Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 29

Dagblaðið - 28.12.1979, Blaðsíða 29
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1979. 33 ERLENDCIR fiNNfiLL '79 Vandræði hjá Bur- meister og Wain Danska skipasmiðaslöðin Burmeister og Wain i Kaupmannahöfn á i miklurn rekstrarerfiðleikum og var svo allt árið. Horfur eru á að segja verði upp stórum hluta starfsfólksins. Jan Bonde Niel- sen, aðaleigandi hlutafjár, varð að segja af sér embætti forstjóra og á jafn- vel yfir höfði sér ákæru um ýmis fjár- svik. Tíu manns létust í flóðöldu, sem reið á land i Suður-Frakklandi í október. Talið er að jarðsig á botni Miðjarðar- hafs hafi valdið ósköpunum. írar í Bandaríkjunum urðu mjög reiðir vegna þess að Margrét Breta- prinsessa var talin hafa kallað þá svín(pig). Ekki var reiðin minni í írlandi sjálfu. í hefndarskyni hótuðu írar í San Francisco að sleppa eitt þúsund svínum, þegar prinsessan kom þangað i heimsókn. Minna varð þó úr framkvæmdum þegar á reyndi. Sjö barna móðir dæmd íTékkó- slóvakíu Sjö barna móðir Dana Nemcova var dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir undir- róður gegn tékkneska ríkinu í október. Auk hennar hlutu fimm aðrir baráttu- Með honum fórust dóttursonur hans, 14 ára, og aðstoðarpiltur. Dóttir hans, sonur hennar og tengdamóðir slösuðust mikið en lifðu af. Morðið á Mount- batten vakti mikla reiði i Bretlandi þar sem hann var gömul stríðshetja og mjög vinsæll meðal alþýðu. Hann leiddi afhendingu Breta á Indlandi til innnlendra ráðamanna þar, þegar Ind- land varð að tveim ríkjum Indlandi og Pakistan. Sama dag og Mountbatten var myrtur voru sautján brezkir hermenn sprengdir í loft upp af IRA mönnunt á Norðu r-írlandi. Fljótlega voru þrir menn handteknir, grunaðir um að hafa staðið að lil- ræðinu gegn jarlinum. Jordan sakaður um kókaínneyzlu Hamilton Jordan, starfsmannastjóri Jimmy Carters Bandaríkjaforseta, var sakaður um kókaínneyzlu af Iveim eigendum diskóteksins Studíó 54 í New York. Talsmenn Hvíta hússins í Washington segja þó að þarna sé um hefndarráðstafanir að ræða og Jordan séalsaklaus. Mikil hægri sveifla varð í byggða- kosningunum i Noregi, sem fóru fram um miðjan september. Hægri flokkur- inn vann mest á en Miðflokkurinn og jafnaðarmenn töpuðu miklu. Voru úrslitin talin mikið áfall fyrir Nordli forsætisráðherra og formann Verka- mannaflokksins. Um sömu helgi fóru fram þing- kosningar í Sviþjóð. Eftir að endur- talning hafði farið fram kom í Ijós að borgaraflokkarnir höfðu eins sætis meirihluta á sænska þinginu. Það varð úr að minnihlutastjórn Ullstens, for- manns Þjóðarflokksins, sat áfram við völd og mun gera í það minnsta þar til kosið verður um kjarnorkuverin snemma á komandi ári. Bokassa steypt af stóli Bokassa keisara í Mið-Afríkulýð- veldinu var steypt af stóli í september en þá var hann sjálfur á ferð i Líbýu. Voru það Frakkar, sem aðstoðuðu fyrrverandi forseta landsins, David Dacko, aftur til valda. Bokassa varð ber að því að hafa sjálfur drepið um það bil hundrað skólabörn, sem þrjózkuðust við að ganga í einkennis- búningum. Treystust Frakkar þá ekki lengur til að styðja hann en landið var fyrrum frönsk nýlenda. Jóhannes Páll páfi II hélt til írlands i opinbera heimsókn í október. Þar skoraði hann á menn að stuðla að friði og leggja hatur og blóðsúthellingar á hilluna.Þótti ferðpáfa til írlands takast mjög vel. Þaðan hélt hann til Boston í Bandaríkjunum. Var honum fagnað þar af milljónum eins og í irlandi og má segja að ferð hans um þessi lönd hafi veriðsamfelld sigurför. Ungur maður I Skien I Noregi fórst er bifreið hans sprakk i loft upp vegna sprengju- efnis sem var i aftursxtinu. Mildi var að fleiri fórust ekki þvf afl sprengingarinnar var gffurlegt, eins og myndin ber með sér. menn fyrir mannréttindum dóma i Prag. Allir hinna dæmdu voru tengdir Charter 77 ávarpinu en samkvæmt því er þess krafizt að mannréttindi séu virt i Tékkóslóvakíu og farið sé eftir Hels- inki samkomulaginu um þau efni. íhaldsmenn og jafnaðarmenn sigr- uðu í dönsku þingkosningunum, sem fóru franr 23. október. Kommúnistar þurrkuðust út af þingi en auk þess tapaði Framfaraflokkur Glistrups verulega. Eftir kosningarnar mynduðu jafnaðarmenn minnihlutastjórn undir forustu Anker Jörgensen formanns flokksins. Mikil efnahagsvandkvæði steðja nú að Dönum. Hefur stjórnin boðað harðar aðhaldsaðgerðir, sem mælzt hafa misjafnlega fyrir. Vaxtahækkun vegna samlagningar- skekkju Skyndileg vaxtahækkun seðlabanka Bandaríkjanna olli miklu róti á verð- bréfamörkuðum þar í landi. Ástandi í kauphöllinni í New York var líkt við byrjun kreppunnar miklu árið 1929 þó svo afleiðingarnar yrðu ekki neitl i sama dúr. Nokkru síðar kom í Ijós að vaxta- hækkunin hafði verið framkvæmd vegna samlagningarskekkju á peninga- magni i umferð, sem reiknað hafði veriðof hátt. Danskir visindamenn hafa náð góðum árangri með getnaðarvarnar- pillur sem settar eru undir húðina á framhandlegg kvenna. Er talið að þessi aðferð muni ná skjótri útbreiðslu, i það minnsta í Danmörku. Zaireher, sem hingað til hefur þótt til annars hæfur en bardaga, framdi enn eitt glappaskotið í nóvember, þegar rúmlega tvö hundruð unglingar i skóla- ferð féllu fyrir skotum hermannanna. Að sögn yfirmanna Zairehers töldu hermennirnir að þarna væru gimsteina- þjófar á ferðinni. Að sögn töldu her- mennirnir sig hafa einkarétt á demtana- þjófnaði á þvi svæði sem morðin voru framin á. 250 þúsund urðu að yfirgefa heimili sín í nóvember urðu 250 þúsund manns að yfirgefa heimili sin i einni af útborg- um Toronto í Ontario fylki i Kanada. Ástæðan var að lest fór út af sporinu og við það komst eitrað klórgas út í andrúmsloftið og nokkrar sprengingar urðu. Enginn varð þó fyrir neinu líkamstjóni svo vitað sé og fékk fólk að snúa aftur til síns heimna á öðrum sólarhringeftir að lestarsly sið varð. Bermúdastúlka var kjörin Ungfrú heimur í London 15. nóvember en um 257 fórust með þotu yfir Suður- skautslandi Tvö hundruð fimmtiu og sjö manns fórust er DC-10 þota frá nýsjálenzka flugfélaginu fórst yfir Suðurskauts- landinu. Samkvæmt rannsóknum þá er talið að slysið hafi orðið vegna þess að flugstjórinn sinnti ekki ítrekuðum við- vörunum að þotan væri að nálgast jörðu. Var verið að fljúga útsýnisflug yftr isauðnina. Mikið fjaðrafok varð í byrjun desember þegar Mexikóstjórn tilkynnti að fyrrum Íranskeisari fengi ekki að snúa aftlir til landsins eftir dvöl á sjúkrahúsi i New York. Bandarikja- stjórn leitaði nú einhverra leiða til að losna við keisarann en enginn vildi taka við honum nema Egyptaland en Carter taldi ekki heppilegt að liann færi þangað vegna samninga um frið í Mið- austurlöndum. Að lokum fékk keisar- inn fyrrverandi og fjölskylda hans hæli i Pananta. Ekk; voru þó allir ibúar þar ánægðir með hinn nýja gesl og voru töluverðar óeirðir i landinu eftir komu hans þangað. Lýðræðisbandalagið sigraði i þing- kosningunum í Portúgal hinn 2. desember. Sósialistar töpuðu verulegu fylgi en kommúnislar bæltu nokkuð við sig. Hungursneyðin vakti alheimssamúð Hungursneyðin i Kampútseu og i flótiamannabúðum i Thailandi vakti al Ferðamenn voru færri i Kaupmannahöfn I sumar en oftast áður. Kennt er um leiðin- legu veðri og háu verðlagi. svipað leyti varð enn eitt njósna- hneysklið í Bretlandi. Kom þá í Ijós að Sir Anthony Blunt, sem um árabil hafði verið listráðunautur drottningar, var ganrall njósnari. Hafði hann úl- vegað Sovétmönnum liðsmenn fyrir síðari heimsstyrjöldina og auk þess aðstoðað nokkra þeirra við að sleppa undan handtöku á sjötta áratugnum. Varð af þessu öllu mikið fjaðrafok og Blunt sviptur titlum sínum. Honum mun þó tæpast verða refsað þar sem hann skýrði leyniþjónustuaðilum frá öllum málavöxtum árið 1964 gegn því að sleppa við refsingu. Taka bandaríska sendiráðsins í Teheran og gislarnir þar var að sjálf- sögðu aðalmál erlendra frétta í nóvem- ber. Áður hefur verið rætt um það og íran í annáli þessum en hinn 19. nóvember slepptu stúdenlarnir sent halda sendiráðinu átta svertingjum og fimm konum úr hópi gíslanna. Eru þá um það bil fimmtiu Bandarikjamenn enn í haldi í sendiráðinu. Nokkrir öfgafullir múhameðstrúar- menn hertóku helgustu moskuna i Mekka í Saudi Arabiu. Héldu þeir henni í tvo sólarhringa og sögðu meðal annars að einn þeirra væri sjálfur Messías. Herlið mun að lokum hafa yfirbugað ránsmennina og nokkrir eru taldir hafa fallið i bardögunum. Annars voru fréttir allar mjög óljósar af atburðum þessum. heimssamúð og er nú unnið mikið starf til að bjarga fólki þar frá bráðum dauða. Ti! skamnts tinta gekk erfiðlcga að fá leyfi til að fara inn i Kampútseu með lyf og hjálpargögn en að sögn helur ástand i þeim efnum batnað mikið siðustu daga. Ríki Atlantshafsbandalagsins sam- þykklu á fundi sínum i Brussel að hefja smíði kjarnorkueldflauga til að selja upp í Veslur-Evrópu. Eiga þau að beinast að Sovétrikjunum. Veruleg andstaða var gegn þessu í mörgurn rikj- um Vestur-Evrópu en að lokum féllust ríkisstjórnir allra þeirra á smiði kjarn- orkueldflauganna. Móðir Teresa hlaut friðarverðlaun Nóbels og þótti vel að þeim komin. Hún hefur unnið meðal snauðra í Ind- landi um áratugi. Olíusöluríkjum í OPEC samtökun- um tókst ekki að komast að samkomu- lagi um nýtt grundvallaroliuverð. Funduðu fulltrúar þeirra í Venezúela i desember en án árangurs. Veldur þetta enn meiri óvissu í olíumálum en verið hefur. Ríkisstjórn Joe Clark i Kanada féll óvænt rétt fyrir jól og nú munu verða kosningar þar í landi undir lok febrúar- mánaðar næstkomandi. Pierre Trudeau fyrrum forsætisráðherra og formaður Frjálslynda flokksins, hætti við að hætla í stjórnmálum um mun taka þátt í komandi kosningabaráttu. Friðarviðræður i Miðausturlöndum milli Israela og Egypta gengu treglega á árinu þó nokkuð þokaðist i samkomulagsátt. myndinni eru þeir Sadat Egyptalandsforseti og Begin forsætisráðherra fsracl.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.