Dagblaðið - 01.08.1979, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1979.
aEmaa!
Sigurður bætti
lðáragamalt
met Valbjamar
ístangarstökki
Sigurður T. Sigurðsson bætti í gærkvöldi 18 ára
gamalt íslandsmet Valbjarnar Þorlákssonar í
stangarstökki er hann stökk 4,51 metra á innan-
félagsmóti Ármanns. Met Valbjarnar sem var 4,50
metrar hefur staðið óhaggað um árabil þrátt fyrir
margar og harðar atlögur að því. Sigurður hefur
verið mjög nærri því að fara yfir 4,50 metra á
mótum að undanförnu og aðeins viizi tímaspursmál
hvenær hann setti met. Sigurður hefur lengst af getið
sér mjög gott orð sem afburða fimleikamaður en
honum er greinilega fleira til lista lagt en það.
Stórtap Standard
Standard Liege steinlá í gærkvöld fyrir Kaisers-
lautern í æfingaleik, sem fram fór i Þýzkalandi.
Kaiscrslautern vann 7-0 eftir að hafa leitt 2-0 í hálf-
leik. Þá vann FC Brtigge Borussia Dortmund 2-1 í
æfingaleik cinnig i gærkvöld.
Útimótíkörfu-
knattleik f
næstamánuði
Körfuknattleikssambandið gengst í ár fyrir útimóti
í körfuknattleik. Mótið verður haldið í Njarðvík
17.—19. ágúst nk. UMFN hefur tekið að sér fram-
kvæmd mótsins fyrir sambandið.
Útimótið er nýjung í starfi KKÍ. Með því'að hefja
keppni í körfubolta utanhúss viljum við fyrst og'
fremst leggja áherzlu á að hann er íþrótt sem auðvelt
er að stunda allt árið um kring.
Mörg af beztu körfuknattleiksliðum okkar taka
sér sífellt styttri sumarfrí. Keppnin í úrvalsdeild er
hörð og á miklu ríður að liðin séu í fullri þjálfun frá
upphafi keppnistímabils.
Einstök félög eru jafnvel farin að leita eftir þátt-
töku í mótum utan landsteinanna á haustin til að
vanda enn betur undirbúninginn.
Þátttaka í útimóti á þessum tíma getur því von-
andi orðið liður í undirbúningi félagsliðanna fyrir
veturinn.
Tilkynningum um þátttöku óskast skilað tii Gunn-
ars Þorvarðssonar, Holtsgötu 27, Ytri-Njarðvik,
sími 92-3073, eða skrifstofu KKÍ, íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal.
„LOK, L0K OG LÆS
0G ALLT í STÁLT
og keppnisboltinn náðist ekki úr farangursgeymslunni fyrir leik Víðis og Ármanns
Keppnin í þriðju deildinni heldur
sínu striki að vanda og um helgina voru
leiknir 16 leikir í riðlunum 6. Nokkuð
óvænt úrslit urðu sums staðar og
einkum í E-riðli þar sem Reynir lagði
Völsung og hleypir það mikilli spennu í
þann riðil, en hér byrjar hringferðin.
A-riðill
Grótta - ÍK 4-1 (4-0). Þetta var ágætur
sigur hjá Gróttu, sem tók leikinn strax í
sínar hendur. IK virkaði slakt að þessu
sinni og voru þeir í markmannshallæri
auk þess, sem Sigurður Jónsson lék
ekki með liðinu. Öll mörk Gróttu
komu á um 15 mín. kafla í fyrri hálf-
leik. Blaðasnápurinn á Þjóðviljanum,
Ingólfur Hannesson, var í banastuði og
skoraði þrennu og lék á als oddi. Hann
skoraði fyrstu þrjú mörk Gróttu. Tvö
með góðum skotum eftir stungusend-
ingar og eitt með mjög fallegu banana-
skoti yfir markvörðinn. Gísli Gíslason
skoraði þó fallegasta mark leiksins er
hann negldi knöttinn í netmöskvana af
um 20 metra færi með miklum þrumu-
fleyg. Eina mark ÍK skoraði Ólafur
Pedersen í stðari hálfleik.
Vfðir - Ármann 0-3 (0-2). „Lok, lok
og læs og allt I stáli,” tautaði einhver á
meðan þjálfari Víðis bjástraði án ár-
angurs við farangursgeymslu bifreiðar-
innar þar sem keppnisknettirnir voru
geymdir, sem átti að nota í leik Víðis og
Ármanns á föstudagskvöldið. En þrátt
fyrir margar hjálpfúsar hendur og nær-
tæk verkfæri og svo snjallar hugmynd-
ir að lásameistarinn sjálfur Houdini
hefði fallið í skuggann, bifaðist lokið
Fylkir lagði
Austra í gær
Fylkir vann Austra 2-0 í 2. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu i gær-
kvöldi og stöðvaði þar með sigurgöngu
þeirra Austramanna, sem staðið hafi 3
leiki í röð. Ekkert mark var skorað i
fyrri hálfleiknum en strax í upphafi
þess síðari — á 47. mínútu — skoraði
Hörður Antonsson beint úr horn-
spyrnu. Við þetta var eins og mesti
vindurinn væri úr þeim Austramönn-
um og Hilmar Sighvatsson bætti öðru
marki við á 58. mínútu og þar við sat
þar til í leikslok. Fylkir á því enn örlitla
möguleika á að vinna sér sæti í 1.
deildinni en varla eru það raunhæfir
þannig núna:
FH
Breiðablik
Fylkir
Þróttur
Selfoss
Þór
ísafjörður
Austri
Reynir
Magni
Markahæstu menn: mörk
Sigurður Grétarsson, Breiðabliki 10
Hilmar Sighvatsson, Fylki 9
Andrés Kristjánsson, ísafirði 8
Pálmi Jónsson, FH 7
Sumarliði Guðbjartsson, Selfossi 7
Guðmundur Skarphéðinsson, Þór 7
Staðan í deildinni er
12 9 2 1 33- -12 20
12 8 2 2 26- -8 18
13 7 2 4 25- -15 16
11 5 2 4 9- -10 12
12 4 3 5 16- 13 11
12 5 1 6 14- -16 11
11 3 4 4 17- 21 10
13 3 3 7 11- -22 9
12 2 4 6 8- -23 8
12 2 1 9 11- 31 5
Síðasta
ár Péturs
Pétur Böðvarsson, sem leikur
með Hugin í knattspyrnunni i
Austfjarðariðlinum, hefur
ákveðið að hætta knattspyrnu-
iðkun eftir sumarið en hann er
nú 31 árs gamall. Pétur lék áður
með ÍR í körfunni og hann
hefur svo sannarlega verið þeim
á Seyðisfirði betri en enginn og
skorað 9 mörk fyrir þá í riðlin-
um.
ekki. Leikurinn gat því ekki hafizt fyrr
en hálfri klukkustund eftir auglýstan
leiktíma með gömlum bolta en ágætum
þó. Ármenningnum Smára Jósafats-
syni fannsta.m.k. svo.
Eftir aðeins 4 mínútur var hann
orðinn dús við knöttinn og skoraði
mjög fallegt mark með þrumufleyg frá
vinstri á ská yfir markvörð Víðis,
Helga Bjarnason, i hornið fjær.
Smári sem er mjög sterkbyggður,
fljótur og leikinn bætti öðru marki við
fýrir hálfleik. Varnarmaður Víðis var
að lóna með knöttinn en missti hann
síðan í návígi og tók það til bragðs að
bregða mótherjanum. Úr aukaspyrn-
unni fékk Smári knöttinn beint á koll-
inn og sendi knöttinn i netið svipað og
áður, yfir markvörðinn, 2-0.
Jón Hermannsson gulltryggði
síðan sigur Ármanns i riðlinum með
óvenjulega fallegu marki úr auka-
spyrnu af 30 metra færi. Hann skaut þá
„skrúfubolta” framhjá varnarmönn-
um Víðis í eina hluta marksins, sem var
ekki gætt. „Svona á að taka auka-
spyrnur, drengir,” getur hann sagt
hróðugur við lærisveina sína í 2.
deildarliði Breiðabliks. ,,Ég kenndi
honum þetta,” gæti Bodgan þjálfari
Ármanns sagt á móti.
Farangursgeymslan, sem getið var í
upphafi, og mark Ármanns áttu það
sameiginlegt að vera harðlæst. Ýmist
varði Erlendur Hermannsson af snilld
eða þá að boltinn small í marksúlunum
eða þverslánni. Viðir sótti öllu meira í
fyrri hálfleiknum en í síðari hálfleikn-
um hafði Ármann tögl og hagldir og
ekki stóð steinn yfir steini hjá Víði.
Nokkur harka færðist í leikinn í lokin
og var þá einum úr hvoru liði vísað af
leikvelli auk þess sem margir fengu að
líta gula spjaldið, en Helgi Kristjánsson
hafði góð tök á leiknum.
Njarðvfk — Stjarnan 0-0. Allt fór frið-
samlega fram í leik UMFN og Stjörn-
unnar i Njarðvík á föstudag — svo
friðsamlega að hvorugu liðinu tókst að
skora mark. Njarðvikingar voru
áhugalausir enda möguleikar þeirra á
sigri í riðlinum engir. Leikmenn Stjörn-
unnar voru mun sprækari þrátt fyrir að
geta ekki sigrað. Bæði liðin fengu all-
góð færi en fyrir fádæma klaufaskap
og óheppni tókst þeim ekki að skora.
Stundum fékk fósturjörðin illilega að
kenna á tánni á fótboltaskónum.
Armann
Grindavík
Njarðvík
Grótta
Víðir
Stjarnan
ÍK
8 1
6 1
8 0 1
- emm
0 18-4 16
13-12 11
10- 8 9
16-11
11- 13
8-9
7-26
B-riðill
Katla - Óðinn 3-4 (2-2). Þetta var
hörkuskemmtilegur leikur og sigur-
markið kom ekki fyrr en tveimur mín-
útum fyrir leikslok. Enginn dómari
mætti til leiks þarna þrátt fyrir að
Óðinsmenn hefðu ítrekað fyrirspurnir
til KSÍ um dómara og boðizt til að taka
hann með sér austur í rútunni ef svo
bæri undir. Það var kurteislega af-
þakkað og síðan mætti náttúrlega eng-
inn dómari svo að einn heimamanna
dæmdi leikinn og fó.st það vel úr hendi
eftir atvikum. Heimamenn náðu for-
ystunni tvívegis í leiknum, komust i 1-0
og síðan 3-2 en Óðinsmenn lögðu ekki
árar í bát og tókst að sigra. Mörk Kötlu
skoruðu Birgir Einarsson, Skúli Guð-
mundsson og Salvar Júlíusson. Fyrir
Óðin skoraði Konráð Árnason þrennu
og var í banastuði og Pétur Óskars-
son bætti fjórða markinu við.
Hekla — Afturelding 0-6 (0-2) Þetta
var nokkuð jafn leikur framan af en
síðan fór úthaldsleysi að gera vart við
sig í herbúðum Heklumanna og Aftur-
elding gekk á lagið. í síðari hálfleik var
nánast um einstefnu að marki Heklu að
ræða og þá bættu gestirnir við fjórum
mörkum. Fyrir Aftureldingu skoraði
þjálfarinn, Halldór Björnsson, 2 mörk,
Stefán Hreiðarsson einnig tvö mörk og
þeir Diðrik Ásgeirsson og Þorvaldur
Hreinsson eitt hvor.
Leiknir — Léttir 6-0 (2-0). Leiknismenn
þurftu ekki ýkja mikið að hafa fyrir
þessum sigri sínum. í fyrri hálfleik
veittu þó Léttismenn nokkuð harða
mótspyrnu og voru þá leikmenn Leikn-
is nokkuð heppnir að skora tvívegis.
Eftir það var hins vegar engin spurning
um sigurvegara og mörkin urðu 6 áður
en yfir lauk. Fyrir Leikni skoruðu þeir
Jóhannes Sigursveinsson 2, Þorsteinn
Ögmundsson, Hilmar Helgason, Björn
Sigurbjörnsson og Ragnar Ingólfsson
eitt hver. Staðan í riðlinum er nú þessi:
Afturelding 8 8 0 0 40-6 16
Leiknir 8 5 1 2 29-12 11
Óðinn 7 5 11 19-13 11
Léttir 8 2 2 4 14-18 6
Hekla 8 1 3 4 14-25 5
Katla 8 116 14-27 3
Þór, Þorl. 7 10 6 10-39 2
- SSv.
C-riðill
Skallagrlmur — Bolungarvfk 4-2 (3-0).
Þetta var góður sigur hjá Borgnesing-
um og eftir þennan leik stefnir augljós-
lega í úrslitaleik á milli Skallagríms og
Víkings. Bolungarvíkurpiltarnir voru
hálfvankaðir eftir flugið fyrsta hálftím-
ann og það gerði útslagið því Skalla-
grímur skoraði þrívegis á fyrstu 20 mín.
leiksins. f síðari hálfleiknum var viður-
eignin mun jafnari og þá náðu Bolvík-
ingar aðeins að laga stöðuna hjá sér.
Fyrir Borgnesinga skoraði Garðar
Jónsson tvö mörk og bróðir hans,
Gunnar, eitt og Omar Sigurðsson bætti
fjórða markinu við. Þórður Ólafsson
og Ólafur Helgi Guðmundsson svör-
uðu fyrir gestina. Að sögn beggja aðila
var dómgæzlan í þessum leik með því
allra bezta, sem sézt hefur í Borgarnesi
og er það rós í hnappágat dómaranna,
sem gjarnan verða fyrir ómaklegumi
árásum.
VBcingur — Snæfell. Snæfell gaf.
Eftir því sem við komumst næst munu
Snæfellsmenn ekki hafa getað skrapað
saman í lið og því orðið að gefa leikinn.
Þeir fóru fram á frestun við Víkingana
en var bent á að KSÍ réði öllu slíku.
Ekkert varð því af þessum leik og auð-
fengin stig til Víkings.
Skallagrfmur — Snæfell 3-0. Þessi
leikur fór fram á föstudag í fyrri viku
en hafði áður verið frestað. Skallagrím-
ur vann öruggan sigur með mörkum
Gunnars Jónssonar (2) og Ævars
Rafnssonar. Staðan í riðlinum er nú
þessi:
Víkingur 7 6 0 1 19-6 12
Skallagrímur 6 4 1 1 21-11 9
Stefnir 6 2 13 12-19 5
Bolungarvík 7 2 0 5 8-17 4
Snæfetl 6 10 5 4-11 2
- SSv.
D-riðill
Svarfdælir - Tindastóll 04 (0-2).
Þetta var sannfærandi sigur Tindastóls
og þeir Ómar Bragi Stefánsson, Óskar
Björnsson, Helgi Indriðason og Sigur-
jón Magnússon skoruðu mörk Tinda-
stóls, sem er nú nær öruggur sigurveg-
ari i riðlinum.
KS — Leiftur frestafl.
Höfðstrendingar — KS 1-6 (04). Þessi
leikur fór fram í síðustu vik’u og var
sigur KS aldrei í hættu. Friðfinnur
Hauksson skoraði tvö markanna,
Hörður Júlíusson eitt, Jakob Kárason
eitt, Björn Sveinsson eitt og Sigurjón
Eliasson eitt. Fyrir Höfðstrendinga
liðunum erfiðir í þessum riðli. Fyrir
skömmu unnu þeir Árroðann, 2-l, og
nú lögðu þeir Völsung í leik sem var
galopinn i báða enda og gat farið á
hvorn veginn sem var. Það má e.t.v.
segja að þetta hafi verið leikur hinna
glötuðu tækifæra þar sem bæði liðin
fengu kjörin tækifæri til að skora án
þess að geta nýtt sér það. Jón Eyjólfs-
son skoraði eina mark fyrri hálfleiksins
en um miðjan síðari hálfleikinn tókst
Völsungum að jafna metin með marki
Sigurkarls Aðalsteinssonar.
Reynismenn voru ekki á þeim buxun-
um að gefa eitt eða neitt og strax í
næstu sókn skoruðu þeir aftur. Var þar
á ferðinni Ragnar Jóhannesson. Eftir
markið fengu bæði liðin góð mark-
tækifæri sem ekki nýttust og við þenn-
an sigur galopnaðist riðillinn á nýjan
leik. Völsungur hafði öll tromp í hendi
sér en nú snýst allt um leik Árroðans og
Völsungs, sem er síðasti leikur þessa
riðils.
Dagsbrún — HSÞ 0-2 (0-0). Dagsbrún-
armenn gera það ekki endasleppt við
mark andstæðinganna og þeim hefir
gengið afleitlega að skora mörk í sum-
ar. Óheppnin elti þá á röndum í þessum
leik og HSÞ þakkaði fyrir og hirti bæði
stigin. Jónas Þór Hallgrímsson og
Börkur Bóasson skoruðu mörk HSÞ.
Staðan í riðlinum er nú þessi:
Völsungur 6 4 1 1 24-6 9
Árroðinn 6 3 2 1 12-3 8
HSÞ 7 4 0 3 10-16 8
Reynir 7 2 14 9-17 5
Dagsbrún 6 0 2 4 2-15 2
Markahæstu menn eru:
Magnús Hreiðarsson, Völsungi, 8
mörk,
Jónas Þór Hallgrímsson, HSÞ, 7,
Örn Tryggvason, Árroðinn, 6.
- Sl.A.
F-riðill
Huginn — Hrafnkell 2-2 (2-1). Huginn
átti mun meira í þessum leik en heppnin
var ekki með þeim að þessu sinni og
Hrafnkelsmenn fóru heim með annað
stigið. Fyrra mark Hugins var skorað
af Pétri Böðvarssyni, sem þama
skoraði sitt 9. mark í sumar. Siðara
markið var sjálfsmark. Fyrir lok fyrri
hálfleiksins skoraði Svavar Ævarsson
mark fyrir Hrafnkel og í síðari hálf-
leiknum tókst Hrafnkeli að jafna metin
er Sigurður Elísson skoraði gott mark.
Huginn átti þó miklu meira í leiknum
og þeir áttu sigur skilinn en tókst ekki
að knýja hann fram. Huginn hefur náð
upp góðu liði undir stjórn Sigurðar
Þorsteinssonar.
Leiknir — Sindri 1-0 (0-0). Þetta var
langbezti leikur Leiknis í allt sumar og
leikmenn Sindra náðu sér aldrei al-
mennilega á strik og þeir áttu aðeins
eitt skot á markið allan leikinn. Þegar
um 70 mínútur voru liðnar af leiknum
tókst Ólafi Ólafssyni að skora sigur-
mark Leiknis eftir gór adingu frá
Kjartani Rafnssyni, sen, I se hæft
sig í sendingum á Ólaf. Baluvin Rafns-
son, bróðir Kjartans, splundraði vörn
Sindra einum fjórum sinnum og komst
einn í gegn en tókst aldrei að skora og
hefði Leiknir getað unnið mun stærri
sigur.
Valur — Sindri 1-2 (0-2). Valsmenn
halda áfram að velgja hinum liðum
riðilsins undir uggum á heimavelli
sínum og í þetta sinnið komust Sindra-
menn í krappan dans. Þeir bræður
Ómar og Ragnar Bogasynir í Sindra
skoruðu mörk liðs síns en Hreinn
Ólafsson svaraði fyrir Val í síðari hálf-
skoraði Sigurður Sveinsson. Staðan i Einherji 8 6 11 16-4 13
riðlinum er nu þannig: yuginn Hrafnkell 10 4 4 2 24-13 12
Tindastoll 6 6 0 0 23-6 12 7 5 11 21-8 11
Svarfdælir 6 3 0 5 14-15 6 Leiknir 10 4 2 4 20-12 10
KS 4 2 11 13-5 5 Sindri 9 3 3 3 8-8 9
Leiftur 6 114 9-6 3 Súlan 8 12 5 4-16 4
Höfðstrend. 6105 4-31 2 - ÞÁ Valur 8 0 17 9-41 1
Markahæstu menn:
E-riðill ÓlafurÓlafsson, Leikni 12 mörk
Pétur Böðvarsson, Hugin 9
Reynir — Völsungur 2-1 (1-0). Reynis- Svavar Ævarsson, Hrafnkeli 9
menn hafa svo sannarlega reynzt topp- - VS
Valbjörn Þorláksson stefnir að þriflja heimsmeistaratitilinum í kvöld á HM
öldunga í Hannover^
Hræðsla hjá
Evrópuþjóðum
—við að missa alla sína beztu knatt-
spymumenn til Bandaríkjanna þar
sem peningamir flæða út um allt
Eins og lesendur íþróttasíðunnar
hafa vafalítið tekið eftir höfum við
nokkrum sinnum á undanförnum vik-
um fjallað lítillega um knattspyrnuna í
Bandaríkjunumþar sem hún á geysilega
vaxandi fylgi afl fagna. Nú er hins
vegar svo komið, að Bandarikin, sem
eitt sinn var hlegið afl i knattspyrnu-
heiminum, eru farin að heilla fleiri en
uppgjafa knattspyrnustjörnur frá
Evrópu. Nú eru það allir beztu leik-
menn meginlandsins sem líta þetta
gósenland hýru auga og viðbrögð
knattspyrnusambanda Evrópu hafa
einkennzt af þvi að þau hafa engan veg-
inn gert sér grein fyrir hinni geysiöru
þróun sem hefur orðið í Bandaríkjun-
um — einkum og sér í lagi sl. 2—3 ár.
Fyrir stuttu settu hollenzk knatt-
spyrnuyfirvöld höft á útflutning þar-
lendra leikmanna til Bandaríkjanna
eftir að hafa séð bæði Johann Cruyff
og Johann Neeskens fara yfir Atlants-
hafið. Hvorugur þeirra kom þó frá hol-
lenzku félagsliði heldur fóru þeir báðir
frá Barcelona — Cruyff eftir árs hlé frá
knattspyrnu. Þeir eru báðir hollenzkir
að uppruna og þarlendum knattspyrnu-
yfirvöldum sárnaði að geta ekki lokkað
þá til síns heimalands á ný. Nú er hol-
lenzkum knattspyrnumönnum bannað
að fara yfir sumartímann til Banda-
ríkjanna og lánstími leikmanna má
aðeins vera eitt ár. Þetta hefur enn ekki
tekið gildi en mun gera það frá og með
næstu áramótum.
V-Þjóðverjar hafa séð á eftir Franz
Beckenbauer — keisaranum — til
Bandaríkjanna ásamt Gerd Muller, en
þessir tveir leikmenn voru einhverjir
þeir vinsælustu í sínu heimalandi áður
en þeir fóru til USA, jafnvel þótt báðir
tveir væru við efri mörk knattspyrnu-
ferils síns.
Þjóðverjar hafa einnig sett sínar
reglur í þessu sambandi og nýlega var
ákveðið að leikmaður, sem færi til
Bandaríkjanna gæti ekki snúið aftur til
þýzks félagsliðs fyrr en 1. júlí árið eftir.
Að sögn formanns DFB (Þýzka knatt-
spyrnusambandsins) er þetta gert til
þess að koma i veg fyrir það að leik-
menn freistist til að fara til Bandaríkj-
anna yfir sumartímann. „Keppnistíma-
bilið í Bandaríkjunum er frá marz þar
til í september og rekst þar með á við
okkar keppnistímabil og við verðum að
gera einhverjar ráðstafanir.”
Englendingar eru alveg á nálum þess-
ar vikurnar og er svo komið að ensku
féiögin óttast að þau bandarísku vilji
ekki aðeins fá menn lánaða yfir sumar-
tímann heldur kaupa þá til langframa
Upphaflega voru aðeins minni spá-
menn sem fóru yfir hafið en nú gerist
það í æ ríkara mæli að toppstjörnur
vilja fara til Bandaríkjanna.
Margir sérfræðingar vilja halda því
fram, að áhrif bandarískrar knatt-
spyrnu á þá brezku muni verða varan-
leg en aðrir eru þeir sem vilja halda að
bandaríska knattspyrnan detti alveg
upp fyrir og drepist endanlega. Það er
harla ólíklegt, en næstu 10 ár ættu að
skera úr um lífdaga hennar.
Heimsmeistaramót öldunga í Hannover:
„Kominn fiðringur
í fararstjórann”
—segir Valbjöm Þoriáksson, sem stef nir að þriðja
heimsmeistaratitlinum ídag
„Þetta gekk ágætlega hjá mér. Eg
sigraði örugglega í mínum riðli á 15,38
sekúndum og ég vonast til að sigra í
úrslitakeppninni á morgun þannig að
ég nái í þrjú gullverðlaun,” sagði Val-
björn Þorláksson í samtali við Dag-
blaðið í gærkvöldi að lokinni undan-
keppninni í 110 metra grindahlaupi í
heimsmeistarakeppni öldunga í
frjálsum íþróttum sem fram fer þessa
dagana í Hannover í V-Þýzkalandi.
Valbjörn hefur þegar sigrað í stangar-
stökki og fimmtarþraut.
Valbjörn var með bezta tímann í
undanrásunum í gær og sagði hann að
ef ekkert óvænt kæmi fyrir ætti hann
að sigra. Valbjörn hefur átt við smá-
vægileg meiðsli að stríða í læri og
sagðist hann ekki hafa getað beitt sér
að fullu í fimmtarþrautinni af þeim
sökum. Engu að síður bætti hann
heimsmetið í sínum aldursflokki (45—
50 ára) um 1152 stig og hlaut 3813 stig.
Rétt er að geta þess, að stigagjöfin í
öldungakeppninni er dálitið frábrugðin
hinni hefðbundnu stigagjöf.
„Það er virkilega fín stemmning hérna
og þetta mót er ákaflega vel skipulagt
og gefur ólympíuleikum ekkert eftir,”
sagði Valbjörn. Gífurlegur fjöldi kepp-
enda er á mótinu og koma þeir frá 41
landi. Sagði Valbjörn, að keppendur
frá Norðurlöndum væru einkum mjög
fjölmennir og áhugi á öldungakeppni
mjög vaxandi þar. Dagana 15,—16.
ágúst verður haldið Norðurlandamót
öldunga í Finnlandi og sagðist Val-
björn gjarna vilja komast á það mót þó
allt væri það enn óráðið.
Valbjörn sagði, að íslendingar
mættu gjarna einbeita sér meira að
öldungakeppninni því það væri virki-
lega góð landkynning ef vel tækist til.
Væri ekki síður ástæða til að senda
keppendur utan i slík öldungamót en
að senda yngri mennina, sem sjaldan
næðu verðlaunasætum.
Þess má geta að fararstjóri Valbjörns
er Úlfar Teitsson,einn sterkasti lang-
stökkvari íslendinga hér á árum áður,
og sagði Valbjörn að það væri kominn
mikill fiðringur í hann og áhugi á að
keppa en gallinn væri sá, að hann hefði
ekki enn náð aldursmörkunum, sem
eru fjörutíu ár.
Þess má geta, að Guðmundur
Hermannsson á enn heimsmetið í kúlu-
varpi i aldursflokki 40—45 ára.
-GAJ-
Birgir var hetja
FH-inga í gær
- þegar Framarar gerðu jaf ntef li við gest-
gjafana, 23-23, á útimótinu í Firðinum
FH-ingar lentu heldur betur í kröpp-
um dansi á útimótinu i handknattleik i
gærkvöld er þeir mættu Frömurum á
Lækjarskólaplaninu. Fyrir leikinn var
það vist að FH nægði jafntefli til að
komast í úrslit og það tókst þeim en þó
hékk það á bláþræði. Þegar tvær
mínútur voru til leiksloka var staðan
23-23 og FH hafði boltann. Þeir
misstu hann fljótlega og Framarar hófu
sókn og höfðu boltann þegar flautað
var til leiksloka án þess nokkurn tíma
að hafa komizt nærri því að skora
þennan tíma. FH-ingar hrósuðu því
happi í lokin og mæta Haukum í úr-
slitaleik mótsins, sem fram fer annað
kvöld, en í kvöld fer fram úrslitaleikur-
inn í kvennaflokki.
Framarar byrjuðu leikinn vel í gær
og komust í 7-4 en FH sneri taflinu við
og komst í 8-7 og síðan 14-11 í hálfleik.
í upphafi síðari hálfleiks komst FH svo
í 16-11 og allt stefndi i öruggan sigur
þeirra, en hinir ungu Framarar börðust
eins og ljón vitandi það að sigur myndi
fleyta þeim í úrslitin. Þegar 13 mínútur
voru eftir af leiknum tókst Atla
Hilmarssyni að jafna metin með fallegu
marki og lokakaflann var allt i járnum.
Sverrir Kristinsson var um þetta leyti
útilokaður frá leiknum fyrir kjafthátt
við dómara og Birgir Finnbogason,
sem hafði varið markið í fyrri hálfleik
af prýði, kom inn á að nýju og FH-
ingar geta þakkað honum öðrum
fremur fyrir að hafa hangið í jafn-
teflinu. Bæði liðin léku oft á tiðum
skemmtilegasta handknattleik —
einkum og sér í lagi FH-ingar.
Fyrr um kvöldið léku Valur og
Ármann og sigruðu Valsmenn nokkuð
naumt þar, eða 27-23 eftir að hafa leitt
12-9 í hálfleik. Að þeim leik loknum
léku Vikingar og Stjarnan og þar varð
stórsigur Víkinga staðreynd, 39-21 eftir
að staðan i leikhléi hafði verið 18-11.
Hvorugur þessara leikja skipti neinu
máli upp á úrslit mótsins að gera, en
Valsmenn léku með löglegt lið í gær
eftir að hafa mætt með tvo ólöglega
leikmenn í fyrri viku.
„Ho, ho, ho hér kem ég,” sagði tröllskessan og hló eða „Hver ekur eins og Ijón með aðra hönd á stýri.” eða jafnvel Sláttumaðurinn slyngi, gæti átt við þessa
skemmtilegu mynd af Atla Eðvaldssyni þar sem hann er að slá grasvöllinn 1 Laugardalnum. DB-myndS.