Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.09.1979, Qupperneq 20

Dagblaðið - 24.09.1979, Qupperneq 20
20 fícindrifinn fDirect Drivc) " Sjálfvirkur ICu Hinn eftirspurði TEC ilötuspilari íominn aftur. Kr. 195.000, m/Pickup. BORGARTÚNI 18 REYKJAVÍK SÍMI 27099 JONVARPSBUÐI HÁRGREIÐSLUSTOFAN Jheri Redding® klapparstíg29 Hárlitun einu sinni, tvisvar sinnum og þrisvar sinnum og alltaf verður hárið betra og betra, næringarríkara og glansmeira. Hárgreiðslustofan Klapparstíg 29 Símapantanir 13010. Tilboð ósk'ast í þctta hús. Álvarið timhu hús á stáljjrind. Nánari uppl. í síma 83746 cftir kl. 6. 4 ÓDÝRASTA KENNSLAN ER SÚ SEM SPARAR ÞÉR TÍMA Frábærir kennarar sem æfa þig í talmáli. Kvöldnámskeið — Síðdegisnámskeið — Pitmanspról Enskuskóli barnanna — Skrifstofuþjálfunin. Sími 10004 og 11109 (kl. 1—7 e.h.) MÁLASKÚLINN MÍMIR, Brautart..W4 Bláfelds- skólaúlpur dúnvatteraðar (Hollofic) fástí verzlunum um allt land Bláfeldur Síðumúla 31 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1979. Drög að sjáff smorði. Fly tjendur, Megas og Sjálfsmorðssveitin. Höfundur ofnis, Megas. Hljóðblöndun, Magnús Kjartansson. Stjórn upptöku, Anthony Cook. Útgáfa, Iðunn 008—9. Furðuverk Hljómplötur þessar, þvi tvær eru þær, voru hljóðritaðar á tvennum hljómleikum í nóvember síðast- liðnum i hátiðasal Menntaskólans við Hamrahlið. Upptaka þessi er raunar algjört furðuverk. Það liggur ncfnilega við að hvert einasia orð sé nokkurn veginn skiljanlegt, gagn- stætt því sem var á téðum hljóm- leikum. Þessi snilld tæknimanna er þó bjarnargreiði við Megas. Hann er miklu meira spennandi þegar ekki greinast orðaskil og þvoglumælið og hljóðvillurnar hverfa í allri þvælunni. Þá hefur líka prentun visnanna einhvern raunhæfan tilgang. Svona brellum hefði Anthony Cook ekki tekið upp á hefði hann kunnað meira fyrir sér i islensku. En víkjum að lögunum. Þar stendur fátt upp úr öðru, þótt þrjú megi tína til sem einhver slægur er í, en það eru lögin: ef þú smælar framan í heiminn, grisalappalísa og ódysseifur snýr aftur. Hörkulið Að öðru leyti eru skífurnar báðar, að aftan og framan, endalaus sibylja án teljandi tilbreytingar. Það sætir raunar furðu hve mjög þeir leggja sig fram um að vanda verk sitt, piltarnir sem skipa sjálfs- morðssveitina. Þar er valinn maður í hverju rumi og óvíst að Megas hefði fengið jafngott lið til stuðnings annars staðar. Músíkin er i sjálfu sér ágætis rokkmúsík og oft þokkalega útsett, en svo tilbreytingarlítil og langdregin að skömm er að vera að teygja þetta yfir á tvær breiðskífur. Líklega eru það Ijóðin sem þar ráða ferðinni. Plötur Megasar eru venju- lega hljómandi Ijóðabækur. Þann þátt, þ.e. ljóðin, er vissara að láta bókmenntafræðingum eftir. Plat Á fyrri plötum sinum hefur Megas' jafnan reynst ferskur og alla jafna bráðskemmtilegur í heiðarlegum tilraunum sínum við að ganga Iram al' fólki, en nú er eins og Tónlist EYJÓLFUR MELSTED það renni allt út í sandinn. Synd og skömm þegar svona miklu er til tjaldað. Platið stóra er ,,Drög að- sjálfsmorði”. Hvern fjárann það á að þýða veit ég ekki en væri ekki hissa, ef það reyndist svo að prakkarinn Magnús Þór Jónsson hefði tælt Megas, vin sinn, til að ráða sér listrænan bana á þennan leiðinda- máta. Drög að sjálfsmorði Litla öskubuskan hans Woody: SEGIST VERA GAMALDAGS 0G VENJULEG SIÚLKA Þótt grínistinn Woodv Allen sé orðinn bæði gamall og sköllótlur og sannarlcga enginn draumaprins var það samt ástarsambandið við hann sem færði henni Mariel litlu Hemingway frægð og frama. Reyndar áttu þau aðeins ástarsamband á hvíta tjaldinu i mynd Allens, Manhattan, sem nú er sýnd víða um hinn stóra heim. Mariel leikur þar annað stóra kvenhlutverkið og hefur þó hún séaðeins 17 ára, slegið igegn. Mariel er sonardóttir skáldsins Ernest Hemingway. 1 Manhattan leikur- hún unga stúlku sem er alveg óð i Allen og eltir hann á röndttm þó hann vilji ekkert með hana hala. Mariel segir að ekkert þessu líkt hafi hent hana í dag- lega lífinu. Hún sé gamaldags og gjörólík stúlkunni i myndinni. Þó Mariel sé ung að árum býr hún fjarri fjölskyldu sinni og sér um sig sjálf. Fjölskyldan býr í Idaho en sjálf býr Mariel í New York og hyggst vera þar áfram. Mariel er að mörgu leyti venjulegur bandarískur táningur. Hún segist vera sérlega mikið fyrir alla útiveru og hvers kyns íþróttir. Hún fer því oft að heim- sækja foreldra sina og reynir að lifa hjá þeim sem eðlilegustu lifi. Systir Mariel er ekki siður fræg en hún. Það er tízkusýningardaman og fyrirsætan Margeaux, sem nú er að reyna að feta hina vandrötuðu braul ritmennskunnar sem afi hennar komsl svo langt á. Mariel segist hins vegai ekki vera með neina drauma í þá ált en segist sannfærð um að Woody Allen muni nota sig aftur i kvikmynd sé um hlutverk við sitt hæfi að ræða. Mesi langi hana til að leika alvarlegt og erfitt hlutverk, þó hún vilji ekki fyrirfram neita hlutverkum í léttum dúr. Frægðina ætlar hún þó ekki að láta koma i veg fyrir að hún gifti sig ein- hvern daginn. Súpermaðurinnvill vinnaókeypis Súpermaðurinn Christopher Reeve vill halda því framað Hollywoodstjörn- ur fái allt of mikið borgað fyrir leik sinn í kvikmyndum. „Þegar nýjasta mynd min verður tilbúin ætla ég að vinna ókeypis,” segir hann. Hann gleymir þó að minnast þess sem hann fékk fyrir leik sinn i Súperman II, sem nú er verið að klára. Hann fékk víst engin verkamannalaun fyrir ieik sinn i þeirri mynd. Fjölbreytt SÍMI í MÍMI ER. og skemmtilegt tungumálanám. 10004

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.