Dagblaðið - 24.07.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1979.
<§
Útvarp
Sjónvarp
i
Á HUÓÐBERGI, útvarp íkvöld kl. 23.00:
SHERLOCK OG
WATSON ÍVANDA
BROT ÚR SJÁLFSÆVISOGU DR. JAKOBS JÓNSSONAR,
útvarp íkvöld kl. 19.35:
Snúið á Sherlock Holmes nefnist
þáttur sem fluttur verður á hljóðbergi í
kvöld. Er þetta saga eftir hinn kunna
höfund Sir Arthur Conan Doyle,
höfund hinna fjölmörgu sagna um
Sherlock.
Eins og þeir sem komnir eru til vits
og ára munu vita er Sherlock afar
mikill leynilögreglumaður sem með
aðstoð vinar síns Watsons læknis leysir
hinar margvíslegustu gátur. Oftast eigá
þeir félagarnir í höggi við skúrkinn
prófessor Moriarty sem gerir þeim lífíð
leitt.
Þó Doyle teljist höfundur Sher-
lockssagnanna var það samt ekki hann
sem fann Sherlock upp ef svo má segja.
Það var skurðlæknirinn Joseph Bell
sem á heiðurinn af þeirri uppfinningu.
Doyle vann hjá Bell, sem var uppi á ár-
unum 1837 til 1911, þegar hann nam
læknisfræði.
Aukapersónan Watson læknir er
líklega kominn til vegna þessa læknis-
fræðináms. Watson er ákafur
aðstoðarmaður Sherlocks en það háir
honum að hann er örlítið seinn að
skilja hlutina. Venjulega er Sherlock
búinn að leysa gátuna löngu á undan
honum, en verst þó ailra frétta þar til
dllir þræðir málsins liggja á lausu.
Lausnin kemur Watson oftar en ekki
algjörlega á óvart.
Sagan á Hljóðbergi í kvöld nefnist
eins og fyrr sagði Snúið á Sherlock
Holmes. Það er sannarlega fátítt ef
einhverjum tekst það því yfirleitt sá
hann við mönnum. Björn Th.
Björnsson er umsjónarmaður Hljóð-
bergsins sem fyrr.
-DS.
_________________________________/
Sherlock Holmes.
DVALDISEX FYRSTU
KAUPSTAÐARÁRIN
Á NESKAUPSTAÐ
,,Ég hef eins og fleiri menn fallið í
þá gryfju að skrifa sjálfsævisögu mina
og lýsa því sem fyrir mig hefur borið,”
sagði dr. Jakob Jónsson sem í kvöld les
í útvarp brot úf þessari sjálfsævisögu
sinni. Tileinkar hann lesturinn Nes-
kaupstað á 50 ára afmæli staðarins.
Á sunnudaginn var 51 ár frá því að
ég var vígður prestur. Fyrst fór ég sem
aðstoðarprestur til föður míns á
Djúpavogi. Ég var þar ekki nema í
nokkra mánuði, síðan fórum við
hjónin til Norðfjarðar. Þar bjuggum
við í 6 ár.
Við komum til Norðfjarðar í
r---------------------------
PÉSI útvarpídagkl.
febrúar en Neskaupstaður hafði þá
fengið kaupstaðarréttindi um ára-
mótin. Við komum sem sagt á þeim
tíma sem kaupstaðurinn var að fá lög-
gildingu. Þess vegna datt mér í hug að
lesa þennan kafla í útvarpið þó ekki
ætli ég mér að lesa meira af sögunni.
Kaflanum læt ég fylgja nokkurs konar
kveðju til Norðfirðinga,” sagði dr.
Jakob.
Sjálfsævisaga hans er að öllum
líkindum væntanleg á markaðinn i
haust. Þá kemur einnig út ljóðabókin
Vökunætur eftir hann. „Ástæðan fyrir
nafninu er sú að á þeim tíma sem gigtin
17.20:
vakti mig upp á nóttinni, svona um
klukkan þrjú og þar til ég gat sofnað
aftur, skrifaði ég ljóðin í þessari bók,”
segir hann.
Þáá dr. Jakob tvær bækur skrifaðar
sem ekki hafa verið gefnar út. Aðra
stendur reyndar ekki til að gefa út,
heldur færa á svið. Það er endurskrift
leikritsins Tyrkja-Guddu. Leikritanefnd
Þjóðleikhússins hefur sagt að verkið
verði flutt en hvenær er ekki ákveðið.
Hin bókin er nokkurs konar framhald
af bók dr. Jakobs, sem voru fyrirlestrar
hans og útvarpserindi um Nýja testa-
mentið. -DS.
............ \
„EIN DYRMÆTASTA PERLAN
—þóhúnséekkistór”
„Þessi saga er voða falleg eins og
reyndar allar sögu eftir Stefán Jóns-
son,” sagði Knútur R. Magnússon,
sem les söguna Pésa klukkan 17.20 í
dag í útvarp.
,,Eg vildi síður segja eitthvað um
söguna sjálfa þvi sögur verða svo flatar
ef farið er að endursegja þær. En óhætt
er þó að segja, að þótt hún sé ekki stór
er þetta ein af hinum dýrari perlum eft-
ir Stefán. Enda hefur hún verið þýdd á
fjölda tungumála, ég hef það ekki alveg
hve mörg,” sagði Knútur.
Stefán Jónsson var fæddur 22.
desember 1905. Hann dó árið 1966.
Stefáni hefur tekizt allra rithöfunda
bezt að brúa það sem kallað er'
kynslóðabil, eins og Knútur .orðaði
það. Sögur hans eiga ekki bara hljóm-
grunn hjá börnunum, sem þær eru
fyrst og fremst skrifaðar um og fyrir,
heldur líka hjá hinum fullorðnu.
Stefán er líklega þekktastur fyrir
bækurnar um Hjalta litla en auk þeirra
hefur hann skrifað 12 skáldsögur,
fjöldann allan af smásögum og ljóðum
og tvö leikrit sem gefin hafa verið út.
Auk þess skrifaði Stefán eitt útvarps-
leikrit sem aldrei hefur verið prentað.
V.
-/
Nokkra unglinga
vantar enn til heyvinnu,
svo og til barnagœzlu.
RAÐNINGARSTOFA
LANDBUNAÐARINS
SÍM119200.
ÆTLIÐ ÞÉR í FERÐALAG ERLENDIS?
VÉR PÖNTUM BÍLINN FYRIR YÐUR,
HVAR SEM ER í HEIMINUM!
BÍLALEIGA AKUREYRAR
Reykjavík: Skeifan 9, Tel. S1 —86915.
Akureyri: Tryggvabraut 14, Tel. 21715.
GREITER
Fœst í apótekum og
snyrtivöruverzlunum
PANTANASIMI 37442
Frá olivetti
ferðareiknivél
með Ijósi
; og strimli
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu Sími 28511
„Án tafar styöur þú
á réttu hnappana“