Dagblaðið - 06.11.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1979.
Taka bandaríska sendiráðsins í íran:
REYNTAÐ SEMJA UM
FRELSUN GÍSLANNA
Brezkasendiráðið
tekiðogsíðan
yfirgefiðígær
Ráðamenn í Bandaríkjunum
leggja sérstaka áherzlu á að þeir muni
aðeins nota friðsamlegar aðferðir í
tilraunum sinum til að frelsa þá
sextíu Bandaríkjamenn, sem eru í
haldi í sendiráðsbyggingu lands síns í
Teheran. Þar hafa þeir verið i gísl-
ingu síðan á sunnudag að hópur af
stúdentum ruddist inn i bygginguna
og tók hana herskildi. Ekki verður
annað séð en ráðandi öfl í íran styðji
aðgerðir stúdentanna fullkomlega.
Brezka sendiráðið í Teheran var
tekið i gær en nokkru síðar yfirgáfu
stúdentar bygginguna. Einnig munu
nokkrar ræðismannsskrifstofur
Bandarikjanna hafa verið teknar.
Við töku brezka sendiráðsins var þess
krafizt að brezka ríkisstjórnin fram-
seldi Baktiar fyrrum forsætisráð-
herra til írans. Krafan sem sett er
fram á hendui Bandaríkjastjórn er sú
að keisarinn fyrrverandi verði fram-
seldur en hann er nú til lækninga í
New York.
Bandaríkjamenn hafa reynt að
draga úr gildi sáttmála Banda-
rikjanna og írans frá árinu 1959 en
þar er meðal annars kveðið á um
heimild Bandarikjanna til að hafa
herlið í íran. Iranir tilkynntu í gær að
þeim samningi hefði verið sagt upp.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur sagt að írönsk yfirvöld hafi
fullvissað fulltrúa þess um að fyllsta
öryggis bandaríska starfsfólksins
yrðigætt í gíslingunni.
»
Frá mótmælagöngu við bandariska
sendiráðið i Teheran. Fyrir miðri
mynd er skilti þar sem Carter er óskað
norður og niður og siðan stækkuð
mynd af Khomeini trúarleiðtoga.
Bandaríkin:
Áhyggjur af
Ku Klux Klan
Jimmy Carter Bandarikjaforseti hefja rannsókn á nokkrum málum er
hefur lýst yfir áhyggjum sínum yfir tengdust Ku Klux Klan í samvinnu
vaxandi aðgerðum Ku Klux Klan við viðkomandi fylkisyfirvöld. Sér-
samtaka hvítra öfgamanna. staklega var nefnt atvik sem varð i
1 gær hittu nokkrir leiðtogar .Norður-Karólínu um síðustu helgi.
svartra í Bandaríkjunum forsetann
að máli. Að loknum fundinum sagði Þar var ráðizt að mótmælagöngu en
Jody Powell blaðafulltrúi forsetans, þeir sem þátt tóku i henni voru ein
að hann liði ekki að menn notuðu of- mitt að mótmæla aðgerðum Ku Klux
beldi til að koma skoðunum sínum og Klan. Fimm manns létust er skotið
stefnumörkum á framfæri. var á gönguna. Tilræðismennirnir
Blaðafulltrúinn sagði að forsetinn þekktust sem félagar i Ku Klux Klan
hefði falið dómsmálaráðuneytinu að eða bandarísku nasistahreyfingunni.
Hercules fór
heim meö Hua
Hua formaður hefur farið mikla sigurför um Vestur-Evrópu en er nú snúinn aftur
til Kína. Á bændabýli rétt við Oxford á Englandi hitti hann Hercules, gríðar-
mikinn griðung af Galloway kyni. Þeim varð strax vel til vina enda betra þvf Kin-
verjum var gefinn gripurinn, kinverskum kúm til halds og trausts I framtiðinni.
Gripið simann
gcrið góð
kaup
Smáauglýsingar
WBIABSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld