Dagblaðið - 24.09.1979, Blaðsíða 31

Dagblaðið - 24.09.1979, Blaðsíða 31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979. 31 Sjónvarp » \ t-------------------- BOGINN—útvarp kl. 17,20: c Útvarp MIDDEGISSAGAN - útvarp kl. 14.30: ERLENDIR LÆKNAR Á FERD UM ÍSLAND t-------------------------- LEIKRIT - sjónvarp kl. 21.05: „Þessir þættir segja frá komu fjögurra erlendra lækna hingað ti! lands árið 1895. Þeir voru frá Englandi, Frakklandi, Þýzkalandi og Danmörku. Það var danski læknirinn Edvard Lauritz Ehlers sem skrifaði þættina. Hann var heimsfrægur fyrir rannsóknir sínar á holdsveiki og reisti t.d. holdsveikisjúkrahús í Laugarnesi,” sagði Kjartan Ragnars stjórnarráðslull- trúi, er hann var inntur eftir miðdegis- sögunni í dag í útvarpi. „Edvard Ehlers var fyrirliði læknanna í þessari ferð sem átti að vera skemmtiferð en var öðrum þræði til að kynnast holdsveiki á Islandi. Þeir ferðuðust um landið og heimsóttu sveitabæi. Edvard Ehlers hafði komið hér áður, árið 1894. Hann skrifaði mikið af ritum og gaf m.a. út alþjóðlegt tímarit, Lepra, sem þýðir holdsveiki. Einnig skrifaði hann mikið um vændi og kynsjúkdóma,” sagði Kjartan Ragnars ennfremur. Fyrsti hluti ferðaþátta læknanna er í dag eins og áður er sagt, en alls verða þættirnir þrír. Það er Kjartan Ragnars sjálfur sem þýtt hefur söguna. -ELA. Kjartan Ragnars stjórnarráösfulltrúi les þýðingu sina á þáttum eftir dr. Edvard Lauritz Ehlers í miðdegissögu í dag, þriðjudag og miðvikudag. ____________________________________; -----------------------------------'i Úr myndinni Sérvitringar í sumarleyfi. Roger Sioman og Alison Steadman í hlutverkum stnum. SERVITRINGAR ÍSUMARLEYFI Sérvitringar í sumarleyfi nefnist brezkt sjónvarpsleikrit, gert af Mike Leigh, sem sjónvarpið sýnir i kvöld kl. 21.05. Leikritið fjallar um mann nokkurn sem talinn er mjög sérvitur. Hann fer í tjaldútilegu með konu sinni. Maðurinn er jurtaæta og allt sem hann gerir er V_______________________________________ mjög nákvæmt, og eru hugmyndir hans á allt öðru plani en hjá venjulegu fólki. A tjaldsvæðinu, þar sem hjónin koma sér fyrir, gilda mjög strangar reglur sem koma ekki alveg heim og saman við þær hugmyndir' sem maðurinn hafði gert sér. í leikritinu, sem er í léttum dúr, er verið að sýna fram á að sérvitringurinn er smá- skrýtinn. Með aðalhlutverk fara Roger Sloman og Alison Steadman. Leikritið er einnar klukkustundar og tuttugu mínútna langt og er þýðandi Heba J úlíu sdóttir. -ELA. __________________________________/ SKYNDIIMYNDIR Vandaöar litmyndir i öll skírteini. bama&fjölskyldu- Ijósmyndir AUSTURSTRÆTI 6 SIMI 12644 „Falleg og hlýleg saga” —segir þýðandinn, Gunnar Stefánsson „Þessi saga er eftir sænskumælandi Finna, Bo Carpelan, sem er á sextugs- aldri. Hann er þekktur og viðurkenndur í sínu heimalandi, þó einna helzt sem Ijóðskáld. Bo Carpelan fékk bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs árið 1977. Hann hefur einn- ig skrifað nokkrar skáldsögur fyrir unglinga og er þessi saga, Boginn, ein þeirra, þó hún hæfi jafnt fyrir fullorðna,” sagði Gunnar Stefánsson, en hann les þýðingu sína á sögunni í út- varpi i dag kl. 17.20. „Sagan segir frá 11 ára dreng, Jóhanni, sem býr i skerjagarðinum. Sagan lýsir aðallega samskiptum hans við eldri dreng, sem er andlega þroskaheftur, hvemig vináttu þessara drengja er háttað og hvernig sá yngri lærir að umgangast vangefið barn. Móðir Jóhanns og fleira fólk kemur einnig við sögu,” sagði Gunnar. „Á næsta ári hef ég hugsað mér að þýða framhald þessarar bókar en þar segir frá því þegar Jóhann flyzl til höfuðborgarinnar. Bókin Boginn er falleg og hlýlega skrifuð og ég vil undir- strika að hún er bæði fyrir unglinga og fullorðna.” V___________________________________ -ELA. Gunnar Stefánsson les þýðingu sina á sögunni Boganum i útvarpi i dag og er það fimmti lestur. DB-mynd Árni Páll. Það er fimmti lestur sögunnar, sem Gunnar les i dag, og er sjötti lestur á morgun. Lesturinn tekur fjörutíu mínútur. Rrtyllw M«wHl«l OPID KL. 9-9 mftunum. kllaiMI a.ai.k. é kvöldia 'HIjOMÚÁVTXITR HAFNARSTRÆTI Simi 12717 Ti/sö/u BMW 528 automatic árg. '77 BMW 520 árg. '77 BMW 30 (De luxe) automatic árg. '75 Renault 20 TL árg. '77 Renault 16 TL árg. '76 Renault 12 TL árg. '77 Renault 12 TL árg. '73 Renault 6 TL árg. '73 Renault 5 TL árg. '75 Renault 4 Van árg. '74 og '76 Reunault 4 Van F6 árg. '77,78 og '79. Opið laugardaga kl. 1—6. Kristinn Guðnason hf. bifreiða- og varahlutaverzlun, Suðuriandsbraut 20, sími 86633.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.