Dagblaðið - 18.01.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980.
Erlendar
fréttir
8
REUTER
n
Afganistan:
Reka
bandaríska
blaðamenn
Allir bandarískir blaðamenn hafa nú
verið reknir frá Afganistan og eiga að
vera farnir á brott í síðasta lagi í dag.
Um það bil fimmtíu af hinum tvö
hundruð erlendu blaðamönnum sem
eru í landinu eru frá bandarískum fjöl-
miðlum.
Norður-írland:
Sex sprengingar
og þrír létust í lest
— þar af tveir taldir hafa verið skæruliðar í sprengjuflutningum
Þrir féllu og tveir særðust alvarlega
er bensínsprengja sprakk í járn-
brautarlest á mesta annatíma rétt við
Belfast á Norður-írlandi i gær.
Lögreglan telur að tveir þeirra sem
féllu hafi verið skæruliðar í IRA-
írska lýðveldishernum, sem verið hafi
á ferð með sprengjuna, sem ekki hafi
verið ætlað að springa strax.
Í það minnsta sex sprengjur
sprungu viðs vegar um Norður-lrland
í gær og nokkrar jarðsprengjur sem
ætlaðar hafa verið til að granda
brezkum hermönnum fundust áður
en þær ollu neinum fjörtjóni.
Sprengingin í járnbrautarlestinni
varð er hún fór undir brú um það bil
10 km frá miðborg Belfast. Virkaði
hún eins og eldvarpa spýtti logum
sínum um lestarvagninn og fimm-
menningarnir sem féllu eða slösuðust
alvarlega áttu sér litla von um björg-
un. Aðrir farþegar stukku af lestinni
þó hún væri enn á ferð. Sprengjan er
ekki talin ha-fa verið margbrotin. Að-
eins dós fyllt bensíni og siðan
sprengiefnið fest við hana með vír-
vafningi.
Boðnir800 doll-
arar i gullúnsuna
Gullverð fór strax upp í 802 dollara
únsan er markaður opnaði í Hong
Kong í morgun en það er rétt aðeins
hærra verð en var á gullmarkaði í New
York við lokun i gær. Þar var verðið
800 dollarar sléttir, sem er nærri því að
vera jafnvirði 330 þúsunda íslenzkra
króna. Verð í New York fór um stund í
gær upp í 820 dollara fyrir únsuna.
Verðhækkunin varð 70 dollarar á
einum sólarhring í Hong Kong.
Gullverðið er talið endurspegla
áhyggjur alþjóðlegra fjármálaaðila
vegna ástándsins í íran og Afganistan
auk þess sem það bendir á almenna
vantrú á að efnahagsmál heimsins
þróist eðlilega á næstu mánuðum.
Gullverð hefur stigið gífurlega á
undanförnum mánuðum og um 270
dollara á síðustu þrem vikum tæpum.
:S ■■ ;
- .
plÍK:
C :•s-
■
Sovézkur hermaður á verði við eftirlitsstöð við þjóðveg f Afganistan.
Danmörk:
Fundu 107 kg af
hassi á Kastrup
Læknir, forstjóri og vinkona hans
og tveir erlendir menn voru hand-
teknir á Kastrupflugvelli við Kaup-
mannahöfn eftir að 107 kg af hassi
höfðu fundizt þar. Danska fíkniefna-
lögreglan skýrir frá því að þessir
aðilar hafi að undanförnu staðið
fyrir innflutningi á mörg hundruð
kílógrömmum af hassi til Dan-
merkur.
Voru pakkarnir með efninu
merktir nöfnum ýmissa fyrirtækja,
sem ekki voru til í raunveruleikanum.
Að sögn lögreglunnar hefur læknir-
inn verið sá sem fjármagnað hefur
viðskiptin en forstjórinn hins vegar
verið tengiliður við hina erlendu
menn tvo, en það er skozkur flug-
maður og enskur samstarfsmaður
hans.
Fylgzt hefur verið með smygl-
hringnum í rúmlega ár en grunsemdir
vöknuðu er pakki með 100 kg af
hassi fannst í flughöfninni í Beirút.
Var hann áritaður til Danmerkur.
Hefur verið mjög mikil vinna að
finna út kerfi hinna fölsku heimilis-
fanga. Skozki flugmaðurinn er talinn
helzti atvinnumaðurinn af fimm-
menningunum en vinkona forstjór-
ans hins vegar sögð hafa komið lítið
við sögu málsins. Flugmanninn segja
dönsk yfirvöld vera atvinnu fíkni-
efnasmyglara með góð tengsl í grein-
inni. Munu þau meðal annarra vera í
Libanon en þaðan komið mest af
hassinu til Danmerkur en þó með við-
komu i London.
Rannsóknastyrkir EMBO
í sameindairffræði
Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology Organi-
/ation, EMBO) hafa i hyggju að styrkja vísindamenn sem starfa i Evrópu
og ísrael. Styrkirnir eru veittir bæði til skamms tima (1 til 12 vikna) og
lengri dvalar, og er þeim ætlað að efla rannsóknasamvinnu og verklega
framhaldsmenntun i sameindaliffræði.
Skammtimastyrkjum er ætlað að kosta dvöl manna á erlendum rann-
sóknastofum við tilraunasamvinnu, einkum þegar þörf verður fyrir siíkt
samstarf með litlum fyrirvara. Langdvalarstyrkir eru veittir til allt að eins
árs í senn, en umsóknir um endurnýjun styrks til eins árs i viðbót koma
einnig til álita. Umsækjendur um langdvalarstyrki verða að hafa lokið
doktorsprófi. Umsóknir um styrki til dvalar utan Evrópu og ísraels koma
til álita, en þær njóta minni forgangs. í báðum tilvikum eru auk dvalar-
styrkja greidd fargjöld styrkþega milli landa.
Umsóknareyðublöð og nánari uppiýsingar fást hjá dr. J. Tooze, Exe-
cutive Secretary, European Molecular Biology Organization, 69 Heidel-
berg 1, Postfach 1022.40, Vestur-Þýskalandi.
Umsóknir um skammtimastyrki má senda hvenær sem er, og er ákvörðun
um úthlutun tekin fljótlega eftir móttöku umsókna. Langdvalarstyrkjum
er úthlutað tvisvar á ári. Fyrri úthlutun fer fram 30. april, og verða um-
sóknir að hafa borist fyrir 20. febrúar, en síðari úthlutun fer fram 31.
október, og verða umsóknir að hafa borist fyrir 31. ágúst.
A árinu 1980 efnir EMBO einnig til námskeiða og vinnuhópa á ýmsum
sviðum sameindalíffræði. Skrá um fyrirhuguð námskcið og vinnuhópa er
fyrir hendi í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið,
15. janúar 1980.
—r^ Smurbrauðstofqn
BJORNINN
NjáUgötu 49 — Simi 15105
Nýkomið
FYRIR BÖRNIN
BAÐBORÐ
KR. 31.270.
Glitbrá
LAUGAVEGUR 70* S00660.
\UTUR:GULT, RAUTT
VERDKR. 12.950,-
KLÆÐABORÐ
KR. 51.840.-
GÖNGUGR/ND
VERD KR. 14.800.-