Dagblaðið - 15.12.1979, Síða 13

Dagblaðið - 15.12.1979, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1979. 13 Samsýning nýlistamanna á Ítalíu — Kynningarrit um íslenzka nýlist gefið út Það telst ávallt til tiðinda þegar íslenskir listamenn sýna verk sin á erlendri grundu. Þá hljóta það bein- línis að vera stórtíðindi þegar 25 manns af yngri kynslóðinni taka þátt i samsýningu i Flórens á Italíu. í ofanálag gefur hópurinn út skrá sern jafnframt er yfirlitsrit um þróun ný- lista á íslandi frá tíð SÚM manna til Suðurgötu 7, veglega myndskreytta og prentaða. Það er einmitt Suðurgata 7 sem stendur fyrir þessu fyrirtæki, en eins og lesendum DB er kunnugt veitti blaðið galleriinu menningarverðlaun sin í fyrra fyrir framtakssemi i myndlistum. Á italíu er það galleriið Zona í Flórens sem heldur sýninguna. Flestir eru þátttakendur undir þri- tugu, nema Magnús Pálsson og Níels Flafstein, en allir hafa þeir tekið þátt í starfsemi Suðurgötunnar undan- farin ár. Þau Bjarni Þórarinsson, Margrét Jónsdóttir, Steingrimur Eyfjörð Kristmundsson og Friðrik Þór Friðriksson unnu að þessari sýn- ingu og sá siðastnefndi hafði umsjón með skránni ásamt Þórleifi Friðriks- syni. Við tókum eftir þvi að textinn er allur á ensku og skrifaður af innan- hússmanni á DB, Aðalsleini Ingólfs- syni, svo við báðum hann að segja okkur eitthvað nánar frá þessu. ,,Nú er það alfarið dugnaði þeirra Suðurgötumanna að þakka, að þetta rit er komið út,” sagði Aðalsteinn. ,,Ég kom ekki inn i dæmið fyrr en gengið hafði verið frá sýningunni á Italíu, en þá hafði galleriið fengið þá hugmynd að setja saman verk sem gæti verið hvorutveggja í senn, skrá vegna sýningarinnar og upplýsingarit um það sem er að gerast í listum yngri manna á íslandi. Þetta tókst lækisins Hódegistónleikar Söngskólans I ReykjavSt ( Tónleikasal skólans viö Hverfisgötu. Flytjendur: Garðar Cortes, tenórsöngvari og og Krystyna Cortes, planóleikari. Verkefni: Caro mio ben, eftir Giordani; O del mio dolce ardor, eftir Gluck; Per la gloría d'adorarni, eftir Bononcini; Piete, Signore, eftir Stradella; Recitatív og ar(a úr Messiasi, eftir Handel; Penis angelicus, eftir C. Franck og Ar(a úr Requiemi Verdis. Ákveðið hafði verið, samkvæmt tónleikaskrá, að pianókvintett yrði þetta hádegið, en forföll urðu og því var kvintettinum frestað um viku. Þar með græðast einir tónleikar i þessari ágætu tónleikaröð. Úr því ekki fengust aðrir til að hlaupa i skarðið stóð það skólastjóranum sjálfum næst að bjarga sóma fyrir- lækisins. Hæg eru heimatökin, og undirleikarinn tiltækur með litlum fyrirvara. Garðari hefur lærst sú list prýðilega, að þekkja takmörk sinnar raddar og að ofbjóða henni ekki. Áður hætti honum stundum til að skjóta yfir markið, sem nú hendir ekki. í fyrstu ariunni, Caro rnio ben, var tónöryggið ekki nægilega mikið, en slikt held ég að hendi alla söngvara óhjákvæmilega i salnum á Hverfis- götunni, vegna aðstöðuleysis til upp- hitunar. En fljótlega söng Garðar sig upp með dyggri aðstoð síns ágæta undirleikara, konu sinnar Krystynu. Það á vel við Garðar að syngja gömlu aríurnar, því að í þeim nýtur hans mjúka rödd sín prýðisvel. Í síðustu aríunni, úr Requiemi Verdis, hélt ég hálfpartinn að Garðar mundi ætla sér um of. En hann reyndist svo sannar- lega vandanum vaxinn. Stofusöngv- ari er Garðar ágætur, rödd hans vex enn og tæknina hefur hann. -EM Tónlist þeim að gera með því að krefja hvern og einn þátttakanda um ákveðna fjárupphæð og siðan hljóp utanríkis- ráðuneytið undir bagga með því að festa kaup á ákveðnum fjölda bók- anna, en það, ásamt menntamála- ráðuneytinu, fær árlega fjölda fyrir- spurna um islenska myndlist sem það hefur ekki getað sinnt sem skyldi. Ég skrifaði stutt yfirlit um þróun nýlista, svona fremur til að skýra til- komu Gallerísins við Suðurgötu en til að gera úttekt á þeim málum öllum og hafði ég í þessu frjálsar hendur að öllu leyti. Mér finnst þetta ákaflega lofsvert framtak hjá aðstandendum og fleiri listamannasamtök gætu hæglega fetað í fótspor þeirra. Meðan ríkisvaldið og bókaútgef- endur sinna ekki útgáfu af þessu tagi, verða einhverjir aðrir að gera það.” - ÍHH Opna úr bókinni um íslenska nýlisl. (R.Th.) NÝJAR BÆKUR 1979 FRANK og JÓI: Leynigöngin FRANK og JÓI: Dularfulli skugginn Höl.: Franklin W. Dixon. Þýðandi: Gísli Ás- mundsson. Hér koma 22. og 23. bók i þess- um vinsæla bókaflokki. Fyrri bókin er 128 bls. en hin síáari 160 bls. NANCY og gamla albúmið NANCY og skakki strompurinn 27. og 28. bókin i þessum flokki. Höfundur: Carolyn Keene. Þýð.: Gunnar Sigurjónsson. Fyrri bókin er 175 bls. en hin siðari 141 bls. LABBA fær sér snúning LABBA lætur allt fjúka 7. og 8. bókin. Höfundur: Merri Vik. Þýðandi: Gisli Ásmundsson. Fyrri bókin er 142 bls. en hin síðari 157 bls. SIGURFÖR Höfundur: Sverre Magelssen. Þýðandi: Benedikt Arnkelsson. Þetta er lifandi frásögn um brautryðjandann og æskulýðsleiðtogann, Georg Williams, sem var upphafsmaður Kristilegs félags ungra manna. — SIGURFÖR er skrifuð jafnt fyrir unga sem gamla. — Bókin er 136 bls. NIÐJATAL GUNNLAUGS BJÖRNSSONAR bónda á Óspaksstöðum i Hrútafirði og eigin- kvenna hans, Sigriðar Bjarnadóttur og Guð- rúnar Jónsdóttur. FRIÐRIK TH. INGÞÓRSSON tók saman. Bókin er 206 bls. með nafnaskrá. f SÖGUTÚNI Höfundur: Benedikt Gíslason frá Hotteigi. Hér tjallar höf. mest um það timabil i sögu þjóðarinnar, sem minnst hetur verið skrifað um — það er 14. og 15. öldin. — Árni son- ur höfundar segir svo i formála: „Framsetn- ingin miðast oft við, að lesandinn gjörþekki þau mál og þá menn, sem um er fjallað. — Segja má að það efni, sem hér liggur fyrir sé uppkast sem eftir er að vinna úr til fulln- ustu." — Bókin er 245 bls. FÓLKIÐ MITT - og fleiri dýr - Höfundur: Gerald Durrell. Þýðandi: Sigríður Thorlacius. Höfundurinn, Gerald Durrell, er einn vinsæl- asti rithöfundur Bretlands og eru það hinar gamansömu frásagnir hans af mönnum og dýrum, sem fyrst og fremst hafa aflað hon- um vinsælda. Hann hefur einnig ritað skáld- sögur og barnabækur. — Bókin er 228 bls. TAMARINDFRÆIÐ Höfundur: Evelyn Anthony. Þýðandi: Hersteinn Pálsson. Judith starfaði i aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, þar sem fjallað var um trúnaðar- mál. Hana grunaði ekki, ad hinn alúðlegi mað- ur, sem hún hitti i orlofi á Barbados, væri tengdur njósnarkerfi Rússa. „Frábærlega skemmtileg blanda af njósnum, stjórnarerindrekstri og ástum." — Daily Telegraph. — Bókin er 230 bls. FINNUR FRÆKNI Höfundur: Marryat. Ein af vinsælustu bókum höfundarins, og hafa þó margar þótt góðar. 167 bls. með mörgum myndum. FÁST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM PRENTSMIÐJAN LEIFTUR HF. HÖFÐATÚNI 12 - SÍMI 17554 GJAFAVÖRUVERZLUNIN Skóbvörðustíg 4 Sími 16646 l/nolAlo ' JJ '.Æ Knstals- - fughr og fiskar, verð frð 10.000 HANDMÁLAD KERAMIK Skúlptúrar, störír, Irtfir. VerA frá kr. 10.800 BLÓMAVASAR margar gerðir Verð frá kr. 11.800

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.