Dagblaðið - 12.12.1979, Page 5

Dagblaðið - 12.12.1979, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. 5 VERKSMIÐJUÚTSALA —firdinum lokað fyrir rækjuveiði um dákveðinn tíma Undanfarnar vertíðir hefur margt verið sagt og margt verið skrifað um rækjuveiðarnar í Öxarfirði. og sýnzt sitt hverjum. Nú virðist vera brotið blað í þeirri sögu. Föstudaginn 7. des. sl. kom skeyti frá sjávarútvegsráðuneyti um að Öxar- firði væri þar með lokað fyrir rækju- veiðum um óákveðinn tima vegna seiða í afla rækjubáta (frá Húsavík). En mjög lítið hefur verið um seiði í afla rækjubáta frá Kópaskeri það sem af er þessari vertíð. Þessi niðurstaða virðist vera byggð á þvi, að fiskifræðingur sá sem er á Húsavík fór á sjó með einn bát frá Húsavík fimmtudaginn 6. desember og tók eitt hal, þrjá klukkutíma, á40— 60 faðma dýpi og þar með var sú rann- sókn úti. Ekki var haft samband við aðra báta sem á sjó voru til að fá tölur frá þeim um seiði i aflanum. Þetta er kannski enn furðulegra, því að sögn skipstjórans á bátnum hefði aldrei átt að leyfa veiðar hér einn ein- asta dag á síðustu vertíð, ef þessi út- koma ætti að vera forsenda lokunar nú. Haft var samband við nefndan fiski- fræðing í síma og sagði hann þá, að okkur kæmi ekkert við hvernig hann gerði sínar athuganir. En sagðist þó hafa talið 80.000 seiði i afla eins rækju- báts frá Húsavík fyrir skömmu, eftir að búið var að landa aflanum uppi í verk- smiðju. Einnig sagði hann að rækjan væri allt of smá og sagði að tölur, sem hér eru 170—240 stk. í kílógramm, væri ekki hægt að fá og sagði orðrétt: „Þeir t ina þá bara smárækjurnar úr á land- leiðinni.” Og sér hver hugsandi maður hvernig sú staðhæfing er. Haft var samband við starfsmann Hafrann- sóknarstofnunar í Reykjavík og hann spurður um þessar seiðatölur, 80 þús- und. Kannaðist hann ekki við i ana, en sagði að of mikið hefði reynzt vera af seiðum, en vildi ekki gefa upp tölur. Ekki kannaðist hann heldur við of smáa rækju. En sagði siðan: „Þessu varð einhvern veginn að linna.” Menn hafa undanfarið verið að hringja í starfsmenn stofnunarinnar, misjafn- lega gáðir, nætur jafnt sem daga, og viljað láta loka rækjumiðunum. Og geta menn á þvi séð, hvernig látið muni vera við starfsmann þeirra sem er á staðnum. einn og eipn dag, enda óhagstæð út- gerð að sækja 100—400 kg eftir daginn í aðrar sýslur, sem mun vera einsdæmi í innfjarðarækjuveiðum við landið. Við íbúar við Öxarfjörð höfum und- anfarin ár barizt fyrir því, að nýting þessara miða yrði skynsamleg með til- liti til þarfa og búsetu og stofninum yrði ekki hætta búin af of mikilli sókn og veiði. Virðist nú að mátt hefði hlusta svolítið fyrr á þau varnarorð, því nú er ekki lengur hægt að loka augun- um fyrir þeim skell, sem þeir verða fyrir, sem byggja nær alla sína afkomu á þessum veiðum. Með þessum skrifum er ekki verið að mótmæla lokun miðanna sem slikri heldur því að við viljum láta kalla hlutina sínum réttu nöfnum og að rétt sé farið með staðreyndir. Það er ekki nema gott um það að segja að hvíla miðin um tíma en það verður þá að nota þann tíma til að endurskoða þessi mál frá grunni i Ijósi þess sem gerzt hefur undanfarið. - A.B., Kópaskeri. Frá því rækjuvéiðar hófust i Öxar- firði hefur afli farið ört minnkandi, en þó aldrei eins og í haust. Fyrstu 10 dag- ana var sæmileg veiði, en svo snögg- breyttist ástandið, svo nú er afli kominn niður fyrir 100 kg á tog- - tíma.Síðan afli tregaðist svo mjög hafa rækjubátar frá Húsavík aðeins róið Bryggjan á Kópaskeri: „Þessu varð einhvern veginn að linna,” sagði fiskifræðingurinn. DB-mynd Ragnar Th. Hásetahlut- uryfir 200 þúsund — eftir7—8daga veiðiferð Báðir Eskifjarðartogararnir lönduðu í siðustu viku. Hólma- tindur var með 72 tonn, skipta- verðmæti 12,6 milljónir, og Hólmanesið með 52 tonn, skipta- verðmæti 10,4 milljónir. Út- gerðarstjóri sagði að hásetahlutur á Hólmanesi, þó aflinn væri ekki meiri, næði rúmlega 200 þúsund krónum. Hólmanesið fer nú i slipp á Akureyri og verður þar fram yfir hátíðir. Togararnir voru 7—8 daga á veiðum og hafa báðir komið með mjög gott hráefni, mest ýsu og þorsk. Stuðlafoss tók 3000 kassa hjá hraðfrystihúsinu fyrir helgina á Bretlandsmarkað. Skreið fór einnig utan í síðustu viku og 450 tonn af fiskimjöli. Blíðskaparveður hefur verið á Eskifirði það sem af er vclri og lítill sem enginn snjór. Um hclg- ina gerði hins vegar hálku og hryssingsveður. - Regína. RÆKJUSTRÍDIÐ í ÖXARFIRÐI BL0SSAR UPP A NÝJAN LEIK Bill öndverðanessbóndans staðnæmdist utan vegar og voru skemmdir lítt kannaðar. Hinn bíllinn var talinn ónýtur á staðnum. DB-mynd Sveinn. Hörkuárekstur við Elliðaámar: Við höggið tættist jám og bitar í sundur Mjög harður og tjónfrekur árekstur varð milli tveggja stórra flutningabíla á nýjasta og vestasta hluta Bíldshöfðans, þar sem hann nær vestur undir Elliða- árbrýrnar gömlu. Var dráttarbill frá BM Vallá á leið vestur þessa nýju götu úr Ártúnshöfðahverfinu. Á mótum vegar sem liggur þvert á Bíldshöfðann kom annar bíll, stór og mikill, akandi frá Malbikunarstöð borgarinnar. Bíldshöfðinn á þarna umferðarrétt yfir þvergötuna en vörubílstjórinn sem þann veg ók kvaðst aldrei hafa séð bíl- inn hjá BM Vallá, sem heldur ekki hægði för vegna umferðarréttarins unz allt var um seinan. Og við höggið tóku nú járn og bitar að tætast sundur og var bíllinn frá BM Vallá ónýtur talinn á staðnum. Hinn er einnig mikið skemmdur því undirvagn hans var enn ókannaður í gærkvöld, þar sem hann stöðvaðist utan vegar. Aðeins ökumenn voru i bílunum og sluppu þeir ómeiddir. -A.St. ÞVl EKKIAÐ KAUPA Á VERKSMIÐJUVERÐIFYRIR JÓLIN? DRENG JAFÖT — TELPNASETT SMEKKBUXUR — HERRAKULDAJAKKAR GALLABUXUR — BARNAÚLPUR — OG MARGT FLEIRA. VERKSMIÐJU SALAN SKIPH0LTI 7. JÓLAMARKAÐURINN íkjallaranum • t Iðnaðarmannahúsinu Hallveigarstíg 1 Opið fri kí 9 tilkl. 18.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.