Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 6
6
Sœngur-
íúrvali
Magnús E. Baldvinsson sf.,
Laugavegi 8 — Sími22804
Lftboð
Vestmannaeyjar
Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir til-
boðum í uppsetningu og tengingar lagna
og dæla í dælustöð. Útboðsgögn eru af-
hent á Bæjarskrifstofunum í Vest-
mannaeyjum gegn 20 þús. kr. skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð í ráðhúsinu Vest-
mannaeyjum þriðjudaginn 8. jan. 1980
kl. 16.00.
Stjórn Veitustofnana Vestmannaeyja
UTBOÐ
Grjótnámsvinnsla vegna vega- og
brúargerðar yfir Borgarfjörð
Vegagerð ríkisins býður út sprengingar og flokk-
un á um 20.000 rúmmetrum af grjóti í grjótnámi
Vegagerðarinnar í Hrafnaklettum rétt hjá Borg-
arnesi. Þetta er I. hluti sprenginga og flokkunar á
grjóti vegna vega- og brúargerðar yfir Borgar-
fjörð.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Vegagerðar
ríkisins, Borgartúni 1, Reykjavík, og einnig á
skrifstofu Vegagerðarinnar í Borgarnesi gegn
30.000 kr. skilatryggingu. Tilboði skal skila í lok-
uðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar
ríkisins, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, fyrir kl.
14.00 hinn 14. janúar 1980.
Ferð verður farin í grjótnám Hrafnakletta mánu-
daginn 7. janúar 1980. Lagt verður af stað frá
Borgartúni 7 kl. 10.00. Þátttöku skal tilkynna til
Vegagerðar ríkisins í síma 21000 fyrir föstudag-
inn 4. janúar 1980.
Hattar
Grímur
* Blöörur
, Reykelsi
' Kerti
Matar- og
kokkteib
servíettur
Glasamottur
^j.í.'lc^-HÚSID
I )** LAUGAVEGI178.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979.
ÞJOFAR OG
ÞJÓFNAÐIR
Kamilla og þjófurinn.
Höfundur: Kari Vinje.
Myndskroytíng: Per lllum.
ÞýAandi: Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Bókaútgáfan Salt hf. 1979.
Ég skil reyndar ekki hvers vegna
maður eins og Sebastian hefur þurft
að gerast þjófur. Hann virðisl hag-
leiksmaður mikill og allt leikur i
höndunum á honum. Hann getur
búið til .flugdreka og dúkkuhús og
skrín og klippt út skemmtileg dýr og
alls könar karla og pressar meira að
segja blóm. Þar að auki likist
Sebastian ekki þjóf. Hann er ekki
skuggalegur með svarta augngrímu
og byssu í vasanum. Síður en svo.
Sebastían er Ijós yfirlitum,
rauðhærður og freknóttur með stór
eyru og augun blá og blíðleg. Hann
gerir að gamni sínu, hlær og segir
ævintýri og skröksögur. Þegar
Kamilla, sem er átta ára, kynnist
Sebastian veit hún ekki að hann er
þjófur og þegar hún kemst að því er
orðið bf seint að hugsa til hans eins
og maður hugsar til þjófs.
Kamilla býr ásamt Soffíu systur
sinni i Sólarstofu. Foreldrarnir eru
dánir og Soffía framfleytir þeim
systrum. Sebastían, Kamilla og
Soffia verða góðir vinir og liann
verður heimagangur hjá þeini
systrum eftir að hann hefur strokið
úr fangelsinu.
Nýr maður
Eina nóttina kemst Sebastian i
myndabiblíuna hennar Kamillu og
daginn eftir tilkynnir hann henni að
hann ætli aldfei að stela framar.
Hann sé orðinn nýr Sebastían og það
eigi hann myndabiblíunni að þakka.
Hinn nýi Sebastían biður Kamillu að
læsa hann inní Sólarstofu, fara siðan
til sýslumannsins og tilkynna honum
að hún hafi Sebastian í haldi.
Sebastían hefur ákveðið að fara aftur
i fangelsið, taka út sína refsirrgu og
lifa síðan rétt og heiðarlega. Kamillu
er ekki vel við að framselja vin sinn,
þrátt fyrir verðlaun yfirvalda þeim
til handa sem handsamar þrjótinn.
Bók
menntir
ValdísÓskarsdóttir
En eftir að Sebastían hefur lofað
henni ýmsum skemmtilegum hlutum
og flugdreka i ofanálag fyrir
viðvikið, fer Kamilla af stað og
finnur sýslumanninn. Sebastían fer i
fangelsið, Kamilla fær peninga-
verðlaun og verður hetja dagsins.
Að stela
Krakkarnir i skólanum keppast
um hylli Kamillu og vináttu en öfund
og afbrýðissemi kúrir innan um og
birtist í Stóra-Pétri sem hefur á lævis-
legan hátt komist yfir bréf frá
Kamillu til Sebastian. Stóri-Pétur
gerir opinbert á skólaleikvellinum i
viðurvist hinna krakkanna að
Kamilla skrifist á við þjóf í fangelsi
og veifar um sig umslagi frá henni því
til sönnunar. Og þó svo Kamilla segi
að Sebastían sé ekki lengur þjófur
heldur sé orðinn Guðsbarn, þá hefur
það ekkert að segja.
Þjófur er þjófur og þjófur gelur
ekki orðið Guðsbarn og þeir sem ekki
eru Guðsbörn komast ekki i himna-
riki. En kennslukonan leysir deilur
krakkanna á einfaldan hátt; það hafa
allir stolið einhvern tíma. Þvi það eru
ekki aðeins peningar, hlutir og leynd-
armál sem hægt er að stela frá
öðrum. Nei, það er líka unnt að taka
frá þeim hugrekki og gleði og vinina
og margt fleira.
Ef rnaður gengi um og gerði grín
að einhverjum, þá gerði maður aðra
leiða og tæki frá þeim gleðina. Þegar
maður hrekkir og stríðir einhverjum,
þá stelur maður góðu skapi og ef
maður talar illa um einhvern, þá
stelur maður góðu nafni og heiðri
náungans og það er Ijótur þjófnaður.
Eftir þessa kennslustund verða
Kamilla og Stóri-Pétur vinir og það
gengur á ýmsu hjá þeim, það sem
eftir er sögunnar og Sebastían er ekki
alveg horfinn, þó svo að hann sitji
bakvið Iás og slá.
Gagn og gaman
Sagan af Kamillu og þjófinum er
létt og skemmtileg og þó svo fljóti
með kristinfræði, þá er það ekki gert
leiðinlega né uppáþrengjandi. Síður
en svo. Sagan skemmti mér stórvel og
á köflum skellti ég uppúr en þrátt
fyrir það vakti hún mig til
umhugsunar og ég efa ekki að svo
verði með fteiri. Ég tel að fullorðnir
gætu haft jafn mikið gagn og gaman
af lestrinum einscg börnin, ef ekki
meira, þvi ég held nefnilega að
fullorðið fólk séu meiri meindýr en
börn, sem ekki veitir af að
betrumbæta. Höfundi tekst ágætlega
að koma til skila hugsanagangi og
tilfinningum barnanna og hinn nýi
Sebastían er gullkorn en ég efa stór-
lega að til sé mikið af fullorðnum,
sem líkjast honum — því miður.
Fáar myndir eru í bókinni en þær
sem eru þar, eru afar skemmtilegar
og gefa sögunni persónulegan blæ,
svo við eigum auðveldara með að sjá
sögupersónurnar og atburðina Ijóslif-
andi fyrir okkur.