Dagblaðið - 19.10.1979, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1979.
13
„Uður í framþróun"
—ísf irzkar töl vuvogir í Noröurtanga hf.
Tölvuvæðing frystihúsa hérlendis er
komin nokkuð áleiðis og búnaður hús-
anna verður stöðugt fullkomnari. Það
frystihús sem hvað fyrst reið á vaðið
með tölvuvogir var Norðurtanginn á
ísafirði og hefur slík vog verið nokkuð
lengi til reynslu í frystihúsinu. í haust á
síðan um helmingur borðvoga i
vinnslusal að tengjast tölvu og stórri
vog sem vigtar inn í húsið. Hinar nýju
borðvogir leysa hinar gömu
hefðbundnu þar með af hólmi.
DB ræddi við Jón Pál Halldórsson,
framkvæmdastjóra Norðurtangans,
um hina nýju tækni og kosti hennar.
Jón Páll sagði að stóra vogin viktaði
allt sem kæmi inn i húsið og fengist
þannig nákvæm vikt þess afla er kæmi
inn i vinnslurásina. Síðan væri fram-
leiðsla hússins tekin til samanburðar til
þess að meta hvort sú nýting næðist
sem menn ætluðu sér og teldu
mögulegt. Náist sú nýting ekki, er hægt
að leita að því hvar sú brotalöm er.
„Þetta er liður i framþróun,” sagði
Jón Páll. „Borðvogirnar eru smiðaðai
hér á ísafirði, hjá Pólnum hf. Þær
vigta nákvæmlega þann þunga, sem á
að vera í pökkunum en síkt þýðir betri
nýtingu þar sem gjarnan er svolítil um-
framvigt þegar gömlu lóðavigtirnar eru
notaðar.
Þessi endurnýjun kostar mikið og í
sumar kostaði hver vigt 936 þúsund
kr. með söluskatti. En þessar vogir
hafa verið reyndar hér í frystihúsunum
við Djúp og búið er að sniða af þeim
vankantana. Tölvuvogirnar frá Póln-
um virðast þvi uppfylla þær kröfur sem
til þeirra eru gerðar.”
-JH.
K
Ný borðvog i vinnslusal Norðurtangans.
Margrét Kristinsdóttir stendur við vog-
ina.
SbSNÉ'' *
Stapafellið á lcið til tslands i fyrsta sinn. Myndin var tekin úr flugvél er flaug til móts við skipið á mánudag.
NÝJA STAPAFELUÐ
Ein GLÆSILEGASTA
SKIP FLOTANS
Tækjabúnaður og sjálfvirkni eftir nýjustu kröf um
Stapafell, hið nýja skip SÍS og
Olíufélagsins kom til landsins
aðfaranótt þriðjudags með fullfermi
af ljósaolíu. Skipið, sem leysa á
gömlu skipin Stapafell, sem selt hefur
verið, og Litlafell af hólmi við oliu-
flutninga hér innanlands, er smiðað
hjá J.G. Hitzler í Lauenburg í V-
Þýzkalandi og var afhent í siðustu
viku. Auk olíuflutninganna er skipið
búið til flutninga á lýsi, fljótandi hrá-
sykri, lausu korni og fiskimjöli.
Skipið getur, að sögn Barða Jóns-
sonar skipstjóra, flutt um 1900 tonn
af oliu í strandsiglingum hér við land.
Á þvi er 12 manna áhöfn eða tveimur
mönnum færra en var á hvoru gömlu
skipanna en nýja skipið getur vegna
tæknibúnaðar og meiri hraða við
lestun, losun og hreinsun, annað
hlutverki hinna beggja.
Axel Gíslason framkvæmdastjóri
skipadeildar SÍS kvað Stapafelliö
fyrsta islenzka flutningaskipið frá
1971 sem byggt væri fyrir íslendinga
og þar sem tekið væri tillit til allra
íslenzkra aðstæðna. Mjög dýr út-
búnaður er i skipinu til sérhvers þátt-
ar starfssviðs þess. Kvaðst Axel hins
vegar viss um að þessi dýri búnaður
myndi skila sér í betri rekstraraf-
komu skipsins.
Skipasmíðin var boðin úl hjá 30
skipasmiðastöðvum og bárusl 18
tilboð. Lægstu tilboðin voru frá
Japan en því þýzka tekið vegna hærri
gæðakrafna við smíði oliuskipa.
Axel kvað enga styrki eða innlend
sjóðalán bundin smíði Stapafells en
skipadeild SÍS hefði fengið lán er-
lendis upp á um 6 millj. þýzkra
marka til kaupanna eða um 70-80%
af heildarverði skipsins sem er læpar
2000 milljónir ísl. króna.
Stapafell er með tvöföldum botni
og tvöföldum síðum og uppfyllir með
því og öðru ströngustu kröfur um
mengunarvarnir. Veggir farm-
hylkjanna, sem eru 9 talsins, eru
sléttir veggir og þaktir sérstakri
polyurethanhúð til að auðvelda
hreinsun. I farmhylki kemur aldret
sjór því taka má 900 tonn af kjölfestu
í sérstök hylki. Vökvadrifinn krani
tengir farmlagnir og hreinsun fer
fram með sjálfvirkum vélbúnaði.
Skipið er 2045 tonn en burðargeta
og rými farmhylkja 2640 rúmmetrar.
Skipið er 75 metra langt og 13.20
metrar að breidd. Það getur flutt 3
farmtegundir samtímis.
Það er knúið 3000 hestafla Deutz
vél sem brennir svartolíu úr höfn i
höfn. Ganghraði er 13.6 milur.
Skipið er búið skiptiskrúfu, bóg-
skrúfu og blöðkustýri auk allra
siglingatækja.
Vélarrúm er mjög vel búið sjálf-
stýritækni. T.d. er þar ekki nema 8
tima vinnuvakt vélstjóra en útköll á
öðrum timum sólarhrings eftir því
sem viðvörunarkerfi kallar. Yfirvél-
stjóri er Jón Guðmundsson.
-A.Sl.
Gömlu lóðavogirnar verða að vikja fyrir tölvuvogunum.
DBmyndir JH.
nuertil
miktls aó vinna!
EMI heimsmeistarakeppnin
Stórkostlegir vinningar
1. verðlaun: kr. 9.000.000 auk farand-
bikars
2. verðlaun: kr. 2.000.000 auk heiðurs-
penings
3. verðlaun: kr. 1.000.000 auk heiðurs-
penings
EMI og Oðal óska eftir þátttakendurn í
Disco-danskeþpni einstaklinga. Undan-
rásir verða í Oðali.
Sigurvegari í lokakeppninni hlýtur að
launutn rétt til að keppa fyrir hönd
Islands í sjálfri heimsmeistarakeppn-
inni, EMI-keppninni, sem haldin verður
t London 18. desember nk.
íslenski þátttakandinn fcer t veganesti
frtar ferðir fram og tilbaka og uppihald
íLondon á meðan keppnin stenduryfir.
Ifœntanlegir þatttakendur haji sumband við skrifstofu
OðalSfAusturstrceti 17, eða i sitna 11610. Þátttakendur
, t>erða að hafa nað 18 ára aldri, ekki eldri en 15 ára
jMiiiiiiiiiimma