Dagblaðið - 12.12.1979, Side 28
f
Tillögur Alþýðubandalagsins í vinstri viðræðunum:
Þriggja ára áætlun um
hjöðnun verðbölgunnar
Alþýðubandalagið bar í gær fram
sínar tillögur í viðræðum vinstri
flokkanna um stjórnarmyndun. Þar
er lögð til þriggja ára áætlun um
hjöðnun verðbólgunnar og aukningu
framleiðni í atvinnulífinu. í tillögum
Framsóknar, sem DB greindi frá í
gær, var miðað við tvö ár.
Alþýðubandalagsmenn kváðust i
áætlun sinni ætla að tengja saman
hjöðnun verðbólgu, jöfnun lífskjara
og eflingu atvinnulífsins. Þeir töluðu
um hækkun láglauna og varðveizlu
kaupmáttar launa almennt á því
tímabili. Fullri atvinnu skyldi haidið.
Framleiðni skyldi aukin með
strangri fjárfestingarstjórn og fram-
leiðnieftirliti í atvinnulífinu. Stöðva
skyldi áform um erlenda stóriðju.
Uppstokkun skyldi eiga sér stað í at-
vinnulífinu, meðal annars aukin
ríkisumsjá í innflutningsverzlun.
í tillögum Alþýðubandalagsins í
gær var ennfremur sett fram krafa
um brottför hersins.
Fundur vinstri flokkanna í gær
stóð í um tvær klukkustundir. Rædd-
ar voru tillögur Framsóknar og
Alþýðubandalagsins. Næsti
viðræðufundur verður á morgun.
-HH.
Formaður Dýravemdunarfélagsins segir:
„Háhymingam-
irvoruveikir
— og forstjóri Sædýrasafnsins reyndi að leiða
okkurá villigötur”
,,Mér var kunnugt um að háhyrn-
ingarnir voru ekki i fullkomnu standi
þegar þeir voru sendtr héðan. Ég
hafði talað um þetta við Taylor dýra-
lækni. Hann sagði mér að ruglingur
væri í samsetningu blóös dýranna.
Þau væru „stressuð" vegna þess að
of mikið adrenalín væri í blóöinu.
Hann kvaðst ekki mundu gefa þeim
fararleyfi fyrr ert 15. desember,”
sagði Sigríður Ásgeirsdóttir, for-
maður Sambands dýraverndunar-
Háhyrningarnir höfðu beztu lyst
þegar þessi mynd var tekin af einum
þeirra í Sædýrasafninu skömmu eftir
að þeir komu þangað.
félags íslands í samtali við Dag-
blaðið.
„Menntamálaráðuneytið setti
Sæýrasafninu þá stólinn fyrir dyrnar
og sagði að dýrin yrðu að vera farin
ur landi á sunnudag. Áður hafði
ráðuneytið skrifað Sædýrasafninu
mörg og harðorð bréf vegna þessa
máls.
Það sem e.t.v. er merkilegast í
sambandi við allt þetta er að Jón Kr.
Gunnarsson, forstjóri Sædýrasafns-
ins, reyndi að leiða okkur á villi-
götur. Við höfðum talið að a.m.k.
annar háhyrninganna ætti að fara tii
Frankfurt, eins og raunin síöan varð.
Jón sagði hins vegar að þeir ættu að
fara til MUanó. E.t.v. hefurástæðan
verið sú að hann hafi verið hræddur
vegna þess að Greenpeace-menn
höfðu hótað að taka á móti dýrunum
úti í Evrópu. Þá vaknar sú spurning
hvort ekki hafi eitthvað verið að
dýrunum. Það er alltaf grunsamlegt
þegar menn eru að skrökva,” sagði
Sigríöur.
Háhyrningamir tveir voru fluttir
til Þýzkalands á mánudagsmorgun
með flugvél frá Iscargo. Annar þeirra
fór til LUbeck en hinn til Frankfurt
am Main.
Sem kunnugt er áttu háhyrn-
ingarnir að vera farnir héðan fyrir 1.
desember. Ástæðuna til þess að þeir
voru ekki farnir þá sagði Sigríður
vera veikindi þeirra.
-GAJ.
Þingforsetakjörið líklega á morgun:
ALÞÝÐUFLOKKUR-
INN VILL FORDAST
,BLOKKAMYNDUN’
— þingsetningídag
Þáð vefst fyrir flokkunum að
koma sér saman um kosningu forseta
Sameinaðs þings og deilda. Alþýðu-
flokksmenn höfðu í morgun ekki
fallizt á tillögur framsóknar- og al-
þýðubandalagsmanna um, að þeir
þrir flokkar standi saman við forseta-
kjörið. Alþýðufloksmenn segjast
vilja komast hjá „blokkamyndun”
við kjörið.
Þeir höfðu lagt til að flokkarnir
allir skiptu milli sín forsetum, þannig
að sá stærsti, Sjálfstæðisflokkurinn,
fengi forseta Sameinaðs þings. Þetta
hefur verið kallað „þjóðstjórn” við
þingforsetakjör.
Framsóknarmenn eru óvissir um
hvernig þeir bregðast við ef alþýðu-
flokksmenn verða ekki með í sam-
starfi vinstri flokkanna um kjörið. Sá
möguleiki hefur verið nefndur að
Alþýðuflokksmenn sætu hjá en þá
gætu Framsókn og Alþýðubandalag
ráðið forsetunum.
Alþýðubandalagsmenn gera sér vonir
um að við slíkar aðstæður mundu
framsóknarmenn fást til að styðja
Helga Seljan (AB) í forsetastól
Sameinaðs þings, en þetta er enn
óvíst. ólafur Jóhannesson gefur ekki
kost á sér í stöðu forseta Sameinaðs
þings.
Þing verður sett í dag.
Væntanlega skýrast forsetamálin á
þingflokksfundum í dag. Forsetakjör
ætti að verða á morgun.
-HH.
■ftl mm
maiun
Jólabuxumar mátaöar
Það er eins gott að máta jólabuxurnar vel og vandlega ... annars
gcetilíklega jólakötturinn farið að skipta sér eitthvað afþessu...
DB-mynd: Ragnar Th.
f
í
Irjálst, úháð dagblað |
MIÐVIKUDAGUR 12. DES. 1979.
Stálu milljóna- §
verðmætum í g
sjö innbrotum
Ungu mennirnir sem gripnir voru í
skrifstofu bæjarfógetans í Kópavogi í
siðustu viku, nýkomnir þar inn um
glugga með verkfæri sín, hafa nú játað
átta innbrot og þjófnaði þar á undan.
Upp úr þvi krafsi höfðu þeir peninga
og varning fyrir milljónir. Eins og áður
hefur komið fram hafa menn þessir
litla sem enga atvinnu stundað undan-
farið rúmt ár.
• Stærsti þjófnaðurinn var í porti
Bifrastar í Hafnarf. fyrir nokkru. Þar
stálu mennirnir bílsætum, hjólbörðum,
geymum og margvíslegu öðru. Höfðu
þeir komiö sumu í verð en geymdu
annað. Flest er þó komið í leitirnar. 1
Benco i Bolholti stálu þ.eir talstöðv-
um o. fl„ verkfærum hjá Handíð á
Laugavegi, 200 þús. krónum hjá Velti
h.f. Síðan lá leiðin í Byko, Sanitas og
Ora með stuttu millibili. Alls staðar var ,
atlaga gerð að peningaskápum fyrir-
tækjanna. Tókst að komast í þá en
peningar voru þar litlir sem engir.
-A.St.
Engaryfir-
færslurvegna
olíukaupa
f rá Nígeríu
Olíuviðskiptanefnd mun halda á-
fram viðræðum við British National
Oil Corporation um hugsanleg kaup á
olíu. Beinum viðræðum var frestað um
ótiltekinn tima en öllu er haldiö opnu
um að taka þær upp aftur.
önundur Ásgeirsson, forstjóri
OLÍS, hefur átt viðræður við nígeríska
ríkisolíufyrirtækið, eins og DB hefur
skýrt frá. Samkvæmt upplýsingum
viðskiptaráðuneytisins hafa íslenzkir
bankar ekkert fé yfirfært vegna þeirra
viðræðna eða hugsanlegra samninga.
Ráðherrar OPEC-rikjanna koma
saman á fund í Caracas næstkomandi
mánudag til þess að ræða horfur í olíu-
sölumálum og til þess að samræma
olíuverð þessara ríkja. Samkvæmt
nýjustu fréttum er talíð víst að þau
samþykki verðhækkun þá og hugsan-
lega einhver þessara ríkja geri það nú í
vikunni. _bs_
Nýtt f iskverð
komiðístrand
Vegna slæmrar afkomu fisk-
vinnslufyrirtækja og þeirra sem gera úl
fiskiskip er enginn grundvöllur fyrir
samkomulagi um nýtt fiskverð um ára-
mótin. Hefur Verðlagsráð sjávarút-
vegsins því vísað málinu til yfirnefndar.
Að óbreyttu ástandi í gengismálum,
hærri launa til sjómanna, afnáms
olíugjalds og hærra fiskverðs er talið
að tap blasi bæði við fiskvinnslu og
fiskveiðiflotanum.
í fréttatilkynningu frá Verðlagsráði
segir að hér verði að koma til
ráðstafaniraf hálfu hins opinbera.
-ÓG.