Dagblaðið - 24.09.1979, Qupperneq 4
4 -
4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979.-
DB á ne ytendamarkaði
Húsnæðismálalánið sjálfsagða:
MEÐ TVO PROSENT VOXTUM
OG FULLRIVERDTRYGGINGU
„Blessaður vertu, ég ræð alveg við
þetta. íbúðin kostar 10 milljónir og
svo kemur húsnæðismálalánið. 4
og þá eru bara eftir 4.6 milljónir
Hversu oft höfum við el.ki hc>n
setningar í átt við þessa? Húsnæðis-
málalánið virðist í umræðum manna
á milli bókstaflega detta af himnum
ofan og engar áhyggjur þurfi af þvi
að hafa. Engu er líkara en einhverjir
menn banki upp á einhvern daginn
með 5.4 milljónir í höndunum og
bjóðist til að lána fólki.
En er málið svona einfalt? DB
sneri sér tl Skúla Sii'tirðssonar hjá
Húsnæðismái siofnu. rikisii . Iiað
hann fræða lesendur ógn nánai um
húsnæðismálalán. Það sem Skuli
sagði fer hér áeftir í endursögn.
Hvað þarf til
aðfálán?
Þegar menn vilja fá húsnæðis-
málalán verða þeir að sækja skriflega
um það fyrir I. febrúar þess árs sem
lánið á að greiðast út á. Sé um
nýbyggingu húsnæðis að ræða er
lánið miðað við þann tima er það
verður fokhelt.
Þegar húsið er fokhelt þarf að
FYLGI-
SK J ALALISTI
Fyrir nýjar íbúðir:
Vottorð um fjölskyldu-
stœrö
Vottorð um tekjur
Fokheldisvottorð
Teikningar.
Fyrir gamlar íbúðir:
Vottorð um fjölskyldu-
stærð
Vottorð um tekjur
Kaupsamningur
Sölusamningur ef á íbúð
fyrir
Vottorð um mögulegt líf-
eyrissjóðslán
Auk þess ef vafi er á um
húsnæðið:
Vottorð byggingarfull-
trúa og heilbrigðisfulltrúa
ásamt teikningum.
VASKURINN VIST
AÐ EIGIN VALI
í grein hér á siflunni á fimmtudag
gætti þess misskilnings afl í
baflherbergisinnréttingum frá Inn-
réttingahúsinu á Háteigsvegi væri
vaskurinn smíðaður í um leið og inn-
réttingin þannig að ekki væri hægt að
fá hana smíðaða utan um hvaða vask
sem væri. Þetta er ekki rétt. Inn-
réttingarnar eru smiðaðar utan um þá
vaska sem menn kjósa hverju sinni. í
verðinu er innifalið spegillinn,
höldurnar og lýsing. Að sögn fram-
leiðanda er Innréttingahúsið hið eina
sem selur innréttingar sínar með
þessu þrennu. Lýsingin er bæði á
andlit þess sem speglar sig og eins
niður á vaskborðið. Þá er í þessum
innréttingum sérstök innstunga fyrir
bæði rafmagnsrakvél og hárþurrku.
skila inn vottorði frá byggingar-.
fulltrúa þar um. Einnig þarf að skila
inn vottorði um fjölskyldustærð
(fengið hjá manntalsskrifstofum eða
bæjarstjórnum) og voltorði um
tekjur (fengið hjá skattstofu). Lánin
eru afgreidd í þeirri röð sem
umsóknir og fokheldisvottorð berast
inn í.
Þegar búið er að fara yfir þær
umsóknir sem berast Húsnæðismála-
stjórn um lán er mönnum sent orð
um það hvort umsókn þeirra er gild
eður ei. Sé hún gild geta menn búizt
við fyrsta hl. lánsins um það bil 2—
4 mánuðum eftir að húsið er orðið
fokhelt, en það fer þó eftir fjárhag
byggingarsjóðs. Lánið er greitt i
þrem hlutum og þeim nokkurn
veginn jöfnum. Sex mánuðir líða
yfirleitt á milli fyrstu og annarrar
greiðslu og aðrir sex á milli annarrar
og þriðju greiðslu'
Um lán út á gamlar íbúðir gilda
ögn aðrar reglur. Fullt lán út á
gamlar íbúðir er aðeins helmingur
þess sem veitt er út á nýjar. Þannig
en lán út á nýjar íbúðir 5.4 millj. á
þessu ári en 2.7 milljónir mest út á
gamlar. Þegar keyptar eru gamlar
ibúðir þurfa þær að hafa samþykki
byggingarfulltrúa til þess að þær séu
lánshæfar. Hafi slíkt samþykki einu
sinni verið veitt gildir það framvegis.
Einnig þarf að liggja fyrir vottorð frá
heilbrigðisfuIItrúa um að ibúðin sé
íbúðarhæf.
Hvenær er ekki
veitt fullt lán?
1 mörgum tilfellum er ekki veitt
fullt lán út á nýjar íbúðir Svo er til
dæmis ef sá sem sækir um lánið á
aðra íbúð fyrir. Til þess að fá lán
verður hann fyrst að selja þá íbúð og
■4------------------m
Flcstir þeir sem byggja treysta á hús-
næðismálalánið til þess að ráða við
bvgginguna. En oft er ekki veitt fullt
lán.
þá getur hann fcngið lán út á nýju
ibúðina.
Ekki er heldur veitt lán út á íbúð
ef hún er að mati Húsnæðismála-
stjórnar of stór fyrir fjölskylduna
sem sækir um lánið. Til eru sérstakar
reglur hjá Húsnæðismálastjórn um
þetta og ættu menn að kynna sér þær
áður en þeir leggja út í ibúðakaup.
Svo dæmi sé tekið úr þessum reglum
fær einstaklingur ekki fullt lán út á
stærri ibúð í fjölbýlishúsi en 84
fermetra, ekki út á stærra ein-
býlishús á einni hæð en 100 fermetra
og ekki út á stærra einbýlishús á
tveim hæðum eða raðhús en 114
fermetra. Fari hann fram úr þessari
stærð skerðist lánið jafnframt og
getur svo farið að hann fái alls ekkert
lán.
Þetta ákvæði gildir þó aðeins í
þéttbýli. í sveitum er ekki talið fært
að setja ákvæði um fjölskyldustærð
en þar eins og i þéttbýli fær þó engin
lánútástærra húsnæði en 150—160
fermetra.
Afborganir
Af húsnæðismálalánum eru
greiddir 2% vextir en full
verðtrygging. Verðtryggingin er ekki
lögð við höfuðstólinn eins og gert er i
vísitölulánum flestra lífeyrissjóða og
banka heldur aðeins við af-
borganirnar hvert sinn. Útkoman
verður sú saman en greiðslubyrðin
verður léttari fyrst en þyngist undir
endann.
Húsnæðismálalánin eru svonefnd
Einhleypingur Fjölbýlishús Nettómál í m* 80- 84 85- 89 110-114 115-119 120-124 125-129 130
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
Elnhleypingnr Einbýlis- og raShús á tveimur hœSum eða fleiri Nettómál f m2 100-104 105-109 130-134 135-139 140-144 145-149 150
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
Einhleypingur Einbýlis- og raðhús á einni hæð Netiómál í m2 110-114 115-119 140-144 145-149 150-154 155-159 160
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
2-5 manna fjölskylda Fjölbýiishús Nettómál í m2 110-114 115-119 140-144 145-149 150-154 155-159 160
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
2-5 manna fjölskylda Einbýlis. og raðhús á tveimur hæðum eða fleiri. Nettómál í m2 125-129 130-134 155-159 160-164 165-169 170-174 175
Hámarkslán f % 100 95 60 50 40 30 0
2-5 manna fjölskylda Einbýlis- og raðhús á einni hæð Nettómál í m2 135-139 140-144 165-169 170-174 175-179 180-184 185
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
6-8 manna fjölskylda Einbýlis- og raðhús á tveimur hæðum eða fleirL FjöIbýlLshús Nettómál í m2 135-139 140-144 165-169 170-174 175-179 180-184 185
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
6-8 manna fjölskylda Einbýlis- og raðhús á einni hæð Nettómál í m2 145-149 150-154 175-179 180-184 185-189 190-194 195
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
9 manna fjölskylda og stærri Einbýlis- og raðhús á tveimur hæðum eða fleirL Fjölbýlishús Nettómál í m2 150-154 155-159 180-184 185-189 190-194 195-199 200
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
9 manna f jölskylda og stærri Einbýlis- og raðhús á einni hæð Nettómál í m2 160-164 165-169 190-194 195-199 200-204 205-209 210
Hámarkslán í % 100 95 60 50 40 30 0
Hluti töflunnar um fjölskyldustærð annars vegar og lán út á húsnæði hins vegar.
Plássins vegna var ekki hægt að birta alla töfluna en menn ættu að geta áttað sig
svona nokkurn veginn á henni samt. Þeir er þurfa svo gleggri upplýsingar ættu
að leita til Húsnæðismálastjórnar. Afgreiðslufólk þar er sérstaklega elskulegt og
veitir alla aðstoð með glöðu geði.
,,annúitets”-lán. Það þýðir að árlega
er greidd sama upphæð í vexti og af-
borganir en hlutfallið innan upphæð-
arinnar er breytilegt. Fyrst eru nær
eingöngu greiddir vextir en með árun-
um breytist hlutfallið og á síðasta
árinu er nær eingöngu greidd af-
borgun af sjálfu láninu. í hvert sinn
sem greitt er af láninu leggst við af-
borgunina vísitala. Ársgreiðsla af 5.4
milljóna láni í ár er 285 þúsund
krónur. Fæstir greiða þó akkúrat þá
upphæð þar sem afborganir af láninu
eins og útborgun þess reiknast í þrem
hlutum.
Lán sem veitt eru til kaupa á
nýju húsnæði greiðast upp á 26
árum, ein afborgun á ári. Þó greiðast
aðeins vextir og afborganir í fyrsta
sinn sem greitt er þannig að af-
borganirnar 26 greiðast i raun á 25
árum.
Af lánum, sem veitt eru til kaupa
á eldri íbúðum eru afborganirnar 15,
á jafnmörgum árum. Greitt er af
láninu strax árið eftir að það er tekið.
Auk þessara afborgana sem þegar
eru nefndar þurfa menn að greiða
lántökugjald, 1%, er þeir taka
húsnæðismálalán. Þá greiðist einnig
þinglýsingargjald og stimpilgjald.
Stimpilgjald er 1.5% af upphæðinni
og þinglýsingarkostnaður 15
hundruð krónur. Alls verða þetta þvi
54 þúsund í lántökugjald + 81
þúsund í stimpilgjald + 1.500 krónur
í þinglýsingargjald eða 136.500
krónur sem dragast frá láns-
upphæðinni fyrirfram.
Lán út á
gamlar íbúðir
Þó nefnt hafi verið áðan að fullt
lán út á gamlar íbúðir sé 2.7 milljónir
er svo i raun að þetta lán er nær
aldrei veitt að fullu. Ekki eru til nein
sérstök lög um þetta atriði en sam-
kvæmt þeim starfsreglum sem gilda
hjá Húsnæðismálastjórn er fullt lán
þá aðeins veitt að þeir sem kaupa
gamlar íbúðir séu að minnsta kosti
þrír í hverri fjölskyldu, eigi ekki íbúð
fyrir og hafi takmarkaðan rétt til
lána úr lifeyrissjóðum. Aldur
íbúðarinnar sem keypt er skiptir ekki
máli í sjálfu sér en sé kaupverð
hennar mjög lágt mega menn vart
búast við fullu láni.
Hafi menn fengið lán áður fá þeir
sömuleiðis skert lán. Eins er ef um er
að ræða barnlaus hjón eða
einstaklinga. Erfitt getur verið að
vita í slíkum tilfellum hvað hátt lán
fæst og ættu menn að leita sér upp-
lýsinga um það svo þeir reikni ekki
fyrirfram með of miklum peningum.
-DS.