Dagblaðið - 15.12.1979, Blaðsíða 32
Srfálst, áháð dagblað
Það er hlýtt og bjart í nýju
byggingunni við Lækjartorgið þar
sem farþegar strætisvagnanna hafa
nú afdrep. Naumast verður sagt að
þarna sé enn orðið vistlegt. Það
stendur þó til bóta.
Þarna eru seld afsláttarkortin og
afhent kort þeim sem til eiga rétt af
ýmsum ástæðum. Almenning^-sími er
þarna inni og skammt í svaíadt kk
eða kaffisopa.
Biðskýlið, sem þarna var .y:ir far-
þega vagnanna, hefur verið flutt i
burt. Ekki þurfa menn að eiga allt
undir þessum tveim bekkjum sem enn
eru á sínum stað úti i Hafnarstræti.
Ný og björt húsakynni með nokkurri
þjónustu eru komin á eina aðalbið-
stöð borgarinnar. -BS.
►
Nýja „biðskýliö” á Lækjartorgi er
raunar stigainngangurinn í nýja
húsið, sem þar hefur verið reist og
þaðan sjá farþegar ekki tii vagnanna.
En bjart er þarog hlýtt.
DB-mynd: RagnarTh.
Aðatfundur útvegsmanna:
ALGJORT SAMKOMULAG
UM VEKHTAKMARKANR
— þorskveiðibann á sumrinu þegar erfiðast er að fullnýta aflann
Fulltrúar togaraútgerðar og báta-
menn urðu i gær algjörlega sammála
um tillögur að þorskveiðitakmörkun-
um á næsta ári og ennfremur tókst á
aðalfundi LÍÚ að ná algjörri sam-
stöðu á milli útgerðarmanna í hinum
ýmsu landshlutum.
Tillögur útvegsmanna eru þannig,
að sögn Kristjáns Ragnarssonar for-
manns LÍÚ, að algjört þorskveiði-
bann verði bæði fyrir togveiðar og
net á tímabilinu frá 1. júlí til 10.
ágúst á næsta sumri. Auk þess er gert
ráð fyrir að veiðibann verði tiu daga
um jól og aðra tíu daga um páska.
Á sumartímanum hefur reynsla
undanfarinna ára verið sú að miklum
erfiðleikum er bundið að fullnýta
þann þorskafla, sem komið hefur að
landi. Tillögur útvegsmanna gera
ráð fyrir að 20% af afla megi vera
þorskur þrátt fyrir bannið (í fyrra
15%).
Samkvæmt heimildum DB af
fundi útvegsmanna í dag féllust báta-
menn á þorskveiðitakmarkanirnar í
ofangreindu formi í trausti þess að
netaveiði á vetrarvertíð yrði ekki
stöðvuð 1. mai næstkomandi eins og
ásíðustu vertíð. Einnig var samþykkt
að ef um frekari veiðitakmarkanir
yrði að ræða skyldi það gert i sam-
ráði við stjórn landssamtaka útvegs-
manna.
-ÓG.
Fingralang-
ir strákar
LAUGARDAGUR 15. DES. 1979.
Stjórnarmyndun:
„Gengur
hægt”
— segir Vilmundur
Gytfason
„Þetta gengur hægt,” sagði
Vilmundur Gylfason ráðherra í
gærkvöldi um viðræður vinstri flokk-
anna um stjórnarmyndun. Fundurinn
í gær stóð aðeins í um hálfan annan
tíma og annar fundur verður í dag
klukkan tvö.
„Á hægaganginum kunna að vera
þær eðlilegu skýringar að menn vilji nú
vanda vel það vígi sem reist verður i
verðbólgu- og efnahagsmálum,” sagði
Vilmundur, „svo að þetta kann að vísa
á gott.”
-HH.
gripnir á
Akureyri
Á fimmtudagsnótt var brotizt inn i
verzlunina Esju við Norðurgötu á
Akureyri. Telur kaupmaðurinn að
stolið hafi verið dagsölunni, 3—400
þúsund krónum, um 20 vindlingalengj-
um og auk þess sælgæti.
Akureyrarlögreglan var í gær komin
með 4 drengi, 14—15 ára gamla, og
höfðu þeir að einhverju leyti viður-
kennt verknaðinn en kváðu fjárupp-
hæðina þó ekki vera svo háa sem kaup-
maðurinn telur. Stóðu yfirheyrslur yfir
í gærkvöldi.
Þá var einnig verið að fjalla um mál
tveggja ellefu ára drengja á Akureyri
sem stolið höfðu bifreið. Hefur annar
þeirra leikið sama leik áður og m.a.
skemmt einn ránsbíl. Þessir 11 ára
drengir leita uppi bíla sem lyklar eru
skildir eftir í.
-A.Sl.
ÞIGGDU ÞESSA STERTA, UUFAN
Má ég ekki gauka að þérþessum sterrum, Ijúfan mín góð. Mér IIzt svo undur vel á
þig. Þessi orð telur Ragnar hirðljósmyndari DB sig hafa heyrt er hann lœddist að
þcssu pari á útimarkaðnum I gœr.
Hvort sem Ijósmyndarinn hefur heyrt rétt eða ekki, þá leynir ástin sér ekki. Þetta
œtti að minna annað ástfangið fólk á að gleyma ekki blómagjöfunum. Finnist
mönnum plönturnar afskornu fara of fljótt til guðs, þá geta menn gefið elskunni sinni
pottaplöntu. Gleðilega helgi.
-DB-mynd: Ragnar Th.
HLÝTT 0G BJART í NÝJA BIÐ-
SKÝUNU Á LÆKJART0RGI
Neyðarkall
á misskiln-
ingi byggt
i gær fékk SVFÍ tilkynningu um
að þýzk stöð hefði heyrt neyðarkal! frá
grísku skipi sent samkvæmt staðar-
ákvörðun átti að vera 50—60 mílur
suður af Portlandi. Að beiðni Slysa-
varnafélagsins flaug vél Gæzlunnar
yfir umrætt svæði en varð einskis
visari. Engar strandstöðvar hér néskip
á sömu slóðum höfðu heyrt neitt. Er
fullvíst talið að um misskilning hafi
verið að ræða enda óljóst hvaðan
fréttin er upphaflega komin.
-A.Sl.