Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 31

Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 31
35 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979. Útvarp Sjónvarp I KVÖLDVAKA - útvarp kl. 20,35: Frumortar rímur og smásögur auk söngs — í Kvöldvökunni í kvöld, sem er sú síöasta á árinu Síðasta Kvöldvaka útvarpsins á þessu ári er á dagskrá kl. 20.35 i kvöld. Guðrún Tómasdóttir söng- kona syngur nokkur lög eftir Selmu . Kaldalóns sem leikur undir á pianó. Þá flytur séra Gisli Brynjólfsson þriðja og síðasta hluta frásögu sinnar af Staðarhraunsprestum. Hlíf Böðvarsdóttir frá Laugarvatni segir í viðtali við Jón R. Hjálmarsson frá jólunum heima. Magnúsarrima nefnist frumort rima til Magnúsar Ólafssonar bónda i Efra-Skarði í Svínadal sem Svein- björn Beinteinsson kveður. Jól i hjáleigunni nefnist smásaga sem Einar Guðmundsson kennari les, en hann er höfundur sögunnar. Kvöldvakan í kvöld endar á kórsöng. Kirkjukór Hveragerðis- og Kol- strandarsóknar syngur nokkur lög undir stjórn Jóns Hjörleifs Jóns- sonar. Kvöldvakan er að vanda einnar og hálfrarstundarlöng. - ELA Guðrún Tómasdóttir syngur nokkur lög í Kvöldvöku í kvöld eftir Selmu Kaldalóns sem leikur undir á pianó. Rory Gallagher skemmtir sjónvarpsáhorfendum með söng og gitarleik. Sjónvarp kl. 20,40: RORY GALLAGHER - EINN VIRTASTIGÍTARLEIKAR- INN í ENGLANDI Rory Gallagher er í hópi virtustu gítarleikaranna í Englandi. Hann hefur aldrei lagt neitt upp úr því að afla sér mikillar frægðar, en ferðast þess í stað mikið með hljómsveit sinni og heldur hljómleika. Eitt sinn stóð meira að segja til að hann kæmi til Islands. Af því varð þó ekki. Gallagher er fæddur íri. Níu ára gamall fékk hann fyrsta gitarinn sinn. Á skólaárum sínum lék hann meðfjöldasmáhljómsveita. Fimmtán ára gamall gekk hann til liðs við Fontana Showband og lék með henni þar til hún hætti. Rory Gallagher hélt áfram að spila með bassaleikara og trommuleikara Fontana og saman stofnuðu þeir hljómsveitina Taste. Hún sérhæfði sig aðallega i blöndu af blues og rokki og fyrir þess konar tónlist hefur Rory orðið hvað fræg- astur. - ÁT Ti/MkRIT t á ensku LAUGAVEG1178 simi 86780 VÉLSTJÓRAR - VÉLSTJÓRAR Árshátíð Vélstjórafélags íslands og Kvenfélags- ins Keðjunnar verður haldin að Hótel Sögu föstudaginn 4. jan. 1980. Miðasala á skrifstofu Vélstjórafélags íslands Borgartúni 18. Skemmtinefndin. Innibombur Part\lHMiil)ur meö leikföngum og spádómum *] Flugeldamarkaóir ¥É) Hjálparsveita skáta

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.