Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979. Zimbabwe/Ródesía: Mikil óvissa um fram- kvæmd fríðarsamninga Tveir hel/tu foringjar skæruliða svartra I Zimbabwe/Ródesiu, sem nú hafa undir- ritað friðarsamninga við ráðamenn i Salisbury. Mugabe er lengst til vinstri en Nkomo til hxgri. — Mugabe skæruliðaforingi og menn hans greinilega við öllu búnir — einn skæruliðaforingi og þrír brezkir hermenn þegar fallnir Mikil óvissa var í morgun með framkvæmd vopnahlés á milli herliðs stjórnarinnar í Salisbury og skæru- liðasveita þeirra Mugabes og Nkomo en það á að ganga í gildi við sólsetur í kvöld. Þrátt fyrir vopnahléð hefur Mugabe sagt mönnum sínum að vera við öllu búnir og tilbúnir að gripa til vopna ef þörf verður á. Einn af foringjum liðs hans lézt i gær í rnjög dularfullu bifreiðarslysi. Sá var einn þeirra, sem sjá átti um að vopnahléið kæmist á. Var hann kominn í andstöðu við Mugabe og hafði þegar við samningaviðræð- urnar í London á dögunum sagt að hann óttaðist um líf sitt. Þrír brezkir hermenn úr gæzluliði þeirra i Zimbabwe/Ródesiu létuzt i gær er þyrla sem þeir voru í hrapaði. Skotið var á flugvél brezka gæzlu- liðsins í gær en hún gat lent án áfalla. Gæzlusveitirnar frá Bretlandi og öðrum samveldisrikjum voru í gær á leið til hinna ýmsu stöðva þar sem þær eiga að gæta þess að vopnahléið fari fram eins og áætlað er. í liðinu eru þrettán hundruð manns. Foringjar liðsins viðurkenndu í gær að þeir gætu engu spáð um það sem gerast mundi næstu daga. Foringinn úr liði Mugabes sem lézt var talinn einn mikilvægasti maðurinn.í því að tryggja eðlilegan framgang vopna- hlésins. Þannig er haldið upp á áramótin i Beirúl I Libanon. Par helur verið borgara- styrjöld i áravis eins og oftlega hefur komið fram I fréttum. Rákirnar i loftinu eru eftir byssukúlur, sem liðsmenn beggja striðsaóiia skjóta upp l loftið til hátiða- brigða. DB-mynd Robert Mazmanian. Erlendar fréttir Melbourne: Flugvélin lenti á níundu braut Flugmaður lítillar flugvélar rétt við Melbourne í Ástralíu lenti í vandræð- um þegar hreyfill vélarinnar bilaði á dögunum. Greip hann til þess ráðs að henda á golfvelli sem hann kom auga á. Lenti hann áfallalaust rétt þar sem upp- hafshögg á níundu holu eru slegin. Þar voru kylfingar að leik og tvistruðust þeir að sjálfsögðu í allar áttir er þeir sáu flugvélina stefna til sín. Flug- ntaðurinn lét sér hins vegar ekkert bregða og hið fyrsta sem hann spprði um þegar hann steig út úr flugvélirtni var hvort einhver viðstaddra gæli ekki gefiðsérsígarettu. Byltingin í Afghanistan: Sovétmem ráóa öllu í landinu — Babrak Karmal fyrrum varaforseti, leppur þeirra, kominn í forsetastól — Amin fyrrum forseti leiddur fyrir aftökusveit og skotinn Babrak Karmal fyrrum varaforseti Afghanistan hefur tekið þar öll völd í sínar hendur í landinu. Karmal er yfirlýstur marxisli og hefur verið i útlegð síðan Arnin fyrrverandi forseti gerði byltingu fyrir einu og hálfu ári. í útvarpi í Afghanistan var tilkynnt i nólt að Amin fráfarandi forseti hefði þegar verið leiddur fyrir herrétt og dæmdur til dauða fyrir svik við þjóðina. Hefur aftakan að sögn þegar farið fram. Ljóst er að Karmal og stuðnings- menn hans hafa notið verulegrar aðstoðar sovézkra hermanna við byltingu sína. Óstaðfestar fregnir frá Afghanistan herma að þeir hafi tekið þátt í bardögum í höfuðborginni i gær. Auk þess er vitað að stöðugur straumur herliðs frá Sovétríkjunum hefur verið inn i Afghanistan undan- farna daga. Mun Karmal alfarið styðjast við Sovétríkin. í Moskvu hefur verið til- kynnt að Sovétríkin muni styðja hina nýju stjórn bæði pólitiskt, efna- hagslega og hernaðarlega. Amin fyrrverandi forseti var yfir- lýstur kommúnisti en Sovétstjórnin var aldrei ánægð með hann og upp úr sauð er hann rak Tarakki forseta frá völdum. Síðan hefur stöðugt verið grafið undan stjórn Amins af hálfu Sovétmanna. Frá Moskvu berast þær fregnir að Tass fréttastofan saki Amin fyrrum forseta um að hafa verið blóðugur harðstjóri sem myrt hafi tugþúsundir fólks í Afghanistan. Reksten sýknaður Dómur er fallinn i héraði i máli norska skipaeigandans Rekstens,sem ákærður var fyrir stórfclld gjaldeyris- og skattsvik. Allar helztu ákærur norskra yfirvalda voru. ekki teknar til greina en Reksten var dæmdur i einnar milljónar króna (norskra) sekt. Báðir aöilar munu ætla að áfrýja til hæstaréttar en héraðsdómurinn þykir áfall fyrir norsk skatta- og gjaldeyrisyfirvöld.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.