Dagblaðið - 24.09.1979, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
19
Dimssiflti
Innritun og upplýsingarkl. 10—12 og 13—19
Símar:
20345,38126,24959,
74444,39551
ATH.
Konur, munið
„beat" tímana
vinsælu!
Nýjustu disco-dansarnir
Barnadansar, samkvæmisdansar,
'gömlu dansarnir
KENNSLUSTAÐIR
REYKJAVÍK
Brautarholt 4
Drafnarfell 4
Félagsh. Fylkis (Arbæ)
Kópavogur
Hamraborg 1
Kársnesskóli
Seltjarnarnes
Félagsheimilið
Hafna-fjörður
Gúttó
Japan er þungamiðja vetrardagskrárinnar. Hér er atridi úr einni myndinni
TVÖFALT SJÁLFSMORÐ, sem sýnd er í vetur.
hver mynd sýnd fimm sinnum, þ.e. á
fimmtudögum kl. 21, laugardögum
kl. 17 og sunnudögum k. 17, 19.30 og
22.
Japanskar
myndir
Ef litið er yfir dagskrána kemur í
ljós að megináherslan hefur verið
lögð á japanska kvikmyndagerð og
þýskan expressionisma. Flestar
japönsku myndirnar hafa verið sýnd-
ar hér á landi áður enda um sígild
kvikmyndaverk að ræða. Sú nýjasta
af nálinni er VELDI
ÁSTRÍÐNANNA eftir hinn marg-
umtalaða Nagisa Oshima en hann
gerði myndina Veldi tilfinninganna
sem var þrætueplið á sl. listahátíð.
Akira Kurosawa er líklega þekktast-
ur japanskra leikstj. hérlendis. Ein
mynd er eftir hann, DODESKA
DEN, ógleymanlegt verk þeim sem
sáu það þegar myndin var sýnd sem
mánudagsmynd fyrir nokkrum árum.
Kenji Mizoguchi er með UGETSU
MONOGATARI sem er nokkurs
konar draugasaga. Hann var málari
áður en hann gerðist leikstjóri enda
er myndin ótrúleika myndræn.
OLYMPÍULEIKARNIR í TOKYO
nefnist mynd sem Kon Ichikayva
gerði af samnefndum leikjum 1965.
Þar fjallar hann um mannlegu
hliðina á íþróttamönnunum,
tilfinningar þeirra, sigra og sorgir.
ONIBABA er frá árinu 1964 og
leikstýrð af Kaneto Shindo. Hún á-
, samt TVÖFÖLDU SJÁLFSMORÐI
(1969), sem einnig er sýnd í vetur, er
dæmi um nýja stefnu í japanskri
Fjalakötturinn er
kominn afturá kreik
Fimmta starfsár Fjalakattarins,
kvikmyndaklúbbs framhaldsskólanna,
kvikmyndagerð sem ruddi braut fyrir
yngri kvikmyndagerðarmenn með
nýjar og ferskar hugmyndir.
Sérstætt
tímabil
Fyrir áhugamenn um þýskan
expressionisma er af nógu að taka.
Þetta blómlega og sérstæða tímabil í
þýskri kvikmyndagerð er tekið
nokkuð vel fyrir. Iléi er kvikmynda-
formið oft nýtt til hins ýtrasta eins
og i SKÁPUR DR. CALIGARI
(Robeit Wiene) eða rnn þ 'kktu
hryllingsmynd Murnau NOSFER-
ATU. Þess • má þá líka geta að
Herzog kvikmyndaði nýlega mynd
með sama heiti byggða á útgáfu
Murnau. Fritz Lang er með tvær
myndir, báðar mjög merkilegar frá
kvikmyndasögulegu sjónarmiði. Það
er framtíðarmyndin METROPOLIS
og myndin um barnamorðingjann
,,M” þar sem Lang fer á kostum
,,M” var gerð 1931 en L.ang lenti í
útistöðum við nasista þegar hann
vann við gerð hennar.
En það er ýmislegt fleira
forvitnilegt á vetrardagskrá Fjala-
kattarins. Hún hefst með mynd
itölsku bræðranna Paolo og Vittorio
Taviani ALLONSANFAN en þeir
opnuðu einnig dagskrána í fyrra með
myndinni Höfuð ættarinnar. Myndin
gfrist á ítaliu 1917 þegar stuðnings-
manni byltingarhóps er sleppt úr
fangelsi en ætlun yfirvalda er að
hann gefi þeim vísbendingu um
dvalarstað þeirra. Það er Marcello
Mastroianni sem fer með aðalhlut-
verkið.
Bob Dylan
Strax næstu helgi á eftir kemur
svo RENALDO & CLARA sem Bob
Dylan gerði. Myndin er unnin að
•mestu úr efni sem tekið var á hljóm-
leikaferð Dylans um Bandarikin
hófst20. septembersl.
Þegar skólarnir byrja á haustin og
fólk fer að búa sig undir veturinn
tekur menningarlífið að blómstra. Á
sviði kvikmyndanna hefur Fjala-
kötturinn, kvikmyndaklúbbur fram-
haldsskólanna, verið nokkuð drjúgur
en hann hóf sitt fimmta starfsár sl.
fimmtudag þ.e. 20. september. Að
venju hefur hann margt upp á að
bjóða og ætti hver og einn að geta
fundið þar eitthvað við sitt hæfi. 34
sýningar eru á vegum klúbbsins að
frátöldum aukasýningum sem
ætlunin er að séu mánaðarlega. Verði
skírteinanna er mjög stillt í hóf og
kostar félagsskí rteini á allar
sýningarnar aðeins 8000 krónur, sem
ekki getur talist dýrt. Félagskírteinin
eru gefin út á nafn og gilda á ákveðna
sýningartíma þótt félagsmanni sé
heimilt að sækja sýningar á öðrum
tímum en skírteinið segir til um ef
húsrúm leyfir. Sýningar Fjalakatt-
arins fara fram i Tjarnarbíói og er
BaldurHjaltason
Dagskrá Fjalakattarins 1979—80
dagsetnTng HEm MYNDAR LEIKSTJÓRI
SepL 20., 22., 23. AJlonsanfan Paolo & Vhtorio Taviani
Sapt.27.,29.,30. Ranaklo £f Ciara BobDylan
Okt.4.,6.,7. Dagbók önnu Magdalenu Bach
IChronik der A.M. Bach) Jun-Marit Straub
OkL 11., 13., 14. AOtarfah (Everything for sale) Andrzej Wajda
Okt18.,20.,21. Hið langa sumarfri árið 1936
(The Long Holydays of 1936) Jaime Camino
OkL 25., 27., 28. Nosferatu F.W. Mumau
Nóv.1.,3.,4. Zabriskie point M. Antonioni
Nóv.,8.,10.,12. Weekend Jaan-Luc Godard
Nóv. 15., 17., 18. Milijónin (Le MHUon) Raná Clalr
Nóv.22.,24.,25. Nóv.29., Hnffur f vatninu (KnHe in the water) Roman Polanski
Dm. 1.,2. Saga Ugetsu (Ugetsu Monogatari) Kenji Mizoguchl
Des.6.,8.,9. Lyfta til aftökustaðar
(Lift to tf ie Scaff old) Louis MaHé
Des. 13., 15., 16. Hakakromstnn (Swaatikal Philippe Mora
Jan.3.,5.,6. Tvöfah sjátfsmorð (Double Suicide) Masahiro Shinoda
Jan. 10,12., 13. Skápurdr. Caligari
tDaa Kabinatt daa Dr. Caiigaril Robert Wiene
Jan.17.,19.,20. írafár vegna mynda Georgle og Bonnie
(HuNabaloo ovar Gaorgla £t Bonniaa' a Pict.) Jamaalvory
Jan.24.,26., 27. Undlr þökum Parisarborgar
Jan. 31., (Undar the Roofs of Paris) Renó Clair
Fab.,2., 3. Onibaba Kaneto Shlndo
Fab.,7.,9.,10. Veidi ástriðnanna (Empke of Passion) Nagisa Oshima
Feb. 14., 16., 17. Borg hins takmaricalausa ótta Jean-Pierre Mocky
Feb. 21., 23., 24. Feb.28., Mlili Hnanna (Batwaen the Unes) I Joan Micklin Silvar
Mars 1., 2. Dodeska den Aklra Kurosawa
Mars 6.,8.,9. The chemist(Efnafrseðingurinn) / Dhto Oustar Kaaton
Stuttar myndir Max Linder
Mar.13.,15.,16. Aflegro non troppo Bruno Bozzetto
Mar 20., 22., 23 Sem svipt úr höfðl gamals manns
(I huvot pá en gammal gubbe) Taga Daniaisson
Mar.27,29., 30. Nssrmynd af listamanninum á yngri árum
(Portrah of the ardst as a young man) Joseph Strick
Apr.3.,5.,6. Nfu mánuðir (Nkie Months) Martha Mezáros
Apri. 10.. 12., 132. Hugrakki fóbtaina (Cooraga of tha pooplal Jorge Sanjines
Apr.17.,19.,20. Apr.24.,26.,27. Steamboat Bill Jr. Buster Keaton MrinalSen
Maí 1., 3., 4. „M" FritzLang
Mai 8., 10,11. Ólympiuteikamir I Tókýó
(Tokio Olympiad) Kon lchikawa
Mal15., 17., 18. Punk In London Wotfgang Buid
Maf 22., 24., 25. , Metropoiis FritzLang
1975—1976. Efnisþráðurinn er mjög
laust bundinn og eru lögin aðaltengi-
liðurinn.
Af öðrum nýlegum myndum má
nefna HIÐ LANGA SUMARFRÍ
ÁRIÐ 1936 sem Spánverjinn Jaime
Camino leikstýrði 1976. Eins og heiti
myndarinnar gefur lil kynna fjallar
hún um sumarfrí fjölskyldu ekki
langt frá Barcelona þegar borgara-
styrjöldin skall á. James Ivory er
með nýja mynd, ÍRAFÁR VEGNA
MYNDA GEORGIE OG BONNIE,
sem hlotið hefur gífurlega góða
dóma hvarvetna. Líka má nefna
PORTRETT AF LISTAMANNIN-
UM Á YNGRI ÁRUM, sem Jóseph
Strick gerði 1977 eftir bók James
Joyce með leikurum eins og Sir John
Gielgud.
En Fjalakötturinn stendur fyr-
ir fleiru en kvikmyndasýningum.
Hann á kvikmyndatökuvél sem lánuð
er félögum endurgjaldslaust. Einnig
er til kvikmyndasafn fjalakattarins
sem hefur á boðstólum fyrir skóla og
félagssamtök nokkurn fjölda kvik-
myndasögulegra verka og þá aðallega
frá þýska expressionistatímabilinu.
Það er sem sagt ekki slegið slöku við i
herbúðum þeirra Fjalakattarmanna.
Fyrir þá sem hafa hug á að gerast
félagsmenn skal bent á að félagsskír-
teini eru seld í skólunum, Bóksölu
stúdenta og bókabúð Máls
Menningar.
Saumakonur óskast
hálfan eða allan daginn.
Bláfeldur, Sfðumúla 31, bakhús, sími
30757.
Kvik
myndir