Dagblaðið - 24.07.1979, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979.
9
LOKAÐ FYRIR RAFMAGN
TIL RÍKISSPÍTALANNA?
Skuldir þeirra við Raf magnsveitu Reykjavíkur hlaðast upp og námu 53 milljónum í gær
Á föstudaginn var lokað fyrir
rafmagn til skrifstofu ríkisspítalanna
og var þar um fyrstu aðgerð Raf-
magnsveitu Reykjavíkur að ræða
vegna mikilla skuldar ríkisspitalanna.
Ingvar Ásmundsson, fjármála-
stjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
tjáði DB, „að heildarskuldir rikis-
spítalanna hefðu í gær numið tæpum
53 milljónum króna. Rikisspítalarnir
hafa ætíð greitt seint, en lengi að
undanförnu sent inn greiðslur á
hverjum þriðjudegi, þar til fyrir
skömmu að þær greiðslur hættu að
berast.”
,,Ef allt hefði verið með felldu og
þriðjudagsgreiðslurnar haldið áfram
að berast hefði verið búið að greiða
tæpar 33 milljónir af skuldinni nú,”
sagði Ingvar.
Hann kvað lokun eina úrræði
Rafmagnsveitunnar til að þrýsta á
innheimtu, en RR gæti ekki til
Minkaslagur
við Elliöaámar
Í— vegfarendur unnu þrjú dýr við ámar en ekki sást
iögregla eða minkabani
Það var mikill minkaslagur við
Elliðaárnar í gærdag, rétt við stífluna.
Þar höfðu allmargir minkar komið sér
þægilega fyrir, enda stutt að sækja
fiskinn í árnar.
Krakkar komu auga á minkana við
ámar og voru þeir a.m.k. 5—6 talsins.
Krakkarnir börðust við minkana með
grjót að vopni, en innan tiðar bættust
við fullorðnir menn, sem aðstoðuðu
við að vinna bitvarginn.
Ljósmyndari DB kom þegar á vett-
vang og fylgdist með aðförunum, en
alls náðust þrír minkar í slagnum.
Hringt var i lögregluna kl. 3.30, áður
en slagurinn byrjaði og sagði hún að
minkabaninn væri til reiðu, en ekki
bólaði á honum, þann klukkutíma, sem
menn eltust þarna við kvikindin.
Ungur strákur, Reynir Jónsson, náði
fyrsta minknum og hæfði hann með
steini. Kristinn Bjarnason og Haraldur
Helgason komu krökkunum til hjálpar,
en þeir unnu í byggingarvinnu þarna
skammt frá. Þeir reyndu að svæla
dýrin út úr fylgsni sinu með því að
ttrenna dagblöðum og náðu tveimur
dýrum þannig.
Þó nokkur hópur krakka safnaðist á
staðinn og undruðust menn nokkuð að
hvorki lögregla né minkabani létu sjá
sig á siaðnum, til þess að reyna vinna
dýrin, sem án efa hafa valdið rniklum
usla í ánum, sem kallaðar eru perla
Reykjavíkur.
-EGE/JH.
Hlaupið á eftir minkunum með grjót og barefli a lotti
Tvö dýranna, sem unnin voru.
Reynir Jónsson náði minki i einu skoti
með steini.
DB-myndir: Einar Gunnar.
lengdar átt slikar útistandandi skuldir
vaxtalausar, því sjálf hefur hún þurft
að taka dýr lán erlendis.
„Við hefðum ekki gripið til svo
róttækra aðgerða sem lokun er, ef
fengizt hefðu greiðsluloforð, en for-
ráðamenn ríkisspítlanna hafa ekki
fengizt til að gefa þau. Lokunin á
skrifstofunum virðist enn engin áhrif
hafa. Því er það að í dag (mánudag)
er maður frá okkur að athuga um
hverjar frekari lokanir geti orðið að
ræða til að reka á eftir greiðslu,”
sagði Ingvar.
-ASl.
Slrákarnir létu ekki sitt eftir liggja og leituðu minkanna ákaft í grjótinu, en dýrin
sáust skjótast á milli.
Krakkar hópuðust að en ekki sást til minkabana borgarinnar.
Dýrin svæld út með dagblöðum.
Heimsmeistarakeppni sveina lokið:
Jóhann í 5. sæti
Jóhann Hjartarsson var i 5. sæti i
heimsmeistarakeppni sveina i skák
þegar upp var staðið. Fékk hann alls
7 vinninga ásamt 5 öðrum en
dæmdist þeirra hagstæðastur í stiga-
tölu.
Efstur á mótinu varð Tempone frá
Argentínu með 8 og hálfan vinning. Í
öðru sæti Short frá Bretlandi einnig
með 8 og hálfan en óhagstæðari
stigatölu, 3. Morovic frá Chile, 4.
Milos frá Brasilíu, Jóhann 5. eins og
áður sagði, 6. Benjamin frá Banda-
ríkjunum, 7. Ehlvest frá Sovétríkjun-
um, 8. Greenfeld frá ísrael, 9.
Barbuescu frá Rúmeniu og 10.
Heaven frá Wales.
Eina konan á mótinu, Clamlig frá
Svíþjóð fékk aðeins 5vinninga.
-DS.