrði gagnstætt kyn og þá sem séu afbrigðilega kynhneigðir. Chicago: Kennedy styður orkustefnu Carters Edward Kennedy öldungadeildar- þingmaður tilkynnti i gær á lundi í Chicago að hann styddi orkumála- stefnu Jimmy Carters Bandaríkjafor- seta í stórum dráttum. Fundarmenn fögnuðu Kennedy þegar hann gerði heldur lítið úr ráðherraskiptum í stjórn Carters. Kennedy er mun vinsælli meðal kjósenda í Bandaríkjunum og er talinn mun sigurstranglegri en núver- andi forseti í komandi forseta- kosningum á næsta ári. IBM skákmótið: Saxfrá Ungverjalandi ífyrstasæti Guyala Sax frá Ungverjalandi sigr- aði Jan Smejkal fráTekkóslóvakíu í ní- undu umferð IBM skákmótsins í Amsterdam í gær. Þar með er Sax kominn með eins vinnings forustu — 6,5 vinninga. Vlastimil Hort frá Tékkó- slóvakíu getur þó komizt upp að hlið Sax með því að sigra Hollendinginn Hans Ree en skák þeirra í níundu um- ferð var frestað í gær. Með 5,5 vinninga eru þá þeir Hort og Smejkal og Úlf Anderson frá Sví- þjóð en sá síðastnefndi gerði jafnt gegn Dragutin Sahovic frá Júgóslavíu í ní- undu umferð. Staðan eftir níu umferðir er þá Sax 6,5 vinningar, Hort, Smejkal, Ander- son 5,5, Ree 5, Byrne, Torre 5, Sosonko, Lein 4,5, Donner, Ligterik 3,5, Stean Sahovic 3. skyldum sfnum áður en skæruliðar sandinista náðu höfuðborginni Managua á sitt vald. A myndinni sést er þeir hafa tekið Rauða kross-vél á sitt vald og verið er að lyfta einum þjóðvarðUðanum upp i véUna. Vestur-þýzka lögreglan opnar einkabréf: íleitaðrík- isleyndarmálum klámi og herófni NIXON OG KEIS- ARINN VILDU BJARGA SOMOZA Richard Nixon fyrrum forseti Bandaríkjanna leit við hjá vini sínum, fyrrum keisara i íran þar sem hann dvelst nú í Mexikó. Við það tækifæri lét sá fyrrnefndi hafa það eftir sér að Bandaríkjastjórn ætti að standa við hlið vinveittra erlendra þjóðarleiðtoga. Nefndi hann þar sem dæmi fyrrum keisara í íran og Anastasió Somoza fyrrum forseta Nicaragua. Taldi Nixon ekki rétta þá stefnu stjórnarinnar í Washington að neyða Somoza til að yfirgefa land sitt og láta völdin af hendi til sandinista, sem Somoza segi vera kommúnista. Varast beri að taka nokkur þau skref sem leitt gætu til þess að ríki sem Kúba yrði sett á fót í Ameríku sagði Nixon. Slikt ógnaði öllum frjálsum löndum á vesturhveli jarðar. Nixon sagðist hafa heimsótt keis- arann fyrrverandi til að fullvissa hann um að milljónir Bandaríkja- manna væru enn honum vinveittar Hefðu þeir einkum rætt heimsmálin, aðallega þó í Miðausturlöndum. Parísartízkan: BREIÐAR AXLIR, MJÓ MITTIOG ENGIN STÍGVÉL Breiðar axlir, mjótt mitti og stíg- vélin horfin af sjónarsviðinu. Þannig hljómar boðskapur haust- og vetrar- tizkunnar. Cardin gekk fram af öllum •viðstöddum með hinni nýju axlalínu sinni, sem náði langt niður fyrir eðli- lega axlalínu. Þessar miklu og rykktu axlir undirstrika mjótt mittið og aðskornar línur. Pierre Cardin lagði einnig áherzlu á nýja og rándýra diskólínu, með skærlituðum mussum, nærri sjálflýsandi, og satín- brókum. Flauelsdragtir voru áberandi á sýningum Jean Louis Scherrer og Christian Dior.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.