Dagblaðið - 19.10.1979, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
I
HAFNARBÍO
I) Frumsýnir
Stríðsherrar Atlantis
EMI Films Limited present A JOHN DARK-KEVIN CONNOR production
M DOUG McCLURE n
WARLORDS OF ATLANTIS
PETER GILMORE
with
Special Guest Appearances
CYO CHARISSE mDANIEL MASSEY
Music composed by MIKE VICKEr.ó • Screenplay by BRIAN HAYLES
Produced by JOHN DARK Directed by KEVIN CONNOR [
Technicolor « Distributed by EMI Films Limited l
Stórkostleg ævintýramynd Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 - Sími 15105
Lítið fyrirtæki
óskar eftir húsnæði til leigu. Þarf að
vera í Reykjavík. Allar upplýsingar í
síma 20555 milli kl. 14 og 16.30 daglega.
Teg. K.2428/2
Ljósbrúnt leður
Stærðir: 41-45
Verð kr. 17.800.
Stærðir: 41-45
Verð kr. 17.800.
Opið tii hádegis
Teg. 4585/1
Litir: Brúnt og svart
Stærðir: 41-45
Verð kr. 18.000,
Teg. K. 2431
Ljósbrúnt leður
Stærðir: 41 -45
Verð kr. 17.800.
PÓSTSENDUM
HERRASKOBUÐIN S.F. tZ
ÁRMÚLA 7
Prófkjörin nálgast:
Vinstri flokksbrotin
bjóða einnig fram
EIKarar íhuga
framboð
— einnig kemur til greina
að hvetjafólk
til þessaðskila auðu
,,Það eru hugmyndir um framboð
hjá EIKurum og eins eru uppi hug-
myndir um að hvetja fólk til þess að
skila auðu eins og gert var fyrir síðustu
kosningar.” sagði Ari Trausti
Guðmundsson, formaður Einingar-
samtaka kommúnista.
Ákvörðun verður tekin um helgina
og þá kemur einnig til greina framboð
með öðrum samtökum eða einstakling-
um. Persónulega gæti ég hugsað mér
framboð með þeim hópi kommúnista,
sem er í kringum Stéttabaráttuna.
Aðalatriðið er að ná breiðri samstöðu.
Fresturinn er þó svo stuttur til
kosninga, að erfitt er fyrir samtök
okkar að móta stefnuna og undirbúa
kosningar. Meirihluti ræður þvi hins
vegar hvort um framboð verður að
ræða eða ekki, en ég tel frestinn of
stuttan.
Við tökum mið af þeim hefðum sem
rikja hér á landi og þvi geta
kommúnistar tekið þátt i þingræðis-
legum kosningum.” .jh
Sólnes vill próf kjör—
Halldór til í slaginn
— málinu vísað til kjördæmisráðs
,,Fyrir síðustu kosningar lýsti ég því
yfir á fulltrúaráðsfundi á Akureyri, að
ég væri reiðubúinn til þess að taka þátt
í prófkjöri til alþingiskosninga. Það
hefur ekki breytzt,” sagði Halldór
Blöndal, sem var í 3. sæti hjá Sjálf-
stæðisflokknum í síðustu þingkosning-
um og varaþingmaður.
,,Eins og þá tel ég hins vegar, að það
sé ekki mitt að ákveða það með
hverjum hætti framboðsmálum verður
skipað,” sagði Halldór.
,,Ég vil svo bæta þvi við,” sagði
hann, ,,að fyrir siðustu alþingiskosn-
ingar var lagt hart að mér að fara ekki
fram á prófkjör, þar sem talið var af
ýmsum að það gæti spillt fyrir því að
nægileg samstaða næðist fyrir þær
kosningar. Flokkurinn þyrfti á öllu
sínu að halda,” sagði Halldór Blöndal.
Jón G. Sólnes er sagður vilja próf-
kjör og fá með þvi skorið úr um stöðu
sina í kjördæminu. Sumir fyrri
stuðningsmanna Jóns eru þvi andvígir
en telja að hann eigi nú að draga sig í
hlé. Af þeirra hálfu er bent á, að hann
séu nú orðinn 69 ára og eigi að víkja
fyrir yngri mönnum.
Jóni G. Sólnes er því vandi á
höndum i framboðsmálum. Ef ekkert
prófkjör verður haldið og hann hlýtur
ekki stuðning kjördæmisráðsins, gæti
litið svo út að nývakið mál um síma-
reikninga hans hafi hrakið hann frá
framboði. Með þvi að vilja prófkjör,
vil! hann afsanna þessa kenningu.
Stuðningsmenn Jóns vilja ólmir að
hann geli kost á sér, og standa að
undirskriftastöfnun máli sínu til árétt-
ingar. Siðast þegar fréttist höfðu 3—
400 manns skrifað upp á stuðning við
Sólnes.
„Kjörnefndin kom saman til ráða-
gerðar um það, hvort prófkjör skuli
haldið með sjálfstæðismönnum i
Norðurlandskjördæmi eystra,” sagði
Svanhildur Björgvinsdóttir, formaður
kjördæ'misráðsins í þvi kjördæmi.
„Vegna þess hversu timinn er skamm-
ur til kosninga og litii reynsla er af
prófkjörum hér taldi kjörnefndin rétt
að kjördæmisráðið tæki afstöðu til
málsins,” sagði Svanhildur.
Hún sagði að alls ekki mætti draga
þá ályktun af samþykkt kjörnefndar,
að hún væri andvig prófkjöri. Einfald-
lega hefði verið valin sú leið við
ákvörðunartöku um prófkjör, sem rétt
væri talin.
Kjördæmisráðið kemur saman um
helgina, og sem fyrr segir verður þar
tekin afstaða til prófkjörs- og fram-
boðsmála flokksins í kjördæminu.
-BS/ARH
Fylkingin býður f ram
„Framboð okkar liggur í loftinu en
hefur enn ekki verið ákveðið form-
lega,” sagði einn talsmaður Fylkingar-
innar við DB. Hann kaus að leggja ekki
nafn sitt við upplýsingarnar.
Fylkingin bauð fram í Reykjavikur-
kjördæmi í síðustu alþingiskosningum
og hafði 184 atkvæði upp úr krafsinu.
Efsta sæti listans skipaði Ragnar
Stefánsson jarðskjálftafræðingur.
„Við leggjum áherzlu á að verka-
lýðsöflin segi skilið við þátttöku í
borgaralegum rikisstjórnum,” sagði
viðmælandi DB. „Samsteypustjórn á
borð við þá sem Alþýðubandalagið var
i nú síðast hefur það hlutverk að draga
tennur úr verkalýðshreyfingunni og
gera hana magnlausa til að verja
kjörin. Þá fór Alþýðubandalagið illa
með herstöðvaandstæðinga i rikis-
stjórninni.
Fylkingin mun hvetja sitt fólk til að
kjósa Alþýðubandalagið, þar sem sam-
tökin bjóða ekki fram sjálf. -ARH
Jónas Guðmundsson íframboð
Framsóknar í Reykjavík
„Ymsir einkennilegir menn hafa
verið að tala um það við mig að taka
sæti á listanum. Mér finnst það ekki
fýsilegt þar sem ég fæ ekki séð að neitt
sæti í Reykjavik sé öruggt nema
heiðurssætið,” sagði JónasGuðmutvl'
son rithöfundur þegar i'réttamaður
spurði hann, hvort rétt væri að hann
færi í framboð fyrir Framsóknarflokk-
inn i Reykjavik.
„Ef af þessu verður er það eingöngu
í þeirri trú, að Reykvíkingar verði að
minnsta kosti metnir meira en fé
bænda, sem leitt er til slátrunar á
haustin.”
Aðspurður hvort hann stefndi á
efsta sætið svaraði Jónas: „Ég býst við
því, enda þótt ég sjái engan teljandi
mun á efstu sætum listans eins og nú er
komiðmálum.” .gg
Alþýðubandalagsmenn forvelja um helgina
Alþýðubandalagið geng.st nú fyrir
forvali á frambjóðendum flokksins í
Reykjavíkurkjördæmi í fyrsta sinn.
Fyrri umferð forvalsins er um kom-
andi helgi. Aðeins flokksbundið fólk
getur tekið þátt i því. í fyrri umferðinni
skrifamenn nöl'116 manna sem þeir vilja
að skipi efstu sæti. Röðin skiptir ekki
máli.
Kjörnefnd mun siðan kanna hvort
atkvæðaflcstu mcnn gefi kost á sér í
slaginn áfram. 12 efstu menn verða í
framboði í síðari umferð forvals, sem
fram fer eftir viku. Þá setja þátt-
takendur í forvalinu númer við fram-
bjóðendur.
Kjörnefnd mun leggja niðurstöður
fyrir fulltrúaráð flokksins, sem tekui
endanlega ákvörðun um skipan fram-
boðslistans. Forvalið er á engan hátt
bindandi.
Búizt er við að framboðslisti
Alþýðubandalagsins í Reykjavik sjái
dagsins Ijós um mánaðamótin. -ARH.