Dagblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 24
Síldarvinnslan Neskaupstað: SJOTIU KONUR GENGU ÚT ÚR FRYSTIHÚSINU —vegna dánægju með störf eftirlitskonu—Krefjast |æss að eftirlitskonan verðifærðtilístarfi Mikil óánægja ríkir nú í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Neskaupstað meðstörf eftirlitskonu i frystihúsinu. Upp úr sauð í fyrradag er sjötíu konur gengu út úr húsinu og kröfðust þess að konan væri færð til i starfi. Stella Steinþórsdóttir, trúnaðar- maður í frystihúsinu, sagði í morgun að sáttafundir hefðu verið i gær og greidd atkvæði um sáttatillögu for- stjóra og verkstjóra þess efnis að eftirlitskonan fengi vikufrest til þess að bæta sín vinnubrögð. Sú sátta- tillaga var felld í morgun. Stella sagði að eftirlitskonan hefði unnið þarna á annað ár og ylli hún ófriðarástandi og streitu meðal fólks- ins. Erfitt væri að grípa á þessu máli. þar sem það væri frekar sálfræðilegt en að konan hefði brotið samninga. Konan væri erfið í daglegum sam- skiptum og færi jafnvel út fyrir sitt starfsvið og hefði slæmt móralskt ástand grafið um sig. Unnið var i frystihúsinu í gær og gert er ráð fyrir vinnu í dag, en óvíst er hvað gerist á morgun eða mánudag ef ekki verða breytingar á sem starfs- fólkið sættir sig við. Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir í morgun náðist ekki í Ólaf Gunnars- son framkvæmdastjóra Síldarvinnsl- unnar, en Þórður Þórðarsson skrif- stofustjóri sagðist ekkert hafa um málið að segja. -JH DB-mvnd Bjarnleifur. Steypubílaævintýrí á Bústaöavegi Harkaíkosninguí skemmtinefnd MH: Rændubæði kosninga- stjóraog kjörkassa „Þeir ruddust inn fjórir grímu- klæddir, réðust á kjörstjórann, drógu hann á brott og í leiðinni gripu þeir með sér kjörkassann.” — Frásögn frá Suður-Ameríku? Nei ekki aldeilis þetta gerðist um hábjartan dag i Mennta- skólanum við Hamrahlíð í gær. Þar var verið að kjósa i skemmtinefnd nemendafélagsins og einhverjir and- stæðingar kosninganna gripu til þessa ráðs rétt fyrir hádegi. Síðast sást til kjörstjóran-. (sýslu- mannssonar af Suðurlandi og sumar- al mgamannsí lögreglunni) þar sem ha,.., gat enga björg sér veitt keflaður á valdi hinna grímuklæddu ræningja. Var honum og kjörkassanum hent inn í, Lödubifreið með G-númeri sem síðan þaut á brott. Málið leystist þó farsællega þvi kosningastjórinn slapp úr prísundinni og með kjörkassann skömmu siðar. Var honum ekið suður fyrir álverið í Straumsvík. Kom hann aftur í Hamra- hlíðarskólann um klukkan þrjú í gær. Samkvæmt heimildum DB voru hér á ferð „anarkistar” sem algjörlega eru andvígir kosningum i nefndir og ráð. Væntanlega verður kosið aftur i skemmtinet'nd skólans innan tíðar. Óvenjulegt steypubilaævintýri átti sér stað í hádeginu í gær á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar. 50 tonna steypubíll hvolfdi í tengibeygju gatnanna og varð það að stórmáli að koma honum á hjólin aftur. Til þess þurfti tvo heljarmikla krana og annan steypubíl og var þá á mörkun- um að tækjum þessum lukkaðist að reisa hinn fallna við. Ökumaður steypubilsins segir í skýrslu að bíllinn hafi í beygjunni skyndilega sigið á hliðina. Kveðst hann hafa verið á hægri ferð. Vegsummerki og sjálfur bíllinn gefa þó vart annað til kynna en of mikinn hraða í beygjunni. Ökumaður stóra bilsins og farþegi hahs — 1—2 mánaða gamall hvolpur — sluppu ómeiddir, en bíllinn er mikið skemmdur þó ökufær væri. -A.St Irjálst, úháð dagblað FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER1979. „Hlerunarmálið” í sendiráðinu íMoskvu: Engir hljóð- nemar í bifreiðinni — segir utanríkisráðu- - neytið sem fékk skýrslu frá Moskvu „Frásagnir um hlerunartæki í bif- reið islenzka sendiráðsritarans i Moskvu eru mjög málum blandnar og samkvæmt skýrslu, sem okkur barst um málið í gær frá Moskvu, hefur í frá- sögnum um það ekki verið rétt haft eftir Sigríði Snævarr sendiráðsritara,” sagði Þorsteinn Ingólfsson deildar- stjóri í utanríkisráðuneytinu í viðtali við DB. „Sá aðili, Óli Örn Andreassen kvik- myndagerðarmaður, sem samkvæmt. frásögn Morgunblaðsins í gær telur sig hafa fundið leiðslur og hljóðnema í bif- reið sendiráðsritarans ruglar væntanlega saman hugsanlegu innbroti í bifreiðina í ágúst síðastliðnum. Hið eina sem ljóst er i málinu er að svo virðist sem brotizt hafi verið inn í hana og hrifsað í þræði að útvarpi og einnig eitthvað átt við vindlakveikjarann,” sagði Þorsteinn Ingólfsson ennfremur. _____________________-ÓG. Stef na að heimsmeist- aratitlinum íslenzka landsliðið í skák í flokki 16 ára og yngri hélt utan í morgun til þátj- töku i fyrstu heimsmeistarakeppni unglingsveita. Keppnin hefst i Viborg í Danmörku á sunnudag og eru þátttökuþjóðirnar 20 talsins. íslenzka sveitin er mjög vel skipuð og ætlar sér ekkert nema sigurá mótinu. Á 1. borði teflir Jóhann Hjartarson, margreyndur í keppni á erlendri grund og á 3 efstu borðunum eru piltar sem teflt hafa i landsliðs- flokki. Búizt er við að baráttan um 1. sætið standi einkum milli Englands, Hollands, Júgóslavíu og V-Þýzkalands auk íslands. -GAJ- Síðasti ríkisráðsfundurinn: „Þeir spáðu sorta...” „Heyrðir þú veðurfréttir í morgun? Þeir spáðu sorta í suðvestri,” sagði Hjörleifur Guttormsson við Kjartan Jóhannsson fyrir rikisráðsfundinn í morgun. „Ertu búinn að fá vinnu sem dyra- vörður, Hjörleifur?” spurði Stein- grímur, þegar hann mætti í Stjórnar- ráðið. Þeir ráðherrar (nú fyrrverandi) voru hressir í bragði þegar þeir mættu í siðasta sinn á rikisráðsfund. Sumir koma kannski aftur með nýjum herrum. Hver veit. -ARH -OG. Sá sem hefur það bezt meðal skólatannlæknanna í Reykjavík: 113.500 KR. Á DAG 30 MILU. í ÁRSLAUN —„hálf sdags”-tannlæknamir vinna þó oft ekki nema þrjá tíma á dag Gert er ráð fyrir því i fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar að laun tannlækna er starfa við skólana i Reykjavík verði 600 milljónir króna á þessu ári. Ef þeirri upphæð er deilt með 25 sem er taJa starfandi tannlækna við skólatannlækningarn- ar kemur út talan 24 milljónir króna í laun til tannlæknis að jafnaði. Af skýrslu sem Jón Aðalsteinn Jónasson fulltrúi Framsóknar í heilbrigðisráði hefur tekið saman um laun skólatannlækna og nær yfir janúar 1979—apríl ’79 og síðan júní og júlimánuð sama ár koma ýmsar athyglisverðar launatölur í ljós. Hæstum daglaunum á þessu tíma- bili náði kventannlæknir einn. Dag- launin voru 155.180. Meðaldaglaun hennar samkvæmt úttekt Jóns Aðalsteins reyndust 94.788 á sex mánaða tímabili. Mánaðarlaun þessa tannlæknis verða því 2.085.336 krónur og ef áfram heldur sem horfir verða árslaunin rúmlega 25 milljónir króna. Kventannlæknirinn sem nær hæsta dagkaupinu á þó ekki launa- metið meðal tannlækna Reykjavíkur- borgar. Sá sem hæst kemst hefur mest náð 135 þús. króna dagkaupi. En meðaldaglaun hans eru 113.490 krónur. Meðalmánaðarlaun verða aðeins tæpar 2,5 milljónir og árslaun slefa í 30 milljónir. Bæði þessi dæmi eru tekin meðal þess hóps tannlækna er vinna 50% starf hjáskólum Reykjavíkurborgar. Hálfsdags tannlæknarnir hjá borginni reynast samkvæmt saman- tekt Jóns Aðalsteins hafa það miklu betra launalega séð en þeir tannlæknar, sem meira vinna að skólatannlækningum. Meðaldaglaun hálfsdagstannlækn- anna eru 83.815 kr., meðal mánaðar- laun 1.843.930 og meðal árslaun 22.127.160 kr. Þeir sem unnu 70% starf náðu ekki nema 72 þúsund króna meðaldags- tekjum og tæplega 1,6 milljónuin á mánuði og 19 milljóna árslaunum. Sá er vann 80% starf hafði 87.805 krónur í meðaldaglaun, rúmar 1,9 milljónir í meðalmánaðarlaun og rúmar 23 milljónir i árslaun. Þeir sem unnu 100% starf að skólatannlækningum náðu ekki nema 69 þúsund króna meðaldag- launum, rúmum 1,5 milljónum í meðal mánaðarlaun og rúmum 18 millj. króna yfir árið. Jón Aðalsteinn sagði í samtali við DB að dæmið væri enn verra en tölurnar sýndu. Vegna trassaskapar tannlækna skiluðu þeir ekki aliir þeim vinnutíma, sem um væri samið en lágmark hans er 4 timar á dag. Ófullkomin könnun hefði leitt i ljós að oft væru þeir sem vinna ættu á skólatannlækningastofum frá 8—12 farnir um ellefuleytið. Þetta þýddi slaka nýtingu þess hjálparfólks sem ráðið væri aðstoðarfólk þeirra, en meginhluti þess síarfshóps er ráðinn i 65% starf hjá borginni, af því að það á að mæta á undan tannlækninum og taka til þegar hann er farinn, að hálfum vinnudegi loknum. „Þetta starfsfólk,” sagði Jón Aðalsteinn „hefur um 10% af launum tannlækna i laun. „Þó eru þess mörg dæmi að tannlæknar telja hjálparfólkið svo nauðsynlegt, að boði það veikindaforföll, þá telja þeir sér ómögulegt að vinna á eigin spýtur — og loka stofunni þann dag- inn.” -A.St.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.