Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979. aftökum. Skipulag þeirra virðist vera svo þaulunnið að ekki er hægt fyrir ríkisstjórnina að brjóta það niður. Siðustu viðbrögð ráðamanna i Sýr- landi er að lofa því að í framtíðinni verði lög og réttur virt. Efnahagslif landsins verði endurbyggt og stefnt skuli að réttlæti í stjórnaraathöfnum. Sýrland hefur nýlega fengið auka- efnahagsaðstoð frá Sovétrikjunum, sem meðal annars er fólgin í því að töluvert magn af vopnum barsl þaðan. Stór hluti þeirra fer þó til öryggissveita alavita. Aðrir lands- menn eru líka fullvissir um til hvers á að nota þau vopn, sent eru meðal annars skriðdrekar. Þeim verður beitt gegn sunnunt og öðrunr lands- rnönnum ef þurfa þykir. Ef sýrlenzka ríkisstjórnin verður ntjög uggandi um sinn hag mun hún vafalaust reyna að dreifa huga fólks og sameina þjóðina gegn ísrael til dæntis. Það var gerl i júli síðastliðn- um, þegar fimni úreltum orrustuþot- um var fórnað til að setja á svið loft- bardaga við ísraelskar herþotur yfir Libanon. Ef algjört borgarastrið brýst út i Sýrlandi verður vafalausl gripið til sveitanna, sem nú eru i Sýr- landi við friðargæzlustörf. Ef þær sveitir yrðu kallaðar á brott frá l.ibanon mundi borgarastyrjöldin brjótast þar úl aftur. ísraelsmenn mundu telja sér þörf á að sækja meira í norður á þvi svæði. Slikt gæti ntjög líklega endað með þvi að styrjöld mundu brjótast út á milli Sýrlendinga og ísraelsmanna. Niðurstaðan er því sú að þó ríkis- stjórn Assads í Sýrlandi og yfirráð alavíta þar séu óvinsæl séu þau þó skásti kosturinn sem völ er á urn þessar mundir. v Hvort tekst að halda málum i Sýr- landi i nægilegu jafnvægi til þess að ekki sjóði upp úr ler eftir hæfi-. leikunt Rifat, bróður forsetans og yfirmanns öryggissveilanna. Af fyrri reynslu er Ijóst að hann er nægilega ákveðinn í aðgerðum til að slíkt megi takast. Ýmsir efast aftur á móti um að hann sé nægum hæfileikum búinn til að takast að ná ofangreindu rnark- miði. Enn nýtur Assad Sýrlandsforseti sæmilegs trausts meðal landsmanna. Þó er grunnt á þvl og ef bróður hans, Rifat, forustumanni öryggissveitanna, tekst ekki að halda aftur af óánægjunni verður stutt I fall forsetans. Myndin er tekin á meðan allt lék I lyndi í samskiptum Sýrlands og Egyptalands og þeir ASsad og Sadat forsetar landanna voru vinir. Upp úr öllum vinskap slitnaði við friðarsamninga ísraels og Egyptalands. Assad forseta hefur nú tekizt að ríkja í Sýrlandi í ntu ár. Sá tími hefur verið tiltölulega friðsamur. Að ríkja í níu ár er vissulega afrek í landi eins og Sýrlandi, sem eitt sinn var heims- methafi í byltingafjölda á ári að meðaltali. Glansinn fer þó af málinu þegar bent er á að Assad hefur rikt í skjóli minnihluta Sýrlendinga, sem hafa það eitt fram yfir aðra lands- menn að hingað til hafa þeir verið skjólari til að grípa til byssunnar. Assad er af alvítaættbálkinum, sem er skyldur shítum í íran. Alavítar eru aðeins 10 til 12% af þeim átta milljónum sem búa í Sýrlandi. Meiri hluti íbúa landsins eru svokallaðir sunnar. ' Morð og blóðsúthellingar hófust þó ekki fyrir alvöru fyrr en árið 1977. Þá var utanríkisstefna Sýrlands i ntolum. Þrjátíu þúsund sýrlenzkir hermenn voru bundnir í Libanon við að reyna að koma þar á vopnahléi milli vinstri og hægri manna. ÖIl bönd höfðu brostið við fyrrum aðal- bandamanninn Egyptaland vegna skyndilegra friðarsamninga hinna síðarnefndu við ísrael. Efnahagslífið var staðnað og andúð sunnanna á alavítum blómgaðist einnig í skjóli þess uppreisnaranda, sem blómstraði í Mið-austurlöndum. Þetta hófst með morðum frömdum af félögum í samtökunum Bræðra- lagi múhameðstrúarmanna og stefn- an var einföld, stefnt skyldi að borgarastríði í Sýrlandi. Uppreisnar- menn gáfu sér þá forsendu að ekki gæti komið fram verri kostur en stjórn alavitanna. Þess vegna var það ekki aðeins að alavítar, sem sæti áttu i stjórn landsins eða öryggissveitum, voru taldir réttdræpir heldur hver og einn af þeim ættbálki. Málin hafa þróazt í þessa átt siðan árið 1977. I júní siðastliðnum voru til dæmis fimmtíu herskólaneniar af alavítakyni drepnir. i ágúst olli morð á einum af trúarleiðtogum alavíta svo miklum uppþotum i borginni Latakia og bardögum á milli alavíta og sunna að her landsins varð að grípa i taumana. Fjörutíu manns féllu í átökunum. Öryggissveitum Sýrlands hefur ekki tekizt að brjóta samtökin Bræðralag múhameðstrúarmanna niður með fjöldahandtökum og Vitni vantar RANNSÓKNADEILD kfgregl- nnnar hefur beöfð MorgunblaÖið að auglýsa eftir vitnum að eftir- töldum ákeyrelum í borginni. Ef einhver getur veitt lögreglunni npplýsingar, sem geta leitt til þess aÖ tjónvaldarnir náist og bifreiðaeigendur fái tjón sitt bætt er hann beðinn aö hafa samband við rannsóknadeildina sem allra fyrst i sima 10200. Þann 31.10. sl. var ekið á bifreiðina R-2496, sem er Audi 100 1S græn að lit, við Hjólbarðaverk- stæðið Skeifunni 5. Varð frá kl. 09.30 til 14.00. Skemmd er á vinstra afturhorni, bretti og höggvari skemmt. Þann 2.11. s.l. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina R- 62902, sem er Mercury Comet brún að lit á b'fr.stæði við Hverfisgötu 90. Varð frá kl. 18.00 þann 31.10. til kl. 12.00 þann 1.11. Skemmd er á vélarloki. Þann 2.11. s.l. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina R- 7652, sem er Volga svört að lit á birfr.stæði við Háskólabíó. Átti sér stað föstudaginn 26.10. s.l. frá kl. 23.00 til 01.00. Skemmd er á kistuloki, afturgafli, áíturhöggv- ara otr vinstra afturaurbretti. blá að lit fyrir framan Grjótasei 8. Átti sér Btað þann 1.11. um kL 18.30. Skemmd á bifr. er á vinstra framaurbretti. Mánudaginn 5.11. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina Y-2822, sem er Fíat oranges litaður þar sem bifreiðin var við hús nr. 10 við Grenimel. Varð frá kl. 00,45 þann 3.11. til kl. 12.30 þann 4.11. Skemmd á bifr. er á vinstri hlið og er öll hliðin rispuð og skemmd. Er rauð málning í skemmdinni. Þann 5.11. s.l. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina Y- 8874, sem er Fíat (pólskur) oran- ges rauður að lit á bifr.stæði við aðalinngang Hrafnistu í Rvik. Átti þetta sér stað þann 3.11. frá kl. 15.30 til 21.30. Skemmd er á vinstra framaurbretti. Þann 5.11. s.l. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina R- 11788 sem er Cortina græn að lit við verzl. Hagkaup í Skeifunni. Átti sér stað þann 2.11. s.l. frá kl. 18.15 til 19.00. Skemmd á bifr. er á afturaurbretti vinstra megm og afturhöggvari skemmt. í skemmd- inni er ljós málning. Þann 6.11. s.l. var ekið á bifreið- ina R-53132 sem er Citroen D.S. jafnframt ekki hvetjandi til að þess að tilkynna um tjónið. Hjá full- komast hjá bótaskyldu. trúa lögreglustjórans í Reykjavik fengust þær upplýsingar, að einungis Viðurlög eru óveruleg væri beitt sektum við slíkt brot, sem i dag væru 30—40 þúsund krónur, óháð því hvort um ítrekað brot væri Hvaða viðurlög skyldu nú vera við því að aka á mannlausa bifreið, stór- skemma hana og hlaupast á brott án að ræða eða ekki. Ekki þarf tjón á bíl að vera ýkja mikið til þess að viðgerðarkostnaður- inn skipti hundruðum þúsunda. Að aka á mannlausan bíl og stórskemma hann og hlaupast síðan á brott, er að mati undirritaðs alveg sambærilegt því, að brjótast inn í mannlausa bifreið og stela úr henni lausamunum að svipuðu verðmæti. Að vísu er ákeyrslan varla ásetningur eins og þjófnaðurinn, en það er ásetningur að tilkynna ekki um tjónið og valda þannig eiganda hins skemmda bíls fjártjóni. Fróðlegt er að bera saman þá refs- ingu, sem vænta má, að fullorðinn maður fengi fyrir að brjótast inn i bíl og stela úr honum lausamunum að verðmæti t.d. 300 þúsund krónur, og fyrrnefnda sekt, sem ökumaður mundi fá fyrir að tilkynna ekki tjón að upphæð t.d. 300 þúsund krónur, sem hann hefur valdið á mannlausum bil. Til þess að fá upplýsingar um viðurlög við innbrotum hringdi undirritaður til Sakadóms Reykja- vikur. Eftir að hafa sagt til nafns og greint fráerindinu reyndist gjörsam- lega útilokað að fá að tala við nokkurn af sakadómurum Reykja- víkur. Það var ekki vegna þess, að þeir væru uppteknir, heldur vegna þess, að ekki var ætlunin að spyrja um eitthvert ákveðið mál, sem væri til meðferðar hjá Sakadómi Reykja- víkur. Eftir að hafa marg ítrekað beiðni um að fá að tala við einhvern sakadómara og eftir að símastúlkan hafði margsinnis kannað möguleik- ana á samlali varð endanlegt svar: „Það er ekki hægt af því ekki er um ákveðið mál að ræða.” Var þá óskað eftir að fá að tala við yfirsaka- dómara, en hann var sagður upptek- inn og að hann mundi ekki verða til viðtals það sem eftir væri dagsins. Eftir langt, fróðlegt og vingjarnlegt simtal við fulltrúa lögreglustjórans i Reykjavík þótti undirrituðum þetta harla undarleg viðbrögð opinberra sýslunarmanna, en „ekki þýðir að deila við dómarann.” Það eru ef til vill þessir menn, sem kallaðir eru „kerfiskarlar.” Þarna a.m.k. virðist hinum unga og áhugasama dóms- málaráðherra ekki hafa orðið ntikið ágengt í að opna dómskerfið. Að lokinni viðureigninni við Saka- dóm Reykjavíkur var haft samband við bæjarfógetaembættið í Hafnar- firði. Fékkst þar samband við hinn almennilegasta fulltrúa, sem upplýsti undirritaðan greiðlega um það, hvaða lagaákvæði giltu um refsingu fyrir þjófnað og hverjar væru venjur við beitingu þeirra. Hámarksrefsing fyrir þjófnað er 6 ára fangelsi, en heimilt er að ljúka máli með sekt, ef um litlar fjárhæðir er að ræða og tjónþoli gerir ekki refsikröfu. Mundi framangreind tilvik, þ.e. innbrot í bíl og stolið verðmætum að upphæð um 300 þúsund krónur, vera framið af fullorðnum manni, sem hefur ekki áður gerst brotlegur við hegningarlögin, mundi hann væntan- lega fá skilorðsbundið fangelsi. Sé um ungmenni að ræða, gæti komið til frestunar á að kveða upp dóm ákveðinn tíma gegn því að hlutaðeig- andi gerist ekki brotlegur þann tíma. Varðandi ungmenni er líka um þann möguleika að ræða, að kveða upp dóm um sekt hlutaðeigandi en fresta að ákveða refsingu gegn skilyrði um afbrotalausan feril ákveðinn tíma. Sé um ítrekað brot á hegningarlögum að ræða, má reikna rneð fangelsis- dómi. Af þvi sent að frantan greinir, er Ijóst að refsing fyrir að hlaupast á brott frá ákeyrslu á mannlausan bíl, sem er brot á umferðarlögum, mun mildari en refsing fyrir þjófnað, sem er brot á almennum hegningarlögum. Hvað er til ráða? Eins og getið er hér að framan, cr vandfundið það tryggingarfyrir- komulag, sem bæði verðlaunar þá, sem: enguni tjónum valda og jafn- l'rantt dregur úr því að ökumenn hlaupist á brott frá árekstri án þess að tilkynna um tjónið. Væru vfir á tjónvald, en bæði þessi atriði ýta undir það, að ntenn hlaupisl á brotl frá árekstri án þcss að tilkvnna uni tjónið. Það fyrirkómulag, sem i dag rikir, er sem kunnugi er blanda af þessu öllu santan. Valdi menn tjóni, sent ábyrgðartrygging þarf að bæta, lækkar tryggingarafslálturinn, svokallaður bónus. Jafnframt þarl' tjónvaldur að greiða sjálfsábyrgð, 24 þúsund krónur. Hafi tjónvaldur gerst hrotlegur við uml'erðarlögin, þegar hann olli tjóninu, má reikna með að hann fái sekt. Maður, sem ekur á kyrrstæðan bil og stingur af, sleppur við öll þessi úlgjöld, og áhættan er harla litil eða aðeins 30—40 þúsund króna sekt. Með visan til þess, sem að framan greinir, virðist einasta leiðin til að draga úr þvi geigvænlega ástandi, sem skapast hefur varðandi tjón á mannlausum bílum, vera það, að Itafa sektir við því, að hlaupast Irá tjóni án þess að tilkynna um það, svo háar, að það sé veruleg áhælla að stinga af. Það er álit undirrilaðs, að sektir fyrir, að hlaupast í burtu frá tjóni þurfi að vera a.m.k. jafnháar viðgerðarkostnaði á tjóninu. Auk þess ættu tryggingarlélög að fá Iteimild til að endurkrefja ökuttiann- inn (ekki bileiganda) unt viðgerðar- kostnaðinn: Áhættan, sem öku- maður tekur, nteð þvi að stinga af Irá tjóni, væri þá a.nt.k. tvöfaldur viðgerðarkostnaður tjónsins, sent hann veldur. Sem betur fer tekst i ótrúlega ntörgum tilvikum, að hafa tippi á sökudólgum annaðhvort vegna ^ „Sektir við slík brot eru einungis 30—40 þúsund krónur.” tryggingariðgjöld óháð þvi, hvort tryggingartaki veldur tjóni eða ekki, ntundi það án efa minnka, að öku- menn tilkynntu ekki tjón. Það mundi hins vegar draga úr aðgæslu við akstur og* kemur þvi varla til ercina nenta samtímis væri annaðhvort beitt refsiákvæðunt fyrir að valda tjóni eða koma hluta af ábyrgðinni framburðar vitna, sent hafa gefið sig fram eða nteð hjálp vegsuntmerkja, sent finnasl á hinni skentmdu bifreið. Ef teknar væru upp fyrrnefndar refsiaðgerðir, mundi því verða veru- lega áhættusamt að stinga af frá árekstri á kyrrstæða bifreið. Gísli Jónsson prófessor. 11 \ ✓ /V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.