Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.12.1979, Qupperneq 19

Dagblaðið - 12.12.1979, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. 19 HIDILLA KEIMUR Nýja b(ó: Nosferatu, Vampýran. LaHcstjóH: Wemar Herzog, sam or einnig höfundur handrits og framleiðandi. Kvlcmyndataka: Jörg Schmidt Rettwoin. Tónlist: Popol/Vuh og Florian Frlcke. Einnig Richard Wagnor og Charies Gounoud. AöaHikitverk: Klaus Kinski, IsabeHe Adjani og Bruno Ganz. Nú eru hafnar sýningar á einni nýj- ustu mynd Þjóðverjans Werner Her- zog, mynd sem kvikmyndaáhugafólk hefur beðið eftir með mikilli eftir- væntingu. Eins og menn muna kom Herzog hingað til lands síðastliðinn 'vetur í boði þýska sendiráðsins. Þá var sýnd mynd hans Aguirre, Reiði guðs, og rabbaði Herzog þá um það sem hann var að fást við og sagði frá ýmsu minnisverðu af ferli sínum. Hann raeddi einnig við íslenska kvik- myndagerðarmenn og annað áhuga- fólk um kvikmyndir og kom þar ýmislegt athyglisvert fram sem ekki allir voru alveg sáttir við. Áður hefur verið gerð mynd með sama nafni, Nosferatu, en við það var baett undirtitlinum, A symphony. of horror. Þessi mynd var gerð árið 1922 af Þjóðverjanum Friedrich W. Mumau og var hún lauslega byggð á sögu Bram Stokers, Dracula. Þessi mynd Mumaus var upphafið að öll- um þeim fjölda blóösugumynda sem gerðar hafa verið. Segja má að mynd Herzogs byggi meira á mynd Murnaus en sögu Stokers. Nosferatu Herzogs er að nokkru leyti gerð til heiðurs minningu Mumaus. Hrœðist sólarljósið Flestir kannast við söguna um greifann Dracula, blóðsuguna sem flytur skelfingu í formi drepsóttar um Evrópu frá kastala sínum í Transil- vaníu og sækist eftir blóði ungrar stúlku en gleymir í ákafanum sólar- Ijósinu í dögun sem hann þolir ekki. Þær em orðnar margar Dracula- myndirnar og ég man ekki betur en gerð hafi verið mynd um svartan Dracula í miðri New York borg í leit að heitum safa og nefndist hún Blacula. En Herzog er ekki hlátur í hug með endurgerð sinni á Nosferatu. Hann fylgir mikið til mynd Murnaus en þar sem mynd hans var þögul og ekki jnema rúmur klukkutími að lengd er iaugljóst að hér er á ferð annað og meira en hrein endursköpun. Allan meginsöguþráð hinnar hefðbundnu Draculamyndar er að finna hér en þó fer Herzog ekki hefðbundnar leiðir. Hann leikur sér að sterkum myndum, ljósi og skugga. Og þar er af nógu að taka hjá Murnau. Atriðið þar sem greifinn stendur við glugga í húsi sínu í Wismar í Þýskalandi og horfiryfir síkið að húsi Lucy Harker. Eða þá ferð hins dauðadæmda skips, eyði- legt og yfirgefið. Og svona mætti lengi telja. Herzog skapar, eins og í mörgum fyrri myndum sínum, ljóðræna stemningu, sérstaklega með notkun stórkostlegs landslags. Hann er merkilega fundvís á einkennilegt landslag sem undirstrikar þetta ljóð- ræna yfirbrágð 1 myndum hans. Ótrúlegir erfiðleikar Ef litið er lagt upp úr hinum hroll- verkjandi efnisþáttum sögunnar af Dracula verður að fara nokkuð var- lega með hinn eiginlega söguþráð. Sjálf sagan af Dracula greifa stenst varla tímans tönn ein og sér og Her- zog lendir þarna í nokkrum erfiðleik- um. Hann fylgir að nokkru því „melódrama” sem sagan býður upp á og lendir það að mestu á Lucy (Isa- belle Adjani) að túlka það. Þessi til- finningasemi sem margir myndu kalla gamaldags nú á dögum stingur nokkuð í stúf við hið magnaða and- rúmsloft sem ríkir í myndinni. Við gerð þessarar myndar sinnar lentu Herzog og samstarfsfólk hans í hinum ótrúlegustu erfiðleikum. Það er að vísu varla nein ný bóla fyrir mann sem hefur lent í hálfgerðum mannraunum í frumskógum Perú, verið við kvikmyndun með virkt eld- fjall yfir sér o.s.frv. Herzog virðist laða að sér erfiðleika. Plágan er komin Þegar Herzog kom til 17. aldar bæjarins Delft í Hollandi til að fá að kvikmynda þar var tekið á móti honum af mikilli óvild. Blöðin brugðu upp stórum myndum af rott- um og sögðu: „Plágan er komin." Herzog og félagar hans heyrðu oft út undan sér hrópað, Fllhrer, það var greinilega grunnt á Þjóðverjahatrið þarna í Hollandi. Þeir lentu í blóðug- um átökum við óðan bónda og vinnumenn hans en bóndi þessi hafði lánað þeim hlöðu til að geyma í hinar tíu þúsund rottur sem notaðar voru við gerð myndarinnar. Þannig voru óteljandi erfiðleikar á vegi þeirra. Og ofan á allt þetta bættist það að einn af fjármagnsaðilum að myndinni, franska fyrirtækið Gaumont, hætti um tíma stuðningi við myndina. En þrátt fyrir þessa erfiðleika gáfust Herzog og hið einvala lið hans ekki upp og nú má sjá afraksturinn. Ekki er hægt annað en dást að atorku þessa manns og aðstoðarfólks hans sem var tilbúið að leggja allt í söl- urnar til að myndin mætti heppnast. Vorkunnarvert skrímsli Gervi greifans Dracula, sem Klaus Kinski leikur, er stórkostlegt. Þar er um hreina endursköpun að ræða frá mynd Murnaus. Kinski gerir þetta skrímsli næstum vorkunnarvert þar sem hann talar brostinni röddu um einmanaleik þess að fá aldrei að deyja. Eins og svo oft gerist með aðalpersónur mynda Herzogs er Kvik myndir Ingólfur Hjörleifsson Dracula greifi utangarðsmaður. Þetta kemur fram á magnaðan hátt þegar Jonathan Harker, maðurinn sem sendur er til að selja greifanum hús í Wismar, hittir greifann í kastal- anum og Dracula vekur aðeins óhugnað Harkers. Herzog hefur sagt að það sé ekki tilviljun að hann geri þessa mynd núna. Hann á þá m.a. við að ýmislegt í henni höfði til samtímans. Plágan sem geisar í Wismar er þá liklega nokkurs konar tákn fyrir það. Þetta orkar nú ekki sérlega sannfærandi enda er ekki hægt að segja að Herzog hafi í myndum sinum sýnt sérlega mikinn skilning á vandamálum nú- tímaþjóðfélags, áhugi hans beinist i aðrar áttir. Og það er ekki víst að aðferðir Herzogs falli bandarískum fjármálamönnum í Hollywood vel í geð. Hann fer sínar eigin leiðir en i þetta sinn virðast þeir hjá Twentieth Century Fox hafa fallist á þær enda vita þeir að hann nýtur þó nokkurrar hylli á meginlandi Evrópu. Sígilt ef ni Bruno Ganz kannast eflausl margir við. Hann leikur hér sendiboðann Jonathan Harker en hefur einnig leikið í mörgum af hinum nýrri þýsku myndum. M.a. lék hann Zimmcr- mann, aðalsöguhetjuna i Ameríska vininum eftir Wim Wenders sem sýnd var hér á siðustu kvikmyndahátíð. Ganz er yfirvegaður í hlutverki sínu, hann er nokkurs konar tengiliður milli raunveruleikans og heims vampýrunnar, eða allt þar til hann fellur fyrir Nosferatu, hinum dauða sem lifir. Mynd Herzogs sannar það að hægt er að fjalla um þetta sígilda efni án þess að hafna í ofnotkun á kristinni siðfræði (krossinum, prestur fórn- andi höndum til guðs o.s.frv.) Og endir myndarinnar staðfestir orð Harkers, „evil is on the way”. Úff enþaðbókaflóð! Það var öruggara að bregða sér ekki lengi fráskjánum í gærkvöld því dagskráin stóðst nefnilega tímasetn- ingu út kvöldið. Nokkuö sem ekki hefur gerzt í háa herrans tíð hjá dag- skrárgerðarmönnum þessarar ágætu stofnunar. Myndaflokkurinn um þjóðskör- unga 20. aldarinnar er ákaflega áhugaverður að mínu mati og í þættinum um Adenauer í gær tókst að koma ótrúlega miklu efni til skila á skömmum tíma. Skipulega unninn þáttur sem vekur meira að segja áhuga þeirra sem fram til þessa hafa lítinn gaum gefið að mannkynssög- unni (undirritaður er í þeim hópi). í raun var ótrúlegt að sjá hvernig þýzku þjóðinni tókst að byggja upp eftir stríöshörmungarnar. Mikil- hæfur leiðtogi Adenauer. Þátturinn um börn og menningu var fyrir margra hluta sakir fróðlegur og nokkuð víða var komið við. Eins og búast mátti við komu ýmsar kostulegar skoðanir fram í honum og Steinunn Jóhannesdóttir taldi óhikað að danstónlist nútímans vekti upp kynhvötina hjá unglingunum. Nokkuð athyglisverð skoðun og spurningin vaknar hvort höfundur hennar tali út frá eigin reynslu. Annars var það nokkur ljóður á þættinum hversu stirðbusalega hann gekk fyrir sig. E.t.v. ekki óeðlilegt þar sem stjórnandinn er greinilega ekki vanur sjónvarpsmaður. Að öðru leyti ágætt tillag til hins margumtalað barnaárs. Franska sakamálamyndaflokknum lauk í gær og er mikil eftirsjá í honum. Góð tilbreyting frá hinum hefðbundnu ensku framhaldsþáttum, sem þó eru i flestum tilvikum vel unnir og áhugaverðir. Ekkert hefur hér verið minnzt á auglýsingaflóðið, sem kollegar mínir hafa fjallað rækilega um að undan- förnu. Sjónvarp getur ekki gengið án auglýsinga — það vita allir — en mikií skelfing eru þessar bókaauglýsingar hvimleiðar. Maður hefur það á tilftnningunni að kaupi maður ekki allar þessar bækur bíði manns ekkert nema eldur og eimyrja um jólin. Væri ekki möguleiki á að vera örlítið hógværari, bókaútgefendur góðir. -SSv. Sigurður 'J Sverrissón MÚRGU LITUM lnCwpd. faCwpejLÍ&CœpejL Póstsendum um land allt. HVERAGERÐI SÍMI99-4499 Sarnfestingar' ***$£*■ pe yswT. Efþig vantar ó- dýra jóla- gjöfþá færöu hana r MARKAÐS HORNINU LAUGAVEGI 61 Opið kl. 1—6. NÝ ÞJÓNUSTA Kfíppií heimahúsum Á daginn á auglþj. DB, simi 27022. - H-20. KR/STJÁN RAKARAME/STARi. Cokiail tlokka Einn ngjfff a dag tur skapinu í lag

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.