Dagblaðið - 28.12.1979, Page 13

Dagblaðið - 28.12.1979, Page 13
DAGBLAÐID. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBHR 1979. 13 INNLENDCIR ftNNfiLL '79 fundi Skáksambandsins þar sem Einar hlaul kosningu. Friðrik Ólafsson, for- seli FIDE, gekk úl af fundinum. Hin gamalreynda skákkempa Ingvar Ás- mundsson hlaut íslandsmeislaralililinn í skák i fyrsta sinn. „Stríðsástand" og „borgarastyrjöld" Grásleppubátar urðu fyrir umtals- verðu tjóni af völdum hafiss og þorsk- veiðibann gilti frá 10.—17. apríl. Ef marka má fyrirsagnir í blöðum frá þessum tíma þá var íslenzka þjóðin mjög hætt komin. Talað var um að lægi við „borgarastyrjöld” vegna þorskveiðibannsins og á Seyðisfirði ríkti „stríðsástand” og kalla varð út 7 manna lögreglulið frá Egilsstöðum vegna deilna unglinga á staðnum við framkvæmdastjóra samkomuhússins. Fjögur systkini gengu í hjónaband á einu bretti í Bústaðakirkju hjá dóm- prófastinum, sr. Ólafi Skúlasyni. Um líkt leyti fór ungur piltur í Arnarnesi á sitt fyrsta fyllirí og kættist svo mjög að hann fann sig knúinn til að mála hús nágranna sinna sem kunnu honum litlar þakkir fyrir. Áfengið var víðar á ferðinni en í Arnarnesi og fundust 180 flöskur af vodka um borð í Múlafossi, vandlega faldar i leynihólfi. íslenzkur andófsmaður íslendingar eignuðust sinn andófs- mann á árinu, Pétur Pétursson útvarps- þul. Hann gekk ötullega fram i þvi ásamt félögum sinum í Andóft 79 að mótmæla samkomulagi BSRB við ríkisvaldið. í lok aprilmánaðar var boðað að Pétur mundi tala hjá tveimur „misrauðum” á hátíðisdegi verkalýðs- ins, 1. mai. Maí „Það er ekki hægt að standa í verka- lýðsbaráttu í svona kulda,” voru við- brögð ýmissa við veðrinu 1. maí. Viða varð að flytja hátíðahöldin i hús þenn- an dag vegna veðurs. Þeir Helgi Péturs- son og Bjarnleifur Bjarnleifsson, sem sendir voru út af örkinni af DB, virtust á þeirri skoðun, að ekki væri heldur hægt að stunda blaðamennsku i sliku veðri og flúðu inn á Hótel Borg í kaffi og koníak. Það var mál manna, að Pétur þulur hafi verið maður dagsins og talaði hann á færri fundum en hann vildi. Sex Eskfirðingar drukknuðu með bátnum Hrönn SH 149 í Reyðarfirði. Vaxandi harka hljóp í farmannadeil- una og glímuskjálfti var mikill á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins. Geir sigraði Albert örugglega i formannskjörinu en Davið Oddssyni tókst ekki að leggja tvo Goliata að velli í keppninni um varaformannsembættið. Þar var Gunn- ar Thor endurkjörinn eftir harða keppni við Matthias Bjarnason. „Umframfram- íeiðsla" á börnum Mikil fæðingarbomba var á spítölum landsins og á fyrstu fjórum mánuðum ársins var „umframframleiðsla” á börnum litlu minni en á landbúnaðar- vörum. Ríkisstarfsmenn felldu samkomulag stjórnar BSRB og fjármálaráðherra. Andófsmenn voru þó ekki alls kostar ánægðir og Pétur þulur kærði fyrir út- varpsráði meðferð fréttastofu á kosn- ingaúrslitunum. Andófið var ekki bara bundið við BSRB-menn þvi ritstjóri Stúdentablaðsins vildi ganga.skreH lengra og hvatti til andófs gegn hjóna- bandinu og laldi giftingarhringinn „innsiglisvottorð niðurlægingarinn- ar”. Helmingur af 20 ára skógræklar- starfi Skógræktarfélags Hafnarfjarðar eyðilagðist er þrjár 9 ára telpur ætluðu að kveikja „litið bál” en úr varð eldhaf sem nær 200 manns þurfti til að yfir- vinna. Hundruð niúsa i kornpokum ollu milljónatjóni i Bakkaskemmu. Höfðu mýsnar borizt með kornpokum frá Antwerpen. Bruggað í kuldanum Það átti ekki af landsmönnum að ganga í þessum mánuði. Enn eitt verk- fallið hófst á miðnætti 14. maí. Að þessu sinni voru það mjólkurfræðingar sem vildu bæta kjör sin. Ekki bætti úr skák að veður var eins og um hávetur alls staðar nema á blá suðvesturhorni landsins, vegir lokuðust og ekki sá milli húsa vegna storhríðar. Það þurfti þvi engum að koma á óvart að bruggað væri í þriðja hverju húsi landsins eins og könnun meðal 808 skólanema gaf ótvírætt til kynna. Milljónatjón varð af eldi í Hafnar- firði er fiskþurrkunarhús Langeyrar í Hafnarfirði eyðilagðist. Áhrifa verk- fallanna tók að gæta með ávaxtaskorii og kjöthamstri og hálfur gangur var á mjólkurdreifingu. Nokkrar umræður urðu um bílafrið- indi ráðherra og Félag íslenzkra bif- reiðaeigenda stóð fyrir mótmælapipi unt allt land til að mótmæla aukaskött- um á bíleigendum. Enn varð milljónatjón af völdum elds er Hraðfrystistöð Stokkseyrar brann. Rúmlega hundrað manns misstu atvinnuna. Um ikveikju reyndist vera að ræða og kom síðar á daginn að sá er ikveikjunni olli hafði gengið mjög ötul- lega fram i slökkvistarfinu. Júní Draupnir KE fórst undan Malarrifi, mannbjörg varð. Þá sömdu mjólkur- fræðingar aðfaranótt 7. júni, og Spari- sjóður Norðfjarðar var talsvert í frétt- um er í Ijós kom ósamræmi í tölum og innistæðum sjóðsins. Er raunar ekki enn séð fyrir endann á þvi máli. Geirfinnsmál og graðhestar Björns á Löngumýri Geirfinnsmálið skaut enn einu sinni upp kollinum er skaðabótakröfur fyrir gæzluvarðhald að ósekju komu fyrir borgardóm og rannsókn hófst á meintu Bylting var gerð i Náttúrulækningafélagi Reykjavikur og framkvxmd kosningar i stjórn félagsins fór f handaskolum. Diskódansinn aunaði datt á'árinu sem er að iina. harðræði gagnvart gæzluvarðhalds- föngum í Síðumúlafangelsinu. Graðhestar Björns á Löngumýri ollu nokkrum deilum. Kærði Björn fram- koniu sýslumanns i þvi máli til dóms- málaráðuneylis. Urn líkt leyti skar rikissaksóknari upp herör gegn klám- inu. Skoðanakönnun Dagblaðsins sýndi að 70% þjóðarinnar vildu stöðva far- mannaverkfallið með lögum. Önnur skoðanakönnun Dagblaðsins um fylgi stjórnmálaflokkanna sýndi að Sjálf- slæðisflokkurinn mundi hljóta hreinan meirihluta og að Framsóknarflokkur- inn rifi til sin fylgi frá samsarfsflokkum sinunt. Sigurjón Pétursson var sent „yfir- borgarsljóri” ntættur við Elliðaárnar cn missti þann slóra að þessu sinni. Grænfriðungar stöðvaðir Að kvöldi 19. júni sigldu fyrstu skipin út úr Revkjavikurhöfn eftir að farntannadeilan hafði verið leysl nteð hráðabirgðalögum. Grænfriðungar voru stöðvaðir í aðgerðunt sinunt á hvalantiðunum nteð lögbannsúrskurði. Undu þeir þvi illa og reyndu að sigla út úr Reykjavíkurhöfn en voru fljóllcga

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.