Dagblaðið - 20.10.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1979.
„Sandarar”
byggja nýj-
an skóla
Hellissandsbúar hafa verið að vinna
við skólabyggingu undanfarið. Er
bygging nýs skóla þar í bæ mjög brýn
þar eð kenna hefur orðið á tveim stöð-
um i bænum siðustu ár. Nýja skóla-
húsið er 1300 fermetrar að flatarmáli
og er áætlað að það verði orðið fokhelt
um miðjan nóvember. Hellissandsbúar
bíða hins nýja skólahúss með mikilli
eftirvæntingu.
-DS/ HJ, Hellissandi.
Rrf:
Stærri
landshöfn
Við landshöfnina á Rifi var í sumar
unnið að lengingu viðlegukants. Lagt
var um 50 metra langt stálþil í fram-
haldi af því sem fyrir var. Viðlegupláss
á Rifi er þar með orðið um 300 metrar
og veitir ekki af því. Annríki er oft
mikið við höfnina á Rifi því bæði er
landað þar fiski og flutningaskip koma
þangað með vöru sína.
Fyrstu fjóra mánuði ársins bárust á
land á Rifi tæp 6 þúsund tonn af fiski
sem unnin voru i hreppnum. Þá fengu
Hellissandsbúar og Ólafsvíkingar mik-
inn og góðan fiskafla.
- DS / HJ, Hellissandi.
Sjálfvirk sím-
stöð í Ámesi
Sjötta október sl. var opnuð sjálfvirk
símstöð að Árnesi í Gnúpverjahreppi í
Árnessýslu. Svæðisnúmerið er 99.
Stöðin hefur 60 númer og hafa 42 þegar
verið tengd við stöðina. Númerin eru
(99)6000—6059.
Dagblaðsbíó
ámorgun
í Dagblaðsbíói kl. þrjú á morgun
verður sýnd myndin Þegar strákar hitta
stelpur, söngva- og gamanmynd. Hún
er í litum og með íslenzkum texta. Sýn-
ingarstaður: Hafnarbíó.
Framboðsslagur hjá sjálfstæðismönnum og krötum á Norðurlandi eystra:
„BARIZT TILSID-
ASTA BLÓÐDROPA”
—Allaballar og f ramsóknarmenn vilja veg Sólness sem mestan!
Halldór Blöndal: Stuðningsmenn
hans vilja Sólnes burt úr „öruggu
sæti”.
auðveldlega þokað úr sæti. Hann á
sér drjúgt marga formælendur.
V i
I 1 ;
Jt
Arni Gunnarsson: Berst fyrir þing-
mannslifi sinu. Tvísýnt strið það.
Jón Armann Héðinsson: Heggur
hann skarð mikið I Húsavíkurfylgið
hans Árna?
\
Það er hart barizt um bitann í her-
búðum Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks í Norðurlandskjördæmi eystra
þessa dagana. „öruggu sætin” á list-
um beggja flokka til þingkosninga
eru aðalbitbeinin. Um „volgu sætin”
er bitizt líka.
„Nú verður barizt til síðasta blóð-
dropa,” sagði krati einn á Akureyri.
Honum var auðheyrilega kappsmál
að Árni Gunnarsson yrði oddviti á
kratalistanum í stað Braga Sigurjóns-
sonar ráðherra. Og að Jón Helgason,
formaður Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar, yrði i 2. sæti listans.
Ef slíkt bandalag tekst er staða
Árna töluvert sterk. Hann þarf líkaá
því að halda þar sem sótt er að
honum úr fleiri áttum en af mönnum
Braga.
Jón Ármann Héðinsson, fyrrum
þingmaður Reyknesinga, er nefnilega
kominn í slaginn um toppsætið hjá
krötum í kjördæminu. Hann mun
fyrst og fremst stefna á fylgi á Húsa-
vík og í Þingeyjarsýslum. Árnamenn
óttast greinilega að Jón Ármann
höggvi hressilega í „Húsavíkurfylgi”
Árna. Þeir ólmast því þeim mun
meira á Eyjafjarðarsvæðinu til að
reyna að vinna það tap upp.
Viðmælendur DB töldu fylgi Braga
öruggara og að það dreifðist meira
yfir allt kjördæmið. Það eina sem
gæti ógnað stöðu hans væri óform-
legt kosningabandalag Árna og Jóns
Helgasonar.
Stuðningur við Sólnes
úr óvœntri átt
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi eystra
þingar í dag um framboðsmálin og
ákveður m.a. hvort prófkjör skuli
haldið um skipan sæta á listanum til
þingkosninga.
Jón G. Sólnes vill ólmur prófkjör
og stefnir ótrauður að því að halda
forystusæti sínu á listanum.
Hins vegar er talsverð hreyfing í
röðum flokksmanna sem vilja Jón
burt úr „öruggu sæti” og að Halldór
Blöndal og Lárus Jónsson skipi
efsta sætLBent er á að Sólnes sé
maður 69 ára og því mál að hann
dragi sig í hlé til að gefa yngri og
sprækari mönnum „séns”. Einnig
óttast margir sjálfstæðismenn að
símareikningamál þingmannsins
vegna gufufátækrar virkjunar við
Kröflu muni verða myllusteinn um
háls sjálfstæðismanna í kosninga-
slagnum, verði Sólnes í fremstu víg-
línu þeirra.
„Kommar og ! ramsóknarmenn
eru hörðustu stuðmngsmenn Sólness
þessa dagana!” sagði einn viðmæl-
andi Dagblaðsins i gær.
Framsóknar- og alþýðubandalags-
menn eru mjög á þeirri skoðun að
það yröi andstæðingum Sjálfstæðis-
flokksins til framdráttar í kosningun-
um ef Jón G. Sólnes yrði oddviti
þeirra á lista. Fullyrt er að i röðum
beggja flokka, Framsóknar- og Al-
þýðubandalags, sé að finna hörku
talsmenn fyrir Sólnes!
Merkja má af viðtölum við sjálf-
stæðisfólkúr þeim hópi er vill veg
Halldórs og Lárusar sem mestan að
því er ekki tiltakanlega mikið gefið
um prófkjörshugmyndina. Það óttast
nefnilega að andstæðingar Sjálf-
stæðisflokksins taki virkan þátt í
prófkjörsslagnum og skipuleggi
smölun til að tryggja Jóni efsta
sætið!
Undirskriftalistar til stuðnings
prófkjörum verða lagðir fyrir fund
kjördæmisráðsins í dag. Slíkir listar
hafa gengið manna á meðal í fyrir
tækjum og víðar að undanförnu.
Ýmsir líta á undirskriftasöfnunina
sem beina eða óbeina liðsmanna-
könnun fyrir Sólnes. -ARH
Til sölu eru 30—40 hlutabréf í Sendibílum hf.
Verði hlutabréfanna er mjög stillt í hóf og samsvarar aðeins fárra mánaða
leigugjaldi annars staðar.
Hlutabréfseiganda er, að sjálfsögðu, ekki hægt að segja upp stöðvarplássi.
Hann er því öllum óháður og algjörlega sjálfstæður atvinnurekandi.
Allar nánari upplýsingar verða gefnar í húsakynnum stöðvarinnar að Borgar-
túni 24 milli kl. 2 og 4 í dag og á mánudag á sama tíma.
Engar upplýsingar verða gefnar í síma en bent er á síma 75485 á öðrum tíma.
Þá sem þegar hafa haft samband við okkur biðjum við að fjölmenna.
Nú fer hver ao
veróa síóastur
til þess að sjá frábœran
plötuþeyti:
Robert Dennis
sér um að
allir if
skemmti