Dagblaðið - 19.10.1979, Qupperneq 28
Laun skólatannlæknanna:
TRYGGINGASTOFNUNIN
SPRENGM UPP LAUNIN
og svo var borginni nánast stillt upp við vegg, segir vinnumalastjöri borgarinnar
„Reykjavíkurborg hafði árum
saman sérstakan samning við tann-
lækna sem störfuðu við skóla borgar-
innar og laun tannlækna, sem störf-
uðu eftir þeim prívatsamningi,
byggðust á rýmilegum tölum,” sagði
Magnús Óskarsson, vinnumálafull-
trúi Reykjavíkurborgar, en hann
undirritaði núgildandi samning milli
Reykjavikurborgar og TFÍ f.h. borg-
arinnar.
„En þegar þáverandi trygginga-
málaráðherra, Magnús Kjartansson,
tók tannlækningar inn í trygginga-
kerfið hrundi fyrra samkomulag
borgarinnar við skólatannlækna og
tómt mál var að tala um sérsamn-
ing,” sagði Magnús.
Magnús benti á að eftir samning
Tryggingastofnunarinnar við tann-
lækna hefðu tannlæknar flúið störf
sín hjá skólum borgarinnar og ekki
hefði verið um annað að ræða en
gera samning sem byggði í öllum
aðalatriðum á samningi Trygginga-
stofnunarinnar og TFÍ ef takast ætti
að halda uppi tannlækningum í skól-
um borgarinnar. Var slíkur samn-
ingur gerður rúmu hálfu öðru ári
eftir að Tryggingastofnunin samdi
við tannlækna og gildir enn.
Magnús sagði að launatölur skóla-
tannlækna lægju fyrir, öllum opnar
og þær hefðu varpað ljósi á mjög
háar tekjur tannlækna almennt. En
þegar laun skólatannlækna væru til
umfjöllunar gleymdist að geta þess
að þeim tengdust engin launatengd
gjöld. Skólatannlæknar hefðu ekki
sumarleyfi á launum, ekki veikinda-
frí og launum þeirra fylgdu ekki
greiðslur í lífeyrissjóð. Þessir liðir
gætu talizt 15—20% og sennilega
nær hærri prósentutölunni. Þá tölu
bæri að draga frá launum skólatann-
lækna er laun þeirra væru borin
saman við laun annarra stétta.
Jón Aðalsteinn Jónasson, fulltrúi
Framsóknar i heilbrigðisráði, hefur
bent á að tannlæknar hafi nánast
neytt Reykjavíkurborg til gerðar nú-
verandi samninga um laun skólatann-
lækna. Hefur hann gert úttekt á laun-
um þeirra sem sýna allt að 155 þús-
und króna daglaunum og 30 milljón
króna árslaunum. Við þann útreikn-
ing er aðeins byggt á tekjum þeirra
frá Reykjavíkurborg en flestir skóla-
tannlæknar vinna þar ekki nema 4
tíma á dag og reka eigin stofur hluta
úr degi.
- A.St.
„Stærsta málið” íborgarstjórn:
SJOFN FELLDILANDS-
VIRKJUNARTILLÖGUNA
— Hriktir í meirihlutanum íborgarstjórn, segir flokksbróðir hennar Björgvin Guðmundsson
,,Það er mikil hætta á því að borg-
arstjórnarmeirihlutinn í Reykjavik
bresti í kjölfar atkvæðagreiðslunnar
um I.andsvirkjunarsamninginn,”
sagði Björgvin Guðmundsson, borg-
arfulltrúi Alþýðuflokksins, í viðtali
við DB.
„í þeirri atkvæðagreiðslu stóð
Sjöfn með Sjálfstæðisflokknum og
klauf sig frá meirihlutaflokkunum
þannig að samningurinn féll,” sagði
Björgvin.
„Þetta hefur gerzt nokkrum sinn-
um áður i mikilvægum málum, að
Sjöfn hefur staðið með Sjálfstæðis-
flokknum. Ég tel að það sé orðið
mjög erfitt fyrir mig að starfa í meiri-
hlutanum og geta átt von á því, að
hún standi með Sjálfstæðisflokkn-
um,” sagði Björgvin. Hann sagði
ennfremur:
„Af þessum sökum hefi ég ákveðið
að leggja þetta mál fyrir fulltrúaráð
Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík,
til þess að láta það skera úr um hvort
Alþýðuflokkurinn á að halda áfram
samstarfi við Alþýðubandalag og
Framsóknarflokk um stjórn Reykja-
víkurborgar, eða hvort sUtaeigi þessu
samstarfi.
Ég tel ókleift að halda þessu sam-
starfi áfram nema Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir standi heil að þessu samstarfi
eins og ég hefi gert allan t'unann.”
Björgvin kvað geysUega óánægju
vera með þann atburð sem gerðist í
gærkvöldi. „Þetta er stærsta málið
sem borgarstjórnin hefur fjallað um
lengi og það hriktir í samstarfinu,”
sagði Björgvin. -BS
Villtir í
Faxaflóa
51 tonns fiskibátur. Öðlingur ÍS
99, lenti í mikilli hafvillu i Faxafióa á
leið sinni frá Reykjavík til Bolunga-
víkur og eftir 30 klukkustunda hring-
sól komst hann loks til Reykjavíkur
um kl. 3 i nótt.
Í fyrrakvöld lagði hann upp og
eftir allmargra klukkustunda stim
taldi hann sig skammt undan Látra-
bjargi. Upp úr því fóru að renna tvær
grimur á skipstjóra og óskaði hann
eftir aðstoð Slysavarnafólagsins í
gærdag, sem bað togarann Rán HF
að svipast um cftir bátnum. Togarinn
fann bátinn 30 sjómílur norðvestur af
Garðskaga á Reykjanesi og kom
honum á rétta braut. Bæöi áttaviti og
radar Öðlings eru i ólagi. -GS
HM sveina:
Jafnt gegn
Þýzkalandi
,,Við höfum sett stefnuna á 2.
sætið i riðlinum og 3. sætið i
keppninni. Það er ljóst, að
Englendingar eru með langsterkustu
sveitina hér," sagði Ólafur H. Ólafs-
son fararstjóri islenzku unglinga-
skáksveitarinnar sem nú tekur þátt i
heimsmeistarakeppninni í Viborg í
Danmörku.
íslendingar tefldu i gær við V-
Þjóðverja. Jóhann Hjartarson tapaði
á I. borði fyrir Graf en Björgvin
Jónsson vann skákmann með þvi
kunnuglega nafni Fischer á 4. borði.
Hefur Björgvin unnið allar skákir
sínar til þessa. Jóhannes Gisli á góðar
sigurlikur í biðskák á 2. borði en
Elvar cr sennilega með tapaða
biðskák á 3. borði. Í dag tefla
íslendingar við Hollendinga og er
hugsanlegt að þeim nægi jafntefli í
þeirri viðureign til að ná2. sætinu.
-GAJ-
Slippurinn fær trillulægið
„Þarna er veriö að gera fyllingu regna bryggju fyrir Slippfélagið, ” sagði Gunnar Guðmundsson hafnarstjóri er DB hafði
samband við hann vegnaframkvœmda sem eru nú að hefjast í Reykjavikurhöfn vestan Ægisgarðs.
„Það er Slippfélagið sem stendur að þessari framkvcemd og félagið kostar hana algjörlega. Þetta erþó nokkur fylling,
2—3000 m2, ” sagði hafnarstjóri.
Eins og DB hefur greint frá hefur nokkur kurr verið I smábátaeigendum vegna þessa máls þar semþeir missa ná þá að-
stöðu sem þeir hafa haft þarna fyrir háta sína.
-GAJ/DB-myndí morgun: Sv. Þorm.
frýálst, óháð daghlað
FÖSTUDAGUR 19. OKT. 1979.
Framsókn ekki með
profkjör í Reykjavík:
Ólaf ur gef ur
ekki „endan-
legtafsvar”
„Fyrir fundinum lá að Ólafur
Jóhannesson hefur ekki gefið endan-
legt afsvar við tilmælum um að hann
skipi 1. sæti á lista framsóknarmanna
í Reykjavik,” sagði fulltrúaráðs-
maður í Framsóknarflokknum í
borginni eftir fund ráðsins í gær-
kvöldi.
Fellt var að hafa prófkjör i Reykja-
vík. Með yfirgnæfandi meirihl. var
samþykkt að frambjóðendur yrðu
valdir við skoðanakönnun meðal
aðal- og varafulltrúa í fulltrúaráðinu.
Þetta eru alls á þriðja hundrað
manna. Niðurstöður skoðanakönn-
unarinnar eru bindandi um tvö efstu
sæti listans. Á fundinum átti opið
prófkjör fáa formælendur en nokkrir
vildu hafa skoðanakönnun meðal
allra flokksmanna.
Skoðanakönnunin mun standa í
tvodaga,__________ - HH
Brotízt inn í
hundageymslu
Brotizt var inn i hundageymslukofa
Jónasar Jónssonar, hundagæzlumanns
Reykjavíkurlögreglunnar, í Blesugróf á
laugardaginn. Þaðan var numinn á
brott hundur sem lögreglan hafði
komið þangað í geymslu því enginn
fannst eigandinn.
Líklegt þykir að eigandi hundsins
hafi vitað í hvert óefni var komið fyrir
,,bezta vini” hans. Atlaga var gerð að
dyrum hundageymslunnar með járni og
„gæzlufanganum” sleppt út eða hrein-
lega numinn á brott. Væntanlega
verður hundsins nú betur gætt svo
hann komist ekki í lögregluhendur.
______________________- A.St.
Jón Helgason
í slaginn?
Til greina kemur, að Jón Helgason,
formaður verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri, blandi sér í baráttuna um
efstu sætin á lista Alþýðuflokksins á
Norðurlandi eystra.
Framboð hans gæti haft mikil áhrif.
Þar berjast nú um 1. sætið Bragi Sigur-
jónsson ráðherra, Árni Gunnarsson al-
þingismaður og Jón Ármann Héðins-
son fyrrverandi alþingismaður.
í viðtali við DB í morgun kvaðst Jón
Helgason vera að hugleiða málið og
ekki hafa tekið ákvörðun. - HH
Aldrei meiri loðna
Ekkert lát er á aflahrotu loðnubát-
anna og tilkynntu 22 bátar sl. sólar-
hring um tæp 16 þúsund tonn og 2 í
morgun 1700 tonn af miðunum norð-
ur af landinu. Hafa afiatölur
skyndilega tekið viðbragð og eru
komnar í 330 þús. tonn á vertíðinni,
sem er orðið meira en á sama tíma í
fyrra þrátt fyrir að fiskifræðingar telji
mun minni loðnu nú en i fyrra. Landað
er allt umhverfis landið, eftir því hvar
losnar og fylla bátarnir sig aftur og
aftur á örskömmum tíma um leið og
þeir koma á miðin. -GS