Dagblaðið - 12.10.1979, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. OKTÖBER 1979.
(i
27
Útvarp
Sjónvarp
i
^ r
Kermit og ungfrú Svinka gera m.a. heimsins lýðum Ijóst hvernig kærleikslífi þeirra er háttað í kvikmyndinni um Prúðu leik-
PRÚÐU LQKARARNIR - sjónvarp kl. 20.40:
HAFA LAGT HEIMINN
AÐ FÓTUM SÉR
—með nýju kvikmyndinni sinni sem verður sýnd hér bráðlega
Prúðu leikararnir eru á skjánum í
kvöld kl. 20.40 og að þessu sinni er það
gamanleikarinn góðkunni Danny Kay
sem er gestur leikbrúðanna.
Nú er kvikmynd þeirra Prúðu leikara
sýnd við metaðsókn víða um heim.
Hún segir frá er Kermit er á leið til
Hollywood, hvernig hann hittir Svínku
og alla hina á leiðinni.
Kermit ákvað að fara til Hollywood
til að verða frægur og á leiðinni hittir
hann marga fræga leikara m.a. Milton
Berle, James Coburn, Elliott Gould,
Bob Hope, Madeline Kalm, Cloris
Leachman, Telly Savalas (Kojak), Mel
Brooks, Orson Welles og Paul
Williams sem samið hefur tónlistina í
myndinni.
Síðan hittir Kermit fyrst Fossa sem
hent er út af bar. Svinka bókstaflega
fellur fyrir Kermit, Gunnsi og Kamiila
falla eiginlega bara niður af h'r"num.
Hrólfur kemur með sem píanist'. dr.
V
KASTUÓS—sjónvarp kl.21.05:
Tönn, Dýri og hljómsveitin koma út úr
járnbrautarlest. Þá eru allir komnir og
Prúðu leikararnir orðnir til, til að leika
í kvikmynd.
Þessa bráðskemmtilegu mynd fáum
við síðan að sjá á næstunni í Regn-
boganum. Á meðan getum við horft á
sjónvarpsþættina og er enginn svikinn
af þeim. Þátturinn er tuttugu mínútna
langur og þýðandi er' þrándur Thor-
oddsen.
-ELA.
__________________________________)
----------------------------------\
HVAÐ ER FRAMUNDAN
í STJÓRNMÁLUM?
,,Því er fljótsvarað,” sagði Helgi E.
Helgason aðspurður um hvaða innlent
málefni hann taki fyrir i Kastljósi i
kvöldkl. 21.05.
,,Ég mun fjalla um óvissuna í stjórn-
málum, stjórnarslit og horfur
framundan í þeim efnum,” sagði
Helgi. ..Þátturinn er mikið kvikmynd-
aður en einnig tekinn upp i stúdíói. Ég
geri ráð fyrir að flokksforingjar verði
spurðir um horfur framundan. Einnig
mun ég ræða við Ólaf Jóhannesson
forsætisráðherra. Ýmsir þingmenn
verða teknir tali og einnig fólk á
förnum vegi,” sagði Helgi.
Eins og gera mátti ráð fyrir verður
Kastljós eingöngu helgað stjórnmálum
enda ekki svo lítið að gerast í þeim
þessa dagana. Bara að stöðurnar verði
nú ekki breyttar i kvöld er þátturinn
verður sendur út.
Helga fréttamanni verða til aðstoðar
í þættinum blaðamennirnir ÁlfheijW
Ingadóttir á Þjóðviljanum og
Sæmundur Guðvinsson á Vísi. Þáttur-
inn er klukkustundar langur.'
-ELA.
Forsetahjónin dr. Krístján Eldjárn og Halldóra. Myndin var tekin við setningu
Alþingis i Dómkirkjunni síðastliðinn miðvikudag. Hvort forsetinn er að hugsa um
horfur framundan i stjórnmálum skal ósagt. Helgi E. Helgason fréttamaður mun
alltént taka það mál í sínar hendur í Kastljósi i kvöld.
V.
)
Borgarstrætin—sjénvarp kl. 22.05:
Fimmtug
sakamálamynd
—með frægum leikurum
Gary Cooper er aðalleikari biómyndar kvöldsins. Þar fer hann með hlutverk ungs
Texasbúa sem kemur til New York í atvinnuleit.
Enn eina forna mynd fáum við að
berja augum í sjónvarpi i kvöld. Sú
nefnist Borgarstrætin (City Streets) og
er hvorki meira né minna en frá árinu
1931 eða komin á fimmtugsaldurinn.
Það hvarflar að manni að sjónvarpið
hafi keypt heilan „pakka” af gömlum
myndum á „sanngjörnu verði". Að
minnsta kosti hafa þær verið algengar
upp ásíðkastið.
Þessi mynd, sem að sjálfsögðu er i
svart-hvítu, segir frá ungum manni frá
Texas. Hann heimsækir stórborgina
New York og ákveður að leita sér að at-
vinnu. Hann verður vitaskuld ástfang-
inn upp fyrir haus af ungri stúlku.
Stúlkan er í tengslum við alræmdan
bófafiokk og til að bjarga elskunni
sinni frá bófunum gengur hann sjálfur i
flokkinn.
Ágætis leikarar eru i myndinni s.s.
Gary Cooper og Sylvia Sidney. Bæði
komust þau á stjörnutoppinn i gamla
daga.
Sylvia Sidney fæddist árið l91(kog
var mjög vinsæl leikkona i kringum
V_____________________________________
1930. Upphaflegt nafn hennar var
Sophia Dosow. Hún var bráðfafleg á
sinum ungu árum og hefur leikið í all-
mörgum i! '•"m. Það var þó^ekki fyrr
en hún nc aftur til hvit^ tjaldsins
eftir tuttugu 'a hlé að hún fékk út-
nefningu til " karsverðlauna-. Það var
fyrir aukahlutverk i myndinni Summer
Wishes, Winter Dreams, sem gerð var
árið 1973.
Gary Cooper er óþarft að kynna
fyrir konum sem komnar eru yfir
miðjan aldur þvi hann var eitt af
átrúnaðargoðum sins tíma 'íarv
Cooper hefur tvisvar fengið i. ars-
verðlaun og einu sinni fengið irand
Prix verðlaunin í Cannes. Gary Cooper
lék í yfir 80 myndum og hafa margar
þeirra verið mjög vinsælar. Gary
Cooper lézt úr krabbameini árið 1 % I.
Sýningartimi myndarinnar er ein
klukkustund og tuttugu minútur. Kvik-
myndahandbók okkar gleymir alveg að
minnast á þessa mynd svo við þorum
engu að lofa um gæði hennar. Þýðandi
er Jón Thor Haraldsson.
-F.LA.
___________________________________;
Hjúkrunarfræðingar
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings við Heiisu-
gæslustöðina Asparfelli 12, Reykjavík.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 75100.
Umsóknir sendist ráðuneytinu ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
9. október 1979.