Dagblaðið - 24.09.1979, Page 14

Dagblaðið - 24.09.1979, Page 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979. Silfurkórinn—Rokk Rokk Rokk SILFURKÓRINN UPP Á Silfurkórinn— ROKK ROKK ROKK Útgefandi: SG-hljómpJötur (SG-122) Tónmeistari: Magnús Ingimarsson Teeknimaður: Sigurður Ámason Hljóöritun: Tóntœkni, 1979 HLJÓMPLÖTU- UMSAGNIR sm BEZTA Þriðja breiðskifan sem Silfur-' kórinn sendir frá sér er jafnframt sú bezta til þessa. Eins og nafnið bendir til hefur hún að geyma rokklög — fjörutíu talsins sem skipt er í átta syrpur. Þær eru nokkuð misjafnar að gæðum. Bezt tekst Silfurkórnum upp í melódísku syrpunum, sizt eru hröðu og hráu rokklögin. Enda hygg ég að lög á borð við þau sem Little Richard gerði vinsæl fyrir rúmum tuttugu árum hafi ekki verið samin með það í huga að blandaður kór ætti nokkurn tíma eftir að taka þau upp á arma sína. Þetta vandamál hefði auðveldlega mátt leysa með því að fá einhvern hressan rokkara til að syngja einsöng, til dæmis í fjórðu syrpunni. Kórinn hefði síðan getað séð um raddir í viðlögum og þess háttar. Magnús Ingimarsson útsetjari og stjórnandi Silfurkórsins fer troðnar slóðir í söngútsetningum sínum. Af sölu fyrri Silfurkórsplatna og viðtökunum sem sú nýja hefur fengið má draga þá ályktun að þær falli fólki vel í geð. Hins vegar þætti þeim sem þetta ritar gaman að heyra eitthvað glænýtt á næstu plötu Silfurkórsins. Hljóðfæraleikararnir, sem leika undir á plötinni Rokk, Rokk, Rokk eru Tómas Tómasson, Þórður Árnason, Ásgeir Óskarsson, Kristján Guðmundsson, Gunnar Ormslev og Rúnar Georgsson. Einnig kemur Gunnar Þórðars. dálitið við sögu og skreytir nokkur lög með gitarsólóum. Hljóðfæraleikarar þessir standa sig ágætlega í stykkinu. Hlutverk þeirra er erfiðara en margan grunar vegna tiðra lagaskipta. í heild má segja um plötuna Rokk Rokk Rokk að hún sé kærkomið; eyrnakonfekt aðdáendum Silfur-j '.kórsins. -ÁT- BJARKl TRYGGVASON ásamt hundi sínum á tröppum hallarinnar að Eyrar- landsvegi 22 á Akureyri. Plata Bjarka erkominút Hljómplata Bjarka Tryggvasonar, Einn á ferð, er komin út. Níu mánuðir eru liðnir síðan Bjarki hóf að vinna að plötunni i Hljóðveri undir stjórn Magnúsar Kjartans- sonar. öll lög plötunnar utan eitt eru íslenzk. Eitt þeirra, Glókoll, gerði Bjarki frægt fyrir mörgum árum er hann söng með Akureyrarhljóm- sveitinni Póló. Að þessu sinni flytur hann lagið i gjörbreyttri útsendingu. Fjöldi hljóðfæraleikara kemur fram á plötunni Einn á ferð auk Bjarka. Meðal þeirra eru Sigurður Rúnar Jónsson, Björgvin Halldórs- son, Björgvin Gíslason, Þórður Árnason og Sigurður Karlsson. Út- gefandi plötunnar er Hljómplötuút- gáfan hf. ChicagoXIII: dræmt, en aftur á móti er breiðskifan í sókn á vinsældalistum. Þeir aðdá- endur Chicago sem ekki voru alveg búnir að gefa upp vonina um að hljómsveitin héldi áfram að skrapa botninn^með^bragðdaufri framleiðslu geta því tekið gleði sína. -ÁT- Gömul hljómsveit áuppleiðáný Allur vindur virðist nú horfinn úr þeirri músíklegu lægð sem hljóm- sveitin Chicago hefur verið í undan- farin ár. Lægð þessi náði hámarki með plötunni Hot Streets sem kom út i fyrra. Nýjasta plata hljómsveit- arinnar, sú þrettánda í röðinni, gefur fyrirheit um að veldi Chicago sé nú að vaxa á nýjan leik. Gítarleikarinn Donnie Dacus, sem ráðinn var i Chicago eftir að Terry Kath tapaði lifinu í rússneskri rúllettu virðist hafa hleypt nýju blóði í hljómsveitina. Þá hlýtur það einnig að hafa haft nokkur áhrif á stil Chicago að nýr upptökustjóri hefur verið ráðinn til starfa. Sá er Phil Ramone. Hann er meðal annars kunnur fyrir störf sín með Paul Simon og Billy Joel. Þeir Dacus og Ramone voru reyndar með á plötunni Hot Streets, sem að áliti undirritaðs er ein léleg- asta plata Chicago. Fleira hlýtur því að koma til að hljómsveitin er farin að blómstra aftur. Sennilega ræður bættur starfsandi þar mestu. Hljóm- sveitin tók sér langt frí eftir að Terry Kath lézt og sá orðrómur komst á kreik að hún ætti ekki eftir áð koma saman aftur. í viðtali við bandaríska tímaritið Rolling Stone seint á síðasta ári sögðu liðsmenn Chicago að þeir hefðu allt eins verið að velta því fyrir sér að leggja hljómsveitina niður. Við það var þó hætt og að undanförnu hefur Chicago verið á hljómleika- ferðalagi um Bandaríkin. Ef við snúum okkur að þlötunni Chicago XIII, þáhefur hún að geyma tíu lög. Ekkert eitt þeirra skarar fram úr hinum, heldur er platan öll jafn góð. Lag Donnie Dacus, Must Have Been Crazy, hefur verið gefið út á lítilli plötu. Það selst frekar ISRAELSMENNHALDA EKKINÆSTVEURO- VISION SÖNGVAKEPPNI ísraelsmenn hafa afþakkað að halda næstu Eurovision-söngva- keppnina. Svo sem kunnugt er sigr- aði söngflokktir þaðan, Milk & Honey, í síðustu keppninni, sem haldin var 31. marz í Jerúsalem. Hingað til hefur reglan verið sú að næsta keppni sé haldin í heimalandi sigurvegaranna. Það voru einnig ísraelskir tónlistar- menn sem báru sigur úr býtum árið 1978 og þess vegna fór keppnin fram í Jerúsalem fyrr á þessu ári. Strax að henni Iokinni bárust þær fréttir að óvíst væri hvort ísraelsmenn treystu sér til að halda keppnina annað árið í röð. Slíkt er ákaflega dýrt fyrirtæki, bæði tæknilega séð og einnig vegna þess að ísraelsmenn urðu að vakta listamennina sérstaklega vel, þar eð hryðjuverkamenn hefðu annars reynt að vekja athygli á málstað sínum með sprengingum og mannránum. ísraelsmenn létu engar skýringar fylgja þeirri ákvörðun sinni að halda ekki næstu söngvakeppni. Nú er byrjað að leita að nýju landi sem vildi taka næstu söngvakeppni upp á arma sína. Augu manna beinast aðallega að Spáni, vegna þess að listamenn þaðan urðu í öðru sæti í keppninni í ár. — Næsta Eurovision söngva- keppni fer að öllu forfallalausu fram 17. maí á næsta ári. Úr EXTRA BLADET Friðrik og Hrófíur gengniríBrunaim Tveir nýir hljóðfæraleikarar eru. gengnir til liðs við Brunaliðið. Friðrik Karlsson hefur tekið við gitarnum af Birgi Hrafnssyni og Hrólfur Gunnarsson leikur á trommur í stað Jeff Seopardie. Ferð Brunaliðsins um landið lauk fyrir nokkru. Hljómsveitin starfar þó áfram af krafti fram yfir næstu áramót að minnta kosti. Friðrik hefur i sumar leikið með Ljósunum i bænum og ‘ verður væntanlega með þeim áfram. Hrólfur trommaði til skamms tíma með Kefla- vikurhijómsveitinni Geimsteini. Að sögn Jóns Ólafssonar hjá Hljóm- plötuútgáfunni hf., er enn ekkert farið að planleggja gjörðir Brunaliðsins á næsta ári. Núgildandi starfssamningur hljómsveitarinnar við útgáfuna gildir til janúarioka næstkomandi.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.