Dagblaðið - 01.08.1979, Síða 24
340 milljóna spamaðaraðgerðir ríkisspítalanna
400SUMAR-
MÖNNUM SAGT UPP
Breytingar á vinnutíma sem spara eiga 100 milljónir mæta harðri andstððu
Ríkisspitalarnir hafa ákveðið að
segja upp öllu sumarafleysingafólki
sínu, um 300—400 manns. Davíð Á.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
ríkisspítalanna, staðfesti þetta í sam-
tali við DB. Hann kvað spítalana búa:
við mikla fjárvöntun og uppsagnir
þessar væru einn liðurinn í 340
milljóna sparnaðaráætlun.
Annar liður sparnaðar er veruleg
fækkun starfsfólks sem ráðið hefur
verið utan við heimilaðar stöður.
Samhliða þessum uppsögnum hafa
verið ákveðnar breytingar á vinnu-
tíma um eitt þúsund vaktavinnu-
manna. Vaktafólk hefur ekki matar-
og kaffitíma og er það bætt upp
með 25 mínútum sem greiðast sem
umframtími með álagi. Til stendur að
stytta dagvakt sem þessum 25
mínútum nemur og fellur launa-
greiðsla þá niður. Er ætlunin að
spara með þessum hætti um 100
milljónir króna.
,,Við teljum að þetta jafngildi upp-
sögn því breytingar á vinnutíma er
ekki hægt að gera nema í samning-
um," sagði Einar Ólafsson, for-
maður Starfsmannafélags ríkisstofn-
ana, í samtali við DB. Kvað hann
starfsfólkið ráðið upp á gildandi
samninga og ef breyta ætti þeim ein-
hliða hlyti starfsfólk að meta það
hvort það gæti gegnt störfum sinum
áfram.
-GM.
frfálst, oAáð dagblað
MIÐVIKUDAGUR1. ÁGÚST1979.
Bjargað úr
læknum nær
dauða en líf i
Drukkinn maður var hætt kominn i
læknum í Nauthólsvík á fimmta tíman-
um í nótt, en fyrir tilviljun tókst að
bjarga honum og var hann í morgun
talinn úr lífshættu.
Maðurinn hafði ásamt félaga sínum
farið í lækinn í nótt. Þar munu þeir
báðir hafa dottað, en annar vaknaði og
sá þá félaga sinn kominn undir vatns-
borðið. Kippti hann honum upp úr og
hlúði að honum og tókst að láta boð
berast til lögreglu. Var maðurinn flutt-
ur illa haldinn í slysadeild en þar tókst
aðréttahannviðáný.
Drukkið fólk er versti óvinur lækjar-
ins og nánast það eina sem setur blett á
hann, að sögn lögreglu. -ASt.
HM unglinga ískák:
Margeir
með 2,5 v.
Margeir tétursson sigraði Rogers frá
Ástralíu í 4. umferð heimsmeistara-
móts unglinga í Skien i Noregi. Margeir
er nú með 2,5 vinninga. Efstur er
Kumar frá Indlandi með 4 vinninga.
Næstur honum er Alexander Chernin,
Sovétríkjunum með 3,5 vinninga.
Staðan er að öðru leyti mjög óljós
vegna fjölda biðskáka.
AUs verða tefldar 13 umferðir eftir
Monrad-kerfi. -GAJ-
NMískák:
Jón L efstur
— ilmvatnslyktin varð
Ingvari að falli
Frá Ásgeiri Þ. Árnasyni, fréttaritara
DB í Sundswall:
Það má segja, að Bragi Halldórsson
hafi reynzt Jóni L. Árnasyni feitur biti
þegar 6. umferð á Norðurlandamótinu
í skák var tefld í gær þvi að með sigri
gegn honum náði Jón forystu á mót-
inu.
Jón er nú i 1.—2. sæti ásamt Öst-
berg, Svíþjóð með 5 v. I 3.—4. sæti eru
Niklasson, Svíþjóð og Nikopp, Finn-
landi með4,5 v. og innbyrðis biðskák.
Niklasson hefur heldur betri stöðu
gegn Nikopp þannig að forystan verður
líklega ekki lengi í höndum Jóns. Jón
beitti nimsóindverskri vörn með svörtu
og náði fljótlega frumkvæðinu og vann
sannfærandi.
Ingvar Ásmundsson tefldi sina verstu
skák í mótinu. Andstæðingur hans, S.
Hjort, Svíþjóð, beitti uppskiptaaf-
brigðinu af slavneskri vörn og Ingvari
tókst aldrei að jafna taflið.
Fyrirkomulagið á mótinu er þannig
að skákmenn á 9 efstu borðunum tefia
saman í sér herbergi ásamt kvenna-
fiokknum. Er talsvert eftirsóknarvert
að komast þangað inn og kallast að
komast í kvennabúrið. Ekki eru þó allir
of hrifnir og Ingvar afsakaði tap sitt í
gær með því að hann hefði ekki getað
teflt fyrir ilmvatnslykt.
Úrslit hjá íslendingunum í gær urðu
þessi: Ásgeir Þ. Árnason og Áskell
Kárason unnu. Gunnar Finnlaugsson,
Elvar Guðmundsson, Haukur Berg-
mann, Guðni Þórhallsson og Jón Þor-
varðarson eiga biðskák. Guðni Sigur-
bjarnarson, Björgvin Jónsson og Sig-
urður H. Jónsson gerðu jafntefli GAJ
Olíumalarmálið fyrír ríkisstjórn
Skuldar millj-
aröeftirárið
,,Næsta skrefið er að ríkisstjórnin
taki Olíumalarmálið fyrir og verður
það liklega næstu daga,” sagði Sig-
hvatur Björgvinsson stjórnarfor-
maður Framkvæmdastofnunnar
ríkisins.
Á fundi sem haldinn var 17. júlí i
stjórn Framkvæmdastofnunnar kom
fram að staða Oliumalar h/f var enn
nú verri en háldið hafði verið.
Áætlað tap fyrirtækisins á þessu ári
reyndist þá vera 1.601 milljón
miðað við 30 þúsund tonna fram-
leiðslu á árinu. Eftir því að dæma eru
skuldir umfram eignir 748 milljónir.
Sú hlutafjáraukning sem ýmis
sveitarfélög, Framkvæmdasjóður og
fyrirtækið Miðfell voru búin að sam-
þykkja hrekkur ekki nærri fyrir
þessum skuldum, 512 milljónir verða
enn eftir. Ábyrgðir Útvegsbankans
fyrir Olíumöl er ekki undir 600
milljónum vanskil við Framkvæmda-
stjóð nema 125 milljónum og gjald-
fallinn söluskattur er 100 milljónir.
„Spurningin er hvort æskilegt er
og nauðsynlegt fyrir okkur að eiga
fyrirtæki eins og Olíumöl. Ég held að
svarið hljóti að vera játandi en þá er
bara spurningin hvaða fjármunir eiga
til þess að koma. Sveitarfélögin ráða
ekki við þetta ein og ég tel rétt að
ríkið s'-m sér um allar framkvæmdir
á þjóðvegum eigi jafnframt í fyrir-
tækinu. Það er ljóst að sveitarfélögin
geta ekki séð fyrirtækinu fyrir
nægum verkefnum og því er
nauðsynlegt að þáttur ríkisins komi
til.
Fyrir þessu tel ég nauðsynlegt að
sveitarfélögunum sé gerð grein, svo
þau gangi að stöðu fyrirtækisins með
opnum augum,” sagði Sighvatur.
Tómas Árnason fjármálaráðherra
er í fríi þessa viku og verður Olíu-
malarmálið að öllum likindum tekið |
fyrir er hann kemur aftur.
-DS.
Landinn gerist suórœnn í hugsun og háttum þegar veðrið er eins blítt og raun ber vitni, a.m.k. sunnan heiða. Otimarkaðurinn
á Lœkjartorgi nýtur mikilla vinsœlda og einstaka kaupmenn nota tœkifœrið I góða veðrinu ogfœra grœnmetið útfyrir búðar■
vegginn. Það erþvl von tilþess að folir innanbúðarmenn og búðarlokur nái sér I lit á kinnamar og tómatamir roðni I sumar-
blíðunni. DB-mynd Sveinn.
VÖRUBÍL-
STJÓRAR
L0KUÐU
VEGUM Á
VELLINUM
— tilaömótmæla
ágangi vamarliðsins
áþeirrarétt
Fimmtán vörubílstjórar úr Kefla-
vik lokuöu í morgun aðalvegi og
aukaleiðum að flutningamiðstöð
varnarliðsins á Kefiavikurvelli. Stóð
aðgerð vörubílstjóranna í klukku-
stund en fór friðsamlega fram.
Guðlaugur Tómasson hjá Vöru-
bílastöð Kefiavikur tjáði DB i morg-
un að aðgerð þessi hefði verið gerð til
að leggja áherzlu á að bílstjórarnir
héldu þeim vinnuréttindum sem þeir
hafa haft á Vellinum. Segja bilstjór-
arnir að varnarliðið sæki stöðugt
meira inn á vinnuréttindi þeirra,
bæði með flutningum frá Reykjavík
suður eftir og eins innan vallar-
svæðis, en samkvæmt varnarliðs-
samningum eigi þessi vinnuréttur að
vera í höndum bilstjóra á Sitðurnesj-
um.
Guðlaugur sagði að icit.tð 1
verið til varnarmálanefndar en málið
þar ekkert gengið. Bilstjóra'nn «
hentu mótmælabréf kröfum íinum ' ’
stuðnings í morgun auk þcss aA '
vegum að fiutningamiðstöðint! AM.
Átmann Snævarr
forseti Hæstaréttar:
„Vonmínað
forseti gegni
embættiáfram”
„Ég tel alls ekki tímabært að ræða
þetta mál fyrr en forseti hefur látið
það uppi, að hann gefi ekki kost á'
sér,” sagði Ármann Snævarr, forseti
Hæstaréttar, cr hann var spuröur að
þvi hvort hann hygöist gefa kost á sér
við forsetakjör.
„Það er mín von að forseti gegni
embætti sínu áfram.”
Hæstirétturstað-
festi framsals-
úrskurðinn
Hæstiréttur staðfesti i gær niður-
stöðu undirréttar um framsal tæplega
þrítugs fslendings sem sænsk yfirvöld
hafa óskað eftir að fá framseldan
vegna aðildar hans að umfangsmiklu
fíkniefnamáli í Sviþjóð.
í úrskurði sínum klofnaði Hæsti-
réttur íslands. Þrír dómenda töldu að
skiiyrði til framsals væru fyrir hendi,
en tveir töldu ekki örugga vissu
fengna fyrir því að um svo mikið brot
væri að ræða hjá þessum Islend-
ingi að það varðaði framsal sam-
kvæmt framsalslftguntim.
Þetta er i fyrsta sinn sem Hæsti-
réttur fjallar um slíkt má! oftii .tð
framsalslögin tóku gildi • BS.' ASt.