Dagblaðið - 24.09.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 24.09.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979. 9 Frakkar endur- sem/if Bokassa —fór f lugleiðis til einhvers Af ríkuríkis um borð í f ranskri herflugvél Frakkar sendu í morgun á brott einhvern óvelkomnasta gest sinn um langa hríð. Var þar Bokassa fyrrum einraeðisherra í Mið-Afríkulýðveld- inu á ferð en hann fór frá herflugvelli rétt við París áleiðis til einhvers Afríkuríkis. Ekki var kunnugt um hvaða riki það var en talið liklegast að um væri að ræða Chad og Zaire. Þessi fyrrverandi þjóðhöfðingi í Mið-Afríkulýðveldinu steypti frænda sinum úr forsetastóli árið 1966 og krýndi sjálfan sig síðan sem keisara árið 1976. Honum var vikið frá völd- um i friðsamlegri byltingu í fyrri viku. Var hann þá á ferð í Lýbíu þar sem hann leitaði eftir fjárhagsaðstoð. Hann fór þaðan til Frakklands í einkaflugvél sinni en þangað var fjöl- skylda hans komin áður. Hafði hann gert sér vonir um að fá að setjast þar að vegna þess að áður fyrr var hann hermaður í nýlenduher Frakka og hafði franskan ríkisborgararétt. Talið er að Frakkar hafi átt mikinn þátt í að steypa Bokassa úr stóli en áhrif þeirra eru mikil i Mið-Afriku- lýðveldinu. Var það áður nýlenda þeirra. Bokassa fékk ekki eins góðar við- tökur í Frakklandi og hann hafði vonazt eftir. Varð hann að sitja lengi i flugvél sinni og fékk ekki leyfi til að stíga fæti sínum á franska jörð. Seint og um síðir fékk hann að fara Sonur Bokassa sjálfskipaðs keisara var viðstaddur krýningarathöfnina árið 1976. Hann var þá tveggja ára en ekki síður klæddur skrautklæðum en faðirinn. Bokassa ungi mun nú vera kominn til Frakklands ásamt móður sinni og flciri fjölskyldumeðlimum. Þar á Bokassa eignir og meðal annars kastala fyrir utan París. Þar ætlar hann að búa en ekki eru horfur á að það verði í bráð. 1^-——— ■ > til sérstaklega útbúins svefnklefa i byggingu á herflugvellinum. Var það þó gegn eindregnu loforði um að fara aftur til vélar sinnar að morgni. Franskir hermenn voru vel á verði um að enginn kæmist að Bokassa á meðan hann dvaldi i Frakklandi. Loks í morgun gerðist eitthvað í málum hans. Frönsk herþota af gerð- inni DC-8 lenti á herflugvellinum. Bokassa og fylgdarmenn hans voru drifnir um borð i hana og síðan hóf hún sig á loft. Áfangastaður einhvers staðarí Afríku. -Nýkomið!— Kjólar, blússur, pils Elízubúðin ■-MMH-wMvSkipholti 5— Seljendur fasteigna! Okkur vantar allar gerðir og stærðir á söluskrá. Höfum fjársterka kaupendur að 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðum. Ennfremur vantar strax einbýlis- hús, raðhús eða vandaða 4—5 herb. íbúð á góðum stað í borginni. Höfum kaupendur að íbúðum í Hafnarfirði Fasteignasalan Laugavegi 18A Sími 17374 - Heimasími 31593. BLÆJUR Á FLESTAR TEG. JEPPA SlMI 40088. Egyptar hafa endurheimt fyrrí efna- Egyptum hefur tekizt að vinna upp þann skaða er þeir urðu fyrir, við að olÍMauðugarabaríki hættu efna- hagsaðstoð við þá eftir friðar- samningana við israel. Douglas Bennet, talsmaður þeirrar stofnunar í Bandaríkjunum sem sér um erlenda aðstoð, sagði að árið áður en arabarikin kipptu að sér hendinni hefði aðstoð þeirra við Egyptaland numið um það bil 750 milljónum dollara að mati Egypta sjálfra. Þeim hefði að mestu tekizt að vinna þetta tap upp með auknum þjóðartekjum en einnig mun aðstoð frá Bandaríkjunum hafa bætt þar Bennet sagði i gær að aðstoð Bandaríkjanna við Egyptaland næmi nú um það bil 1,1 milljarði dollara á ári. Hann sagði að Bandaríkin væru á engan hátt skuldbundin til að veita Egyptum meiri aðstoð. Hann vildi aftur á móti ekki útiloka að slikt yrði gert. Við gerð friðarsamninga Egypta- lands og lsraels, var fullyrt af mörgum að Bandarikjamenn hefðu lofað Egyptum því að þeir skyldu ekki verða fyrir fjárhagslegu tjóni af völdum samninganna. Héldu vörðunum í 3 klukkustundir Fangar i fangelsi í Illinois i Banda- rikjunum gerðu uppreisn í gær og héldu fjórum vörðum í gíslingu i rúmar þrjár klukkustundir. Voru þarna á ferðinni fangar i dauðadeild fang- elsisins. Höfðu þeir smiðað sér hnifa á laun og tókst að fanga verðina með þeim. Bundu þeir þá við stóla og héldu þeim um hrið. Krafa fanganna var sú að hrein- lætisaðstaðan í t'angelsinu yrði bætt og aðstaða til líkamsæfingn. Fanga- verðirnir sluppu ómeiddir úr prísund- inni eftir að fangarnir höfðu rætt við æðsta mann fangelsismála í lllinoisríki. amerísku*} SCOTT QSTSFISHER hátö/urum á mjög góðu verði. Opið á iaugardögum! Einnig mikiö úrvai af Scott mögnurum og físher útvarpsmögnurum á mjög góðu verði. Attt til M/ómfkitnings fyrir: HEIMIUO — BÍUNN OG D/SKÓTEK/D D i. .i l\du IO ARMULA 38 (Selmúla megini 105 REYKJAVÍK SIMAR: 31133 83177 POSTHÓLF1366

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.