Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 28
32 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979. ERLENDUR ANNflLL '79 morðin verið framin að undirlagi ihaldssamra kaupsýslumanna. Ford bifreiðaverksmiðjurnar banda- risku keyptu 25% hlutabréfa í Mazda verksmiðjunum japönsku. Þar með var Ford komið í hóp þeirra fyrirtækja, sem eiga bifreiðaverksmiðjur víðs vegar um heiminn. Þar á meðal eru bæði General Motors og Chrysler verk- smiðjurnar bandarísku. Sandinistar náðu völdum í Nicaragua Síðari hluta júlí náðu sandinistar öll- um völdum i Nicaragua og Somoza for- seti flúði til Bandarikjanna. Stjórnin í Washington óttaðist mjög að kommún- istar næðu þar völdum. Ekki hefur sú orðið raunin enn. Tiltölulega hægfara þjóðernissinnar virðast hafa náð yfir- tökunum í þessum Mið-Ameríkuríki. Þar eru verulegir efnahagsörðugleikar, bæði vegna fyrri óstjórnar Somoza og fjölskyldu hans síðustu hálfa öld og svo af völdunt borgarastyrjaldarinnar. Efnahagsaðstoð hefur borizt víða að til Nicaragua og einna drýgst frá svo and- stæðum rikjum sem Bandaríkjunum og Kúbu. Ungfrú Venezuela var kjörin Ungfrú alheimur í Ástralíu i júli. Við verð- launaafhendinguna hrundi pallurinn gekk þó að uppfylla þessi loforð og voru varnaraðarorð birt um þessi atriði hvað eftir annað, bæði vestan hafs og austan, með hæfilegu millibili út árið sem er að liða. skyndilega en aðeins ein stúlknanna þurfti að fara á sjúkrahús á eftir vegna meiðsla. Var það ungfrú Tyrkland. Tuttugu og tveir f órust í skógareldi Tuttugu og tveir fórust í skógareldi á sólarströndum Spánar í ágúst. Talið var að brennuvargar hefðu verið valdir að brunanum. Bandarískir visindamenn fundu efni i skozku viskíi, sent talin eru geta valdið krabbameini, í það ntinnsta ýmsum tegundum þess. Danskar gleði- konur unnu ötullega að því að stofna stétlarfélag. Talið er að allt að tiu þúsund manns hafi farizt í Indlandi, er stifla brast þar og flóð reið yfir bæinn Morvi. Gerðist þetta í ágúst. Erfiðlega gekk að aðstoða nauðstadda vegna mikilla rigninga og vatnavaxta. Andrew Young rekinn Andrew Young aðalfulltrúi Banda- ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum varð að segja af sér embætti vegna upp- náms er varð er i Ijós kom að hann hafði átt leynilegan fund með fulltrúa PLO samtaka Palestinuaraba. Young þótti ávallt skorinorður og ákveðinn i skoðunum. Er talið að hann hafi átt stærstan hlut í að móta Afríkustefnu Jimmy Carters Bandaríkjaforseta i valdatið hans. Sovézki ballettdansarinn Alexander Gudunov baðst hælis sem pólitiskur flóttamaður í Bandaríkjununt. Var þetta í ferð Bolshoj ballettsins þar i ágúst. Kona hans, Ljudmilla, sem einnig er ballettdansari vildi hinsvegar snúa aftur til Sovétrikjanna með starfs- félögum sínum. Stóð í töluverðu stappi vegna þess að Gudunov vildi ekki trúa öðru en hún væri neydd til þessarar ákvörðunar sinnar af sovézkum ráða- mönnum. Var flugvél sú sem dansarar Bolshoj ballettsins voru með kyrrsett í 73 klukkustundir á Kennedy flugvelli í New York á meðan bandarísk yfirvöld könnuðu málið. Ljudmilla vildi snúa aftur Loks sannfærðust ráðamenn í New Yjjjk um að Ljudmilla vildi snúa aftur til Sovétrikjanna af frjálsum vilja, og fékk fiugvélin þá heimild til að hverfa á brott. Aðalsamningamaður Bandaríkja- stjórnar i þessu máli var Donald F. McHenry en hann tók í október við starfi Andrew Young sem aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðun- um. Mountbatten jarl, hinn frægi hers- höfðingi úr síðari heimsstyrjöldinni, var myrtur af IRA skæruliðum á Norður-írlandi hinn 27. ágúst. Sprengdu þeir snekkju hans í loft upp. Skæruliðar Palestínuaraba þykja heldur hafa róazt upp á slókastið. Svo mun ekki vera með nokkur hundruð frani sem endilega vilja komast til Palestinu og berjast gegn gyðingum. lagi við hvíta menn i landinu um stjórnarfyrirkomulag þar i landi. Ekki vildu þó allir svartir fallast á þetta sam- komulag, sizt eftir kosningar. Sithole taldi kosningarnar hafa verið mesta svindl. Fara þó fáar sögur af honum siðan. Aðrir foringjar svartra, þeir Nkomo og Mugabe, gengu ekki til neins samkomulags að þessu sinni og tilkynntu áframhaldandi baráttu skæruliða sinna gegn stjórnvöldum í Salisburv, sem nú voru orðin svört og hvil. Þiátt fyrir að Muzorewa væri orðinn forsætisráðherra voru völd hvíirn manna í Ródesíu eða Zimba- bwe/Ródesiu enn ntjög rnikil og höfðu þeir enn i raun neitunarvald um flest mikilvægustu mál á þingi landsins. Er líða tók á árið þötti Ijóst að ekki var nóg gert með samkomulagi Muzorewa og annarra svarta leiðtoga. Bardagar og morð héldu enn áfram í landinu. Í okóber tókst Bretum, fyrrum nýlenduherrum í Ródesíu, að konta á friðarfundi í London undir sljórn Carringtons lávarðar, utanríkisráð- herra í stjórn íhaldsflokksins. Þar mættu fúlltrúar svartra og hvitra ráða- manna í Salisbury ásamt þeim Nkomo og Mugabe, foringjum skæruliða svartra. Gekk þar lengi í þófi en brátt bar samningaviðleitni Carringtons lávarðar árangur. Loks náðist sá árangur eftir mikið strit, að allir dsjluaðilar féllust á samningsdrög. Undir sarhninga var skrifað hinn 21. desember síðastliðinn í London. Ljóst er að öfgamenn á báða bóga una illa við. Einkum eru þeir sem Edward Kennedy tilkynnti að hann hygðist gefa kost á sér sem frambjóðandi demókrata til forsetakjörs I Bandarikjunum. Með honum á myndinni er kona hans Joan. Ritt Bjerregaard hrökklaðist úr embætti menntamálaráðherra I Danmörku á fyrra ári fyrir eyðslusemi á ferðalögum. Hún var ekki af baki dottin og er nú aftur komin I ráð- herrasæti í minnihlutastjórn jafnaðarmanna. eru harðastir gegn samningum meðal livitra íbúa Zintbabwe/Ródesiu óánægðir. Þeir verða þó vafalaust að sælta sig við orðin hlut. Hvítir íbúaf landsins eru aðeins tæplega þrjú hundruð þúsund af unt það bil átta milljónum og hafa í dag engin tök á að halda þar völdum í óþökk hins svarta racixjhluta. .__ Heimastjórn áfGrænlandi Atvinnulíf i Danmörku fór örl versn- Sftdi á árinu. Þúsundum var sagt þar upp atvinnu. Grænlendingar fengu heimastjórn hinn 1. mai. Hún mun korna á i áföngum og er ekki annaðað sjá en full samvinna sé á milli frænda vorra Dana og nágranna á Grænlandi um þessi mál. Málefni eins og aðild að Efna- hagsbandalagi Evrópu og um efnahags- lögsögu eiga alfarið að verða undir ákvörðun íbúa Grænlands komin. íhaldsflokkurinn sigraði i kosning- unum í Bretlandi hinn 3. maí, undir forustu Margaret Thatcher, sem þar með varð fyrsta konan sem varð for- sætisráðherra í Evrópulandi. Hún hefur síðan stöðugt vaxið í starfi. Jafnvel þykir frúin standa furðuvel við kosningaloforð sín og í alla staði vera kynsystrum sínum til sóma i svokallaðri jafnréttisbaráttu kynjanna. Tveir rilstjórar dagblaða í Suður- Afríku voru verðlaunaðir í maí fyrir að blöð þeitra áttu þátt í að upp komst fjármálamisferli, sem að lokum hrakti nokkra ráðherra úr stóli og að lokum Vorster fyrrum forsætisráðherra og fbrseta landsins úr embætti. Bifreiðir f yrir vínanda í mai sagði DB frá því að Brasilíu- menn hygðust brátt hefja fjöldafram- leiðslu á bifreiðum sem gengju fyrir vínanda. Hann á að vinna úr afgangi af sykurreyr en nriklir söluörðugleikar eru á honum um þessar mundir. Bretum brá í brún er fréttir bárust um að skozkur fræðimaður hefði komist að þeirri niðurstöðu að Viktoría drottning þeirra á mestu heimsveldis- timunum, hefði gengið að eiga þjón sinn.Talsmenn krúnunnar vildu bera þetta tjl baka en skozki fræðimaðurinn sat við sinn keip og sagðist hafa að baki sér tíu ára rannsóknir. 1 mai tilkynntu talsmenn helztu olíu- kauparíkja góðan ásetning sinn um að spara oliu og um að nýta allar aðrar orkulindir betur. Var þar átt við bæði kol og sólarorku og raunar alla orku sem fyndist. Allir sögðust gera sér ljóst að olíuverð væri orðið of hátt. Lítt Gallaður bolti olli þotuslysi Mikið uppnám varð um allan heim er upplýst þótti af sérfræðingum að gallaður bolti hefði valdið flugslysi á DC-IO þotunni er hrapaði við Chicago í mai. Varð þetta til þess að þotur af þessari gerð voru stöðvaðar um nokkurra vikna skeið hvar sem var í heiminum. Einkum kom þetta niður á þotum sem flugu á áætlun til Banda- rikjanna en þar stóð flugbann þeirra einna. Við yfirlestur frétta ársins vekur athygli hve allir fjölmiðlar sem um mál DC-IO þotnanna fjölluðu fóru varlega í málið og létu hjá líða að fella harða dóma um málið fyrr en ásakanir sér- fræðinga voru orðnar mjög háværar. Við lok þessa máls var greinilegt að Flugmálastofnun Bandaríkjanna hafði sett tnjög ofan. Fram að DC-10 slysinu við 'Chicago hafði hún verið viður- kennd í forustu fyrir flugöryggi i far- þegafíugi en við rannsókn ferils DC þotnanna kom í ljós að óverjandi linka gagnvart verksmiðjum þotnanna hafði átt sér stað hjá forustumönnum banda- rískra flugöryggisyfirvalda. DC-10 far- þegaþotur fljúga nú um heiminn og þykja orðið flugvéla öruggastar, Í júlí var Ijóst orðið að skæruliðar sandinista voru að ná yfirhöndinni í átökum gegn þjóðvarðliðum Sornoza forseta í Nicaragua. Tvær sprengjur sprungu hinn 4. júli á Costa del Sol á Spáni, .Pléiri slíkir atburðir urðu á ferðamannastöðum á Spáni. Varð þetta til þess að nokkuð dró úr ferðamannakomum þangað, i það minnsta um hrið. Þarna voru hryðjuverkamenn úr samtökum aðskilnaðarhreyfingar Baska að verki. Og loksins lenti Skylab Skylab geimfarið bandariska lenti loks á eyðimörkum Ástralíu hinn II. júlí síðastliðinn. Það var þá búið að vera á lofti síðan árið 1974. Talið var að um það bil eitt þúsund hlutar eða brot úr því hafi lent á yfirborði Ástraliu en mestur hlutinn í lndlandshafi. Bandarísk þingnefnd, sem endur- kannað hefur öll gögn er varða morðin á John F. Kennedy fyrrum Bandaríkja- forseta og Martin Luther King, leið- toga svertingja i Bandaríkjunum, komst að þeirri niðurstöðu að bæði morðin hefðu verið fyrirfram skipulagt samsæri. Talið er að í það minnsta tveir aðilar hafi skotið á Kennedy í Dallas árið 1963 og einnig hafi aðrir glæpa- menn verið í samstarfi við James Earl Ray þann sem my»ti King. Hafi bæði

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.