Dagblaðið - 12.12.1979, Side 4

Dagblaðið - 12.12.1979, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. Heimsókn til Egilsstaða: AUÐ JÖRÐ OG JÓLAHUGUR í FÓIKI Jólaundirbúningur er hafinn á Egilsstöðum eins og á öðrum stöðum á landinu. Er blaðamaður DB átti leið um Egilsstaði unt helgina höfðu íbúarnir kveikt á jólatré bæjarins, sem stóð í allri sinni dýrð fyrir utan Kaupfélagið. Einnig gaf að líta jóla- Ijós í nokkrum gluggum. Kaupfélagiö hefur sett upp nokkurs konar jólamarkað þar sem boðið er upp á leikföng. Að því er virtist var þar ekki um mikið vöruúr- val að ræða. Einna helzt kom blaöa- manni í hug að þangað austur hafi verið send leikföng, sem ekki þykja lengur fín í höfuðstaðnum. DB átti tal við nokkra íbúanna, sem skoðuðu úrvalið og var sama svarið hjá öllum að vöruúrvalið yæri engan veginn nógu gott. Egilsstaðabii.u haiaaðeins unt tvo staði að velja vilji þeii ver/la. Annars vegar er það Kaupfélag Héraðsbúa þar sem hægt er að kaupa alll það nauðsynlegasta en ekkert fram yfir það og hins vegar Verzlunarfélag Austurlands, sem minnti blaðamann frekar á skransölu en verzlun. Þar að auki var aðeins ein maneskja við af- greiðslu i verzluninni. Á laugardag hélt kvenfélagið á Egilsstöðum basar þar sem boðið var uppá laufabrauð, flatkökur, ýmsar prjónavörur, jólavörur, smákökur og tertur. Ekki gekk basarinn sem bezt hjá kvenfélagskonum, enda verzlanir opnar til kl. 18. Að öðru leyti var þar hægt að gera ágætiskaup. Auð jörð var á Egilsstðum og mundu menn vart eftir svo góðu Bakað fyrir jólin Sveskjusulta og fíkjumauk veöri á staönum i lengri tíma i desember. Hreindýrin gengu niður á bæi og hefur veiðzt nokkuð vel af þeim undanfarið. Rjúpan er hins veg- ar erfið viðfangs og hefur hún ekki veiðzt jafnvel nú og oft áður. ' Á Egilsstöðum er hvorki hárskeri né bakari og þykir það að vonum miður i þúsund manna bæ. Töluvert hefur verið byggt á Egilsstöðum að undanförnu og er nú svo komið að símstöðin er yfirfull og er þvi tveggja ára bið eftir að fásíma. Margir hafa sótzt eftir að flytjast til Egilsstaða en það hefur verið ógjörningur fyrir fólk, sem ekki getur byggt sjálft, því ekkert leiguhúsnæði er að fá. Þrátt fyrir allt þetta var kominn jólahugur í fólk á Egilsstöðum og viða mátti sjá litla skó í gluggum þeg- ar rökkva tók. -ELA. 1» Alauð jörð er nú á Egilsstöðum og muna menn vart eftir svo góðu veðri áður í desember. Hreindýrin ganga niður á bæi. Víða má sjá horna- krónur af hreindýrunum prýða um- hverfið á Egilsstöðum. DB-mynd Bjarnleifur. Einn af lesendum okkar hringdi og bað um að birt yrði uppskrift af góðri sveskjusultu og fíkjumauki. Vantaði sveskjusultu í hálfmána- bakstur. Neytendasíðunni tókst að útvega prýðis uppskrift af sveskju- sultu frá vinkonu sem er mikil hálf- mánakona. 500 g sveskjur 1,2 lítrar vatn 2 tsk kanill I tsk negull 250gsykur Sveskjurtiar eru þvegnar og soðnar í vatninu þar til steinarnir eru lausir. Þeir eru þá teknir úr. Sveskjurnar eru siðan saxaðar eða hakkaðar einu sinni til tvisvar, sykurinn og kryddið látið út í og allt soðið áfram þar til komiðerþykkt mauk. Þaðtekurum það bil 1/2 tíma, og betra að hafa pottinn loklausan. Flkjumauk í bókinni Kökur Margrétar, sem inniheldur fjöldann allan af góðum kökuppskriftum, fundum við upp- skrift af fíkjumaukinu. 1 kg fíkjur 1 kg sykur 8 dl vatn Fíkjurnar eru skolaðar í volgu vatni, siðan hakkaðar og látnar i pott með vatninu. Þegar sýður er sykurinn látinn í og látið sjóða litla stund og hrært i af og til svo ekki brenni við. -A.Bj. Hmmtán ára afmæli í Kef lavík: , RAGNARSBAKARI BAKAR UM 80 ÞUS. BRAUÐ Á MÁNUÐI Í dag á Ragnarsbakarí í Keflavík fimmtán ára afmæli. í tilefni dagsins gefur bakarinn öllum viðskiptavinum sínum rjómatertusneið 1 kaupbæti. ,,Ég byrjaði starfsemina með móður minni, móðursystur og einni afgreiðslustúlku er ég kom heim frá framhaldsnámi í Sviss og Dan- mörku,” sagði Ragnar Eðvaldsson bakari í spjalli við DB. „Vinnutíminn varð fljótlega frá kl. 6 á morgnana til 12 á miðnætti og þurfti þá að bæta við mannskap. Ekki var hægt að fá nema ófaglært fólk þannig að ekki var um annað að gera en að taka lærling. Fyrsti lærlingurinn minn var Sigurður Gunnarsson og útskrifaðist hann árið 1967. Síðan hef ég út- skrifað fjóra bakara og nú bíða tveir eftir útskrift.” Árið 1971 stækkaði Ragnar við sig og keypti Hátún 36. Þá var allt brauðið framleitt þar en kökurnar áfram í fyrsta húsnæðinu, að Hring- braut92. Svoer enn. Nú er Ragnarsbakarí enn búið að sprengja af sér húsnæðið og er verið að teikna viðbótarhúsnæði við Há- tún. Ragnarsbakarí bakar ekki aðeins brauð fyrir Keflavík og nágrenni. Heilsubrauðin viðfrægu eru seld um allt land, — eru m.a. fáanleg i milli 40 og 50 útsölustöðum í höfuðborg- inni. — Heilsubrauðin voru fyrstu brauöin sem auglýst voru i sjónvarp- inu hér á landi og má segja að þau hafi komið af stað skriðu grófu brauðanna sem nú eru orðin svo vin- sæl meðal landsmanna. Heilsu- brauðin úr Ragnarsbakaríi eru einu brauðin á markaðinum sem eru með dagsstimpli, umbúðirnar eru mjög vel merktar bæði með innihaldi og næringargildi brauðanna. Ragnar sagði að í brauðunum væri rot- varnarefni og gefur hann brauðunum fimm daga geymsluþol. Ragnarsbakarí bakar nú um 80 þúsund brauð á mánuði og nú eru þrjátíu og tveir á launaskrá hjá fyrir- tækinu. Ragnar sagði að von væri á ýmsum nýjum tegundum á mark- aðinn eftir áramótin og í nýjum pakkningum, þannig að það rikir enginn kreppubarlómur í Ragnari bakara í Keflavík á fimmtán ára af- mælinu. - A.Bj. Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von i að fá fria mánaðarúttekt fyrir fjölskyldu yðar. Kostnaður í nóvembermánuði 1979. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. m i iki\ Fjöldi heimilisfólks

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.