Dagblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979. 7 OLÍUHLUTUR BRETA ÞJÓÐNÝmiR —gert til að mótmæla f lutningi brezkrar Norðursjávarolíutil Suður-Afríku Erlendar fréttir TimeíKína Bandaríska frétttímaritið Time mun verða boðið til sðlu í Kína nú í vikunni. Er það í fyrsta skipti síðan kommún- istar komust þar til valda árið 1949. Talsmenn Time sögðust búast við því að brátt kæmi að þvi að meira en fimmtán hundruð blöð seldust en þeim fjölda verður dreift i fyrstu. Blaðið verður til sölu í höfuðborginni Peking, Kanton og Shanghai. Stjórnin i Nígeríu tilkynnti óvænt í gær að hún hefði þjóðnýtt þau 20% hlutabréfa, sem brezka olíufélagið BP hefur átt í oliuframleiðslufyrir- tækinu í Nigeríu. Hefur það verið í eigu BP, Sheli og Nígeríustjórnar. Er talið að með þessu vilji Nígeriu- stjórn leggja áherzlu á stuðning sinn við andstöðu svartra Afríkuþjóða við rikisstjórn Muzorewa biskups í Zimbabwe/Ródesíu og jafnframt fá brezku stjórnina til að failast á sjónarmið þessarra ríkja á ráðstefnu forsætisráðherra Brezka samveldisins sem hefst i dag í Lusaka í Zambíu. Nigeríustjórn lét ekki sitja við þjóðnýtingu hlutabréfanna. Einnig var tilkynnt, að allir brezkir starfs- menn BP yrðu að vera komnir frá Nigeríu fyrir lok þessa mánaðar. Aðeins mættu þeir vera eftir ef þeir hefðu gert sérstaka samninga við nígerísk fyrirtæki um störf sín. Hin opinbera ástæða fyrir ákvörðun nígerisku stjórnarinnar er. sú, að brezka rikisstjórnin hefur fall- izt á að BP flytji út olíu af Norður- sjávarolíusvæðinu til Suður-Afríku. Þessu hafa brezk yfirvöld mótmælt harðlega og segja að olía þaðan sé aðeins flutt til Evrópurikja og nokk- urra annarra og sé Suður-Afríka alls ekki í þeim hópi. Oliusölubann gilti gagnvart Suður-Afriku og hvorki olía úr Norðursjónum eða frá Nígeríu væri seld af brezkum aðilum þangað. Þjóðnýting Nígeríustjórnar gekk í gildi frá og með miðnætti í nótt. Olíufélag Nígeríu var áður að sex tíundu í eigu Nígeríuríkis en Shell og BP áttu síðan tvo tíundu hluta hvort. NIXON FLYTUR Richard Nixon fyrrum forseti Bandaríkjanna, sem búið hefur um skeið í Kaliforníu. hyggst nú brátt flytjast til New York. „Maður verður að flytja þangað sem börnin manns eru,” sagði Nixon við blaðamenn nýlega. „Einkum þegar maður er kominn á minn aldur,” en forsetinn fyrrverandi er sextíu og sex ára að aldri. Hann sagði að Júlía dóttir hans hygðist flytja til Pennsylvaníu, þegar eiginmaður hennar David lýkur við að skrifa bók um afa sinn, Dwight D. Eisenhower, fyrrum bandaríkjaforseta. Hin dóttir Nixons, sem heitir Tricia, býr í New York. Gert er ráð fyrir þvi að hann flytjist ásamt eiginkonu sinni til stórborgarinriar í nóvember næstkom- andi. Spánn: Löggan skaut borgarstjóra kommanna Lögreglumanni einum á Spáni varð það á í gær að skjóta á og særa alvar- lega borgarstjóra smábæjar nærri Madrid. Borgarstjórinn, sem er úr flokki kommúnista varð fyrir skoti, þegar lögreglumaðurinn var að stilla til friðar í deilu vegna vinnudeilu á staðn- um. Borgarstjórinn, Lopez Lozana þrjá- tíu og sjö ára gamall.mun vera alvar- lega særður. Stóð hann við glugga á verksmiðju þar sem verkamennirnir hafa lokað sig inni vegna ósættis út af kjaramálum. Reið þá skot af úr byssu eins lögreglumannsins og lenti í borgar- stjóranum. Að sögn lögregluyfirvalda er skýr- ingin á skotinu sú, að einn lögreglu- mannanna lagði frá sér hríðskotabyssu til að aðstoða við að opna dyr verk- smiðjunnar Rakst gikkur hennar þá í með ofangreindum afleiðingum. Lögreglumaðurinn hefur verið hand- tekinn og mun mál hans koma til kasta dómstóla. EGYPZKIR FLUCr MENN í ÞJÁLFUN í BANDARÍKJUNUM Sextá'n egypzkir flugliðsforingjar eru um það bil að hefja þjálfun í stöðvum bandaríska flughersins í Kaliforníu. Áður hafa Egyptarnir verið í tungu- málakennslu, sem stóð í sex vikur. Að sögn bandarískra yfirvalda er þessi þjálfun egypzku hermannanna einn af þeim liðum sem að samkomu- lagi varð í tengslum við friðarsamninga Egypta og ísraelsmanna. Lofuðu Bandaríkjamenn að selja Egyptum þrjátíu og fimm Phanton orrusluþotur. Innifalið var að þjálfa áhafnir þotn- anna og aðstoða við viðhaldsfram- kvæmdir. Er ætlunin að brátt fari um það bil eitt hundrað bandarískir sérfræðingar til Egyptalands til að þjálfa þarlenda við viðhaldsstörf og aðra nauðsynlega þjónustu vegna Phanton þotnanna. MIKIÐ ELDGOS í SOVÉTRÍKJUNUM Eitthvert virkasta eldfjall í austur- hluta Sovétríkjanna gýs nú af miklum móð og mun aska úr fjallinu ná í rúm- lega eitt þúsund metra hæð. Kom þetta fram í fregnum Tass fréttastofunnar sovézku í gær. Hraunstraumur rann niður fjallið sem nefnt er Karymsky fjall. Kom hraunið úr nokkrum sprungum. Spýttist hraunið úr sprungunum með nokkurra minútna millibili. Karymsky fjall, sem er um það bil fimmtán hundruð metra hátt er eitt af tuttugu og sjö virkum eldfjöllum á Kamtstjaka skaganum að sögn Tass fréttastofunnar. LEIDDUR SÆRDUR Á BROTT Edward Connolly yfirlögreglumaður í Boston I Bandaríkjunum cr leiddur á brott frá húsi einu þar i borg eftir að maður einn hafði skotið á hann. Lögreglumaðurinn var að reyna að telja mann einn á að sleppa gíslum sinum. Var þar um að ræða móður skotmannsins, eiginkonu og fjögur böm. Hafði maðurinn tekið þennan kostinn eftir að hafa lent i rifrildi um laun sin á skrifstofum borgarinnar. Vopnaðist hann byssu og lokaði fjöl- skyldu sfna inni. Skömmu eftir að yftr- lögreglumaðurinn hafði særzt gafst maðurinn upp. AKRANES—i Blaöberar óskast í nokkur hverfi. Upplýsingar Þórólfsdóttir í síma 93—1875 gefur Guðbjörg BIAÐW IM VERÐ: 20" KR.470 ÞUS. 22" KR 560 ÞÚS. 26" KR 610 ÞÚS. m/sjálfvirkum stöðvaveljara BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK SlMI 27099

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.