Dagblaðið - 06.02.1980, Síða 24

Dagblaðið - 06.02.1980, Síða 24
Samkomulag um mátefnasamning nýrrar ríkisstjóman FRAMSOKN „BJARGAEH” KEFLAVIKURUTVARPINU — ekki frekari stóriðja „á vegum utlendinga” Framsóknarmenn „björguðu” Keflavíkurútvarpinu í viðræðunum um málefnasamning hinnar nýju rikisstjórnar. Alþýðubandalagsmenn vildu að það yrði sett i lokað kerfi, en það hefur verið hindrað. Málefnasamningurinn má heita kominn saman. Um varnarmál kemur þar lítið fram annað en að áætlun um flugstöðvarbyggingu verði endurskoðuð og unnið verði að atvinnumálaáætlun fyrir Suðurnes. Ágreiningur um stóriðjumál hefur verið afgreiddur með lauslegu orða- lagi. Þar segir, að ekki verði gert ráð fyrir frekari stóriðju ,,á vegum út- lendinga.” Kjaramálin eru einnig afgreidd með lauslegu orðalagi eftir nokkurt þóf. Þar segir, að ríkisstjórnin muni með ýmsum félagslegum aðgerðum beita sér fyrir því, að lausn kjara- samninga verði í samræmi við barátt- una gegn verðbólgu. Kjaramálum verði ekki skipað með lögum nema allir aðilar að stjórnarsamstarfinu séu sammála um það. í raun er stefnt að þvi að ekki verði grunnkaupshækkanir í ár. Verð- hækkunum á að halda í skefjum og draga úr þeim samkvæmt „niður- talningu”. Gerð verður framleiðniáætlun í iðnaði og fiskveiðistefna mörkuð til langs tíma. Niðurgreiðslur vaxa og verða fast hlutfall af búvöruverðinu. Bændum verður bætt tjón sem þeir hafa orðið fyrir vegna skorts á útflutningsbótum. Um gerð fjárlaga verður í aðal- atriðum farið eftir fjárlagafrumvarp- inu sem Tómas Árnason lagði fram síðastliðið haust. -HH. Sjátfstæðismenn í Rangárvaliasýslu: Styðja Eggert með Gunnari Eggert Pálsson, formaður Sjálf- stæðisfélags Rangæinga og Óli Már Aronson, formaður Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Rangár- vallasýslu, hafa komið þeirri athuga- sernd á framfæri við DBaðá fjölsótt- urn aðalfundi Sjálfstæðisfélags Rangæinga um helgina hafi vcrið könnuð afstaða fundarmanna til stuðnings Eggerts Haukdal við stjórnarmyndunartilraunir Gunnars Thoroddsen og hafi enginn fundar- manna andmælt aðgerðum Eggerts. Árétting þessi er vegna frétta í Morgunblaðinu og Vísi i gær, sem túlka ummæii Jóns Þorgilssonar á Hellu á þann veg að afstaða til stuðn- ings Eggerts við Gunnar hafi ekki veriö könnuðá fundinum. „Enginn stóð upp til að andmæla framkomnum stuðningi,” sagði ÓIi Már í viðtali við DB i morgun. Athugasemd þessi er gerð með vitund ogsamþykki Jóns Þorgilssonar. -GS. Fordæming á Gunnari Thor felld í stjóm Varðar Tillaga um fordæmingu á stjórnar- myndunartillögum Gunnars Thor- oddsen náði ekki fram að ganga á stjórnarfundi hjá Landsmálafélaginu Verði á mánudaginn. Var hún dregin til baka áður en til atkvæöagreiðslu kom þar sem tillögumanni mun hafa þótt sýnt að hún mundi ekki hljóta samþykki. Þórir Lárusson rafverktaki vara- formaður Varðar, sem stjórnaði fundinum á mánudaginn, staðfesti ofangreinda fregn. Hann tók fram, að um reglubundinn stjórnarfund hefði verið að ræða en þeir væru haldnir hálfsmánaðarlega hjá Verði. Aðspurður sagði Þórir að fimmtán stjórnarmenn hefðu verið á fundin- um. -ÓG. Miðstjómin styður Geir „Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins lýsir fyllsta stuðningi við þingflokk og formann Sjálfstæðisflokksins i undangengnum stjórnarmyndunar- viðræðum. Jafnframt harmar miðstjómin vinnubrögð Gunnars Thoroddsen og skorar á alla þingmenn Sjálfstæðis- flokksins að hlila niðurstöðum meirihlutans.” Fyrri málsgrein ályktunarinnar hér að ofan var samþykkt santhljóða i miðstjórn Sjálfstæðisflokksins í gær. Viðafgreiðslu síðari hlutans sátu hins vegar þrír miðstjórnarmenn hjá. Tuttugu og níu manns víðs vegar að af landinu sitja í miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins. Á fundinum i gær voru tuttugu og tveir. Af þeim sjö sem ekki mættu voru þrir erlendis að sögn Sigurðar Hafstein, fram- kvæmdastjóra flokksins. -ÓG. Rúðubrot í Breið- holti kosta milljónatugi Gífurlega mikið hefur verið um rúðubrot i Breiðholtshverfi og það svo að nánast getur kallazt faraldur. Eru það aðallega skólarnir og bamaheimili sem verða fyrir ásókn rúðubrjót- anna. Tjónið sem valdið hefur verið i vetur nemur í beinum gler- og isetningarkostnaði tugmilljónum króna. Til viðbótar kemur svo hreinsunarkostnaður á grjóti á gólfum inni og ýmsar tafir sem skemmdarverk- in valda. Á myndinni er Gísli trésmiður hjá Reykjavikurborg að setja fyrir annan gluggann sem brotinn var i barnaheim- ili við Völvufell á mánudagskvöldið. Á innsettu myndinni sést Guðrún Helga- dóttir barnaheimiliskona aðstoða Gísla, en hún segir rúðubrotin „algera plágu”. -A.St./DB-mynd R.Th.Sig. Marglr kallaöir til ráðherradóms Ekki var í morgun búið að skipta ráðuneytum milli flokka í væntan- legri ríkisstjórn, en nokkrir forystu- menn voru taldir nokkuð vissir um ráðherradóm. Það fer þó nokkuð eftir því hvaða ráðuneyti koma i hlut hvers aðila stjórnarinnar, hverjir lenda i ráðherrastöðu. Af Alþýðubandalagsmönnum var talið sennilegast, að ráðherrar yrðu hinir sömu og áður, Hjörleifur Gutt- ormsson, Ragnar Arnalds og Svavar Gestsson. Þó var talið koma til greina að Svavar viki en Geir Gunnarsson yrði fjármálaráðherra, ef flokkurinn fengi það ráðuneyti. Einnig var Ólafur Ragnar Grímsson nefndur. Af framsóknarmönnumvoru Stein grimur Hermannsson og Tómas Árnason taldir öruggir með ráðherra- dóm. Ingvar Gíslason er talinn sækj- ast eftir ráðherraembæt.ti en einnig koma til greina Guðmundur G. Þórarinsson og Jón Helgason. Mest var óvissa um Gunnarsmenn. Til greina kemur að bæði Pálmi Jónsson og Friðjón Þórðarson yrðu ráðherrar, ef þeir vilja. Pálmi yrði þá helzt landbúnaðarráðherra og Friðjón annaðhvort dóms- eða menntamálaráðherra. Vilji þeir ekki ráðherrastöður yrði Eggert Haukdal ráðherra en yrði sennilega annars stjórnandi í Framkvæmdastofnun. Eins og DB skýrði frá í gær er rætt um að ráðherrar gætu orðið 10, ef Gunnar leggur aðeins til sjálfan sig og Eggert. Gæti þá Framsókn fengið f jóra og Alþýðubandalagið mundi þá krefjast fjögurra líka. -HH. frjálst,óháð datfblað MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980. Pálmi og Fríðjón skoða málefnasamninginn: „Annaðhvort að hrökkva eða stökkva” — segir Fríðjón „Við ætlum að líta á þennan margumtalaða málefnasamning upp úr hádeginu eða síðegis í dag. Annað er ekki að segja um málið í bili,” sagði Friðjón Þórðarson alþingismaður i morgun. v Þegar hann var spurður um það hverjir færu með honum að skoða mál- efnasamning rikisstjórnar dr. Gunnars Thoroddsen, svaraði þingmaðurinn: „Pálmi Jónsson ogef til vill fleiri.” „Við höfum marglýst yfir að við myndum kanna málið og taka ákvörðun að því búnu. Nú er annað hvort að hrökkva eða stökkva.” -ARH. Reykjavíkurskákmótið: Rússar svara ekki ennþá Ekkert svar hefur enn borizt frá sovézku skákmönnunum Vasjúkov og Tjeskovski um hvort þeir þiggi boð Skáksambands íslands um að tefla á Reykjavíkurmótinu ískák sem hefst nú i lok mánaðarins. Fresturinn hefur margoft verið frani- lengdur fyrir Rússana en nú mun ákveðið að ef svar hefur ekki borizt annað kvöld þá verði þeir af mótinu. Ólafur H. Ólafsson, sem á sæti í móts stjórninni, sagði í samtali við Dag- blaðið í ntorgun að Skáksambandið hefði í bakhöndinni að bjóða brezka stórmeistaranum Keeneog tékkneskum meistara að tefla á mótinu ef ekki yrði af þátttöku Rússanna. -GAJ Skákþing Reykjavíkur. Margeir sigraði Skák Björns Þorsteinssonar og Elvars Guðmundssonar lauk í gær- kvöldi með jafntefli eftir 85 leiki. Þessi úrslit þýða það, að Margeir Pétursson hefur tryggt sér sigur á mótinu þótt einni umferð sé enn ólokið. Margeir hefur hlotið 9 vinninga eftir 10 um- ferðir. Enginn keppinauta hans getur náð meira en 8,5 vinningum. Mætti- Margeir þvi tapa síðustu skákinni án þess að missa af sigurverðaununum. Staða efstu manna er þessi: 1. Mar- geir, 9 v., 2.—7. Björn Þorsteinsson, Sævar Bjamason, Elvar Guðmunds- son, Jóhann Hjartarson, Jónas P. Erlingsson og Leifur Jósteinsson, allir með 7,5 vinninga. Siðasta umferð mótsins verður tefld í kvöld. - GAJ LUKKUDAGAR: 6. FEBRÚAR: 7088 Sharp vasatölva CL 8145. Vinningshafar hringi í síma 33622.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.