Dagblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979. Birting á opinberum gjöldum felur f sér ásökun Bergur Guðnason hdl. skrifar: Herra ritstjóri Dagblaðsins. í blaði yðar laugardaginn 28. júlí er mér undirrituðum veittur sá vafasami heiður, enn eitt árið, að opinber gjöld min eru birt. Við það hefði ég litið að athuga, ef samhengið í fyrirsögnum fréttarinnar væru ekki jafnmikið per- sónuníð og raun ber vitni. Jafnframt leyfi ég mér að benda yður á, að upp- setning heildargjalda í fréttinni, eða öllu heldur val „listamannanna”, er vægast sagt villandi. Á listanum eru: 75 ára verkakona (sennilega barn- laus?), harðfullorðnir, barnlausir heiðursmenn og miðaldra menn, væntanlega án barna á framfæri inn- an 16ára aldurs. Það sem ég vildi sagt hafa efnislega um fréttina er að gjöld mín eru, ef um sanngjarnan samanburð á að vera að ræða, kr. 1.868.988,00 en ekki kr. 1.315.370,00. Ég er nefnilega einn „listamannanna” með 4 börn á framfæri innan lóáraaldurs. Enginn misskilji tilskrif þetta svo að ég „skammist mín” fyrir álögð gjöld mín. Rétt er rétt eins og maður- inn sagði. Jafnframt er mér farið að leiðast áhugi blaðs yðar á einkahög- um mínum. Sé það kappsmál blaðsins að upplýsa landsmenn um það hvort einhver hressist eða hrakar i opinberum gjöldum, þá frábið ég mér að vera einhvers konar þáttur í þvi áhugamáli blaðsfns. Dagblaðsmenn, eða öllu heldur „skattrannsóknadeild Dagblaðsins” er velkomin á skrifstofu mína til at- hugunar á skattframtali mínu og bókhaldi, en í áðumefndu blaði yðar 28. júlí, sá ég að deildin hefur þegar farið ofan í kjölinn á skattamálum Ellerts B. Schram og væntanlega sannfærzt um að Ellert teldi fram Bergur G'uðnason gerir alhugasemd við „skattarannsóknir Dagblaðsins”. samkvæmt okkar „ágætu skattalög- um”. Af þessu sést að birting yðar á opinberum gjöldum einstaklinga felur í sér ásökun sem veldur viðkom- andi óþægindum sem þeir annars væru lausir við. Að lokum þetta: Væri Dagblaðinu ekki sæmra að fara ofan í saumana á fjölmörgum ágöllum skattalaganna, vekja athygli á þeim og fá þeim breytt með „þrýstingi”? .Vonandi er mark- mið blaðsins svo háleitt að slík „rannsóknarblaðamennska” verði talin borga sig? Ég get fullvissað yður, hr. ritstjóri, að slíkt verkefni væri bæði þarft og tímabært. Ég held að sú gagnrýni sem á að felast i þessum listabirting- um, sé til þess fallin að ala á öllum verstu kenndum samborgaranna. Með öðrum orðum: Lágkúra, sem ætti að vera fyrir neðan virðingu blaðs yðar. í von um betri tið. Sameinumst í naf ni Fjölnismanna... ÞJÓÐIN ER SVIKIN AF SONUM SINUM Helgi skrifa - Okkar framsýnu og hæfu vísinda- menn eru nú að leggja drög að vinnslu á bensíni með íslenzkan mó sem eitt aðalhráefnið. Það er vel að menn finni leiðir til að losna úr klóm araba sem halda iðnvæddum þjóðum heims eins og fikniefnasali fórnar- lambi sínu. Mórinn hefur haldið Raddir lesenda heimkynnum íslendinga hlýjum frá landnámstíð og þar áður um ótaldar aldir hefur mórinn verið einn aðal- þáttur alls gróðurs á íslandi. Mold eða gróðurvænt efni á íslandi er í til- tölulega mjög þunnum og viðkvæm- um lögum. Sandur og leir er stór hluti þar af og það er fremur slæmt gróðurefni. Ein ástæðan er sú að vatn í þannig jarðvegi helzt ekki i honum. Mór hefur aftur á móti þá lífsnauðsynlegu eiginleika að geta haldið miklu magni af vatni (eins og svampur) og er því mjög nauðsyn- legur í góðri gróðurmold. Nú á að fara að rífa þetta nauðsyn- lega efni af landinu sem það hefur tekið óratíma að skapa og brenna því út úr púströrum dreka okkar, svo við megum spana um á þeim. Ég vil vara íslendinga við því að vísindamenn eru ekki að tala um einn eða tvo vörubíla af mó, þeir eru að tala um að afklæða ísland svo að það standi nakið og dáið áður en yfir Að setjast á hestbak og setja segl á skipin okkar er raunhæfari lausn á orkumál- unum en að eyða mónum á Islandi, skrifar Helgi. Finnsk litsjónvarps- tæki með RCA-mynd- lampa 22” og 26”. Fullkomin viðgerðarþjónusta. Georg Ámundason & Co Suðurlandsbraut 10 — Sími 81180. Bakpokar og ktifurvörur Glæsibæ—Sími 30350 líkur. Við megum ekki leysa eitt vandamálið með því að skapa annað enn stærra. I sambandi við það að eyða món- um á íslandi væri mun raunhæfari lausn að koma sér aftur á hestbak og setja segl á skipin okkar. Mér er óskiljanlegt í hvaða álögum nútíma íslenzkir ráðamenn eru. Þeir ögra vit- andi vits ulveru íslenzks þjóðernis með innflutningi fólks af alls konar kynstofnum til íslands. Þeir ögra þar þjóð afkomenda landnámsmanna íslands sem hafa með hörku sinni og, ást á landi sinu og þjóðerni haldið landinu fyrir okkur i gegnum hörm- ungaaldir, og nú í heimi síminnkandi landrýmis er þjóðin svikin af sonum sínum. Til þess að landsins spilltu synir geti haldið sínu striki í darrað- ardansi erlendu þjóðanna, þá skal ráðist á landið sjálft og það brennt, fórnað á altari tortímingar og mann- dómsleysis. Ég hef undanfarið kallað á íslenzka þjóðernissinna, sanna syni þjóðar sinnar í nafni Fjölnismanna að sameinast og búast til varnar gegn þjóðernisárásinni, en i ljósi núver- andi umræðna um orkuframleiðslu er full ástæða fyrir náttúruverndar- menn að láta heyra frá sér. Þjóðernissinnar, skrifið í pósthólf ykkar, pósthólf 4420, Reykjavík. SLÖKKVIÐÁ ÞESSUGAUU —tónlistardeild útvarpsins tekin í bakaríið rétt enn einu sinni Sigríður Gunnarsdóttir skrifar: Það var (ó)gaman að heyra rök Guðmundar Gilssonar, aðstoðartón- listarstjóra Ríkisútvarpsins, í frétta- aukanums.l. fimmtudagskvöld. Jú, sorgartónlistin (kirkjutónleik- ar) ku vera flutt til að efna skyldur þær sem Ríkisútvarpið telur sig hafa gagnvart meðlimum kirkjukóra, alls 5-6 þús. manns. Hvað þá um hin 200 þúsundin? Að vísu fiytur Útvarpið létt lög og létta þætti, en aðaluppi- staðan er samt þung klassísk tónlist sem innan við 1% hlustenda hlustar á samkvæmt síðustu könnun. Útvarpið hafði líka vissum skyld- um að gegna gagnvart íslenzkum einsöngvurum og íslenzkum lögum. Guðmundur hlýtur að eiga við þá íslenzku einsöngvara sem viður- kenndir eru sem slíkir á klassískan mælikvarða, eins og Þuríður Páls- dóttir, Guðrún Á. Símonar, Kristinn Hallsson o.fl., en ekki þá sem flytja afþreyingartónlist (popp). Samt eru þeir íslenzkir, flytja mikið til íslenzk lög og Ijóð og oftast er það einsöng- ur! Þama er greinilega um hvíta og svarta sauði að ræða. Þegar spurt var hvort ekki mætti auka létt efni þá talaði Guðmundur um að auka fróðleikinn, kynna höf- unda og lög. Þátturinn Áfangar hefur gert þetta í lengri tíma við góðan orðstír. En að spila lögin af plötunum með hinni venjulegu kynn- ingu á heiti lagsins og söngvara: Það þykir víst ekki nógu menningarlegt. Annars gefa þættirnir Óskalög sjúkl- inga og sjómanna besta mynd af tónlistarsmekk manna. Vinnuaðferðir Ríkisútvarpsins er ekki hægt að telja lýðræðislegar, því hvað er lýðræði annað en að fara að vilja meirihlutans, en ekki (ógnar)stjórn örfárra manna sem telja sig útvalda til að breiða út fagnaðarboðskap Beethovens, Mozarts.. . . Æ slökkvið á þessu helv. . . . gauli!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.