Dagblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 05.07.1980, Blaðsíða 1
tríálst, úháð dagmað 6. ÁRG. - LAUGARDAGUR 5. JÍJLÍ 1980 - 150. TBL. RITSTJÓRN SfÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. •r margt tll liata lagt — hann var af- bragða hQóðfasraloikaH é érum éóur, hefur •atfð é þingi, er ékafur tportsiglingamaður og ætlar nú að ftjúga mað tjórattsmenn um alt land é eigín fkigvél. OB-mynd Bj.Bj. FinnurTorfi f lýgur yf ir rallbátunum Sjórall DB, Snarfara og FR1980 hefst í Rauðarárvík kl. 14: FTMM ÞEYSA AFSTAÐ í SJÓRALUÐ í DAG — Gustur, Lára 3, Gáski, Spörri og Inga sigla hrínginn á næstu átta dögum Klukkan tvö i dag hleypir Hannes Hafstein skoti úr byssu á Rauðarár- vikinni í Reykjavík og það skot markar upphaf 3. sjóralls DB, Snar- fara og FR. Þá þeysast væntanlega fimm bátar af stað í hringferðina um- hverfis ísland. Leiðin er farin i sjö áföngum en gefinn er heill fridagur á Akureyri. Bálarnir sem keppa eru þessir: 02 Gustur frá ísafirði. Eigandinn, Daði Hinriksson, verður um borð ásamt Einari Val Kristjánssyni, reyndum siglara frá ísafirði. Bátur- inn er 22 feta „Flugfiskur” með um 250 hestafla Chevroletvél, — sami bátur og Bjarni Sveinsson og Ólafur Skagvik sigruðu á í rallinu i fyrra. 03 Lára III. Eigendur hjónin Bjarni Björgvinsson og Lára Magnúsdóttir á Eskifirði. Báturinn er 21 fets langur af Fletcher-gerð með 250 hestafla Chrysler Super Bee vél. Hjónin sigldu hringinn í rallinu i hittifyrra en urðu að hætta keppni í Eyjum i fyrra. 04 Gáski frá Hafnarfirði sem Reginn Grímsson i Mótun á. Áhöfnin er skipuð þeim Sigfúsi Sveinssyni og Kristjáni Magnússyni. Báturinn er 23 feta langur með 1 145 hestafla dísil- vél, Mer Cruiser. Þessi bátur er full- innréttaður, nánast fljótandi sumar- bústaður. 05 Spörri frá Grundarfirði. Eig- andinn, Magnús Soffaniasson, 19 ára, siglir ásamt Þresti Líndal. Bátur- inn er „Flugfiskur”, 18 feta Iangur með 175 hestafla Mariner utanborðs- vél. 06 Inga, splunkunýr „Flug- fiskur”. Eigandi er annar meistar- anna frá i fyrra, Bjarni Sveinsson frá Vestmannaeyjum. Hann og hinn þaulreyndi siglingamaður, Ólafur Skagvik - félagi hans i fyrra líka — ætla að verja titil sinn. í bátnum er 290 hestafla Volvo Penta vél. Á blaðsiðu 5 er yfirlit um áfanga sjórallsleiðarinnar og ýmislegt fleira um sjórall ’80 og fyrri röll. Það verða án efa margir sem horfa á eftir bálun- um úr höfn í dag. - A.St. Hjónin L6m Magnúsdóttir og Bjarni Björgvinsson eiga sérstæóan þátt i sjóralls- sögunni. Þau hafa oftast fyrst allra tilkynnt þátttöku og eru þau einu sem verið hafa með I öllum röllunum þremur. Fyrst sigldu þau á minnsta hátnum knúðum utan- horðsvél kringum landið og voru þá þau einu sem ekki þurftu að horfast i augu við vélarbilun eða önnur vandræði. t fyrra reyndist Lára II nokkuð vanhúin vélarlega Leiknisstrákarnir í 5. flokki standa sig vel: 37 mörkgegn 2 íB-ríðli 5. flokks — sjá íþróttir á bls. 13 séð og varð að hætta keppni I Vestmannaeyjum. Nú mæta þau hjónin til keppni á Láru III, sama hát og Gunnar Gunnarsson og Ásgeir Ásgeirsson sigldu I keppninni ifyrra. Báturinn var sjósettur I gær og i Sundahöfn voru þessar myndir teknar af hátnum á ferð og hinum glaðlegu siglingahjónum veifandi til fjöldans. DB-myndir: Sig. Þorri. Broddgaltarafbrigðið vinsælt í Borgamesi — sjá skákþátt Jóns L. Ámasonar á bls. 2 Segja máað „leynigestur” Sjóralls '80 komi fram á sviðið i dag. Það er fltigmaðurinn sem flýgur með Ásgeir l.ong kvikmyndatökumann scm fesla mun Sjórall ’80 á kvikmyndafilmu sem siðar verður sýnd bæði hér og er- lendis. „l eynigesturinn” cr I innur Torfi Stelansson fyrrum alþingis- maður, einkaflugmaður og áhuga- maður nm siglingasport. Hann mtin sjá tim að Ásgeir geti myndað sjó- rallskappana á öllum þeim stöðunt sem áhugaverðastir eru. Finnur Torfi flýgur sinni einkavél scm cr af gerðinni Cessna Skyhawk 172. mest seldu einkallugvél heims. Vélin ber3 farþcgaauk flugmanns. Finntir Torfi er rcyndur Hug- maður. Hann flaug vélinni m.a. heim til íslands eftir að hún var keypt. Hann hefur cinkafltigmanns- próf og blindflugsréttindi og á nálega 300 flugtima að baki. -A.St. TAKIÐ ÞATTIKEPPNINNIUM SUMARMYND DB — sjá nánar á bls. 14 og baksíðu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.