Dagblaðið - 20.10.1979, Page 4
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1979.
r
DB á ne ytendamarkaði
neytenda
Skímarveizla og afmæli
Guðbjörg I Kópavogi skrifar:
Kæra neytendasíða.
Mér finnst þetta anzi há upphæf
í mat hjá mér (er 32.884 kr. á mann).
En haldin var skírnarveizla og svc
átti einn í fjölskyldunni afmæli o{
hækka þessar veizlur upphæðina
aðeins.
Svo var kistan orðin tóm og var
keypt i hana ýmiss konar matur.
Þakkagóðasíðu.
P.S. Hvernig finnið þið út meðaltal?
Svar:
Við finnum meðaltalið út á þann
hátt að deilt er í „matar- og
hreinlætistöluna” með fjölda
heimilismanna og þannig fengið út
meðaltal á hverjum seðli. Siðan eru
allir seðÍMnir færðir inn í bók og
kostnaður hverrar fjölskyldustærðar
færður í sér dálk. Dálkarnir eru síðan
lagðir saman og deilt í með fjölda
seðlanna innan hverrar fjölskyldu-
stærðar.
Við færum einnig bókhald fyrir
hvern stað fyrir sig, en þá er ekki
tekið tillit til fjölskyldustærðar,
heldur aðeins fært inn meöaltaliö á
hverjum seðli. Síðan eru allar upp-
hæðirnar lagðar saman og deilt i með
fjölda seðlanna. Eins og bent hefur
verið á og margsinnis tekið fram
berst kannski ekki nema einn seðill
frá nokkrum sveitarfélögum, þannig
að mánaðarmeðaltal þeirra staða er i
rauninni ekki annað en meðaltal
þeirrar fjölskyldu sem seöilinn sendi.
Þær tölur eru hins vegar birtar meira
til gamans en að þær seu beinlinis
vísindalegar.
-A.Bj.
Þaó er mtkill útreikningur i sambandi við upplýsingaseðlana. Fyrst er fundið út
meðaltal á hvern fjölskyldumeðlim á hvcrjum seðli. Siðan eru allir færðir inn i bók
og flokkaðir eftir fjölskyldustærð. Dálkarnir eru lagðir saman og deilt i með
fjölda seðla innan hverrar fjölskyldustærðar. Síðan eru seðlarnir flokkaðir eftir
• 'W — 'W
unnar af tmg-
Hmw bllaataCI a.n.k. é kvCMIa
Lítið fyrirtæki
óskar eftir húsnæði til leigu. Þarf að
vera í Reykjavík. Allar upplýsingar í
síma 20555 milli kl. 14 og 16.30 daglega.
RENAULT
Tilsö/u
BMW 528 automatic árg. '77
BMW 520 árg. '77
BMW 728 árg. '78
BMW 316 árg. '78
Renault 20 TL árg. '77
Renault 16 TL árg. '76
Renault station árg. '73
Renault 4 Van árg. '74, '76 og '78
Renault 4 Van F6 árg. '77, '78 og '79
Ford Fairmont Dezer automatic árg. '78
Opið laugardaga kl. 1-6.
Kristinn Guðnason hf.
bifreiða- og varahlutaverzlun,
Suðurlandsbraut 20, sími 86693.
stöðum og færðir inn á „staðarkortin” og fundið meðaltal innsendra seðla frá
hverjum stað. Þá er ekki tekið tillit til fjölskyldustærðar.
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Milljón í „annað”
G. Sig. skrifar:
Ég ætla að senda smá línur með
septemberseðli mínum vegna
upphæðarinnar í dálkinum
„annað”, sem er óvenju hár
(1.051.640). Ég hef í fyrsta skipti
fært allt sem borgað hefur verið á
heimilinu þennan mánuð. Ég hef
ekki verið viss um hversu ítarlega
maður ætti að færa inn á hann, en af
bréfum, sem hafa birzt á síðu ykkar,
hef ég séð að fólk setur allt inn á
hann.
Á þessum reikningi eru afborganir
af húsnæði, sem við erum að kaupa,
og lánum og fleira.
Ég vil einnig þakka þennan þátt
Dagblaðsins sem mér finnst alveg
sjálfsagður. Fyrirgefið þetta hrafl
mitt en mér fannst ég verða að senda
skýringar með seðlinum.
September óvenjudýr
6377—8613, Akureyri, skrifar: Liðurinn „annað” er nokkuð hár veita og afborganir af lánum vegna
Um leið og ég sendi upplýsinga- hjá mér í september (444.216) en þar bílakaupa, einnig óvenju mikil
seðil í fyrsta sinn vil ég þakka fyrir kemur inn i rafmagn, sjónvarp, hita- bensíneyðsla.
neytendasíðuna.
BAKAÐIR PARTAR MEÐ
HEIMATILBÚNUM MYSINGI
Lesendur hafa stundum sent
okkur uppskriftir sem við höfum
birt. Hér er uppskrift frá húsmóður
af „bökuðum pörtum”, sem hún seg-
ir að séu „stórhættulegir þeim sem
eru í megrun”. Með uppskriftinni
segir húsmóðirin frá því hvernig hún
„endurbætir” mysuostinn. — Mætti
ætla að sú uppskrift væri norðan úr
Þingeyjarsýslu, því undirritaður man
eftir þvi að jafnan var „endurbættur
mysuostur” á borðum i Kelduhverf-
inu í gamla daga. En hér er
uppskriftin. Hún er nokkuð stór, en
bréfritari segist jafnan baka helmingi
stærri uppskrift og geyma síðan í
frysti. „Þá tekur enga stund að hita
upp nokkra parta ef gesti ber að
garði, því þeir eru langbeztir volgir.”
4 bollar hveiti
2 bollar heilhveiti
2 bollar rúgmjöl
2 bollar hafragrjón
200 gr smjörlíki
1 1/2 bolli sykur
10 tesk. lyftiduft
2egg og mjólk eftir þörfunt.
öll þurrefnin eru látin i skál,
smjörlíkið mulið saman við og vætt i
deiginu með eggjunum og mjólkinni
Deigið er síðan hnoðað, flatt út og
skornir út „partar”, sem bakaðir eru
ljósbrúnir (ekki baka þá of mikið)
Partarnir eru góðir með smjöri,
sultu, marmelaöi og mysingi.
Úr deiginu er einnig hægt að baka
vínarbrauð með sultu, tertur o. fl.
„Heimatilbúinn mysuostur” er
langbeztur með pörtunum. Keyptur
er biti af mysuosti og hann skorinn
niður í bita og látinn í pott. Bætt er
út í smjöri, sykri og mjólk eftir
smekk. Osturinn er síðan soðinn og
hrært vel í, potturinn tekinn af elda-
vélinni og hrært í ostinum þar til
hann er orðinn kaldur.
„Þetta er notað á allt mögulegt
brauð hérna og sonum mínum finnst
vanta mikið ef mysuosturinn er ekki
til,” segir húsmóðirin í bréfi sinu.
Hráefnið i partauppskriftina
kostar nálægt 700 kr. Ekki vitum við
hvað hver „partur” leggur sig á, því
við höfum ekki reynt uppskriftina og
vitum því ekki hve margar kökur fást
úr henni. En þetta virðist töluvert
stór uppskrift og því alveg þrælódýr.
-A.Bj.
Bruðl í fámenninu
Guðrún á Akureyri skrifar:
Ég verð að játa að mér krossbrá
þegar ég reiknaði út hverju ég hafði
eytt í mat í september (153.427 fyrir
4). Ég veit ekki fyllilega hvað veldur
en sennilega kemur margt til. Ég
keypti á verksmiðjuverði þvottaefni
sem sennilega endist mér í allt að 6
mánuði, einnig unnar kjötvörur, sem
ég á enn eftir af, auk þess sem ég gaf
dóttur minni, sem er við nám í
Reykjavík, af þeim. Eitthvaö fleira
keypti ég sem endist mér meira en
þennan mánuð. Ég hef alltaf gert
eitthvað slíkt í hverjum mánuði. Auk
þess held ég að mér hafi fundizt við
vera orðin svo fá núna að ég gæti
bruðlað svolítið.
Svo kveð ég ykkur að sinni og
þakka fyrir síðuna, sem er
ómetanleg.