Dagblaðið - 30.01.1980, Blaðsíða 1
frjálst,
úháð
dasblað
t
Bjómúrinn brostinn:
Nú mega allir fíytja
bjórkassa tíl landsins
— fjármálaráðherra gefur út nýja reglugerð um áfengisinnfíutning ferðamanna
Fjármálaráðherra hyggsl í dag
gefa út nýja reglugerð um innflutning
ferðamanna á áfengum drykkjum —
i þá veru að framvegis geti ferðamenn
komið með tólf flöskur af áfengum
bjór jafnframt heilflösku af sterku á-
fengi til landsins. Verða þar með af-
numin umdeild forréttindi farmanna,
sem hingað til hafa einir fengið að
neyta bjórs á löglegan hátt i landinu.
DBhefurþetta eftir áreiðanlegum
heimildum í morgun, en ekki var þá
endanlega Ijóst hvort reglugerðin
yrði gefin út í dag eða á morgun —
það veltur á gangi stjórnarmyndunar-
viðrœðna, sem Sighvatur Björgvins-
son fjármálaráðherra tekur þátt i.
Ekki tókst í morgun að ná
sambandi við fjármálaráðherra og
Höskuldur Jónsson, ráðuneytissljóri
i fjármálaráðuneytinu, sagðist ekki
geta staðfest upplýsingar blaðsins.
L.íklegt er að nýleg tilraun Daviðs
Scheving Thorsteinssonar iðnrek-
anda til að koma bjórkassa, sem
hann keypti i fríhöfninni i Keflavik i
gegnum tollgæzluna þar, hafi haft
áhrif á samningu hinnar nýju reglu-
gerðar.
„Reynist þetta rétt, er ég
auðvitað harðánægðtir með það,”
sagði Davið i samtali við fréttamann
DB i morgun. ,,F.g er ekki ánægður
l'yrir mina hönd, heldur allrar
þjóðarinnar með að þessu ranglæti sé
afJétt.#Það má þvi segja að réttlætið
hafi sigrað,” sagði Davíð Scheving
Thorstcinsson.
-OV.
6. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 30. JAN. 1980. — 25. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAROG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI Il.-AÐALSÍMl 27022.
skoðunarinnar
Uppskipun undir lögregluvemd
— sprengiefni skipað upp úr Selá
„Það er orðin hefð, að þegar eldfimu efni er skipað upp er slökkviliðið viðstatt og
lögreglan fylgir efninu slðan frá skipi, ” sagði Friðfinnur Guðjónsson, verkstjóri hjá Ekki var um mikið magn að rœða, en rétt þótti aðfara að öllu með gát. Sprengiefnið
I morgun var unnið við að skipa sprengiefni upp úr Selá, einu af skipum Hafskips.
Hafskipi I samtali viðDB.
er handa Ólafi Glslasyni, verktaka.
GAJ/DB-myndSveinn Þorm.
Stjórnarmyndun:
KEMUR ÓU JÓH.
UPP ÚR KAFINU?
I útspilum framsóknarmanna sið-
ustu daga hafa sumir þingmenn
þeirra í viðræðum við menn annarra
flokka nefnt, að Steingrimur Her-
mannsson þurfi ckki endilega að
verða forsætisráðherra, þótt
Framsókn yrði í stjórn. Þetta helur
einkum komið upp i umræðum um
„Stefaniu”, stjórn Sjálfstæðis-,
Framsóknar- og Alþýðuflokks.
Framsóknarmenn vilja þó fá for-
sætisráðherrann og hafa nefnt, að
„gamli maðurinn”, Ólafur Jóhann-
esson, gæti valdið því hlutverki.
Mætti enn sem fyrr kveðja hann til
sem sameiningartákn í rikisstjórn,
sem kannski væri talsvert ósamstæð
ella. Einnig hafa þeir nefnt Jón
Helgason, forseta Sameinaðs þings,
sem forsætisráðherraefni. Vitna þeir
til þess, að Steingrímur Steinþórsson
hafi á sinum tíma verið þingforseti,
þegar hann var gerður forsætisráð-
herra í samstjóm Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokks en gengið fram
hjá formönnum flokkanna. -HH
Aðgerð verkamanna á Keflavíkur-
flugvelli ber árangur:
Sovézku vélinni synj-
að um lendingaríeyfi
„Utanríkisráðuneytið hefur til-
kynnt sovézkum stjórnvöldum að
ekki sé unnt að veita leyfi til lending-
ar sovézku vélarinnar. Synjunin var
sjálfgert mál eftir að verkamenn á
Keflavíkurflugvelli settu sovézkar
flugvélar í afgreiðslubann,” sagði
Benedikt Gröndal forsætis- og utan-
ríkisráðherra i morgun.
„Við fréttum fyrsl um málið er
íslenzka sendiráðinu i Moskvu barsl
beiðni um landvistarleyfi fyrir áhöfn
vélarinnar. Næst barst okkur beiðni
um lendingarleyfi frá sovézka sendi-
ráðinu i Reykjavík.”
Sovézka flugvélin, sem beðið var
um leyfi fyrir, er af gerðinni llyushin
II-76T. Áfangastaðurinn er Kúba.
Vélar þessarar gcrðar voru notaðar i
innrásinni í Afganistan. -ARH
ítarlega er fjallað
um hinar ýmsu
hliðar málsins
á bls. 8-9
Heimdeilingar
og marx-lenín-
istar mótmæla
hlið við hlið
innrás í
Afganistan
— sjá bls. 9
Loks byrjað að
snjóa
í Lake Placid
— sjá erl. fréttir
á bls. 6-7
Húsgamlinginn
af Akranesi
óvelkominn
gestur í
Reykjavík
- borgarráð synjaði
beiðni um lóð og
stendur húsið nú
á bráðabirgðalóð
— sjá bls. 5
Eiga bifreiða-
verkstæðin að
taka við hluta
bifreiða-