Dagblaðið - 19.01.1980, Page 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1980.
13
Ölafur marg-
faldarallt
„Það er ekki að spyrja að Ólafi
Ragnari. Allt sem hann kemur ná-
lægt margfaldast. Þegar aðrir flokk-
ar skila efnahagsstillögum upp á
nokkrar línur skrifar hann heila bðk
fyrir hönd bandalagsins. Og honum
dugar ekki minna en tviburar þegar
barneignir eru annars vegar,” varð
þingmanni að orði er hann fletti i
gegnum 30 síðna efnahagstillögur
Alþýðubandalagsins í stjórnarmynd-
unarviðræðunum. Ólafi Ragnari var
kenndur sá krógi snarlega.
Bara þjóðina
Einn gárunginn vék þessu
blaðsmönnum i gær: „Nú er illa
komið fyrir vini mínum, Albert.
Guðlaugur hefur alla menntamenn-
ina og Pétur alla embættismennina.
Albert verður því aö láta sér nægja
þjóðina!”
Engan kassa
í vasann
Tollverðir láta einskis ófreistað til
að hrista af sér spillingarorðróminn,
sem fylgdi í kjölfar .flösku í vasann’
málsins. Fyrir jólin héldu þeir árs-
hátíð og hefur dómsmálaráðuneytið
ávallt gefið kassa af áfengi til
hátíðarhaldanna. Tollverðir ákváðu
hins vegar að þiggja hann ekki nú. Þá
var bögglauppboð á staðnum og enn
gættu tollverðir sín á að vera ekki
með erlent góss, sem skæðar tungur
kynnu að álíta upptækt, því i flestum
bögglunum voru íslenzkar Vilkó-
súpur.
Beðið eftir presti
Þessi gekk staflaust á göngum Al-
þingis á fimmtudaginn:
Skötuhjú ein, Samúel og Jónína,
sem komin voru til himna, felldu
hugi saman. Þau vildu þó ekki byrja
að auka kyn sitt fyrr en þau hefðu
verið gefin saman. Þau lögðu þvi leið
sina til Sátta-Péturs og óskuðu eftir
því að hann gifti þau.
„Nei, það er ekki hægt,” svaraði
Péturspaklega.
Hjúin vildu fá skýringu.
,,Jú, það er sko þannig,” sagði
lyklavörðurinn, ,,að ég er búinn að
bíða öldum saman eftir þvi að hingað
kæmi prestur. En það kemur bara
enginn.”
Kvikmyndun Óðals feðranna er lokið:
KLIPPUM TVÆR TIL ÞRJÁR
Ein bezta silfurverzlun Dana, Georg Jensen:
Jakob Magnússon og hljómsvett hans á útíhljómleikum i Los Angeies i
nóvember skfastiiðnum. Svo sem sjá má er veðurfar nokkuð ólíkt því
sem við þekkjum hér á iandi i nóvember. Áheyrendur sitja lóttklæddir á
jörðinni. Jakob er lengst til vinstri á myndinni.
Flug-leiðir?
MÍNUTUR Á HVERJUM DEGI
— segirHrafnGunnlaugsson,leikstjóri myndarinnar, sem verður tilbúin
tilsýningaímarz
„Við verðum næstu sex vikurnar
að klippa myndina. Ætli við náum
ekki að vinna tvær til þrjár mínútur á
dag,” sagði Hrafn Gunnlaugsson er
Dagblaðið kom við hjá honum á
fimmtudaginn. Kvikmyndun Óðals
feðranna lauk um síðustu helgi og
strax á mánudaginn hófst klippivinn-
an.
„Það má reikna með þvi að mynd-
in verði tilbúin til frumsýningar í lok
marz,” sagði Hrafn. ,,Ef okkur
finnst markaðurinn vera ofhlaðinn
islenzkum kvikmyndum þá, bíðum
við með hana fram á haustið.”
Kvikmyndun Óðals feðranna hefur
staðið yfir siðan síðastliðið sumar,
með hléum þó. Verkið er á undan
áætlun frekar en hitt.
„Við tókum um níutíu prósent
myndarinnar uppi i Borgarfirði
siðastliðið sumar,” sagði Hrafn.
„Erfiðast við þetta allt saman var að
setja sig í réttar stellingar aftur eftir
hléið sem við tókum okkur í haust og
taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið.”
Hrafn Gunniaugsson ásamt mönnum sinum við kiippingu Óðals feðranna. Að þvi toknu hefst hljóðsetning, þá
mixing og ktks verður gertprufueintak. DB-mynd: Hörður Viihjáimsson.
Óðal feðranna verður um niutíu til
hundrað mínútur að lengd. Alls var
þó tekið upp efni sem spannar um
þrjár klukkustundir. Það þarf þvi að
klippa það verulega niður.
Með aðalhlutverk í myndinni fara
Hólmfríður Þórhallsdóttir og Jakob
Þór Einarsson. Alls eru um fjörutíu
leikarar í myndinni og ótölulegur
fjöldi statista. Enginn leikaranna
hefur fagið að atvinnu.
„Fólk hefur verið okkur ótrúlega
hjálplegt við gerð myndarinnar,”
sagði Hrafn Gunnlaugsson. „Til
dæmis fylltum við rútu með fólki,
sem var í sumarfríinu sinu í Húsa-
felli, og héldum því I rútunni i heilan
dag. Það voru sumir orðnir anzi
skrítnir á svipinn þegar myndatök-
unni lauk þann daginn.”
Um tíu manna starfslið vinnur að
gerð Óðals feðranna, þegar leikarar
eru frátaldir. Til myndatökunnar
fékkst fimm milljón króna styrkur úr
Kvikmyndasjóði, sem nægði fyrir
hráfilmunni. Leikararnir féllust allir
á að bíða með að fá laun sín greidd
þar til myndin yrði sýnd og færi að
gefa eitthvað af sér.
Jakob Magnússon
byrjar senn ú nýrri
hljómplötu sinni
Nýrri skýringu á nafninu Flugleiðir
var gaukað til okkar:
„Á hægan bata hætt’ að trúa,
heldur lítil þáttaskil.
Orðnir leiðir á að fljúga
eins og nafnið bendir til.”
Jakob Magnússon tónlistarmaður,
sem starfar i Los Angeles, byrjar á
næstu plötu sinni eftir nokkrar vikur,
i marzbyrjun. Áður en af því getur
orðið þarf hann og hljómsveit hans
að leika á hljómleikum á nokkrum
stöðum í Bandarikjunum, þar á
meðal í Washingtonríki og Arizona.
Jakob dvaldi hér á landi um jól og
áramót ásamt konu sinni, Önnu
Björns. Dagblaðið ræddi þá stuttlega
við hann um dvöl hans ytra. Jakob
lét vel af sjálfum sér, en sagði að
hljómplötuiðnaðurinn i Bandaríkj-
unum ætti í alvarlegum kröggum um
þessar mundir. Til dæmis hefðu
mörg stærstu útgáfufyrirtækin orðið
að segja upp stórum hluta starfs-
manna sinna, þar á meðal Warner
Brothers, sem hann er á samningi
hjá. Einnig eru hljómplötufyrirtækin
mikið til hætt að styrkja hljómleika-
ferðir listamanna sinna og hafa
dregið verulega úr auglýsingakostn-
aði.
„Þessi samdráttur bitnaði talsvert
á plötunni minni, Special Treatment,
sem var alls ekki auglýst nærri því
eins mikið og fyrst hafði verið ráð-
gert,” sagði Jakob.
Hann sagði um næstu plötu sina að
hann myndi nota eins lítið af auka-
hljóðfæraleikurum og hann gæti
frekast komizt af með. ,,Ég ætla að
leyfa hljómsveitinni minni að njóta
sín þess betur,” sagði Jakob. „Fyrir
bragðið verður platan nokkuð hrárri
en Special Treatment, en hún þarf
ekki að verða neitt verri fyrir það.”
Að sögn Jakobs er nýja platan
væntanleg á markað með haustinu.
Útkomu hennar verður fylgt eftir
með hljómleikaferðalagi.
/
Islendingar og Fœrey-
ingor eru meðal kaup-
enda dýrustu gripanna
Silfurverkstæði og -verzlun Georgs
Jensen á Strikinu í Kaupmannahöfn
þykja með þeim beztu í Danmörku.
Margir hlutir, sem þar eru seldir,
þykja svo dýrir að Danir veigra sér
við að kaupa þá.
Þegar fyrirtækið efndi til sýningar
í tilefni 75 ára afmælis síns ræddi
Politiken við forráðamenn fyrir-
tækisins. Þar kom meðal annars
fram að þegar einn aðalsmiður Georg
Jensen verkstæðisins, Henning
Koppel að nafni, efndi til sýningar á
verkum sinum kom Simon Spies
ferðaskrifstofukóngur og keypti
nokkra dýrustu hlutina. Annars
kváðu forráðamennirnir það orðið
næsta sjaldgæft að Danir fjárfestu í
munum Koppels. Kaupendumir
væru flestir erlendir. Til dæmis væru
Færeyingar og íslendingar duglegir
við að verzla.
Sem dæmi var tekið að nýjasti dýri
silfurmunurinn, sem Henning
Koppel smíðaði, hefði verið seldur ís-
lendingi. Kaupverð hans var 50.000
danskar krónur eða um 3,7 milljónir
íslenzkra króna.
Umboðsmaður Georgs Jensen á
Islandi er Wilhelm Norðfjörð, um-
boðs- og heildverzlun. Hjá því fyrir-
tæki var mönnum ekki kunnugt hver
kaupandi þessa dýra silfurgrips hefði
verið.
FÓLK
Flcira ,
F0LK