Dagblaðið - 19.10.1979, Qupperneq 4

Dagblaðið - 19.10.1979, Qupperneq 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979. DB á ne ytendamarkaði ANIMA BJARNASON Kjúklingabringur i paprikusósu eru gómsætur réttur. Auðvitað má alveg eins nota kjúklingalæri en hægt er að fá hvort sem er læri eða bringur í sér pakkningu. í mörgum tilfcllum getur það borgað sig að kaupa kjúklingana þannig tilreidda, sérlega ef búa á til einhverja sérstaka rétti. í þennan rétt þarf: 4 kjúklingabringur (eða lærí) 2—3 lauka 250 gr sveppi 1/41 þeytirjóma papriku, 1—2 stk. 1 dós af afhýddum tómötum smjör til að steikja í Kryddið kjúklingana með salti og pipar áður en þeir eru brúnaðir á heitri pönnu í smjöri. Takið kjúklingana af pönnunni og látið fínt hakkaðan laukinn út i feitina og steikið þar til hann er orðinn glær. Þá eru sveppirnir látnir út í. Þegar þeir hafa tekið á sig lit er rjómanum hellt yfir og paprikan, sem áður hefur verið skorin í bita, látin út í. Þá eru kjúklingarnir látnir á pönnuna og allt soðið við vægan hita þar til kjúklingarnir eru orðnir meyrir. Síðast eru tómatarnir látnir út á pönnuna. Betra er að láta safann leka af þeim áður, þvi annars verður sósan alltof þunn. Með þessum rétti er gott að borða hrísgrjón og heitt, franskt brauð, flútes. Hráefniskostnaður er í kringum 5450 kr. eða tæplega 1400 kr. á mann. Er þá reiknað með hrísgrjónunum og brauðinu. -A.Bj. AFTUR MEÐ EFT- IR SMÁHLÉ Aðalheiðurá Akureyri skrifar: „Ég sendi nú seðilinn eftir tveggja mánaða hlé. Sumarið leið með gesta- gangi og smáfríum svo allt fór úr skorðum. Ég er mjög ánægð með síðuna og finnst gott að vita í hvað peningarnir fara”. LAUSSTAÐA Staða bókavarðar við Menntaskólann við Sund er laus til umsóknar. Um er að ræða hálft starf, og er menntun í bókasafnsfræði áskilin. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsfcril og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Rcykjavik, fyrir 10. nóvember. nk. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ ll.október 1979. ARKITEKT Ákveðið hefur verið að hefja nú þegar gerð deiliskipulags fyrir Grjótaþorp. Arkitektar sem áhuga hafa á slíku starfi eru beðnir um að tilkynna það bréflega til stofnunarinnar eigi síðar en 26. okt. nk. og eru þar veittar nánari upplýsing- ar. Þróunarstofnun Reykjavíkur Þverholti 15 — 105 Rvík. September langversti mánuðurínn: NÆRRI130. ÞÚS. KR ÚTGJÖLD Á MANN Kjúklingaréttir hafa löngum verið „spari”matur hér á landi. Erlendis eru kjúklingar oft með allra ódýrasta mat sem hægt er að fá. Kjúklingar í riómasósu Húsmóðir í Kópavogi skrifnr: Kæra neytendasíða! Nokkrar línur að venju. Þá er hér kominn septemberseðillinn. Þetta eru orðnar svo miklar upphæðir þeg- ar tölurnar eru lagðar saman að manni blöskrar alveg. (30.917 kr. á mann í mat og hreinlætisvörur). Fyrir utan venjuleg matarkaup eru inni í þessari upphæð 12 unghænur. Liðurinn „annað” er hrikalega Raddir neytenda hár. Hann var 587.631 kr. eða 97.937 kr. á hvern fjölskyldumeðlim). Þetta er langversti mánuðurinn á árinu. Þarna eru símareikningar, rafmagns- og hitareikningar, afborgun af bíln- um, skólavörur fyrir þrjú börn, þar af tvær skólatöskur. Við keyptum töluvert af fatnaði á útsölum og síðast en ekki sízt var keypt þvottavél, þpr sem sú gamla bilaði endanlega. Það er alltaf jafngaman að lita yfir síðuna. Þar kennir svo margra grasa. Læt þetta nægja núna. Enn vantar seðla f rá „föstum viðskiptavinum” Hér kemur síðasti septemberseðillinn. Enn vantar okkur talsvert af seðlum frá föstum „viðskiptavinum” Viljum við benda „okkar fólki” á eftirtöldum stöðum á að drífa nú i heimilsbókhaldinu og senda ok-kúr útfylUa seðla: Reykja- vík, Vestmannaeyjum, Vogum, nokkra vantar frá Kópavogi, þó hafa verið sæmilegar heimtur þaðan, -marga vantar frá Höfn, Hellu, Hveragerði, Hafnarfirði og Akureyri. Þar hafa aftur á móti margir nýir bætzt í hópinn, en við viljum hafa þá „gömlu” með áfram. Verst virðist þó ástandið á Akranesi. Þaðan hafa að jafnaði komið margir seðlar en þegar þetta er ritað, hefur ekki komið einn einasti seðill .frá Akranesi. Hvað er eiginlega með ykkur Akurnesingar? Ætlið þið ekki að vera með í því að fá „meira fyrir mánaðarlaunin”? -A.Bj. Upplýsingaseöill til samanburðar á heimiíiskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvaö kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yöar. Þar aö auki eigið þér von i að fá fría mánaðarúttekt fyrir fjölskyldu yðar. Kostnaður í septembermánuði 1979. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. m Yimx Fjöldi heimilisfólks

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.