Dagblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 01.08.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979. Svona getur farið ef óvarlega er farið með eld í þurru gróðurlendi. Eldurinn getur grandað miklu skóglendi á skömmum tíma. Drykkjusamkoma í skógræktargirðingunni við Seltjöm: Söguðu niður trén í bálköst Skógræktarmaður úr Kefiavík hringdi: Gróðurinn á stöðugt í vök að verj- ast gagnvart ágangi manna og dýra. Mörg dæmi eru um stórkostlegan skaða á trjágróðri af völdum óvar- legrar meðferðar elds. Ég kom í skóg- ræktargirðingu við Seltjörn, nálægt Grindavik, á sunnudaginn. Þar hefur Skógræktarfélag Keflavíkur staðið að gróðursetningu trjáa undanfarin ár með góðri hjálp einstaklinga og félaga. Við Seltjörn er vaxandi skógur með trjám sem náð hafa 2—3 metra hæð, þau sem hæst eru. Okkur þykir vænt um þennan reit, eins og gefur að skilja, og þykir miður að verða vitni að óvönduðum umgangi á staðnum. Þegar ég kom að Seltjöm á sunnudaginn stóð þar yfir villt drykkjusamkoma fólks. Það var hópur útlendinga með íslenzkan fararstjóra með sér. Fólkið hafði með sér hrátt kjöt, sagaði niður tré, bjó til bálköst úr þeim og steikti kjöt- ið. Ég talaði við fararstjórann og benti á að samkundan væri miður geðfelld, auk þess sem sýnilega yllu menn þar stórskemmdum á umhverf- inu. Hann svaraði því til að þetta væri almenningsgarður og mér fannst hann yfirleitt ekkert sjá athugavert við það sem fram fór. Auk skemmd- anna á skóginum var allur gróðurinn í hættu vegna meðferðar á eldi. Þarna er þykkur sinuþófi, sem ekki þarf stór neisti að komast í til að hann fuðri upp. Ef svo færi, yrði erfítt að, ráða við eldinn og stórtjón hlytist af. Ég vil koma þessu á framfæri til að1 vekja athygli manna á afleiðingumj svona umgengni við náttúruna. Égj vona að fleirum finnist þetta athuga- vert en okkur sem beinlínis höfur'1 staðið í skógræktinni. ER NAFNH) FLUGLEIÐIR AÐ VERDA LÝSINGARORD? Áhugamaður skrifar: Hvað er að gerast hjá Flugleiðum? Eru þeir að gefast upp á því að reka flugfélag eða er nafnið Flugleiðir að verða lýsingarorð?! Það hefur komið fram í fréttum nú síðustu daga, að búið er að segja upp 9 flugmönnum á Fokkerunum í inn- anlandsflugi og að selja eigi eina Fokkervél vegna rekstrarörðugleika. Þó svo allir er fylgzt hafa með og vinna við innanlandsflugið viti að nóg er að gera með alla Fokkerana árið um kring, því flutningar hafa aukizt jafnt og þétt síðustu árin. Það er vel ljóst öUum sem til þekkja að á vetuma eru vélarnar 4 í flugi í einu, því að ein er alltaf í skoðun sem tekur 4—6 vikur á vél og þær skoðanir end- ast allan veturinn. Jafnframt setja veður strik í reikninginn hér, því ef t.d. er ófært til ísafjarðar að vetrar- lagi í 1—4 daga, þarf yfirleitt að senda 3—4 vélar til og frá þegar opn- ast. Við það fer öU önnur áætlun úr £ skorðum. Hvernig ætla forráðamenn Flugleiða að annast þessa þjónustu á sérleyfisleiðum sínum með aðeins 3 vélar í notkun næsta vetur? Jú, allir vita að það er ekki hægt nema með því að stórminnka þjónustuna við fólkið úti á landi, fækka ferðum um 20% a.m.k. og svo fljúga Utlu leiguflug- félögin með farþegana í staðinn fyrir helmingi hærra verð. íslendingar hætta jú ekki að ferðast þótt Flug- leiðir hafi ekki áhuga á að þjónusta ísiendinga eins og verið hefur. Ég vil aðeins spyrja þá mörgu hlut- hafa í Flugfélagi íslands, hvort þeir hafi ætlazt tU að þeirra framlag á sínum tíma hafi verið hugsað sem að- stoð við að viðhalda öðru flugi með útlendinga til og frá Ameríku? Hér er nefnilega verið að flytja útlendinga úr einni heimsálfunni í aðra á fimm- földu Akureyrarfargjaldi á kostnað íslenzks innanlandsflugs. Flugleiöir ætla að selja einn Fokkerinn og draga saman seglin i innanlands- fluginu. DB-mynd Bjarnleifur. Við höjum mesta úrval landsins af hjónarúmum. komdu og skoöaðu þau. Bíldshöfða 20 - Sv81410 - 81199 Sýningahöllin- Artúnshöfða . '3Í Hjálpar þú tjl við heimilisstörfin? Magnús Magnússon rafsuöumaönn Já, það geri ég. Ég hjálpa til við hitt og þetta sem til fellur. Bjarni Ákason, starfsmaður Mjólkur- samsölunnar: Nei, aldrei. Jæja og þó. það kemur örsjaldan fyrir. Þorsteinn Pálsson vélvirki: Nei, frekar, geriégnúlftiðafþvi. Christian Sörensen, stöðumælavörður:, Nei, aldrei. Annars jú, ég hjálpa stund- um til víð uppvaskið. Ég skipti nú lika stundum um bleyjur hér áður. Andrés Magnússon, læluiir: Já, ég geri plnuíltíð af þvl. Ég hugsa um bömin og vaska upp. Guðmundur Jónsson, verkaraaður: Ja, ég bý nú eínn þannig að ég hugsa sjálf-; ur um heimilisstörfin.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.