Dagblaðið - 24.09.1979, Blaðsíða 13
Leiklist
Bíldshöfða 20 - S.,81410 - 81199
Sýningahöllin - Ártúnshöföa
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
Aumingja
stelpurnar
Leikfólag Reykjavikur:
KVARTETT
eftir Pam Gems
Sjónleikur
Þýðandi: Silja Aóalsteinsdóttir
Leikstjórn: Guðrún Ásmundsdóttir
Leikmynd og búningar: Guðrún Svava
Svavarsdóttir
Loiktónar: Gunnar Reynir Svoinsson
Lýsing: Daníel Williamsson
Eins og hundrað þúsund önnur
leikrit, sögur, bíómyndir fjallar
Kvartett, nýja sýning Leikfélags
Reykjavíkur, um ungar konur, til-
finningamál og ástir, hjúskap. En nú
fer ekki allt á bestu leið í brúðarsæng
að lokum eins og löngum hefur vel
gefist i sögum. Þvert á móti. Það fer
verr en skyldi. Þvi að Pam Gems er
eins og vænta mátti að yrkja í alvöru,
reifa vandamál, lýsa enn einu sjónar
horni á stöðu og hagi kvenna, frjáls-
borinnar nútímakonu i þjóðfélagi
okkar daga. Og þótt segja megi að
hún fleyti léttilega kerlingar (afsakið
orðið, kvenfrelsiskonur!) eftir sínum
alvörugefnu umtalsefnum fram eflir
öllum leik, þá er ekki hinu að neita að
hún brýnir þau í bitran odd i leiks-
lokin.
Stúlkurnar fjórar i Ieiknum, Fish
og Stas og Dusa og Vi, hver af sinni
sortinni, búa allar saman i ibúð,
dálitið eins og i sögu eftir Snjólaugu
Bragadóttur. Leikurinn gerist allur
þar í ibúðinni. Þvi er það ekki nema
raunsæislegl að láta unga og
föngulega leikkonu, Ragnheiði Stein-
dórsdóttur í þessu tilfelli. gera i þ\i
að afklæðast á sviðinu. Og i
raunsæisins heilaga nafni má lika láta
þær stöllur tala ansi bcrt og gróft unt
cinkamál sin og ástalif. Meira unt
þaðrétt strax.
Stúlkurnar fjórar eru allar ungar
og frískar, þrátt fyrir það sem á móti
blæs. Og eins og ungra stúlkna er
háttur bæði í sögum og lcikritum
brcgða þær líka á gáska, leik og ærsl
öðru hverju í sýningunni. En aðallcga
eru þær samt í rusli, sitt með hverju
mótinu.
Dusa var gift og gekk upp í þvi, en
maðurinn varð skotinn i annarri og
skildi við hana. Þegar henni eru
dæmd yfirráð yfir börnunum stingur
hann af með þau til Marokkó og
Argentinu. Það rætist nú úr þvi i
leiknum, hvað scm vcrður um Dusu
síðan. Verr fer fyrir Fish sem gekk i
kontmaflokk með kærastanum og
fór að garfa i pólitik. En honum lcist
ekki á blikuna þegar henni fór að
serða betur ágengt í pólitikinni en
sjálfum honum, fékk sér þá aðra,
giftist henni og gerði strax ójétta. Og
Fish getur ekki án hans verið, fyrir
henni var ástin og hugsjónin eitt. Vi
er öll i rtisli, snarklikkuð og geng-
úr á lyfjum, bótt hún sé lika um leið
voða skrýlin og sæt. Stas er
staffírugusi af þeim stöllum, iðkar
bæði vændi og þjófnað meðfram
starfi sinu við einhvers konar
hjúkrun, ætlar sér að kornast til
Havai að læra sjávarliffræði, og
tekst það. Hún er i rusli samt,
kannski út af lifnaðarháttum sinum,
kannski einhverju sem glataðist
henni í æskunni. Aumingja
stelpurnar!
Uppistaðan i leiknum er frá-
sagnarefnið af Dusu og Fish og af-
drifum þeirra. Og þótt kvenfrelsis-
málin séu að verða eins og dálítið
slitin af allri umræðunni og að sönnu
nokkuð létt og flysjungslega á þcim
tekið í þessum leik, tekst að lokum að
gera alvöru efnisins ljósa, að líf er i
tafli í leiknum. Dauðinn er alvara. Á
sinn léttilega máta fjallar Kvartett
um ósættanlegar andstæður i lífi
kvennanna sem hann lýsir. átök
ólikra kvengerva eða hlulvcrka um lif
þcirra. kvenhefðar og frclsi'kröfu
scnt ekki tekst að sætta og
samræma.
Ragnheiður Steindórsdóttir og Hanna
María Karlsdóttir í hlutverkum sínunt
í leikritinu Kvartctt.
Og lcikurinn cr ásjálegur i Iðnó i
sviðsetningu Guðrunat Asmunds-
dóttur, og gaman að sjá-ný andlil á
sviðinu. Allt á litið held ég að tekist
hafi furðu mikið jafnræði mcð þeim
stöllum í leiknum og jafnvægi
gamans og alvöru í meðferð efnisins.
Sigrún Valbergsdóttir átti að sönnu
erfitt í Castro-gervinu pólitíska en
kom að öðru leyti vel fyrir i hlutverki
hinnar næmlyndu Fish. Hanna María
Karlsdóttir bar heilmikinn þokka í
klikkaða litla skoffínið, Vi. Guðrún
Alfreðsdóttir, sem ekki hefur sést á
sviði nokkur ár, lýsli Dusu heima-
konu einkar trúvcrðuglega. En að
sönnu sópaði mest að Ragnheiði
Steindórsdóttur í hlutverki hinnar
framsæknu gleðikonu, Stas. Og
sýningin er sannarlega sinnar kvöld-
stundar virði.
En tvö álitaefni að lokum.
Eins og nærri má geta veit ég ekki
glöggt hvcrnig ungar stúlkur tala um
„feimnismál”, sem svo voru eitt sinn
nefnd, sín i milli. Þýðing Silju
Að.ilsteinsdóttur heyrðist mér á
reip enn.'tndi máli — en er orðafar
eins og ,,tussa”, tittlingur", „riða”
og annað slíkt virkilcga trúverðugt
mal i munni kvenna af því tagi sem
leikurinn lýsir, greindra og
mcnntaðra miðstéttarkvenna á
þritugsaldri? Ef ekki, hvernig tala
þær þá um þessa hluti i sinn hóp?
Það er auðvitað prýðilegt að höfund-
ur/þýðandi sé frir af sér i tali, en
merking leiksins held ég velti mest á
þvi hve trúverðuglegar persónur og
atburðir hans vcrða á sviðinu. Og
það var að fleira leyti en þessu
nokkuð löng seiling til kvennanna
eða kannski öllu heldur „kven-
gerðanna” í Kvartetti.
Á sama máta má mætavel hugsa
sér alveg raunsæislega sviðsmynd um
leikinn. Samt mátti vel una við lcik-
mynd Guðrúnar Svövu Svars-
dóttur, alla i bláu, með sinum stóru
stinnu trjábolum og hjúfrandi
slæðum. En ekki grynnti ég í mynda-
sýningu á tjöldum við sviðsbrún,
myndum og myndbrotum cftir
„nýrealista” eða „nýsúrrealista” að
mér sýndist. Var kannski lagt einum
of i umferð leiksins að þessu leyti og
með hinum margbrotnu „leik-
tónum” Gunnars Reynis Sveins-
sonar? Augljóslega riður mest á þvi
(afsakið orðið, ó teprulcgu lesendur)
að frásagnar- og umræðuefnið kom-
ist ótruflað fram i þessum leik og
sýningu.
Og vel að merkja: orðið
„leiktónar”. Það er orðin brýn þörf
á nothæfu orði fyrir tónlistarívaf í
leik og ýmislega hljóð-cffckta sent nú
tiðkast í vaxandi mæli á sýningum.
Tegund N 14/401 á myndinni mœlist:
Höföagafl mesta breidd: 252 cm
Rúmið mesta lengd: 225 cm
Svefnpláss 2 dýnur: 75 cm x 200 cm
1 verzlun okkar á 2. hœð Sýningahallarinnar eru —
ar þetta er skrifað — nákvœmlega 72 (sjötíu og
mismunandi gerðir svefnherbergissetta uppsettar.
Komdu og skoðaðu þetta
miklaúrval
LAjV DSMÓjXI jsta
Þeir sem ekki komast í bceinn HRINGJA eða SKRIFA
LITIR: Ljós viður + brúnt rúskinn
Dökkur viður + rauðleitt rúskinn
Venjuleg afborgunarkjör:
20% út, rest á 5 mán.
RÚMINU FYLGIR:
klukkuútvarp, tvær dýnur,
rúmteppi, snyrtiborð, stólkollur,
2 lampar.