Dagblaðið - 24.09.1979, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐK). MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
FORSTOFUHÚSGÖGN
3 breiddir
LIPRA UNGLINGASKRIFBORÐ
Húsgögn í úrvali
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
Hagstœtt verð
OPIÐ FÖSTUDAGA
TIL KL. 7
LAUGARDAGA
KL. 10-12
A mM
AV
A.GUÐMUNDSSON HF
Húsgagnaverksmiðja
Skemmuvegi 4, Kópavogi. Sími 73100.
ISLENZK
HÖNNUN
SPÍRA SVEFNBEKKÍR
fSLENZK
LISTASMÍÐ
14 tegundir aj trukkum
MODELBUÐIN
SUÐURLANDSBRAUT12
50 tegundir afflugyélum
so
tegundir
ufbílum
Klugmenn Arnarflugs, sem áður slörfuðu hjá Vængjum, við sinn gamla
vinnustað.
Samgöngur við heilu byggðarlögin:
Ekki í hendur
braskara
úr Reykjavík
Ágústa Óskarsdóttir hringdi:
Ég er ein af þessum árrisulu
,,bara” húsmæðrum þessa lands.
Siðastliðinn vetur hafði ég éins og
fleiri landsmenn mjög mikla ánægju
af Morgunpósti útvarpsins. En þeir
þættir sem fluttir hafa verið í vetur
hafa verið heldur daufir og mér
finnst að í þá vanti einhvern léttleika
sem einkenndi þá áður.
Sem dænti hefuf verið
umfjöllunin um málefni Vængja,
þ.e. úthlutun þeirra flugleyfa, sem
félagið hafði til Arnarflugs. í þrem
þáttum hefur verið fjallað um málið
og það á mjög einhliða hátt.
Fyrst var flutt viðtal viA Kristin
Finnbogason forstjóra Iscargo
(kraftaverkamanninn á fjármálasvið-
inu sem skildi við Timann með tug-
milljón króna skuld, og sem virðist ef
til vill hafa verið milljón i viðbót sem
ekki komst upp um fyrr en eftir að
hann hætti).
í næsta þætti fengu ráðherra og
flugmálastjóri að svara þeim áróðri
sem að þeim var beint í viðtalinu en
fyrrverandi flugmenn Vængja, nú
Arnarflugs og allir þeir sveitar-
stjórnarmenn sem stóðu að
meðmælum úlhlutunarinnar hafa
aldrei verið spurðir.
Í gær, 20.9. var svo viðtal við
Hörð Guðmundsson forstjóra Arna á
ísafirði, sem meðal annars kom með
þá fullyrðingu að aöeins flokks-
bræður ráðherra hefðu staðfest
lausn þessa máls, þ.e. veitingu flug-
leyfa Vængja. Nei, það voru ekki
bara alþýðubandalagsmenn heldur
menn úr öllum flokkum.
Ég hef verið að velta fyrir mér
hvers vegna stjórnandi Morgun-
póstsins, Páll Heiðar Jónsson, fjallar
um þetta mál á þennan einhliða hátt.
Eða eiga þetta ef til vill að vera fram-
haldsþæftir i Morgunpóstinum?
Hvar er nú hlulleysi útvarpsins eða á
Páll einhverra hagsmuna að gæta?
Ég hcf búið úli á landi á stað sem
Vængir flugu til en nu Arnarllug. Eg,
eins og flestir ibúar þessara staða, er
sannfærð um að nú sé að lokum að
hilla undir að samgöngur við þessi
byggðarlög komist á fastan og örugg-
an stað, þótt um byrjunarörðug-
leika hljóti alltaf að vera að ræða.
Við þekkjum flugmennina orðið i
gegnum árin og lílum mörg hver
orðið á þá sem persónulega
kunningja okkar þótt við þekkjum
þá ekkert. Þeir vilja yfirhöfuð allt
gera fyrir farþegana þó stundum hatl
komið fyrir mistök hjá félaginu sem
þeir unnu hjá, svo sem að áætlanir
stóðust ekki. Það er sko örugglega
ekki flugmannanna sök.
Nei, samgöngur heilu byggðarlag-
anna eiga ekki að vera í höndum
landsþekktra braskara úr Reykjavík
s.s. þjóðkunns skattakóngs og fyrr-
verandi kraftaverkamanns hjá
Iscargo. Það þýðir ekki fyrir þessa
aðila að berja höfðinu við steininn
með aðstoð Páls Heiðars.
ATHUGASEMD
VIÐFRÉTT
Ari Jónsson, Sólbergi, skrifar:
1 Dagblaðinu 17. þ.m. er sagt frá
árekstri tveggja bifreiða nálægt
Laxamýri. Þarna rákust á Toyota-
fólksbtll og vörubifreið. 1 frétt þess-
ari var látið að því liggja að
ökumaður ToyotabíTreiðarinnar
hefði átt höfuðsök á árekstri þessum
en staðreyndin er sú að ekkert hefur
komið fram, sem bendir til óvarkárni
af hans hálfu.
Tildrög þessa hörmulega slyss
munu vera þau að Toyotabifreiðin
var á leið frá Akureyri til Húsavikur
en vörubifreiðin að koma frá Húsa-
vík á leið upp í Reykjahverfi. Bif-
reiðarnar mætast svo við vegamót
þar sem vörubifreiðin ætlar að
beygja út af aðalveginum og af ein-
hverri óskiljanlegri ástæðu virðist
ökumaðurinn ekki hafa tekið eftir
Toyotabílnum í tíma þvj_hann byrjar
að bcygja yfir á vinstri vegarhelming í
veg fyrir fólksbílinn, sem þó hlýtur
að hafa verið kominn mjög nærri því
bremsuför mældust ekki nema örfáir
metrar þar til bílarnir skullu saman.
Liklegast er að við stefnu-
breytingu vörubilsins hafi ökumaður
Toyotabifreiðarinnar farið að
nauðhemla með þeirn afleiðingum að
bifreið hans snárast til á veginum
og lendir á vinstia framhjóli vöru-
bilsins sem missir bæði framhjól við
höggið.
Ekki er ég i aðstöðu til að dæma
- um þá hægu ferð sem sögð er hafa
verið á vörubilnum, en ekki er á-
stæða til að ætla að hraði hans hafi
verið meiri en eðlilegt má telja, þó
getur hann hafa verið nokkuð yfir því
sem hægt er að kalla hæga ferð því
þarna er um gleiða beygju að ræða
sem auðvelt er að taka á töluverðum
hraða, að minnsta kosti hafði hann
nægan hraða til að kasta Toyotabif-
reiðinni 10 metra til baka og renna
síðan út af veginum þó framhjólalaus
væri orðinn. Með þökk fyrir
birtinguna.
Alhugasemd blm.
Þær upplýsingar sem umrædd frétt
er byggð á eru fengnar hjá lög-
reglunni á Húsavík. -DS.