Dagblaðið - 06.02.1980, Síða 5

Dagblaðið - 06.02.1980, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980. 5 HRAFNINN Regnboginn. Kvikmyndahátífl: Hrafninn (Cria Cuervos). Leikstjóri og höfundur handrits: Carios Saura. Aðalhlutverk: Geraldine Chaplin og Ana Torrent. „Börn hafa ekki sömu tilfinningu fyrir dauðanum og fullorðnir. Ég held að fyrir barn, a.m.k. fyrir stúlk- una Önu, sé dauðinn frekar óhapp en að manneskja sé fullkomlega horfin. í augum Önu er móðirin ekki dáin; hún er aðeins horfin og getur hvenær sem er birst á ný.” Eitthvað á þessa leið hefur leik- stjóra Hrafnsins, Carlos Saura, mælst. Og þetta er einmitt meginvið- fangsefni myndarinnar, einkaveröld lítillar stúlKu sem misst hefur móður sína en neitar að sætta sig við það. Myndin segir frá þessari telpu, Önu, sem býr með systrum sinum tveimur í stóru húsi í Madrid. Foreldrar þeirra eru báðir látnir og þær eru nú i umsjá móðursystur sinnar sem virkar frekar sem e.k. ntóralskur fangavörður en sem upp- alandi. Nútíð myndarinnar er líf barnsins eftir dauða foreldranna en hvað eftir annað er skipt yfir i hið liðna, þegar foreldrarnir voru lifandi. Sérkennilegt andrúmsloft Einnig er skotið inn í atriðum þar sem Ana, þá orðin fullorðin kona, er að tjá þau áhrif sem þessi atvik úr bernskunni höfðu á hana. Það ætti þá kannski að teljast hin eiginlega nútið. Svo er þó ekki því öll efnis- bygging myndarinnar miðast við líf litlu stúlkunnar Önu sem miðpunkt. Því verka þau atriði þar sem mynda- vélinni er beint að andliti Önu full- orðinnar frekar sem framtíðarsýn. Svona hrá endursögn á þeim „tírna- stökkum” sem eiga sér stað i mynd- inni gerir það kannski að verkum að myndin verður lítt áhugaverð. Svo er þó ekki raunin, hið sérkennilega and- rúmsloft sem ríkir í myndinni nærist ;V Kvik myndir Ingótfur Hjörleifsson •einmitt á þessu. Þarna kemur einnig til skjalanna hið frjóa ímyndunarafl Önu. Er það aðeins ímyndun (óskhyggja) Önu að hún hafi byrlað föður sínum eitur vegna þess kulda sem hann sýndi móður hennar? I Geraldine Chaplin og Ana Torrenl. Heillaður Spurningum sem þessum fær áhorfandinn að velta fyrir sér og ákveða sjálfur. Þeir sem sáu „And- ann í býflugnabúinu” sem sýnd var í Fjalakettinum i fyrra, niuna líklega eftir hinni heillandi Önu Torrent sem svipað var ástatt fyrir og Önu litlu í þessari mynd Saura. Ana Torrent er, að sögn Saura, sá innblástur sem fékk hann til að koma saman efni i |iessa mynd. Hann sá hana einmitt i ,,And- anum í býflugnabúinu” og varð strax heillaður. Enda ber þessi litla stúlka eitthvað með sér, eitthvert yfirbragð, sem leiðir alla myndina og skapar það persónulega andrúmsloft sem heldur myndinni uppi • Bjarni Jakobsson formaður Iðju. Bjami Jakobsson formaður Iðju: Bréf alþjóðlegu verkalýðssamtak- anna var að berast ,,Ég hef ekkert heyrt um málið fyrr en nú,” sagði Bjarni Jakobsson formaður Iðju. „Mér var að berast bréf um þetta Coca Cola mál í Guate- mala frá alþjóðlegu verkalýðssam- tökunum. Það bréf er dagsett i Genf I. febrúar sl.” í þessu bréfi er greint frá fundi verkalýðssamtakanna og Coca Cola verksmiðjanna, þar sem verksntiðj- urnar neituðu að taka framleiðslu- leyfið af framleiðslufyrirtæki Coca Cola í Guatemala. Ekki mun ætlunin að endurnýja framleiðsluleyfið sem rennur út i september 1981. Verka; lýðsfélögin telja sig ekki geta sam- þykkt svo langan frest, þar sent lil' verkamanna séu i hætlu. Öll sambönd i alþjóðlegu verka- lýðssamtökunum eru hvölt til þess að standa við bakið á verkamönnunum í Guatemala gegn verksmiðjum Coca Cola. - JH Pétur Bjömsson, forstjóri Vífitfells hf.: Framleidslu- og sölubann á kóka kóla: Beiðnin komin til íslands! Krafa alþjóðasambands starfsfólks í matvælaiðnaði um að bannað verði að framleiða, selja og dreifa kóka kóla i þeim fimmtiu og átta rikjum sem eru i sambandinu er komin hingað til lands. Auk þess hafa aðilar málsins haft af því nokkrar fregnir. Ástæðan fyrir þessari kröfu, sem sagt var frá í DB í gær, er sú að al- þjóðasamtökin telja að tveir verka- lýðsleiðtogar hafi verið myrtir að undirlagi ráðamanna kóka kóla fyrir- tækisins í Mið-Ameríkurikinu Guate- mala. Var þá gerð sú krafa að sá aðili yrði sviptur framleiðsluleyfi á kóka kóla. Ekki vildu hinir bandarisku eig- endur framleiðsluréttarins fallast á það að fullu. Af þessari ástæðu vill stjórn alþjóðasambands starfsfólks i matvælaiðnaði (International Union Of Food And Allied Workers) stöðva framleiðslu og sölu á drykknum. Sjá eftirfarandi viðtöl. - ÓG Úr kókverksmiðjunni islenzku: Verflur nú stöðvuð öll framleiðsla og dreifing á kóki hér vegna stjórnmáladeilna f Guate- mala? DB-mynd: Hörður. Ásmundur Stefánsson, framkvæmdastjórí Alþýðusambandsins: „KANNAST VIÐ MÁUÐ EN EKKERT KOMID HL OKKAR” Ásmundur Stefánsson fram- kvæmdastjóri Alþýðusambands ís- lands sagðist kannast litillega við þetta mál. Ekki hefði þó komið neitt skriflegt um það frá alþjóðasamtök- um, sem Alþýðusambandið væri þátttakandi í. Átti Ásmundur frekar von á að kröfur um hugsanlega stöðvun framleiðslu og sölu á kóka kóla mundu frekar koma til kasta sérsambanda. Hann sagðist hafa haft fregnir af deilum fyrirtækja kóka kóla á nokkr- um stöðum i Suður- og Mið-Ameríku við verkalýðssamtök viðkomandi landa. Hefði þar gengið á ýmsu. Ásmundur Stefánsson sagði að lokum að vel gæti verið að þetta mál vegna verkalýðsforingjanna i Guate- mala yrði tekið upp á fundi nor- rænna verkalýðsleiðtoga, sem hald- inn yrði í Kaupmannahöfn ivikunni Þann fund sækja fyrir íslands hönd þeir Snorri Jónsson forseti ASÍ og Óskar Hallgrímsson í stjórn þess. - ÓG „Veit ekki betur en málið sé leyst” „Ég frétti af kröfu um sölustöðvun á kóka kóla í Svíþjóð á mánudaginn var en ég vissi ekki annað en það mál hefði verið leyst þá um daginn,” sagði Pétur Björnsson framkvæmda- stjóri Vifilfells hf., sem framleiðir og hefur umboð fyrir Coca Cola fyrir- tækiðhérá landi. Samkvæmt þeim fregnum sem Pétur hafði frá fulltrúum Coca Cola í Svíþjóð var leitað frekari upplýsinga um mál þetta, þar sem lögfræðingar verkalýðssamtakanna þar i landi töldu ekki nægar upplýsingar liggja fyrir til að ákveða framleiðslu- og sölubann á eina vörutegund. Að sögn Péturs Björnssonar barst síðan skeyti frá Atlanta í Bandaríkj- unum þar sem höfuðstöðvar Coca Cola fyrirtækisins eru. Þar sagði að sá aðili sem krafizt væri að sviptur væri framleiðsluréttindum í Guate- mala væri hættur. Hefði sú uppsögn að vísu orðið að hafa eðlilegan tíma til aðganga í gildi. í skeytinu frá Atlanta til fulltrúa Coca Cola í Svíþjóð var sérstaklega tekið fram að framleiðsluleyfið hefði Pétur Björnsson forstjóri Kók á íslandi: Áherzla lögð á að blanda stjórnmáladeilum ekki inn í starf- semin. ekki einvörðungu verið tekið af um- ræddum aðila í Guatcmala vegna kröfu verkalýðssamtaka. Þar hefðu einnig legið aðrar ástæður að baki. Pétur Björnsson itrekaði að lokum að mikil áherzla væri lögð á það af hálfu hins bandariska Coca Cola fyrirtækis að umboðsmenn þeirra um heiminn blönduðu stjómmáladeilum á engan hátt inn í starfsemi fyrir- tækjasinna. -ÓG

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.