Dagblaðið - 20.10.1979, Side 2

Dagblaðið - 20.10.1979, Side 2
2 f Til umhugsunar. Þverrandi siðferðis- þrek æðstu manna Jóhann Óli Guðmundsson skrifar: Á undanförnum misserum hefur mikið verið raett og ritað um þverr- andi virðingu fólks fyrir Alþingi og störfum þess Ástæður þessarar þróunar mála eru, að mati alþingis- manna sjálfra, i hæsta máta ómak- legar í þeirra gaiö. Eða eins og þeir segja sjálfir þá cr það nú aldeilis ekki þeim að kenna hvernig hagur landsmanna ler stöðugt versnandi.. Þar sé um að kenna erlendum fáráölingum og aðgerðum þeirra. Svaranna við þessu síminnkandi áliti fólks á alþingismönnum, og um leið á sjálfu Alþingi, er ekki einvöröungu að leita í hinum verald- lega árangri starfa þeirra. Svaranna er fyrst og fremst að leita i hinum andlega óstöðugleika þeirra og þess siðgæðis sem þeir líða innan sinna raða, í þingsölum og utan þeirra. Hegðun þeirra öll á stundum og athafnir ber vott um fádæma virðingarskorl fyrir starfi sínu og þjóðfélagslegri slóðu. Síðasta dæmið um þessa ósmekkvísi er að fráfarandi dóms- og kirkjumáJaráðherra, Steingrimur Hermannsson, skuli láta nafns síns getið í sambandi við aðra eins lág- kúru og þá að neita að afhenda á hefðbundinn hátt þessi ráðuneyti til eftirmanns síns í ráðherrastól. Hann lætur eins og verið sé að taka af hon- um eitthvað sem hann á og honum einum ætlað um ókomna tíð. Þetta er siður ofdekraðra barna en ekki fulltiða fólks. Það er líka skemmtileg tilviljun, í eins óskemmtilegu máli og þetta er, að Steingrímur Hermanns- son skuli nokkrum dögum áður, að gefnu tilefni, hafa talið sig þurfa að árétta fyrir fólki, að helzti munurinn á föður hans og Vilmundi Gylfasyni væri sá, að Hermann Jónasson hafi aldrei leikið „trúð”. Á það ætla ég ekki að leggja dóm hér. En með þess- ari barnalegu hegðan sinni gagnvart eftirmanni sínum hefur forystu- sauður Framsóknarflokksins nú sýnt og sannað hve fádæma þroskaður og heilsteyptur hann er, þegar á hann reynir. Hann hefur nú endanlega troðið sjálfum sér í gervi þess „trúðs” sem Framsóknarflokkinn og, samkvæmt orðum hans sjálfs, fjölskyldu hans líka hefur vantað í sínar raðir um tveggja til þriggja ætt- liða skeið, vonandi sjálfum sér til ánægju en án nokkurs efa til full- kominnar armæðu fyrir fjölskyldu og flokk. Annað eins siðgæði og þarna er viðhaft sýnir einungis vanhæfni mannsins til að reynast ábyrgur flokksleiðtogi við aðstæður sem þess- ar. Eigin tilfinningasemi á kostnað Léleg aðsókn á landsleikina: ÁSTÆÐAN ER OF HÁR AÐGANGSEYRIR Ingveldur hringdi: Ég er mikill handboltaunnandi og ég get ekki orða bundizt yfir þvi sem Júlíus Hafstein, formaður HSÍ, er að kvarta um í blöðunum, ncfnilega lélegri aðsókn að landsleikjunum við Tékka. Ég fór á fyrri landsleikinn og tók með mér fjögur börn mín, og aðgangseyririnn fyrir okkur fimm reyndist 10 þúsund krónur. Ég hafði einnig ætlað mér á seinni leikinn en ég hafði ekki efni á því. Þetta held ég að sé meginástæðan fyrir lélegri aðsókn, þ.e. aögangseyririnn er orðinn allt of hár. Tvö barna minna urðu að greiða fullorðinsgjald, 3000 kr. en hin tvö 500 kr. hvort þannig að alls urðu þetta 10 þúsund og það þykir mér allt of mikið. Raddir SKIPULAG SVR Hirsdimann 'Utvarps-og sjónvarpsloftnet fyrir litsjónvarpstæki,-' matjnarakerfi og tilheyrandi' loftnetsefni. Ódýr loftnet og gód. Áratuga reynsla. Hcildsala Smasala. Sendum 1 póstkröfu. Radíóvirkinn Týsgötu 1 - Sími10450 ÞARF AÐ BÆTA Námsmaður hringdi: Nýlega var í DB frétt um mikla bílaeign háskólanema. Þaðernú ekki víst að hún sé eins mikil og af er látið, án þess að ég geti í sjálfu sér fullyrt hversu mikil hún er. .Hitt get ég fullyrt, að margir þeirra sem eiga bíl eiga hann af hreinni nauðsyn og án þess að hal'a raunverulega efni á þvi. Eins og strætisvagnasamgöngum er háttað í Reykjavik er skiljanlcgt að menn reyni i lengstu lög að halda úti bifreið. Það vantar fleiri strætisvagna. Þeir þurfa að ganga þéttar og á fleiri leiðum. Einnig þarf að hvetja fólk til að ferðast með þeim með þvi að selja sérstök mánaðarkort og afsláttarkort af ýmsu tagi. Á Norðurlöndum hefur mikið unnizt með því að auka slík afsláttar- gjöld. Þetta tel ég vera nauðsynlegt fyrir þjóðina og þetta yrði örugglega stórt og þýðingarmikið skref i aukn- um orkusparnaði. Ekkert dregið úr launamisréttinu? María Sigurðardóttir hringdi: Ég var að horfa á viðræður fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bands íslands og Guðmundar J. Guðmundssonar í sjónvarpinu í gær (16. okt.). Annar þeirra nefndi að flugmenn hefðu fengið ein verkamannalaun i kauphækkun. Hinn sagði að launa- bilið milli verkamanna og flugmanna hefði ekkert breytzt. Mér þætti því forvitnilegt að vita hvort ekkert hafi gengið að draga úr launamisréttinu undanfarin ár þrátt fyrir loforðallra rikisstjórna um það. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1979. BaldurMöller, ráðuneytisstjóri i dómsmálaráðuneytinu, tekur á móti hinum nýja dómsmálaráðhcrra Vilmundi Gylfasyni. DB-mynd: Hörður. flokksheildarinnar, Alþingis og þessara embætta er ekki einkamál mannsins sjálfs. Það er mál allra landsmanna. Þessi lítilsvirðing við kjósendur er hreint ámælisverð. Ef þeir alþingismenn, sem ekki vilja styðja framkomu sem þessa, héldu vörð um að líða ei innan sinna raða annað eins og krefðust opinberrar af- sökunarbeiðni frá Framsóknar- flokknum, því Steingrímur var í þess- um embættum á hans vegum, er ég ekki i nokkrum vafa um að hægt væri að auka á virðingu fólks fyrir Alþingi og embættum framkvæmda- valdsins í framtiðinni, ekki einungis í þessu tiltekna máli sem þó er eitt hið grófasta sinnar tegundar, heldur og einnig í öðrum málum, sem upp koma, svipaðs eðlis og rýra einungis álit fólks á þessum vettvangi. Það eru því eindregin tilmæli mín til allra þeirra sem eiga eftir að sitja á Alþingi, og reyndar einnig utan þess ekki síður, að standa með auknu afli vörð um heilsteyptara hugarfar og menningarlegra siðgæði í sölum Alþingis á komandi misserum. Viktor Kortsnoj, hinn heimsþekkti skákmaður, er meðal fjölmargra útlendinga sem gist hafa Hótel Esju. DB er ekki kunnugt um, hvort hann átti i erfiðleikum með að koma farangri sinum inn á hótelið. Útlendingar segja erf itt að komast inn á Hótel Esju Leigubílstjóri hringdi: Sem leigubilstjóri hef ég oft orðið var við að útlendingar kvarla undan því, að erfitt sé að komast með ferða- töskur inn á Hótel Esju. Þannig var t.d. í allan fyrravetur að aðeins vinduhurðirnar voru opnar og þar er eiginlega ekki hægt að fara inn með töskur. Mér finnst undarlegt að ekki skuli vera lögð meira áherzla á að hafa þetta atriði í lagi en raun ber vitni. Annað atriði, sem þarna er ábóta- vant, er að þau miklu vöðvabúnt sem gæta dyranna á Hótel Esju virðast engan skilning hafa á þvi að leigu- bílar þurfi að komast með farþega sína að dyrunum. Þarna eiga að vera ákveðin stæði, sem ekki má leggja á, en engu að síður er alltaf lagt í þau stæði og dyraverðirnir virðast ekki láta það mál neitt til sín taka. Ekki er um að ræða að ákveðin stæði séu sérstak- lega merkt leigubílum eins og þó tiðkast víðast hvar. Fólk á rétt á prófkjöri 8214—0255 skrifar: Ég var að heyra eins og aðrir að það ætti að verða prófkjör hjá sumum stjórnmálaflokkunum. Ég vil mælast til þess að fólkið fái sjálft að kjósa um hver verði fyrsti þingmaður í hverju kjördæmi, en ekki verði farið eftir ákvörðun flokksstjórnanna. Þannig sést það bezt, hver það er sem fólkið treystir. Fólkið á rétt á að velja sjálft þann mann sem það vill hafa í forsæti. Það er eðlilegra heldur en að menn geti troðizt þangað með frekju. Ef þessu verður ekki háttað þannig ætti fólk að sýna þessum góðu herrum að það mætir ekki á kjörstað. Ég vil skora á alla sem hafa kosninga- rétt að sýna nú samstöðu með hreinu hugarfari.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.