Dagblaðið - 02.07.1980, Qupperneq 12
Iþróttir
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1980.
Sigurður sigr-
aði Hannes
Sigurður Pétursson, GR, sigraði i meistaraflokki
karla á hátíðamóti fst i golfi sem fram fór á Grafar-
holtsveili i tengslum við iþróttahátiðina. Lék
SÍeurður á 147 höggum. Næstir honum komu
Hannes Eyvindsson, GR og Ragnar Ólafsson, GR á
150 höggum. Miklar endurbætur hafa farið fram á
Grafarholtsvellinum og er hann lengri en áður.
Úrslit á mótinu uröu annars sem hér segir:
Meistaraflokkur karla högg
Sigurður Pétursson, GR 147
Hannes Eyvindsson, GR 150
Ragnar Ólafsson, GR 150
Meistaraflokkur kvenna högg
Steinunn Sæmundsdóttir, GR 172
ÁsgerðurSverrisdóttir, NK 181
Þórdís Geirsdóttir, GK 188
I. flokkur kvenna högg
Guðrún Eiríksdóttir, GR 203
Aðalheiður Jörgensdóttir 233
Drengjaflokkur högg
ívar Hauksson, GR. 158
Guðmundur Arason, GR 158
Jón Örn Sigurðsson, GR 164
Sigurbjörn Sigfússon, GK 164
Úlfar Jónsson, GK 164
Unglingaflokkur högg
Frans P. Sigurðsson, GR 168
Kormákur Geirharðsson, GR 194
Öldungaflokkur
Hjalti Þórarinsson, GR 167
Ólafur Ág. Ólafsson, GR 168
Gunnar Ófeigsson, GR 171
Stúdentar sigruðu
Stúdentar sigruðu í hraðmótinu í blaki sem
haldið var í íþróttahúsi Hagaskóla sem liður í
íþróttahátið ISI. Leikin var ein hrina upp í 21 og
urðu úrslit sem hér segir:
Fram-HK 21—18
ÍS-Þróttur 21—14
HK-ÍS 11—21
UMFL-Fram 21—14
HK-UMFL 9—21
Fram-Þróttur 4—21
UMFL-ÍS 8—21
UMFL-Þróttur 16—21
Þróttur-HK 21—16
ÍS-Fram 21—1
is 4 sigrar
Þróttur 3 sigrar
UMFL 2sigrar
íþróttamót
þroskaheftra
Úrslit á íþróttamóti þroskaheftra um helgina
urðu þannig:
Boltakast
1. Ragnar Ragnarsson, Björk 41.2
2. Margeir Vernharðsson, Eik 37,41
3. Steingrímur Friðfinnsson, Björk 35,2
Boltakast kvenna
1. Eygló E. Hreinsdóttir, Björk 19,2!
2. Hanný Harðardóttir, Hvöt 17,7
3. Sigurbjörg Hákonardóttir, Eik 15,95
60 metra hlaup
1. Elva Björk Jónsdóttir, Hvöt 10,9
2. Ingibjörg Ármannsdóttir, Björk 11,4
3. Anna Ragnarsdóttir, Eik 11,8
Hástökk karla
1. Reynir Ingvar, Hvöt 1,15
2. Pétur Pétursson, Eik 1,10
3. Ólafur Benediktsson, Hvöt 1,00
Hástökk kvenna
1. Anna Ragnarsdóttir, Eik 1,00
2. Aðalheiður Indriðad., Hvöt 1,00
3. Kristín Magnúsdóttir, Björk 0,90
Elfa Björk Jónsdóttir, Hvöt 0,90
I.angstökk karla, án atrennu
1. Reynir Ingvars, Hvöt 2,20
2. Úlfar Ragnarsson, Eik 2,17
3. Pétur Pétursson, Eik 2,02
Langstökk kvenna, án atrennu
1. Anna Ragnarsdóttir, Eik 1,95
2. Ingibjörg Árnadóttir, Björk 1,88
3. Elfa Björk Jónsdóttir, Hvöt 1,68
60 metra hlaup karla
1. Kristján M. Ólafsson, Hvöt 9,5Í
2. Ragnar Ragnarsson, Björk 9,7;
3. Reynir Ingvarson, Hvöt 9,9'
TOTO-keppninni
TOTO-keppnin í knattspyrnu — getraunaleikir
sumarsins víða i Evrópu — er nú að hefjast. Stand-
ard Liege, liðið, sem Ásgeir Sigurvinsson leikur
með, tekur að venju þátt i keppninni og er i riðli með
RODA Kerkrade, Hollandi, Fortuna Dússeldorf,
Vestur-Þýzkalandi, og Xamax, Sviss. Þessi lið eru i
I.riðli.
Fá fræg lið taka þátt i þessari keppni en þau eru
alls 32 í átta riðlum. Nokkur lið frá Norðurlöndum
leika eins og Kastrup, Danmörku, KB, Danmörku,
Esbjerg, Danmörku, Halmstad, Sviþjóð, Malmö
FF, Svíþjóð, og IFK Gautaborg, liðið, sem Þor-
steinn Ólafsson leikur með. Það er f 8. riðii ásamt
MS Dimitrov, Búlgariu, B1903, Danmörku, og Salz-
burg, Austurríki.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
-J3
I
Formaður HSI greiddi tvær og
hálfa milljón úr eigin vasa
—svo landsliðið kæmist í keppnisferð. Miklir fjárhagserfiðleikar HSÍ, sem nú hefur stefnt
Ríkisútvarpinu vegna skulda þess við sambandið
Breiðablik sækir að marki Þróttar í gærkvöldi. Lengst tii vinstri er Helgi Bentsson I fyrir grófan leik. Hann var þó ekki einn um slikt því Þróttarar tóku hann engum vett-
sem vakti athygli i leiknum, ekki þó fyrir góða knattspyrnu eins og oftast áður heldur | lingatökum f leiknum. DB-mynd Bjarnleifur.
Slagsmál í Laugardalnum
— þegar Breiðablik sigraði Þrótt með 2-1 ~ Ágústi Haukssyni vikið af leikvelli
Tvö mörk Siguröar Grétarssonar á
lokaminútum bikarleiks Þróttar og
Breiðabliks i gærkvöldi tryggðu
Breiðabliki 2—1 sigur í leik, sem eink-
um verður minnzt fyrir grófan leik
beggja liða. Undir lok leiksins var svo
komiö að minnstu munaði að leikurinn
leystist upp í allsherjar slagsmál.
Ágústi Haukssyni, Þróttara, var þá
vikiö af leikvelli fyrir að berja á Helga
Bentssyni úr Breiðablik. Brottvikning
Ágústs af leikvelli var réttlætanleg en
Helgi átti tvímælalaust að fá að fljóta
með því hann hafði sýnt ákaflega
grófan leik og sparkaöi hraustlega í
Agúst í slagsmálum þeirra. Dómari
leiksins Arnþór Óskarsson var allt of
spar á gulu spjöldin og varð leikurinn
til litillar ánægju fyrir þá sárafáu
áhorfendur sem mættu á völlinn i leið-
indaveðri i gærkvöldi. Vonandi er þetta
ekki það sem koma skal.
Þróttarar virkuðu lengst af sterkari
aðilinn þegar þeir tóku forystuna á
lokamínútu fyrri hálfleiks. Harry Hill
einlék þá upp allan hægri kantinn,
komst upp að endamörkum og sendi
vel fyrir markið. Þar var fyrir Sigurkarl
Aðalsteinsson sem kastaði sér fram og
skoraði gott skallamark, 1—0. Framan
af síðari hálfleik benti ekkert tii að
Breiðablik jafnaði þvi Þróttarar voru
óilu ágengari og áttu hættulegri mark-
Coe og Ovett settu
heimsmet á Bislett
Hinir frábæru brezku millivega-
lengdarhlauparar Sebastian Coe og
Steve Ovett settu báðir heimsmet á
frjálsiþróttamóti á Bislet-leikvanginum
í Osló i gær. Margir af fremstu frjáls-
fþróttamönnum heimsins tóku þátt f
mótinu. Coe, sem átti fyrir heimsmetin
I 800 m, 1500 m og mfluhlaupi, bætti
enn einu metinu við þegar hann sigraði
i 1000 m hlaupi á nýju heimsmeti,
2:13,4 min. Hins vegar varð hann að
sjá á bak heimsmeti sfnu i míluhlaupi
til Steve Ovett, sem hljóp miluna f gær
á 3:48,8 mín., sem er nýtt heimsmet.
Coe hljóp fyrstu 400 m á 49,4 sek, oa
fyrstu 800 m á frábærum tíma, 1:44,4
mín., en varð síðan að hægja dálítið l
Steve Ovett.
sér á lokasprettinum. Engu að siður var
heimsmetið í höfn. Millitímar Ovetts
voru 1:52,8 mín. í 800 m, 2:24,8 í 1000
m og 3:33,1 í 1500 m. Einvígis þessara
tveggja beztu millivegalengdarhlaupara
heimsins er nú beðið með mikilli eftir-
væntingu en þeir leiða væntanlega
saman hesta sína á ólympiuleikunum í
Moskvu.
Af öðrum úrslitum á þessu sterka
frjálsíþróttamóti má nefna að Banda-
rikjamaðurinn Mac Wilkins sigraði í
kringlukasti með 67,06 m og í 2. sæti
varð Knut Hjeltnes, Noregi, með 66,80
m. Í 110 m grindahlaupi sigraði
Renaldo Nehemiah, Bandaríkjunum, á
13.34 sek. Landi hans Rod Milburn
varð í 2. sæti á 13,62 sek. Bretinn Keith
Connor sigraði i þrístökki, stökk 16,39
m. Þrír Bandaríkjamenn hlupu undir
50 sek. í 400 m grindahlaupi. Ed Moses
sigraði á 49,10 sek. Annar varð Andre
Phillips á 49,80 sek. og James King
þriðji á 49,99 sek.
Góðkunningi ístendinga frá Reykja-
víkurleikunum, Kanadamaðurinn
Bruno Pauletto, sigraði með yfirburð-
um í kúluvarpi, kastaði 20,24 m. Annar
varð Knut Hjeltnes með 19,17 m. Bret-
inn Allan Wells sigraði í 200 m hlaupi á
20.35 sek. Annar varð Don Quarrie á
20,48 sek.
Heimsmethafinn Ferenc Paragi frá
Ungverjalandi sigraði í spjótkasti,
kastaði 90,22 m. Annar varð David
Ottley frá Bretlandi með 82,72 m. E1
Kashief frá Súdan sigraði í 400 m
hlaupi á 45,90 sek. Annar varð Banda-
ríkjamaðurinn Bret Hogan á 46,25 sek.
f stangarstökki urðu Bandaríkjamenn í
þremur efstu sætunum. Sigurvegari
varð Tery Porter sem stökk 5,45 m. í
sleggjukasti sigraði V-Þjóðverjinn
Karl-Hans Riehm með 72,12 m kasti.
Ernest Obeng frá Ghana sigraði i 100 m
hlaupi á 10,47 sek. Annar varð
Cameron Sharp frá Bretlandi á 10,54
sek. og þriðji varð annar Breti, Drew
McMaster á 10,55 sek. Í 5 km hlaupi
sigraði John Tracy frá írlandi á 13:38,2
mín. Annar varð Toshihiko frá Japan á
13:30,9 mín.
Ísiendingurinn Oddur Sigurðsson,
KA, átti að keppa i 200 m hlaupi. Ekki
var getið um árangur hans í fréttaskeyt-
um og DB tókst ekki að ná símasam-
bandi við hann í morgun.
Sebastian Coe.
tækifæri. Það var ekki fyrr en
nokkrum mínútum fyrir leikslok að
Sigurður Grétarsson jafnaði eftir að
hafa fengið sendingu frá Hákoni
Gunnarssyni. Áhorfendur voru þvi
farnir að óttast framlengingu í kuldan-
um en til þess kom ekki. Ágústi Hauks-
syni var vikið af leikvelli eins og áður
segir og Blikarnir nýttu sér liðsmuninn.
Sigurður Grétarsson gerði út um leik-
inn með þrumuskoti frá vítateigslínu úr
óbeinni aukaspyrnu, glæsilegt mark,
2—1. Ekki er ástæða til að hrósa
einstökum leikmönnum fyrir þennan
slagsmálaleik, sem var báðum liðunum
til háborinnar skammar.
-GAJ.
JónDiðriks-
son jafnaði
met sitt
Jón Diðriksson, hlauparinn snjalli úr
UMSB, jafnaði um helgina Íslandsmet
sitt í 1500 m hlaupi á frjálsiþróttamóti i
V-Þýzkalandi. Jón hljóp á 3:42,7 mín.
og sigraði með yfirburðum f hlaupinu.
Annar i hlaupinu varð hiaupari að
nafni Ingo Falck og hljóp hann á 3:47,0
min. en hann mun eiga bezt um 3:41,0
min.
Borg enn á
sigurbraut
Sænski tenniskappinn Björn Borg
heldur áfram sigurgöngu sinni á tennis-
vellinum. Hann sló i gær met Ástraiíu-
mannsins Rod Laver þegar hann vann
sinn 32. sigur i röð i Wimbledon-
keppni. Það var Ungverjinn Balazs
Taroczy sem i gær mátti lúta i lægra
haldi fyrir Borg, 1—6,5—7 og 2—6.
Borg sem hefur sigrað i Wimbledon-
keppninni, þessari óopinberu heims-
meistarakeppni, síðastliðin fjögur ár er
nú kominn f úrslit 16 keppenda og
þykir að sjálfsögðu líklegastur til sigurs
þar.
Óvæntustu úrslitin f keppninni f gær
urðu þau, að Pólverjinn Wojtek Fibak
sigraði Vitas Gerulaitis frá Bandarikj-
unum. Gerulaitis var fyrir keppnina
talinn i hópi fjögurra hættulegustu
keppinauta Borg. Úrsiit i viðureign
Fibak og Gerulaitis urðu 3—6, 4—6,
6—3,6—3 og 8—6.
„Þegar íþróttaforystumennirnir eru
farnir að greiða milljónir úr eigin vasa,
þá er máliö orðið svo alvarlegt, að
æðsta iþróttaforystan verður að fara
að hugsa sinn gang mjög alvarlega,"
sagði Júlfus Hafstein, formaður HSÍ, á
blaðamannafundi sem stjórn sam-
bandsins boðaði til vegna keppnis-
ferðar landsliðsins til Danmerkur, Pól-
lands og A-Þýzkalands.
Július varð að greiða 2,5 milljónir úr
eigin vasa og tryggja aðrar 2,5 milljónir
svo að af utanlandsferð landsliðsins
gæti orðið. Slikur er fjárhagur HSÍ um
þessar mundir. Skuldir sambandsins
við Flugleiðir eru 14 milljónir og vegna
„Tel raunhæft að
reikna með tapi”
— segir Jóhann Ingi Gunnarsson
landsliðsþjálfari
„Það er yfirlýst markmið okkar, að .
ísland verði meðal 16 efstu þjóða í'
næstu heimsmeistarakeppni og til þess
verðum við að vera i einu af 6 efstu
sætunum i forkeppninni f Frakklandi
og ég er þess fuilviss, að við eigum
mjög góða möguleika á því ef við höld-
um þessari áætlun,” sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson, hinn ungi þjálfari
íslenzka handknattleikslandsliðsins á
blaðamannafundinum í gær.
íslenzka landsliðið hélt utan í
morgun og leikur i kvöld landsleik við
Dani. Síðan heldur Iiðið til A-Þýzka-
lands þar sem það leikur tvo landsleiki
og loks til Póllands þar sem einnig
verða leiknir tveir landsleikir. Þessir
landsleikir eru upphafið að 24 lands-
leikja áætlun fram að forkeppninni eða
B-heimsmeistarakeppninni, sem haldin
verður í Frakklandi 22. febrúar — 3.
marzá næsta ári.
„Það sem skiptir máli er að standa
sig í Frakklandi,” sagði Jóhann Ingi og
lagði áherzlu á að landsleikirnir fram
að þeim tíma yrðu eingöngu að
skoðast sem undirbúningur undir for-
keppnina á Frakklandi. ,,Ef við iítum
raunhæft á þessi mál, þá vinnum við
engan leik í þessari ferð. Við munum
þó gera okkar bezta en þessi ferð er
aðeins fyrsti undirbúningur okkar
undir keppnina i Frakklandi. Jóhann
benti á, að landslið Pólverja, A-Þjóð-
verja og Dana væru öll í hópi sex beztu
landsliða heimsins og væru auk þess öll
í toppæfingu nú vegna ólympíuleik-
anna í Moskvu.
„Það er mjög gott að fá þessa ferð
en ef við erum að hugsa um árangur þá
erurn við á bandvitlausum tima. Þetta
er hliðstætt því, að við lékum knatt-
spyrnulandsleiki við England, Belgíu
og Holland i janúarmánuði. Ég er ekki
að segja, að við ætlum að tapa öllum
landsleikjunum í vetur en við verðum
að skilja það, að það sem skiptir máli
er að standa sig á réttum tíma.”
-GAJ.
slæmrar fjárhagsstöðu Flugleiða gat
ekki orðið um frekari lánafyrirgreiðslu
fyrirtækisins tii HSÍ að ræða.
Það kom fram á blaðamannafundin-
um, að opinberir styrkir til HSÍ eru
VÍKINGAR UNNU
KAMEÐ3-0
Víkingar sigruðu KA i 16 ljða úrslit-
um i bikarkeppni KSÍ i gærkvöldi með
þremur mörkum gegn engu i mjög slök-
um leik. KA sótti heldur meira i fyrri
hálfleik en tókst ekki að skora og var
staðan i leikhléi 0—0. Fyrsta markið
kom á 52. minútu leiksins og gerði það
Lárus Guðmundsson eftir varnarmis-
tök hjá KA. Ómar Torfason skoraði
annað markið úr þvögu á 75. minútu
eftir að Aðalsteinn markvörður hafði
slegið knöttinn frá markinu. Siðasta
markið kom þegar ein mfnúta var til
leiksloka. Lárus Guðmundsson hafði
þá einleikið upp allan völl og átti aðeins
markvörðinn eftir þegar hann sendi
boltann til Heimis Karlssonar sem
skoraði af öryggi, 3—0.
- G.Sv.
Fimm bikarleikir víðs
vegar um land í kvöld
—Valur-Fram leika á Laugardalsvelli, FH-ÍA á Kaplakrikavelli,
ÍBV-KR í Vestmannaeyjum, ÍBK-Grótta í Keflavík og Víkingur,
Ólafsvík ogÞróttur, Neskaupstað, íÓlafsvík
Bikarmeistarar Fram fá erfiðan
keppinaut, Valsmenn, þegar þeir hefja
vörn sina i Bikarkeppni KSI í kvöld.
það má búast við hörkukeppni milli
þessara gömlu keppinauta á Laugar-
dalsvellinum. Ekkert verður gefið eftir.
Leikurinn hefst kl. 20.00. í leik liðanna
í 1. deild fyrr i sumar sigraði Fram 1—0
i frekar jöfnum leik — en erfitt er að
spá um hver úrslit verða i kvöld. Auk
þess verða fjórir aðrir leikir í bikar-
keppninni.
Akurnesingar, bikarmeistarar 1978,
leika við FH í Kaplakrika í Hafnar-
firði. Leikurinn hefst hálftíma fyrr en
aðrir leikir í umferðinni eða kl. 19.30.
Það er gert vegna breytinga á ferðum
Akraborgarinnar. Skagamenn eru
sigurstranglegri i þessari viðureign við
FH-inga, þrátt fyrir þá staðreynd, að
FH sigraði þá í 1. deildinni uppi á
Akranesi fyrr í sumar. Það eru óvænt-
ustu úrslitin í I. deild hingað til og
reyndar eini sigur FH-inga í deildinni.
Skagamenn munu því alls ekki vanmeta
mótherja sina í bikarleiknum í Kapla-
krika í kvöld. FH getur leikið mjög
netta knattspyrnu en heldur fátt um
mörk leikmanna liðsins í leikjunum
nema gegn Skagamönnum. Þá skoraði
FH-liðið þrjú mörk.
Landsliðsmaðdrinn Trausti Haralds-
son, einn bezti maður bikarmeistara
Fram sem i kvöld mæta Valsmönnum.
arar Vestmannaeyja baráttuglöðum
KR-ingum. Leikurinn hefst kl. 20.00.
Það getur orðið mikill baráttuleikur.
Liðin hafa ekki mætzt í 1. deildinni —
leika í níundu og síðustu umferðinni á
laugardalsvelli 10. júlí.
Seltjarnarnesliðið Grótta, sem leikur
i 3. deild, mætir Keflvíkingum. Grótta
átti heimaleikinn en ekki er um völl að
ræða á Seltjarnarnesi — bikarleikur
Vals og Fram í Reykjavík — svo
Gróttumenn hafa gripið til þess ráðs að
leika við ÍBK i Keflavík. I.eikurinn
hefst kl. 20.00 og Keflvíkingar sigur-
stranglegri.
Þá leika Vikingur, Ólafsvík, úr 3.
deild við 2. deildarlið Þróttar frá Nes-
kaupstað. Leikurinn verður í Ólafsvik
og hefst kl. 20.00. Þar getur orðið um
tvísýna og spennandi viðureign að
ræða. Ólafsvikingar hafa oft verið
erfiðir heim að sækja. Tveir leikir i
Bikarkeppni KSÍ voru háðir í gær og er
skýrt frá úrslitum þeirra á öðrum stað i
opnunni. Þá er einn leikur eftir í þess-
ari umferð, sem liðin úr 1. deild hefja
keppni i. Það er leikur Árbæjarliðsins
Fylkis og KS, Knattspyrnufélags Siglu-
fjarðar. Sá leikur verður háður 8. júli á
Laugardalsvelli.
- hsim.
aðeins 4,5 milljónir (útbreiðslu-
styrkur). „Við gefumst þó ekki upp þó
að útlitið sé dökkt í augnablikinu,”
sagði Júlíus, „en vissulega er það
furðuleg staða, að á sama tíma og for-
ystumenn íþróttahreyfingarinnar eru
að greiða slíkar peningaupphæðir úr
eigin vasa, þá höfum við orðið að biðja
lögmann HSÍ, Jón Magnússon hdl., að
stefna Rikisútvarpinu fyrir að sýna í
sjónvarpi handknattleikslandsleiki á
iiðnum vetri án heimildar.
Við munum ekki reyna frekari sættir
í því máli. Við höfum rétt fram sátta-
ihönd, sem ekki hefur verið tekið í, og
Ríkisútvarpinu verður því stefnt og
verður þaö væntaniega þingfest á
næstu dögum. Krafa okkar hljóðar
úpp á 3 milljónir 110 þúsund krónuru
Það er ekki gert með gleði að fara þessa
leið og við erum búnir að bjóða allar
mögulegar sættir, þ.á m. að setja
gerðardóm í þetta mál. Við munum því
ekki reyna frekari sættir,” sagði Júlíus
Hafstein.
-GAJ
Þrír nýliðar
— í handknattleikslandsliöinu sem
héltutanímorgun
Þrír nýliðar eru i islenzka landsliðinu
sem hélt utan í morgun til keppni við
þrjár af beztu handknattlelksþjóðum
heimsins, Dani, Pólverja og A-Þjóð-
verja. Nýliðarnir eru Aifreð Gíslason,
Kristján Arason og Konráð Jónsson.
Auk þeirra eru í landsliðshópnum
markverðirnir Jens G. Einarsson,
Gunnar Einarsson og Kristján Sig-
mundsson. Aðrir leikmenn eru Bjarni
Guðmundsson, Ólafur Jónsson, Þor-
björn Jensson, Steindór Gunnarsson,
Þorbergur Aðalsteinsson, Steinar
Birgisson, Guðmundur Magnússon og
Stefán Halldórsson.
Í fararstjórn eru Árni Árnason og
Rósmundur Jónsson frá HSÍ og þjálf-
ararnir Jóhann Ingi Gunnarsson og
Jóhannes Sæmundsson.
Það kom fram á blaðamannafundin-
um í gær, að ýmsir þeirra sem hefðu
verið sjálfsagðir eða komið til álita i
landsliðið gátu ekkl teklð þátt i þessari
keppnisferð. í þeim hópi má nefna leik-
menn eins og Þorbjörn Guðmundsson,
Val, Gunnar Einarsson, FH, og Axel
Axelsson, Dankersen, svo einhverjir
séu nefndir.
-GAJ
TÓNABÍÓ-
Simi31182
ÓSKARSVERÐLAUNAMYNDIN:
HEIMKOMAIM
(Coming Home)
Coming Home
She hurt when he hurt.
She changed as he changed.
She fell in love with him as he fell in love with her.
But she was still another man’s reason
for coming home.
aJEROME HELLMAN ptoductKx,
AHALASHBYfiim
JaneFonda
JonVoight BruceDern
"Coming Home”
Screenpiay by WALDO SALTand ROBERT C. JONES Storyby NANCY DOWD
Diredaoí Ptiotography HASKELL WEXLER Associated Producer BRUCE GILBERT
Produœdby JEROME HELLMAN Directedby HAL ASHBY
iRl-asss-i Tí«aí«ai
Heimkoman hlaut óskarsverðlaun fyrir: Bezta leikara: John Voight.
Beztu leikkonu: Jane Fonda. Bezta frumsamið handrit.
Tónlist flutt af Rolling Stones, Simon and Garfunkel o.fl.
Mynd sem lýsir lífi fórnarlamba Víetnamstríðsins eftir heimkomuna til
Bandaríkjanna. Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5,7.30 og 10.