Dagblaðið - 24.09.1979, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Tim Dwyer missir hér af knettinum í leik Vals og Fram um helgina.
DB-mynd-Árni PálL
Celtic með ör-
ugga forystu
Celtic heldur enn öruggri forystu i
skozku úrvalsdeildinni eftir mjög
góöan sigur á Aberdeen á útivelli um
helgina. Gordon Strachan skoraði fyrir
Aberdeen snemma í leiknum og útlitið
virtist allt annað en bjart hjá Celtic
er Tommy Burns var rekinn af leik-
velli á 33. mínútu. Með aðeins 10 menn
bjuggust flestir við að Celtic reyndi að
forðast stærra tap og leggjast í vörn.
Sú varð þó ekki raunin og í síðari hálf-
leiknum sneri Celtic vörn í sókn svo um
munaði.
Fyrst jafnaði Roy Aitken metin og
síðan tryggði Tommy Doyle þeim sig-
urinn með fallegu marki skömmu fyrir
leikslok. Morton notaði sér tækifærið
úr því að Aberdeen tapaði og skauzt
upp i 2. sætið í deildinni. Andy Richie
skoraði fyrsta mark leiksins gegn
Kilmarnock úr vitaspyrnu og siðan
bættu þeir Joe McLaughlin og Bobby
Thomson við mörkum. Ian Gibson
skoraði eina mark Kilmarnock.
Rangers er heldur að taka við sér
eftir afleita byrjun í haust. Þeir lögðu
Dundee 2—0 en það þurfti tvö sjálfs-
mörk til að bjarga málunum í síðari
hálfleik. Við sigurinn komst Rarígers i
3. sætið. Úrslitin urðu annars þessi í
Skotlandi:
Aberdeen-Celtic 1—2
Dundee U-Partick 2—1
Hibernian-St. Mirren 0—2
Morton-Kilmarnock 3—1
Rangers-Dundee 2—0
Kaninn í Ármanni
setti 70 stiga met
— þegar Reykjavíkurmótið íkörfu hófst um helgina
Greinilegl er að bandarísku leik-'
mennirnir munu setja svip sinn á körfu-
boltann í vctur eins og undanfarna
vetur. Þegar er einn þeirra búinn að
setja stigamet, skoraði 70 stig í gær.
Þar var Ármenningurinn á ferðinni. Á
laugardaginn náði hann rúmum sextíu
stigum. Athyglisvert er að báðum
þessum leikjum tapar Ármann en náði
þó rúmlega hundrað stigum i hvorum
leik.
Það voru KR og Valur, sem komust
klakklaust frá þessari fyrstu helgi í
Reykjavíkurmótinu í körfubolta.
Sigruðu í báðum sínum leikjum og hafa
því fjögur stig hvort félag. ÍR og Fram
eru með tvö stig en lestina reka
Ármann og ÍS með ekkert stig.
Leikur KR og ÍR á laugardaginn var
vafalaust jafnbezti leikurinn og úrslit
hans voru ekki ráðin fyrr cn á siðustu
mínúlum.
Er liðið var fram yfir miðjan fyrri
hálfleik virtist KR búið að ná afgerandi
undirtökum en ÍR-ingum tókst að saxa.
á forskot þeirra ogstaðan í hálfleik var
46 gegn 45 stigum KR i vil. Siðari hálf-
leikurinn var siðan lengst af jafn þar til
undir lokin að KR tókst að tryggja sér
sigurinn. Lokatölurnar urðu 99 stig
gegn 89.
Ekki bar mikið á Bandarikja-
manninum i KR-liðinu framan af i
leiknum. Ljóst er þó að þessi 2,10 m
risi kann sitt fag og oft á tiðum sýndi
hann snilldartakta í vörninni.
ÍR-liðinu hefur bætzt liðsauki sem
er Mark Christiensen sem i fyrra lék
með Þór á Akureyri. Var hann mest á-
berandi i ÍR-liðinu ásamt Kristni
Jörundssyni. Annars gekk ÍR-ingum
illa að loka vörninni og eins vantaði
lilfinnanlega að leikmenn færu í frá-
köst í sókninni. Áttu þvi KR-ingar
auðveldan leik að ná þeim skotum, sem
ekki rötuðu ofan í körfuna.
Áhorfendur létu sig ekki vanta í
Hagaskólann um helgina. Ljóst er að
körfuboltinn er í stöðugri sókn hvað
það varðar. Forráðamenn hans verða
þó að gera sér Ijóst að auðveldara er að
rifa áhugann niður en byggja hann
upp aftur. Þess vegna þarf að sjá um
að leikir gangi vel og hratt fyrir sig.
Þriggja leikja tarnir eins og virðast eiga.
að vera í Reykjavíkurmótinu eru ol
langar. Ekki er ástæða til að lengja þær
enn meira með þvi að láta liða rúmar
luttugu minútur á milli leikja eins og
raunin varð á í það minnsta á laugar-
daginn.
Að þessari gagnrýni slepptri er ekki
ástæða til að ætla annað en
körfuboltinn muni bjóöa upp á
spennandi leiki í vetur og áhorfendur
geta gert sér vonir um mikið af körfum.
Vitað er að sum félaganna ætla að hafa
ýmislegt til skemmtunar á heimaleikj-
um sinum í vetur.
Úrslit leikjanna um helgina.
Fram — Ármann 102—90
Valur — ÍS 99—98
KR—Ármann 124—70
ÍR — ÍS 101—92
Valur—Fram 94—68
ÖG
Haukar unnu
Essó-bikarinn
- sigruðu FH 27-26 í Firðinum í gærkvöld
Það var að vanda mikil stemmning í
íþróttahúsinu við Strandgötu í gær-
kvöld þegar Hafnarfjarðarliðin FH og
Haukar leiddu þar saman hesta sína í
keppninni um hinn eftirsótta Essó-
bikar þar i bæ. Eftir mikinn barning og
talsverða sveiflur tókst Haukunum að
sigra 27—26 og var sá sigur sanngjarn
ef á heildina er litið. I hálfleik var
staðan 15—11 Haukunum í vil.
FH-ingar mættu með þrjá nýja leik-
menn til leiks í gær. Þá Pétur Ingólfs-
son, fyrrum Ármenning, MagnúsTeits-
son og Eyjólf Bragason, báða fyrrver-
andi Stjörnur úr Garðabæ. í lið Hauka
vantaði Þóri Gíslason og Þorgeir
Haraldsson auk Gunnars Einarsonar
markvarðar.
Haukarnir byrjuðu leikinn mjög vel
og á sama tíma gekk ekkert upp hjá
FH. Knötturinn small í stöngum og
slánni og áður en varði var staðan
orðin 5—1 fyrir Haukana. Að vanda
gekk þeim illa að halda þessari forystu
og FH gekk á lagið og minnkaði
muninn jafnt og þétt og jafnt var 10—
10. Þá kom dæmigerður Haukakafli.
Allt keyrt á fullu í skamman tíma og
staðan breyttist í 15—11 í hálfleik.
Hörður Harðarson skoraði fyrsta
Sigurður
Sverrisson
mark siðari hálfleiksins fyrir Hauka —
staðan 16—11 en þá fylgdu fjögur FH-
mörk i kjölfarið — 16—15. FH náði
siðan að jafna 18—18 en þá tóku
Haukarnir kipp á nýjan leik og komust
í 22—18. Timinn reyndist ekki nægur
fyrir FH til að jafna og Haukarnir
stóðu uppi sem nokkuð öruggur sigur-
vegarar í lokin. Annars er þetta
athyglisvert með Haukana. Þeir taka
yfirleitt stuttar rispur með allt á út-
opnu og síðan er slakað á. Þegar and-
stæðingurinn hefur náð að jafna er svo
allt sett á fullt á nýjan leik. Þetta er
hlutur sem Viðar Simonarson verður
að reyna að lagfæra.
Pétur ingólfsson var vafalítið sá
leikmaður er mest kom á óvart í FH-
liðinu og hann á eftir að verða þvi
geysilegur styrkur í vetur. „Magnús og
Eyjólfur voru minna áberandi en
komust vel frá sínu.
Mörkin skiptust þannig á milli
manna: Fyrir Hauka skoruðu Hörður
Haðarson 8, Andrés Kristjánsson 6
(hann lék aðeins fyrri hálfleikinn og
átti frábæran leik) Árni Sverrisson
skoraði 4, Stefán Jónsson, Júlíus Páls-
son og Árni Hermannsson 2 hver,
Svavar Geirsson, Guðmundur Haralds-
son og Sigurgeir Marteinsson allir I
mark hver.
Fyrir FH skoraði Geir flest eða 7.
Pétur Ingólfsson var með 6. Kristján
Arason og Guðmundur Magnússon 3
hvor. Guðmundur Árni skoraði 4
mörk, Magnús Teitsson 2 og Eyjólfur
Bragason 1.
-SSv.
VEGNA 1 árs afmælis verzlunarinnar bjóðum við
eftirfarandi afslátt á öllum vörum:
10% gegn staðgreiðslu
5% á lánaviðskiptum
FINLUX litsjónvarpstæki
FISHER hljómflutningstæki
TEC hljómflutningstæki
TEC ferðaútvörp
TEC ferðakassettutæki
TEC útvarpsklukkur
TEC ferðasjónvarpstæki
COSINA myndavélar
SIGMA linsur
MAGNON 8 mm kvikmyndasýningarvélar
SUNPAK leifturljós
HOYA filterar
þrífætur, Ijósmyndatöskur
o. m. fl.
s SJÖNVARPSBÚDIN
BORGARTÚN! 18 REYKJAViK SlM> 27099
’
mi
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
FLUGLEIÐIÍ
Lækjargötu 2 og Hótel Esju Sími 27800.
URVAL SamvinsmíArót ÚTSÍt íf
v/Austurvöll # ■ x);, x, / 'nVs) 1• f Austurstræti 17
Sími 26900 . f 'U‘ Sími 26611
Austurstræti 12 Simi 27077
,
DrOtlTai ir Gististaðir |
Október: 27. 4 vikur ELTIMON Smáhýsi með
j Nóvember: 25. 3 vikur 2 svefnherbergjum
Desember: 16. 3vikur BRONCEMAR
Janúar: 5—29 3vikur íbúðir með 1 svefnherbergi I
Febrúar: 16. 3vikur LOSSALMONES
Mars: 8—29 3 vikur íbúðir með 1 svefnherbergi
i Apríl: 19 3vikur TINOCA Studioíbúðir
VERÐ FRÁ KR. 251.000
Hópafsláttur og afsláttur fyrir börn
ATHUGIÐ: FYRSTA BR IOTTFÖR 27. OKTÓBER
I Pantið tímanlega Sólarfrí í skammdeginu suður á Kanarí,
I l styttir vetur, styrkir sál og líkama. J
Óvænt jafntef li Valsara
— þegar Reykjavíkurmótið íhandknattleik hófst í Laugardalnum ígær
Reykjavíkurmótið i handknattleik
hófst í Laugardalshöllinni i gærdag
með pompi og pragt og voru áhorfend-
ur mun fleiri að þessu sinni en verið
hefur á sama móti undanfarin ár. Er
vonandi að handknattleikurinn sé að
ná sér upp úr þeirri lægð sem einkennt
hefur hann um nokkurt skeið. Fjórir
leikir voru á dagskrá í gær og voru
einkum tveir þeirra er vöktu athygli.
Fyrst léku Valur og ÍR og eins og
allir handknattleiksunnendur vita leika
ÍR-ingar aldrei betur en gegn Val. Það
var gamla kempan Stefán Gunnarsson,
sem skoraði fyrsta markið í þessu
Reykjavíkurmóti. Valsmenn leiddu
síðan framan af leiknum, komust í 3-1
og síðan í 6-4 og 8-6 en f R náði að jafna
8-8 með marki Ársæls Hafsteinssonar.
Þá komu þrjú Valsmörk i röð og
staðan i hálfleik var 11-9 — Sigurður
Svavarsson náði að minnka muninn úr
vítakasti.
Sami munur hélzt framan af síðari
hálfleiknum og Stefán Gunnarsson
kom Valsmönnum meira að segja í 15-
11. Bilið breikkaði ekki meira og nú
tóku ÍR-ingar að saxa allsnarlega á for-
skotið og þegar rétt rúmar 8 mín. voru
til leiksloka höfðu ÍR-ingarnir komizt
yfir — 19-18 með marki Bjarna Bessa-
sonar. Valsmenn svöruðu þegar með
tveimur mörkum — annað þeirra
skoraði hinn stórhættulegi Gunnar
Lúðvíksson, sem gekk yfir til Vals úr
Gróttu. ÍR jafnaði enn en Valsmenn
svöruðu aftur með tveimur mörfcum
frá þeim Stefáni Gunnarssyni og nafna
hans Halldórssyni. Það var síðan
Bjarni Bessason, sem jafnaði fyrir ÍR
með tveimur siðustu mörkum leiksins á
lokaminútunni.
Næst á eftir léku Fram og Víkingur
— leikur sem beðið var með nokkurri
eftirvæntingu. Það var aðeins framan
af fyrri hálfleiknum að hinir ungu
Framarar höfðu eitthvað í Víking að
segja — síðan kom leikreynslan í ljós.
Jens Einarsson á eftir að reynast Vik-
ingum drjúgur i vetur. Hann byrjaði
leikinn á að verja víti frá Theodóri
Guðfinnssýni og Víkingur komst í 3-1 i
byrjun. Fram tókst að jafna 4-4 með
tveimur mörkum Hannesar Leifssonar
í röð en siðan ekki söguna meir. Vík-
ingur seig örugglega fram úr og leiddi
13-10 í hálfleik. Munurinn jókst síðan
strax í 16-10 í upphafi síðari hálfleiks-
ins og jafnt og þétt eftir það. Lokatölur
urðu 27-17 Vikingi í hag.
Þar á eftir léku Þróttur og Ármann.
Þróttur hafði betur framan af og
skoraði Sigurður Sveinsson bróður-
partinn af mörkum liðs síns. Ármenn-
ingar gáfust ekki upp og þeim tókst að
komast yfir 12-10 í hálfleik. í síðari
hálfleiknum batt Ólafur Jónsson
saman vörnina hjá Þrótti og þeir sigu
fram úr og sigruðu 18-16 að lokum.
Síðasti leikur dagsins var á milli KR og
Fylkis. KR-ingar fengu þar afar
óvæntan skell og töpuðu 19-27 fyrir 2.
deildarliði Fylkis, sem virkaði með
allra frískasta móti og greinijegt að
liðið verður ekki lengi í 2. deildinni
meðslíkum leik.
Næstu leikir í Reykjavikurmótinu
verða leiknir á morgun og leika þá kl.
19 Valurog Þróttur. Að þeim leik lokn-
um leika Víkingur og Fylkir og þá
Fram og Vikingur í kvennaflokki.
- HJ / hsím / SSv.
Benfica á toppnum
Benfica leiðir nú portúgölsku 1. deildina eflir
góðan sigur á Guimaraes um helgina — 4-0. Benfica
hefur hlotið 9 stig úr 5 umferðum og markataian er
15-1. Úrslil i Portúgal urðu þannig:
Benfica — Guimaraes
Rio Ave — Porto
Boavista — Sporting
Espínho — Belenenses
Braga — Estoril
Setubal — Beira Mar
Portimlnese — Uniao Leiria
Efstu liðin eru þessi:
Benfica
Porto
Belenenses
Sporting
Braga
4-0
3-1
2-2
l-l
0-0
0-0
1-1
5 4 10 15-1 9
5 4 10 14-2 9
5 2 3 0 5-3 7
5 3 1 1 11-4 7
5 3 11 8-S 7
Fjórtán mörk
á Italíu!
Markaskorunin í itölsku 1. deildinni tók geysileg-
an kipp um helgina, þ.e.a.s. ef miðað er við helgina
þar á undan. Þá afrekuðu allir þessir dýru sóknar-
menn ítala að skora 6 mörk í 8 leikjum. Nú var hins
vegar meira um mörk og okkur telst til að 14
mörk hafi verið skoruð í þeim 8 leikjum, sem fram
fóru um helgina. Úrslitin urðu þessi:
Bologna-Perugia 1—1
Cantanzaro-Juventus 0—1
Lazio-Fiorentina 2—0
AC Milan-Aveilino 1—0
Napóli-Cagliari 0—0
Pescara-Roma 2—3
Torino-Ascoli 1—0
Udinese-lnter Milan 1—1
Hamburger tapaði
Kevin Keegan og félagar í Hamburger máttu á
laugardaginn þola tap í Bundesligunni fyrir Frank-
furt á útivelli. Borussia Dortmund trónir nú öllum á
óvart i efsta sæti deildarinnar eftir ævintýralegan 5-3
sigur yfir Fortuna Dusseldorf. Úrslit í Þýzkalandi
urðu þessi á laugardag:
Kaíserslautern — Borussia 4-2
Bayer Uerdingcn — Braunschweig 2-1
Vfl Bochum — Hertha Berlin 2-1
Eintracht Frankfurt — Hamburger 3-2
Duisburg — Bayern Munchen 1-2
Bor. Dortmund — Fortuna Dusseldorf 5-3
1860Munchen —Stuttgart 1-1
Köln — Schalke 0 4 3-1
Werder Bremen — Bayer Leverkusen 1-1
Þetta var 7. umferðin i Bundesligunni og að henni
lokinni er staða efstu liðanna þannig:
Borussia Dortmund 7 5 11 17-9 11
Eintracht Frankfurt 7 5 0 2 14-7 10
Vfb Stuttgart 7 4 2 1 13-7 10
HamburgerSV 7 4 12 15-8 9
Bayern Munchen 7 3 3 1 10-7 9
Lokeren leiðir
deildina
Lokeren, lið Arnórs Guðjohnsen, trónir nú í efsta
sætinu í belgisku 1. deildinni eftir sigur gegn Ant-
werpen á útivelli um helgina. Úrslit í Belgiu urðu
sem hér segir:
FC Brugge — Winterslag 4-0
Charleroí — Molenbeek 0-1
Anderlecht — Hasselt 1-0
Waterschei — Berchem 1-1
Waregem — CSBrugge 1-1
Beveren — Lierse 0-0
FC Liege — Standard 1-1
Antwerpen — Lokeren 0-1
Beringen — Beerschot 1-2
Sem fyrr segir er Lokercn í efsta sætinu — með 11
stig. CS Brugge, Standard Liege, FC Brugge og
Molenbeek hafa öll 9 stig að loknum 6 ieikjum.
Mennea með
gott hlaup
Ítalinn Petro Mennea hljóp 100 metrana á 10,15
sekúndum á Miðjarðarhafsleikunum, sem lauk um
helgina í Split i Júgóslavíu. Mennea varð langfyrstur
i hlaupinu en landi hans Franco Lazzer varð annar á
10,33 sekúndum. Josip Alebic frá Júgóslavíu vann
400 metra hlaupið á 46,68 sek. Didier Dubois frá
Frakklandi varð annar á 46,81 sek. og Roberto
Tozzi (ekki beint gæfulegt nafn atama) varð þriðji á
47,02 sek. Grikkinn Moutsanas vann 800 metrana á
1:48,90 og aðeins þrir hlupu undir 1:50,0 sem getur
varla talizt gott á slíku stórmóti. Hins ber þó að
gæta að þama voru ekki neln veruleg stórveldi í
frjálsum á ferðinni.
King í efsta sætinu
Englendingurinn Míchael King sigraði um heigina
í heljarmiklu golfmóti, sem fram fór í Richmans-
worth i Englandi. Hann lék 72 holurnar á 281 höggi
— böggi á undan landa sinum Brian Waites. Fjöld-
inn allur af þekktum kylfingum var þama á ferðinni
en gekk upp og ofan. Gary Player lék á 286 og Bern-
and Gallacher á 287. Peter Townsend var á 288
höggum ásamt tveimur öðrum og Sam Torrance lék
á 290. Greg Norman frá Ástralíu kom inn á 290
höggum og Bill Longmuir, sá er lcíddi British Open
eftir fyrsta daginn, lék nú á 291 höggi.
Keegan
enn verð-
launaður
Kevin Keegan var í gær útnefndur
jafnbezti knattspyrnumaðurinn í
vestur-þýzku Bundesligunni af dag-
blaðinu Frankfurter Allgemeine. Keeg-
an var alls kosinn 10 sinnum bezti
„maður leiksins” á sl. keppnistimabili
— þrisvar oftar cn næstu menn, sem
voru Erich Beer í Hertha Berlin og
Klaus Allofs i Fortuna Diisseldorf.
Fyrir vikið fékk Keegan mynda-
tökuútbúnað og fleira í þeim dúr auk
ávisunar upp á 1250 sterlingspund.
Þetta var i fjórða skiptið sem þessi
verðlaun voru veitt og á undan Keeg-
an höfðu þeir Júrgen Grabrows’ki,
Bernd Hölenbein og Hansi Múller
fengið þau.
íþróttir