Dagblaðið - 24.09.1979, Qupperneq 32
„Grásleppan er
úrvals fóður”
— stóra málið nú er
betrinýting
— segir Guðmundur
Lýðsson, formaður
Samtakagrá-
sleppuhrognafram-
leiðenda
„Samtök okkar voru stofnuð til
þess að vernda grásleppukarlana fyrir
rikisvaldinu,” sagði Guðmundur
Lýðsson, á Blönduósi. Guðmundur
er formaður Samtaka grásleppu-
hrognaframleiðenda.
„Stóra málið nú er betri nýting á
grásleppunni og ber þar hæst mögu-
leikann á því að selja grásleppuna i
fóður handa kúm og holdanautum í
Danmörku,” sagði Guðmundur.
Hann sagði, að það væri grátlegt
að þurfa að henda miklu af grásleppu
á hverri vertið þar sem hrognin ein
væru aðeins hirt. Rannsóknir hafa
sýnt að grásleppan er hið bezta fóður
fyrir nau'tgripi.
,,Við höfðum 80% af heimsmark-
aðnum fyrir grásleppuhrogn fyrir
tveim árum,” sagði Guðmundur.
Hann kvað þessa mynd því miður
hafa breytzt og kynni hún að breytast
enn meira grásleppukörlum í óhag.
Þar kæmi tvennt mjög greinilega til.
Hér hefði verið slæm grásleppuver-
tíð síðastliðið vor, meðal annars
vegna ísalaga á verulegum hluta
góðra grásleppumiða við Norð-
austurlandið. Þá benti margt til þess,
að grásleppustofninn væri að
minnka. Meiri sókn annars staðar á
landinu jók þó heildarútflutnings-
verðmætið.
Loks kæmi það til, að Kanada-
menn væru að ryðja sér til rúms á
hrognamarkaðinum. „Markaðsnýt-
ing og markaðsöflun er vandasamt
verk. Það er okkar skoðun, að ekki
hafi verið haldið nægilega vel á þeim
málum af hálfu útflytjenda,” sagði
Guðmundur Lýðsson. „Staðan i
hagsmunamálum grásleppukarla
knýr meðal annars á um betri nýtingu
aflans, svo sem verkun og sölu á
fiskinum öllum.”
í samtökum grásleppuhrognafram-
leiðenda eru nú 130—140 menn. Út-
flutningsverðmæti grásleppuhrogna
árið 1978 var um 900 milljónir. Með
því, sem hér var unnið, losaði afla-
verðmaetið milljarð króna í fyrra.
Í ár verður heildarútflutningsverð-
mætið um 13 hundruð milljóna
króna, þrátt fyrir aflabrest vegna
hafiss. Allt sem veiðist hér hefur til
þessa selzt. Meðal annars vegna
undirboða Kanadamanna á okkar
míjrkuðum í Danmörku og Þýzka-
landi hefur hlutfall okkar á heims-
markaðnum orðið heldur lakara en
þegar það var bezt. 1 ár verður það
sennilega um 60% af markaðnum.
Nú fara fram markaðskannanir i
Japan og Ástralíu fyrir grásleppu-
hrogn héðan frá íslandi. Þáeru mjög
áhugaverðar kannanir á betri nýtingu
grásleppunnar. Til þessa hafa hrogn-
in verið hirt en nærri öllum fiskinum
fleygt.
- BS
Saad al Faisal prins af Sádi-Arabíu
hélt heimleiðis á laugardaginn eftir
þriggja vikna dvöl á Íslandi. Lét hann
vel af veru sinni hér og hafði víða farið
— norður og austur um land, til Vest-
mannaeyja og víðar.
Með prinsinum hér á myndinni —
fyrir framan einkaþotuna — er frændi
hans, ungi sheikinn Thalawi, sem kom
til að heimsækja frænda sinn i þessu
undarlega landi.
Þcir sem komust nærri prinsinum
og fjölmcnnu fylgdarliði hans létu vel
af alþýðleika þessara tignu gesta. Prins
Faisal var til i að ræða við hvern þann,
sem gaf sig á tal við hann, en færðist
jafnan mjög undan því að ræða allt
sem hann gat flokkað undir stjórnmál,
þar með talin olía.
-ÓV/DB-mynd: Magnús Hjörleifsson.
Tignir gestir snua heim:
GERIENGAR
ATHUGASEMDIR
—segir Albert um frétt DB um ákveðið framboð
hanstilforseta
Albert Guðmundsson alþingis-
maöur (S) hefur enn ekki gefið út á-
kveðna yfirlýsingu um framboð sitt i
forsetaembætti á næsta ári en hefun
ekki heldur afneitað fréttum af
ákveðnu framboði hans. Það fram-
boð mun nú ákveðið, jafnvel þótt
svo fari að dr. Kristján Eldjárn bjóði
sig fram í fjórða sinn.
Eins og DB skýrði frá sl.
fimmtudag hefur Albert nú hafizf
handa við að afla fylgis i framboðið
og m.a. orðið vel ágengt í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins.
„Ég er svo nýkominn erlendis frá,
að ég hefi ckki komizt yfir að lesa
blöðin sem út hafa komið, en eins og
fréttin i DB var lesin fyrir mig í síma,
þá sé ég ekki ástæðu til að leiðrétta
neitt í henni,” sagði Albert í samtali.
við DB. -BS/ÓV.
Búlgaría:
íslenzk
stúlka fórst
Ung íslenzk stúlka, 19 ára,
fórst á ferðamannaslóðum i
Búlgariu á laugardaginn. Hafði
hún dvalið ytra ásamt öðrum
íslenzkum ferðamönnum um
hrið, og var væntanleg heim á
morgun.
Vegna sambandsleysis við
Búlgariu hefur gengið mjög
erfiðlega að fá nánari upplýsingar
um slysið, svo sem með hvaða
hætti það varð nákvæmlega.
íslenzka utanrikisráðuneytið
mun væntanlega gangast í málið í
dag. -í*s-
Ökuferðin endaði
á Ijósastaur
- og síðan í Steininum
Rétt eftir miðnætti i nótt var
ekið á Ijósastaur á Miklatorgi.
Grunur lék á um að Bakkus hefði
þar verið með í för og eftir að
meiðsli ökumanns höfðu verið
könnuð lyktaði yfirheyrslum svo
að ökumanni var stungið i
Steininn. Þar var hann í nótl og
átti framhaldsrannsókn að fara
Iram í morgun. -A.Slv
Gátu illa
leynt þjófa-
svipnum
— ogáþeimfundust
stolin veski
Tveir menn gistu hjá lög-
reglunni i nótt, grunaðir um
þjófnað. Mennirnir vöktu grun
lögreglumanna við Slippinn i gær
og er að var gáð reyndust þeir
vera með tvö veski sem þeir áttu
ekki sjálfir. Er haft var samband
við eiganda annars veskisins kom
í Ijós að brotizt hafði verið inn i
íbúð hans við Ægisgötu. Er málið
núírannsókn. -A.St.
Rakleitt inn
á aðalbraut
Hörkuárekstur varð milli
tveggja bíla á mótum Sundagarða
og Kleppsvegar á fimmta tíman-
um á sunnudaginn. Bíl var ekið
suður Sundagarða og rakleitt inn
á Kleppsveginn. Þar var bíll á
austurleið og lenti sá er Sunda-
garða kom í hlið hans. Farþegi i
þeim bil meiddist og var fluttur í
sjúkrahús en ökumaður slapp svo
og fólk er Sundagarða kom.
Skemmdir urðu töluverðar á bíl-
unum. -ASl.
PRINS FAISAL 0G SHEIKINN
THALAWIKVEÐJA ÍSLAND
frjálst, óháð daghlað
MÁNUDAGUR 24. SEPT. 1979.
Harmleikur í Ölfusá við
Selfoss:
Maður drukkn-
aðiogannar
bjargaðist við
illan leik
Nú er talið fullvist að ungur maður,
Rúnar Már Jóhannsson, öldutúni 16 í
Hafnarfirði, hafi drukknað er kajak
hans hvolfdi i straumiðu í Ölfusá, lið-
lega 100 metrum ofan við brúna á Sel-
fossi, síðdegis á laugardag.
Kajak félaga hans, Péturs Th.
Péturssonar frá Hafnarfirði, hvolfdi
þar einnig, en honum tókst að hanga á
kajaknum og berast með honum niður
að klöppunum við kirkjuna, smáspöl
neðan við brúna. Þar komst hann upp
af eigin rammleik, en orðinn mjög
þjakaður.
Þeir félagar lögðu upp við Sogsbrúna
í Þrastarlundi og ætluðu eitthvað niður
eftir ánni, sem er mjög vatnslítil og
köld nú. Fyrir um það bil ári var þaul-
reyndur kajaksiglingamaður einnig
hætt kominn á þessum slóðum.
Strax og lögreglunni á Selfossi bárust
fréttir af atburðinum var skipulögð
umfangsmikil leit að Rúnari Má.
Björgunarsveit syFÍ á staðnum leitaði
árbakkana til sjávar, léitað var á bátum
á ánni og flogið lágflug upp og niður
ána. í morgun hafði leitin engan árang-
ur borið.
Rúnar Már var 31 árs. Hann lætur
eftir sig konu og tvær ungar dætur.
- GS
Ekið á tvo gangandi
vegfarendur
við Akureyri:
Stúlka fórst
og ungur
maður
stórslasaðist
16 ára stúlka, Elva Guðmunds-
dóttir, Tjarnarlundi 13 E á Akureyri,
beið bana í umferðarslysi laust fyrir
klukkan 2 aðfaranótt laugardagsins.
21 árs maður liggur þungt haldinn á
gjörgæzludeild Borgarspítalans i
Reykjavik eftir sama slys.
Þau voru fótgangandi á þjóðvegin-
um í Kræklingahlíð, skammt frá Gler-
árþorpi, á heimleið af dansleik i
Hlíðarbæ.
Kom þá fólksbíll á sömu leið og ók á
þau tvö, en stúlka, sem var einnig með
þeim, slapp. Elva mun hafa látizt sam-
stundis.
Ökumaðurinn segist ekki hafa séð
fólkið fyrr en rétt i þann niund að
hann ók á það. Var hann allsgáður.
U'ngi maðurinn er svo mikið slasaður
að læknar fjórðungssjúkrahússins
töldu öruggara að senda hann flugleiðis
á gjörgæzludeild í Reykjavík.
-GS.