Dagblaðið - 06.02.1980, Page 11

Dagblaðið - 06.02.1980, Page 11
II DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980. þegar ýmis mál eru tekin upp á segul- band til síðari nota eða þá við réttar- höld. Reynslan hefur sýnt að Christopher hefur mun meiri hæfi- leika til að nema orð og hljóð í umhverfi þar sem mikill hávaði er en annað fólk. Einnig hefur vaknað mikill áhugi á að ráða fleira blint fólk til lögreglunnar til að sjá um vélritun upp af segulböndum og annað sem það er hæfara til að framkvæma en þeir sem sjáandi eru. Sjálfur segir blindi lögreglumaðurinn að hann sé viss um að fleiri eigi eftir að feta í fót- spor hans. Þeir geti eins og hann þroskað sérhæfileika sína frekar til að vinna upp á móti missi sjónarinn- ar. Það er ekki aðeins heyrnin sem verður Christopher að liði. Hann þekkir ýmsa staði af lyktinni. Ef hann fer úr á rangri hæð í blokkinni þar sem hann býr finnur hann það af lyktinni á ganginum og einnig af áferðinni á gólfteppinu. Á veitinga- húsum segist hann auðveldlega geta tekið þátt í samræðum sem fari fram við borðið sem hann situr við en jafn- framt hlustað á samræður sem fari fram við borð sem sé í nokkurra metra fjarlægð. Hann segist vera hættur að reyna að rata umhverfis vinnustað sinn með þvi að telja skrefin. Nú miðar hann við einhvers konar hljóðbylgjur sem hann nemur frá byggingum og öðrum föstum hlutum. Samstarfsmenn Christoph- ers segja að hann geti sagt til um það hvort dyr séu opnar eða lokaðar áður en hann kemur að þeim. „Aðeins ein- föld kunnátta á hljóðbylgjunum,” segir hann sjálfur. Christopher Chamberlain missti sjónina algjörlega fyrir tólf árum af völdum glákusjúkdóms. Þrátt fyrir sauð, spann, prjónaði, þvoði, mjólkaði — og grét í laumi á bak við brekánið, ef tími gafst til? Hvernig skyldi húslestur bóndans hafa gengið í lélegri birtu baðstof- unnar? Eða var kannski enginn hús- bóndi til staðar — varð hann úti í mannskaðaveðrinu mikla við að bjarga fénu í hús? Eða var bóndinn af bæ að gamna sér með griðkonu Jóns bónda í Nesi? Hafi húsbóndinn verið á sínum stað hefur honum vart gengið of vel við lesturinn. Hann hefur verið útkeyrður af vatnsburði og gegningum í vosbúð og kulda. Trúlega hafa áhyggjur af heyleysi og afkomu heimilisins þrúgað sálarlíf hans. Hvernig skyldi líðan gamalmenna og aumingja hafa verið í einangrun baðstofunnar? Meðalaldur var ekki hár og þarf síst að undra. Heil- brigðisþjónusta var engin nema sú sem heimilin sjálf gátu veitt en væntanlega hafa þau ekki öll verið aflögufær á því sviði. Oft hefur þvi eina lausnin verið sú að láta gamal- mennin dveljast í baðstofunni og ef þau voru ekki því krepptari af gigt gátu þau nuddað við prjóna eða rokk. Tími heimilisfólksins til að sinna þeim var af skornum skammti og þvt urðu börnin helstu viðræðufélagar þessara gamalmenna. Eins má nærri geta að önnum kafnir foreldrar hafa heldur ekki haft tíma fyrir börnin og hafa þá elsta og yngsta kynslóðin mæst í gagnkvæmri þörf fyrir sam- veru. Sterkustu félagsmótunar og upp- eldisaðilar hjá baðstofubörnunum voru því karlæg gamalmennin og öll þekkjum við gömlu, góðu goðsögn- ina „amrna raular við rokkinn” og „amma, segðu mér sögu”. Og hver var sú mótun og menningararfleifð sem baðstofubörnin tóku við? Þau óluSt upp í kyrrstæðu bændaþjóð- félagi um aldamótin. Þau kynntust sjálfsþurftarbúskap þar sem hver fjölskylda var ekki aðeins neysluein- ing heldur einnig sjálfstæð fram- leiðslueining. Til þess að fjölskyldan það hefur hann lokið próft úr fram- haldsskóla (High School) og siðan einu ári í háskóla (samsvarar líklega nokkurn veginn til stúdentsprófs hér, á landi). Hann er einnig orðinn sér- fræðingur í að fara með kajaka. Hann býr einn í íbúð sinni rétt við neðanjarðarjárnbrautarstöðina. Þar hefur hann hjá sér rúmlega sex hundruð hljómplötur og mikinn fjölda af tónböndum. Hann geymir þetta i stafrófsröð. Hann tók íbúðina á leigu eftir að hann var fastráðinn í lögreglulið Ontarioborgar í ágúst síðastliðnum. Hann fer einn úr og í vinnu og notar þá bæði neðanjarðarbrautina og strætisvagn. Fyrst þegar hann fór þessar ferðir fylgdust aðrir lögreglu- menn með honum úr fjarlægð en þeir voru fljótir að komast að raun um að slíkt var mesti óþarfi. Venjulegt fólk svipast um til beggja handa þegar það ætlar yfir götu og gáir hvort óhætt sé vegna umferðarinnar að fara yfir götuna. Christopher heyrir alveg örugglega hvort akbrautin er auð eða ekki. Lögreglumaðurinn blindi hefur fengið ýmis sérhönnuð tæki til aðstoðar við vinnu sína. Einu tækj- anna getur hann til dæmis beint að sjónvarpsskjá og þá breytast staf- irnir þar í hljóð sem hann vélritar síðan á blað. Annað tæki gerir honum kleift að skilja það sem hann hefur vélritað á blað. Talið er að sex mínútna samtal á segulbandi taki venjulegan vélritara um það bil níutiu minútur að koma niður á blað. Christopher hefur hins vegar náð því að ganga frá slíku sam- tali á um það bil sextiu og sex mínútum að meðaltali. Ekki er hraðinn ávallt þó svo mik- ill, því eftir því sem fleiri uppgötva hina sérstöku hæfileika Christophers til að nema ógreinileg hljóð af segul- böndum berast honum sífellt fleiri erfið verkefni. „Það hefur komið fyrir að ég hef verið allt að þrjár klukkustundir að skilja eina málsgrein eða jafnvel eina linu af segulbandsupptökunni. Stundum verð ég svo þreyttur á að hlusta að ég verð að hætta og hvíla mig. Hins vegar er það líka mikil feginstilfinning sem grípur mig þegar mér hefur tekizt að leysa erfitt verk af hendi. AF ÖU.. 0GMEIRA0U Það veit áreiðanlega hvert manns- barn á Fróni hvar Davíð keypti ölið. Eftir mikið málastapp og umræður fann'st lagakrókur í kerfinu þar sem Davíð var stætt á því að koma með bjórkassann sinn inn í landið og hefur áreiðanlega rennt innihaldinu niður með óblandinni ánægju. Þetta er bindindismönnum auð- vitað mikill þyrnir í augum og.senni- lega missir Alþýðuflokkurinn at- kvæði þeirra í næstu kosningum en hann græðir bara því meira hjá bjór- unnendum. Þetta er stórsigur Davíðs á kerfis- körlunum og allt er þetta nú gott og blessað. Það er bara einn stór galli á gjöf Njarðar: Hvers eiga fátækling- arnir að gjalda sem ekki geta brugðið sér út fyfir pollinn svo sem eins og fjórum til fimm sinnum á ári til að ná sér í birgðir af þessum eftirsóttu guðaveigum? Eiga þeir bara að vera áhorfendur að þessari iðju forrétt- indahópanna við bjórdrykkjuna? Verða þeir enn að láta sér nægja mis- munandi mislukkað heimabrugg sem ;auðvitað má ekki fara yfir 2%-laga- bókstaf sem enginn fer eftir? Alls staðar er hægt að fá ýmsar tegundir af bjór og alls konar léttvínum en þolinmæðinni við bruggunina er stundum dálítið ábótavant. Ég geri það eindregið að tillögu minni, og ég veit að margir eru mér hjartanlega sammála, að við fáum að drekka okkar Egil sterka rétt eins og sendiráðsmenn. Með því styrkjum við íslenzkan iðnað og gætum meira að segja farið að flytja Egil út því Kjallarinn Erna V. Ingólfsdóttir vatnið á tslandi er hreinasta afbragð og trúi ég ekki öðru en Egill gæti átt mikla framtíð fyrir sér í útlandinu. Allt sterkt — en bjór? Eiginlega ríkir hið furðulegasta ástand hérna á þessum hjara verald- ar; við megum drekka allt sem sterkt ér, ásamt léttvínum. Hið létta öl má jhins vegar alls ekki smakka. Mig jskortir rök til skilnings á þessu. Út af öllu þessu bjórtali kom í Ijós að þeir í fríhöfninni i Keflavik eru nokkuð vel undirbúnir með sölu og hafa, að því er jreir telja, nægar birgðir til þess að fullnægja eftir- spum. Það er bara vonandi að bindindismenn fái ekki svo fyrir hjartað að stjórnvöld sjái sitt óvænna ög hætti við ölsöluleyfið til að afstýra hjartaslagi hjá hinni mætu bindindis- hreyfingu. Þá kom einnig í ljós að bjórinn í fríhöfninni kostar um 200 kall flaskan og við verðum að borga 210 kr. fyrir óáfengan pilsner. Ekki ætti pilsnerinn að hækka að neinu ráði þótt ofurlítilli sykurlús yrði bætt í bruggunina. Það sama ætti að ganga yfir landsmenn í sambandi við marg- nefndan bjór. Það ætti ekki að þurfa ,að komast rétt út fyrir landsteinana 'tilþesseinsaðfá’ann. Þá er enn eitt sem algjörlega vantar í menningarlífið hjá okkur: fáeinar huggulegar bjórstofur. Þar gætu menn komið saman og rætt um landsins gagn og nauðsynjar í staðinn fyrir að krunka saman hver í sinu horni, sem er allt of títt meðal okkar íslendinga. Svei mér ef þetta þekkist nokkurs staðar í hinum vestræna heimi nema hér. Við yrðum kannski minna spéhræddir fyrir bragðið. Þingmenn yrðu kannski léttir í lund Já, og annað, það gæti bara farið 'svo að þingmennirnir okkar yrðu svo léttir á brúnina að stjórn yrði mynd- uð og fæðingarhriðirnar yrðu til muna auðveldari i framtíðinni. Svona í lokin: Nú þurfum við bara að fá fleiri Daviða og gá i fleiri doðranta í frumskógi islenzkra laga og sjá hvort okkur, litla fólkinu i þjóðfélaginu, sé ekki stætt á, svona 'rétt eins og hinum, að fá okkur einn Egil sterka á kr. 210 flöskuna. Það myndi að minnsta kosti létta okkur skammdegið. Erna V. Ingólfsdóttir. ,,Við eigum að fá að drekka Egil sterka rétt eins og sendiráðsmenn. . gæti skilað sínu hlutverki í stöðugri baráttu við óblíð náttúruöflin varð fyrsta, annað og þriðja boðorðið að vera vinna og aftur vinna. Fleiri þættir komu þó til en segja má að mikilvægustu menningarþætt- irnir, sem síðustu baðstofubörnin hlutu í arf, hafi verið vinna, nægju- söm mótmælendatrú og eignahvöt. Vinnan var sjálfsögð forsenda þess að geta tórt og sennilega var eigna- hvötin sprottin af sama stofni. Hún var jafnnauðsynleg og lífshvötin því eignir voru hið eina sem gat tryggt fjölskyldunni öryggi hvað viðvék af- komu' einstaklinganna allt frá fæðingu til lokadags. öryggið var mælt í jarðarskikum, torfkofum og rollum. Til að öðlast fyrrnefnt öryggi þurfti öll fjölskyldan auðvitað að vinna — og vinna mikið. Mótmælendatrúin með sínar aðal- dyggðir, iðni, sparsemi og undir- gefni hefur því fallið vel að lífskjör- um fólksins og ekki spillt fyrir vinnu- þrælkuninni. Þjóðin fylgdist ekki með Upp úr aldamótunum fór hin gamla þjóðfélagsgerð að riða til falls. Einangrun sveitanna rofnar og þétt- býliskjarnar myndast við víkur og voga þar sem sjósókn á stærri bátum er hafin. Afleiðing þess verður aukin verka- skipting og nýjar atvinnugreinar skjóta upp kollinum. Og skyndilega er gamla baðstofan orðin úrelt, hún missti af lestinni þegar iðnvæðingín hélt innreið sína. Ár síðari heimsstyrjaldarinnar urðu vinnusjúkum íslendingum hreint gósenland. Næg vinna handa öllum — bæði dag og nótt. Fjár- magnið flæddi inn i landið og hefur líklega kaffært síðustu baðstofukyn- slóðina og afkomendur hennar sem þá voru upp á sitt besta í vinnu. En þjóðfélagsgerðin tók of örum breytingum til þess að þjóðin gæti fylgst með. Við righöldum enn í það gildismat sem baðstofubörnin arf- leiddu okkur að. Við vinnum til að öðlast öryggi, þ.e. þak yfir höfuðið, en það er ekki nóg, ekki þykir dyggð að minnka við sig vinnu þó öryggið sé fengið. Því höldum við áfram að vinna og vinna fram í rauðan dauðann. Auð- vitað höldum við áfram að fjárfesta í eignum því það er jú óráðsía að eyða peningum i óáþreifanleg gæði. örþreyttir foreldrar Iðnvæðingin átti að hafa það hlut- verk að jafna lífskjörin og létta vinnuálaginu af fólkinu. Hér á tslandi virðist vera langt í að því marki verði náð i raun. Þó að margar konur sæki út á vinnumarkaðinn vegna þeirrar menntunar sem þær hafa aflað sér eru hinar líka margar sem hvorki hafa menntun né fyrirvinnu. Og þess vegna er móðurmyndin farin að vinna ltka. Eins og hún hafi aldrei borið sig til við slíkt áður. Nú er hún farin að taka til hendinni við verð- mætasköpun í markaðsþjóðfélagi og situr ekki lengur með hendur i skauti í baðstofunni og gætir bús og barna. Væri úr vegi að ætla að konur fyrri tima hafi unnið hörðum höndum? Hefur ekki eingöngu vinnustaðurinn breyst þó að forsendur vinnunnar séu enn þær sömu: að tryggja öryggi heimilisins. Hvar skyldu börnin vera sem áður tóku þátt í framleiðslustörfum á heimilinu? Sú framleiðslueining sem fjölskyldan var er sundruð og eftir stendur eingöngu neyslueiningin. Einhvers staðar þurfa börnin að vera á meðan foreldrarnir afla tekna til þátttöku í hinni viðurkenndu neyslu þjóðfélagsins. Hverjir sinna nú því uppeldisstarfi sem áður fór fram innan veggja heimilisins? Geta örþreyttir foreldrár sem koma heim eftir 8—10 stunda vinnudag hugsanlega sinnt því hlut- verki sem skyldi? Þarna koma dagvistarheimilin til skjalanna en hvaða hlutverk er þeim ætlað í nútímaþjóðfélagi? Er ekki orðið tímabært að hætta að sjá stöðugt fyrir hugskotssjónum þessa gömlu baðstofuglansmynd en viður- kennastaðreyndir? Slagorðasöngur Hvaða tilgangi þjónar sá slagorða- söngur sem sunginn er í dag: „kon- urnar aftur inn á heimilin”? Það mun ekki takast að loka þær inni i gylltum búrum þó þær hafi fyrir- vinnu og I eða 2 börn. Þótt við gleymum þeim sjálfsögðu mannrétt- indum kvenna að afla sér menntunar, velja sér sjálfar starf og taka þátt í félagslífi þá er það ekki allt. Hvað í ósköpunum á konan að gera innan veggja heimilisins allan daginn? Er hægt að ætlast tíl jsess að hún gangi á milli heimilistækjanna og ýti á takka allan guðslangan daginn? Við ættum að horfast i augu við samfélagsgerð dagsins í dag og viður- kenna nauðsyn dagvistarheimila. Þá er jáfnframt kominn tími til að hætta að líta á fóstrur sem Ijúflyndar hugsjónamanneskjur sem passa börnin á meðan foreldrarnir vinna úti. Þurfa börn sem eru stærstan hluta dagsins á dagvistarheimilum ekki eitthvað meira en að láta snýta sér og skeina sig? Hvað með undir- búninginn undir lifið sem bíður þeirra? Fóstrur gegna mikilvægu hlutverki hvað uppeldi og félagsmótun á dag- vistarheimilum varðar. Er hin eina, viðurkennda forsenda þess að geta alið upp barn að hafa fætt það af sér? Er fleiri ára menntun í uppeldis- og sálarfræðum til viðbótar starfi á dagvistarheimilum með fjölda ólíkra barna ekki þyngra á metunum? Má ekki ætla að meðvituð vitneskja fóstrunnar um alhliða þroska barna ásamt sérhæfðri aðstöðu dagvistar- heimila gefi betri möguleika til uppeldisfræðilegs starfs? Þarfnast þjóðfélagið ekki vel menntaðs starfsfólks, sem getur með- vitað og markvisst sinnt uppeldi • barna á forskólaaldri? Getum við sætt okkur við að í framtíðinni muni óþroskaðir „fóstruliðar” sem út- skrifast með takmarkaða uppeldis- fræðilega þekkingu úr fjölbraut sjá |um uppeldismótun þeirra sem erfa skulu landið? Við stöndum andspænis þeirri hættu sem framhaldsskólafrum- jvarpið felur i sér. — Er hugsanlegt að |hluti fósturskóla Iandsins verði færður á fjölbrautastig? Getum við lagst svo lágt að lýsa yfir í verki að engu máli skipti hver annist börnin okkar? Slíka litilsvirðingu við yngstu þjóðfélagsþegnana og við uppeldis- starf dagvistarheimila þyrfti að koma í veg fyrir. Verðum við ekki að standa vörð um bætta fóstrumenntun svo börnin okkar fái að njóta þess besta sem dagvistarheimili geta boðið upp á? Fyrir hönd samstarfshóps fóstru- nema, Steinunn Geirdal fóstrunemi

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.